Morgunblaðið - 26.02.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984
75
Skóli fyrir
vínsmakkara
Fyrir tíu árum var stofnaður í París fyrsti skólinn
fyrir „smakkara“ til að meta gæði vína. Það er
Steven Spurrier, sem á heiðurinn af stofnun skól-
ans og er aðsókn svo mikil að færri komast að en
vilja.
Nokkrar af víntegundunum sem boðið er upp á í verslun Stevens.
Tveimur árum áður en Steven
stofnaði skólann, opnaði hann
litla vínbúð í París, sem fljótlega
gat sér góðan orðstír og varð
vinsæl af borgarbúum. Þar hefur
Steven sinn einkavínkjallara sem
nefnist „Caves de la Madeleine".
í búðinni selur hann víntegundir
á viðráðanlegu verði, og getur
kaupandinn verið nokkuð viss
með að hjá Steven kaupir hann
ekki köttinn í sekknum, heldur
úrvals rauðvín í flösku. Fyrir þá
sem vilja eitthvað sérstaklega
gott hefur hann á boðstólum
gæðavín á borð við „Chateau
Margaux 1979“, á 330 franka,
sem er ekki lítið fyrir eina rauð-
vínsflösku, hvað þá fyrsta flokks
koníak „Grande Champagne" frá
Raymond Ragnaud Heritage
(45%), en flaskan af því kostar
þúsund franka.
Smakkskólinn er við hliðina á
vínbúðinni og er opinn alla daga
vikunnar nema sunnudaga. Fólk
sem lýkur námi í skóla Sperrier
á yfirleitt auðvelt með að fá
vinnu hjá stórum vínframleið-
endum. Skólinn býður einnig upp
á kennslu fyrir fólk, sem vill læra
meðhöndlun víns í matargerð,
eða bara sjálfum sér til skemmt-
unar. Skólinn býður einnig upp á
hópnámskeið og einkatíma og nú
er í ráði að færa út kvíarnar og
opna skóla í New York. Steven
sagði, að yfir vínsmökkun hefði
alltaf hvílt mikil leynd og hefði
listin verið til skamms tíma lok-
uð nema þröngum hópi manna.
Með tilkomu skólans hefði þetta
breyst og nú gætu allir, sem
áhuga hafa á að kynna sér leynd-
ardóma vínsins, fengið aðgang að
fræðslu um þau mál.
(Frá Önnu Nissels í París)
Skólinn og vínbúðin.
Félagsfundur
blaðamanna
ALMENNUR félagsfundur Blaða-
raannafélags íslands verður haldinn
í hádeginu á morgun, mánudaginn
27. febrúar í húsnæði félagsins í
Síðumúla 23. Fundarefni: Samninga-
málin. Stjórn BÍ hvetur alla félaga
til að mæta og ræða alvarlega stöðu
í samningaviðræðunum.
Sovéskir stór-
meistarar í
MÍR-salnum
Stórmeistararnir sovésku Efím
Geller og Júrí Balashov tefla fjöltefli
í MÍR-salnum nk. mánudagskvöld
við alla þá sem koma með taflmenn
og skákborð með sér.
Stórmeistararnir, sem eru þáttak-
endur í Reykjavíkurmótinu, munu
einnig spjalla við viðstadda um
skákmál og svara fyrirspurnum.
Fjölteflið hefst kl. 20.30.
(Or fréttatilkynningu.)
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
á Philco W451 þvottavél.
Verð aðeins kr. 16.100.-
Staðgreitt
Við bjóðum nú Philco þvottavélarnará
stórlækkuðu verði.
Philco W 451 tekur 5 kg af þurrþvotti, hún hefur mjög stóran
þvottabelg og vindur með allt að 800 snúninga hraða á
mínútu. Hún tekur inn á sig bæði heitt ogkalt vatn og sparar
þannig verulega orku.
Þjónustan hjá Heimilistækjum er sú
traustasta í bænum og það hefur ekki lítið að segja við val á
þvottavél.
Vertu öruggur - veldu Philco.
Við erum sveigjanlegir í samningum.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
QOTT 7ÓLK