Morgunblaðið - 23.11.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
5
Olíuverð þarf að
hækka um 40 tíl 50%
— eigi að jafna hallann á innkaupa-
jöfnunarreikningi á þremur mánuðum
segir Þórður Ásgeirsson, forstjóri OLÍS
„Innkaupareikningur olíu var neikvædur um 140 milljónir króna fyrir
gengisfellinguna, við hana hækkaði mínusinn upp í 190 milljónir og eykst
nú um allt að tveimur milljónum á dag, verði ekkert að gert. Þess vegna
verður skuld olíukaupenda við olíufélogin orðin nálægt 300 milljónum
króna um áramótin. Eigi að jafna þennan mínus upp á þremur mánuðum
þarf gasolía að hækka um 40% og svartolía um 50%,“ sagði Þórður
Asgeirsson, forstjóri OLÍS, meðal annars á aðalfundi LÍÚ á miðvikudag.
Miklar umræður urðu um er-
indi Þórðar og svör forstjóra
hinna olíufélaganna, Indriða
Pálssonar og Vilhjálms Jónsson-
ar, sem sátu fyrir á fundinum.
Einn útgerðarmanna, Adólf Guð-
mundsson á Seyðisfirði, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
yrði olíuverðshækkun á þessum
nótum, væri ekkert annað að
gera en að leggja skipunum.
Slíka hækkun réði enginn við.
Einnig ræddu fundarmenn um
hugsanlegan innflutning olíu út-
gerðar og spurðust fyrir um hug
forstjóranna við slíkum hug-
myndum. Var þeim fálega tekið.
í ræðu sinni sagði Þórður með-
al annars um skuldir olíufélag-
anna, að hugsanlegt væri, að
rökstyðja mætti að olíufélögin
hefðu með fjármögnun á undir-
verði á gasolíu og svartolíu og
með annarri lánastarfsemi til út-
gerðar og með konverteringu við-
skiptaskulda og með afslætti af
vöxtum, haldið lifinu í útger^ar-
fyrirtækjum, sem ekki væri hægt
að skapa rekstrargrundvöll og
ættu því að vera úr leik eða yfir-
tekin af bæjarfélagi eða Sam-
bandinu. Ef svo væri, yrði auð-
vitað OLÍS að bíta úr nálinni
með það eins og þeir útgerðar-
menn, sem þau örlög væru búin.
Þá sagði Þórður: „Næsta atriði,
sem ég vil nefna eru gasolíukaup,
sem olíufélögin standa að hvert
fyrir sig utan við gasolíukaup frá
Rússum og Portúgölum. Það hef-
ur vakið nokkra furðu fulltrúa
LÍÚ, að í þessum viðskiptum sé
enginn hvati til hagstæðra inn-
kaupa þar sem öllu sé jafnað
milli olíufélaganna þegar inn-
kaupajöfnunarreikningurinn er
gerður upp á milli þeirra í lok
hvers árs. Ég er sammála því, að
þarna verði að gera breytingar á
þannig að hvert félag fái notið
hagstæðra innkaupa og gjaldi þá
óhagstæðra jafnframt því, sem
ég tel að það gæti einnig horft til
lækkunar olíuverðs ef olíufélögin
fengju aukið svigrúm til frjálsra
gasolíukaupa með því að draga
nokkuð úr innkaupum frá Rúss-
um.
Ég tel að það ætti ekki að
stefna í hættu fisksölusamning-
um okkar við Rússa því við kaup-
um mun meira af þeim, en þeir af
okkur. Þvert á móti ætti slík að-
gerð að geta skapað pressu á þá
að kaupa enn meiri fisk af okkur
til þess að við ykjum aftur olíu-
kaupin.
Jafnframt vil ég segja það, að
öruggasta leiðin til að tryggja
neytendum hér lægsta mögulega
verð, sé sú að gefa verðlagningu
frjálsa og afnema innkaupajöfn-
unarreikning og verðjöfnunarsj-
óð. Ég held að samkeppnin milli
olíufélaganna sé í raun einasta
trygging neytenda fyrir því, að
ítrustu hagsýni sé gætt í hví-
vetna til að halda verðinu niðri.“
Áburðarverksmiðjan:
Hjálmar Finns-
son hættir sem
framkvæmdastjóri
HJÁLMAR Finnsson, sem verið hef-
ur framkvæmdastjóri Áburðarverk-
smiðju ríkisins í Gufunesi frá stofn-
un hennar árið 1952, verður 70 ára á
næsta ári og lætur af störfum á árinu
sem forstjóri.
