Morgunblaðið - 23.11.1984, Page 15

Morgunblaðið - 23.11.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984 15 Áhrif gengisfellingarinnar á afkomu útgerðar: Hækkar skuldir um einn milljarð króna Tekjur útgerðar áætlaðar 7,5 milljarðar á þessu ári, segir Kristján Ragnarsson NÝAFSTAÐIN gengisfelling luekkar skuldir útgerðarinnar nm allt að einn milljarð króna. Til samanburðar má geta þess, að áctlaðar tekjur hennar á þessu ári eru 7,5 milljarður og um 10 milljarðar á næsta ári,“ sagði Kristján Ragnarsson formaður og fram- kvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við Morgunblaðið. 1 ræðu sinni við setningu 45. aðal- fundar LÍÚ á miðvikudag sagði Kristján eftirfarandi um gengis- fellinguna: „Nú hefur gengi krón- unnar verið fellt í kjölfar óraun- hæfra kjarasamninga. Það er erfitt að fá skilið hvernig það má verða, að gerðar séu kröfur um 30 til 40% iaunahækkun frá 1. september, þeg- ar sömu aðilar höfðu skrifað undir kjarasamning um 3% launahækkun 1. september. Að visu var deilt um það í sumar hvort launahækkun þyrfti að vera 2 til 3% meiri til að kaupmætti þeim væri náð, sem samið var um í febrúar. Hverjum var í raun greiði gerður með svo óraunhæfum kjarasamningum sem raun bar vitni? öllum er ljós, eða átti að vera ljós, staða útflutningsatvinnuveganna. Þessi gengisbreyting þjónar þeim eina tilgangi að unnt verður að hækka laun sjómanna til jafns við launa- hækkanir annarra og bæta fisk- vinnslunni kostnaðarauka af launa- hækkunum. Rekstrarstaða útgerðarinnar verður engu betri en hún var fyrir því öll aðföng hækka i verði, laun hækka og verðtryggð lán hækka. Afraksturinn af öllu saman er auk- in verðbólga og áframhaldandi tap- rekstur sjávarútvegsins." Mætti spara 250 til 350 milljónir króna árlega Olíunotkun fiskiskipaflotans: — segir Emil Ragnarsson verkfræðingur hjá tæknideild Fiskifélags íslands „SKUTTOGARINN Júlíus Geir- mundsson var áður einn af óhag- kvæmustu togurunum hvaó varðar olíunotkun. Honum hefur nú verið breytt þannig að olíunotkun hans er um 33% minni miðað við somu beit- ingu og áður og sparnaður nemur á fimmtu milljón króna árlega. Áætla má, að minnka megi heildarolíunotk- un fiskiskipaflotans um 15%—20%, en árleg notkun hans er um 210 millj- ónir Iftra. Þannig mætti spara um 250 til 350 milljónir króna árlega í inn- kaupum á olíu miðað við verðlagningu f dag,“ sagði Emil Ragnarsson verk- fræðingur hjá tæknideild Fiskifélags fslands í samtali við Morgunblaðið. Emil Ragnarsson flutti erindi um olíusparnað fiskiskipa á aðalfundi LÍÚ á miðvikudag, en hann hefur undanfarin ár unnið að rannsókn- um á þessu sviði ásamt fleiri starfs- mönnum tæknideildarinnar. Meðal annars hafa starfsmenn tækni- deildarinnar tekið þátt i samnor- rænu verkefni á þessu sviði, sem skilaði áliti i Noregi fyrr á þessu ári. Emil sagði ennfremur, að mark- miðið með rannsóknum þessum væri að minnka olfunotkunina verulega og líklega væri raunhæft að tala um 20% sparnað eins og mál stæðu. Það væru margir þættir, sem þarna skiptu máli. Einkum þó stærð skrúfu og snúningshraði, en mörg skipanna væru byggð á tíma ódýrrar olíu og því lítið tillit tekið til mögulegs sparnaðar. Þá skipti botnhreinsun verulegu máli, beiting vélar, upphitun um borð og notkun ljósavélar f höfn, en sem dæmi mætti nefna að á vetrarvertfð hefði allt að tfundi hver lftri olfunotkun- ar bátaflotans verið notaður i höfn. Með þessum breytingum væri f raun verið að leiðrétta fyrri bygg- ingu skipanna, með hækkandi olfu- verði kæmi fram nauðsyn sparnað- ar. Það kostaði hins vegar peninga að breyta skipunum, til dæmis hefði breytingin á Júlfusi kostað um 11 milljónir króna, þannig að nauð- synlegt væri að huga að endingar- tima skipanna áður en farið væri út í breytingar. - Konunglega Hverfisgötu 49, sími 13313. Félagið Anglia heldur SKEMMTIKVÖLD, laugardag- inn 24. nóvember, kl. 21.30 aö Síöumúla 35, 2. hæö (Skagfiröingafólagið). Miöasala kr. 150 viö inngang- inn. Angliufólagar og gestir mætiö vel. Frjáls klæönaöur. Stjórn Angliu. Hæstu vextir seaja ekki al/a söguna. Verdtrygging er ómissandiþáttur. SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS, SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU, EYRARSPARISJÓÐUR, SPARISJÓÐUR BOLUNGARVÍKUR, SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK, SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS, SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.