Morgunblaðið - 26.02.1984, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984
81
Fimmtugur:
Reynir Karlsson
íþróttafulltrúi
I dag, sunnudaginn 26. febrúar,
verður Reynir G. Karlsson,
íþróttafulltrúi ríkisins 50 ára. Ég
tel mér bæði ljúft og skylt að
minnast þessa, svo ríkan þátt á
Reynir G. Karlsson í starfi
íþróttasamtakanna.
Ungur að aldri hóf hann iðkun
íþrótta og helgaði sig að mestu
knattspyrnunni og náði þar svo
langt að komast í meistaraflokk
Knattspyrnufélagsins Fram og í
landslið fslendinga á árunum
1956—1957. En Reynir lét sér ekki
nægja að vera íþróttaiðkandi,
hann var íþróttaþiálfari meistara-
flokka Fram, Iþróttabandalags
Akureyrar, íþróttabandalags
Keflavíkur og landsliðs fslendinga
í knattspyrnu á árunum
1954—1971. Hann var í stjórn
Knattspyrnufélagsins Fram árin
1952—53 og 1962—63. Formaður
Ungmennafélagsins Breiðabliks í
Kópavogi var hann árið 1976—78.
Reynir tók íþróttakennarapróf ár-
ið 1956, en fór síðar til fram-
haldsnáms erlendis og þá í
fþróttakennaraskóiann í Köln.
Þaðan brautskráðist hann árið
1960.
Kunnugleiki Reynis af íþróttum
og menntun hefur orðið þess vald-
andi að á opinberum vettvangi
hafa hlaðist á hann ýmis störf
sem eigi verða tíunduð hér, en þó
getið þess, að framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs Reykjavíkur var
hann árin 1964—1971 og þegar
stofnað var embætti æskulýðs-
fulltrúa ríkisins árið 1971 var
Reynir skipaður í það. Því emb-
ætti gegndi hann til ársins 1981,
að hann var skipaður íþrótta-
fulltrúi ríkisins, en því starfi
gegnir hann nú.
Svo sem sjá má af ofanrituðu
hefur Reynir G. Karlsson komið
mjög við sögu íþrótta á íslandi,
bæði hvað snertir hin frjálsu
íþróttasamtök og hið opinbera.
Reynir hefur hlotið margs kon-
ar viðurkenningu fyrir störf sín,
m.a. var hann sæmdur gullmerki
ÍSf í tilefni 70 ára afmælis
íþróttasambands íslands árið
1982.
Ég sem línur þessar rita þakka
Reyni áralanga góða samvinnu og
LEIÐSLA sprakk er verið var að
dæla úr spænsku skipi við Áburð-
arverksmiðjuna í Gufunesi nýlega.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá vélstjóra í Áburð-
arverksmiðjunni var kallað á
færi honum og fjölskyldu hans
bestu árnaðaróskir í tilefni þess-
ara tímamóta. Vænti ég þess að
íþróttahreyfingin megi njóta
starfskrafta Reynis G. Karlssonar
um langa ókomna framtíð.
Sveinn Björnsson,
forseti ÍSÍ.
sjúkrabíl til öryggis, en ekki
reyndist þörf á sjúkraflutningi,
því skipverjar gátu gert við
leiðsluna án þess að slys yrðu á
mönnum. Skipið var með 1040
tonn af ammoníaki til Áburðar-
verksmiðjunnar.
Ammoníaksleiðsla
sprakk í spænsku skipi
Reiði í röðum þingmanna
vegna óeirðanna í Punjab
Nýjy Deihl, 25. rebrúar. AP.
SVEITUM varðliða var komið fyrir
utan allraheilagasta musteri síka í
óeirðahéraðinu Punjab á Indlandi í
dag eftir að yfirvöld höfðu hótað, að
gripið yrði til harðra aðgerða gegn
uppreisnarmönnum úr röðum síka
létu þeir ekki af aðgerðum sínum.
Þrátt fyrir þessar hótanir
stjórnvalda lét innanríkisráðherra
landsins, P.C. Sethi, ekki sjá sig á
þingfundi, sem sérstaklega var
haldinn vegna ástandsins f Punj-
ab-héraði. Fjarvera ráðherrans
olli mikilli reiði í röðum þing-
manna stjórnarandstöðunnar.
Gengu margir þeirra af fundi í
mótmælaskyni.
Fregnir bárust af því í morgun,
að einn óbreyttur borgari hefði
látið lífið í átökum, sem urðu í
Punjab í gær. Þar með er tala lát-
inna í þessu ófriðsama héraði
komin upp í 63 á undanförnum 11
dögum.
Indira Gandhi, forsætisráð-
herra landsins, hefur að undan-
förnu sætt æ harðari gagnrýni
vegna ástandsins í Punjab-héraði.
Hefur stjórnarandstæðingum sér í
lagi þótt forsætisráðherrann sýna
linkind í málinu.
Apple tölvukerfi
Námskeið þessi eru ætluð Apple notendum og öðrum þeim sem vilja
kynnast möguleikum Apple tölvunnar.
Námskeiðin eru að langmestu leyti í formi verklegra æfmga þar sem
farið er í helstu skipanir kerfanna og þær útskýrðar.
Apple—Writer
Apple-Writer er ritvinnslukerfi sem nota má við textavinnslu hvers-
konar. Með því getur notandinn slegið inn, leiðrétt, prentað út og geymt
skjöl á þægilegan og auðveldan hátt.
Leiðbeinandi: Ragna S. Guðjohnsen.
Tími: 5.-7. marskl. 13:30-17:30.
Quick—file
Quick-file er gagnasafnskerfi sem hentar vel fyrir listameðhöndlun
hverskonar. Með því getur notandinn skilgreint, slegið inn, leiðrétt og
prentað á margvíslegan hátt eigin gagnalista.
Leiðbeinandi: Ragna S. Guðjohnsen.
Tími: 8.-9. mars kl. 13:30-17:30.
VisiCalc
VisiCalc forritið olli byltingu á sínum tíma, sem fólst í því að notandinn
gat nú í fyrsta sinn búið til og unnið með sín reiknilíkön sjálfur án að-
stoðar sérfræðinga.
Leiðbeinandi: Friðrik Sigurðsson
Tími: 12.—13. marskl. 13:30—17:30.
Staður: Síðumúli 23, 3. hæð.
TILKYNNIÐ ÞATTTOKU
í SÍMA 82930
ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags ríkisstofnana styrkir
félaga sína á þetta námskeið og skal sækja um það til skrifstofu SFR.
STJÓRNUNARFÉIAG
ISLANDS !8»3
P/FCÖ/Hárkrumpan
Hárliðunarjárnið sem gefur hárin
hina nýtýskulegu og spennandi
krumpuáferð.
Verðkr. 1.195.-
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI.84670