Stjórn Áburðarverksmiðjunnar
hefur nú auglýst starf fram-
kvæmdastjóra laust til umsóknar
með umsóknarfresti til 1. febrúar
næstkomandi, en staðan á að veit-
ast ekki síðar en 1. júní 1985. I
auglýsingu um starfið er talið
æskilegt að umsækjendur hafi
hagfræði- eða viðskiptamenntun
og reynslu í stjórnun fyrirtækja.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Loðnubáturinn Albert GK 31 sigldi inn til Grindavíkur í gær með fullfermi.
Var þetta síðasta veiðiferð hans á loðnuvertíðinni þar sem hann hefur nú lokið
við að veiða loðnukvóta sinn.
Góð loðnuveiði:
Fimm búnir með kvótann
GÓÐ veiði var á loðnumiðunum fyrir austan land í fyrrinótt. Frá miðnætti til
klukkan 16 í gær höfðu 27 bátar tilkynnt afla til loðnunefndar, samtals 16.860
tonn. Fyrstu bátarnir luku við að veiða upp í kvóta sína og sigldu áleiðis til
Faxaflóahafna með síðustu farmana. Fyrstur til að fylla kvóta sinn varð Albert
GK og landaði hann í heimahöfn sinni,
Aðrir sem lokið hafa við að veiða
úthlutuðum afla eru Víkurberg
GK, Höfrungur AK, Gísli Árni RE
og Jón Kjartansson SU. Aðrir lönd-
uðu á Austfjarðahöfnum eftir því
sem þróarrými losnaði og allt norð-
ur til Siglufjarðar og suður til
Vestmannaeyja. Heildarloðnuafl-
inn er nú orðinn 275 þúsund tonn
og er því enn eftir að veiða 115
þúsund tonn af heildarloðnuveiði-
kvótanum. Gígja VE tilkynnti 600
tonna afla til loðnunefndar fyrir
miðnætti á miðvikudag og var
heildaraflinn þann sólarhring 9.310
tonn.
Eftirtaldir bátar tilkynntu afla
Grindavík, í gær.
til loðnunefndar frá miðnætti til
klukkan 16 í gær: Guðmundur ólaf-
ur ÓF 590, Magnús NK 520, Húna-
röst ÁR 620, Jón Finnsson RE 590,
Keflvíkingur KE 530, ísleifur VÉ
740, Fífill HF 630, Þórshamar GK
600, Skarðsvík SH 200, Sigurður
RE 1.250, Guðrún Þorkelsdóttir SU
630, Erling KE 450, Gísli Árni RE
600, Bergur VE 510, Rauðsey AK
570, Víkurberg GK 550, Höfrungur
AK 900, Harpa RE 520, Þórður Jón-
asson EA 510, Jöfur KE 460, Hrafn
GK 600, Hilmir II. SU 560, Grind-
víkingur GK 1.100, Jón Kjartans-
son SU 600, Sæberg SU 630, Beitir
NK 1.000 og Örn KE 400 tonn.
Þetta blessast
með mokstrinum
— annars er verðið of lágt, segir Hörður Björns-
son, skipstjóri á nótaskipinu Þórði Jónassyni EA
„ÞFITA blessast meðan moksturinn heldur áfram, en loðnuverðið var og er of
lágt. Þetta er þokkalegt í mokinu, en gengur varla annars. Við fengum 600 lesU
kast í morgun, sem er rúmlega það sem báturinn ber og erum á leið inn til
SeyðÍ8fjarðar. Hins vegar verður ekki alltaf svona mok, en nú er aðalvandinn að
losna við aflann í Iand,“ sagði Hörður Björnsson, skipstjóri á nótaskipinu Þórði
Jónassyni EA, í samtali við Morgunblaðið.
„Það virðist geysilegt magn af
loðnu í hafinu nú enda ber veiði
síðustu 10 daga það með sér. Það er
mikill kökkur út af Glettinganes-
flakinu og flestir fylla sig í einu
tveimur köstum og fá jafnvel gott
betur. Við fengum 600 lestir í einu
kasti í morgun, en báturinn ber
ekki nema 510. Það virðist ekkert
lát á þessu og er engan veginn sam-
bærilegt við árið í fyrra. Við verð-
um varir við svo miklu, miklu meira
en þá. Þetta er einn kökkur þarna
og svo er mikið af dreifðri loðnu úti
fyrir Norðurlandi. í fyrra var loðn-
an miklu dreifðari og illveiðanlegri.
Vandinn er bara að losna við afl-
í ann. Nú spáir stormi svo ég þori
I ekki norður fyrir með bátinn svona
hlaðinn og allt er fullt fyrir austan
i svo ég verð að liggja inni fram á
sunnudag. Þess vegna eru margir á
leiðinni inn í „sunnudagspláss“,“
| sagði Hörður.