Morgunblaðið - 23.11.1984, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
29
S T Æ L L I N N
aö er eins og skriffinnar fjöl-
miölanna hafi uppgötvaö
nýjan þjóðflokk. Svo oft
hafa Melrósubúar sést og heyrst
nefndir, vestur í Ameriku, austur í
Japan og allt þar á milli. Afskekkt
búa þeir þó ekki, heldur inni í um-
feröarborginni miklu Los Angeles.
En þar hafa þau undur gerst á siö-
ustu fimm árum, að myndast hefur
hverfi meö „karakter", sem er
spildan meðfram Melrose Avenue;
þaö er götustubbur (á mælikvaröa
heimsmanna) svona á lengd viö
Miklubrautina.
Melrose Avenue er í grennd viö
Hollywood, og voru lóöir þar um
sinn eftirsóttar undir skrauthýsi
kvikmyndafólks. Svo fór gatan úr
tísku til þeirra nota, og skraut-
garöar auökýfinganna uröu falir
sem byggingarlóöir. En í staö þess
aö svæöiö yröi aö venjulegu
svefnhverfi, kom fram fjöldi af
ungum og hugmyndaríkum kaup-
sýslumönnum sem hófu margvís-
legan þjónusturekstur, svo aö
Melrósubúar þurftu fátt til annarra
aö sækja. Þvert á móti fóru borg-
arbúar aö uppgötva Melrose
Avenue sem heim út af fyrir sig
meö sinn sérstaka blæ. Gatan fór
aö komast í tísku (líkt og Sunset
Boulevard á sjöunda áratugnum).
Hér gekk fólk um göturnar, undi
vió frumlegar gluggaútstillingar,
lét líöa úr sér á sérkennilegum
veitingastööum ... í staö þess aö
aka rúntinn á öllu útopnu, eins og
annars þykir sjálfsagt í þeirri góöu
borg. Hér voru ekki bara pönkarar
(þó aö pönk þyki enn frambærilegt
á vissum parti af Melrose Avenue,
milli Stanley Avenue og Poinsettia
Place), heldur ægöi saman alls
konar stílum (kenndum viö mod,
rock, like, surf, dandy, grease,
clean out ...), og fariö var aö
tala um blönduna sem stíl út af
fyrir sig, Melrósustæl. Og viö
hverja þvergötu halda heimamenn
því fram, aö Melrósustællinn hafi
einmitt byrjaö þar.
Ibúunum fór nefnilega aö þykja
alveg sérstaklega vænt um hverfiö
sitt. Þeir vilja áfram vera Melrósu-
menn, sérstakur þjóöflokkur meö
sinn Melrósustæl. En þaö er
hættulegt aö slá í gegn. Þaö dreg-
ur aö sér svo marga túrista, sér-
staklega þegar staöurinn er nú
ekki afskekktari en þetta. Og túr-
istunum fylgja peningar; þaö er
boöiö i lóöir og sprengd upp leig-
an; fína fólkiö vill aftur eiga einbýl-
ishús á svæöinu; stórfyrirtækin
vilja opna þar útibú. Hvernig á þá
aö varöveita karakterinn sem dró
aö túristana, sem drógu aö pen-
ingana ...
Bisa^s*
Lengttí.aon’ peraw™_
' "í
5
GÍ5U HOUGERSSON10 eABDAB(E, s.«
P:°uS9> - neyðaruós
reyna aö segja, eöa hvaö hann er aö hugsa.
Hún talar viö hann eins og heilbrigðan mann.
En laessir sjúklingar þurfa mikila aöhlynningu.
En þaö er spurning hve lengi hún treystir
sér til aö hugsa um hann. Honum fer slfellt
aftur og nú er fariö aö bera á pirringi stöku
sinnum. “
ARFGENGURSJOKDÓMUR?
Bæöi börn og eins nánir ættingjar þeirra
sjúklinga, sem þjást af alzheimer-veiki, velta
þvl oft á tlðum fyrir sér hvort sjúkdómurinn sé
arfgengur, og sú kenning hefur reyndar veriö
sett fram af llfeðlisfræðingum, aö viss erföa-
vlsir eöa öllu heldur hópur af genum, valdi
sjúkdómnum eöa stuðli aö minnsta kosti aö
upptökum hans og framvindu. Fyrstu athug-
anir á fjölskyldum, þar sem einn meölimur var
haldinn hrörnunarsjúkdómi er leiddi til heila-
rýrnunar og þar af leiöandi skerðingar á vits-
munalffi sjúklings, sýndu fram á aö llkurnar á
aö náinn ættingi sjúklings yrði einnig áþekk-
um hrörnunarsjúkdómi að bráö, mættu teljast
fjórum sinnum meiri en llkindi manna almennt
á aö sýkjast af sllkri veiki. Mestar viröast
llkurnar á aö fleiri skyldmenni taki sjúkdóminn
I þeim fjölskyldum þar sem komiö hefur upp
dæmigert alzheimer-tilfelli hjá einhverjum fjöl-
skyldumeölimi um fertugt eöa fimmtugt. Van-
gefnir einstaklingar og ýmiss konar erfðakvill-
Sýnir víkkun i grópum (aulci) hmilayfirboröa hjá 54 árm gömlum ajúklingi, mmö dsm-
onm. Slíkar breytingar geta Uka aáat hjá etdra tótki, aem ekki er meó demena.
ar aörir, sem rekja má til litningagalla, eru
einnig algengari fyrirbrigöi I þessum fjölskyld-
um. Þetta kemur fram I grein um sjúkdóminn,
sem Alzheimer-stofnunin I Bandarlkjunum
hefur látið frá sér fara.
VERÐUR STOFNAÐ
AÐSTANDENDAFÉLAG
ALZHEIMER-SJÚKLINGA?
Aöstandendur alzheimer-sjúklinga hér á
landi eru orönir langþreyttir á aögerðarleysi
heilbrigöisyfirvalda I málefnum alzheimer-
sjúklinga. Þeir hafa nu I bigerö aö stofna
félag aöstandenda alzheimer-sjúklinga. Það
var Guöjón Brjánsson forstöðumaður Múlab-
æjar og Sigrún Zolt félagsráögjafi sem höfðu
forgöngu um aö hóa fólkinu saman og til
Guöjóns er hægt aö leita upplýsinga um fé-
lagið. Þaö hefur komið til tals að samtökin
eöa ákveðinn hópur innan þeirra reyni aö
festa kaup á húsi til aö vista fólkiö I. Vröi
þessi stofnun meira I llkingu við heimili. Einnig
hafa samtökin I hyggju aö beita sér fyrir út-
gáfu upplýsingaefnis um sjúkdóminn til aö-
standenda. Dóttir Páls er ein þeirra sem
standa aö stofnun samtakanna og sagöist
hún vona innilega, aö þessar hugmyndir yröu
aö veruleika.