Morgunblaðið - 23.11.1984, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
59
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Burt
með
aurana
Þórarinn Björnsson skrifar:
Hvernig væri nú að ríkisstjórn-
in semdi við kaupmenn og léti þá
hafa 5, 10 og 50-eyringana upp í
kaupkröfur sínar og losaði al-
menning við þetta bölvað rusl,
sem er einskis nýtt fyrir einstakl-
inga, en mikið fé fyrir kaupmenn?
Ég veit ekki um nokkurn hlut sem
hægt er að kaupa fyrir þessa aura,
nema einhver hlutur kosti krónu
eða meira. Þetta mætti gera, fyrst
ríkisstjórnin bar ekki hyggju til
að taka þessa aura úr umferð þeg-
ar 10 kr. myntin var slegin, og
setja þetta þjóðarrugl í brota-
málm upp í hlut af nýju myntinni.
Þessi mynt veldur mikilli töf í
verslun fyrir viðskiptavini og
gjaldkera.
Það er staðreynd, að þeir sem
mest högnuðust á myntbreyting-
unni voru kaupmenn, enda sögðu
þeir ekki orð við henni. Það var
vegna þess að hún var dulbúin,
óheyrileg vöruhækkun. Það hefur
óþyrmilega sýnt sig. Ég get tekið
hér dæmi þar sem hinn ágæti
þingmaður Guðmundur J. Guð-
mundsson nefndi í DV hinn 15.
nóvember, þegar hann bar saman
verð á tvinnakerfli fyrir og eftir
myntbreytingu. Slíkt kefli kostar
50 eða 59 krónur í dag, sem hefði
verið 5000 krónur fyrir mynt-
breytingu. Hver og einn getur séð
hina hrikalegu hækkun á vöru-
verði þennan stutta tíma frá
breytingunni. Þetta hefur verslun-
in ekki látið renna í vasa af-
greiðslufólks, til að bæta því hin
lágu laun þess, alla vega ekki stór-
markaðir og ' stórar verslanir,
heldur stungið því í eigin vasa.
Svo er kvartað og vælt að öll versl-
un sé að fara á hausinn ef þeir
sem lægstu launin hafa fá smá
hækkun. Samt er ekki hægt að
þverfóta fyrir alls kyns búðum,
Þessir hringdu , . .
VBK byggt 1882
Pétur Haraldsson hringdi:
í Velvakanda á þriðjudag var
grein um Grófina. Þar segir að
hús það, sem Verslun Björns
Kristjánssonar er í hafi verið
byggt árið 1888. Hið rétta er, að
húsið var byggt árið 1882 og gerði
það Jón Steffensen. Hann lést
hins vegar skömmu síðar og giftist
ekkja hans, frú Sigþrúður Guð-
mundsdóttir frá Hól, Birni Krist-
jánssyni. Björn stofnsetti verslun
sína í húsinu árið 1888 og hefur
hún verið þar síðan.
Hverjir
„kunststoppa“?
Guðrún Olafsdóttir hringdi:
Ég hef verið að reyna að koma
dúk í „kunststopp" en ég hef
hvergi rekist á neinn sem tekur
þetta að sér. Mér þætti vænt um ef
einhver lesandi Morgunblaðsins
gæti frætt mig á því, hver tekur
slíkt að sér.
Þórarinn Björnsson segir, að 5,10 og 50-eyringar séu alls óþarfir og reyndar
þjóðarrusl.
sem sumar eru með hreint og
beint drasl, sem flutt er inn fyrir
mikinn gjaldeyri. Það ætti að
banna allan innflutning um sinn,
þar tilbúið er að rétta þjóðarskút-
una við og borga erlendar skuldir,
en ekki taka þessa vinnu frá ís-
lensku starfsfólki og framleiðend-
um og stefna í atvinnuleysi í land-
inu.
Jólagjöfin frá
alþýðuvinunum
Bjarni G. Tómasson skrifar:
í fyrri pistli mínum í Velvak-
anda talaði ég um að ellilífeyris-
þegar og launþegar eigi sér enga
raunverulega talsmenn eins og
síðustu kjarasamningar sýna.
Undir þeirra forustu hafa kjör
okkar verið að versna síðan við-
reisnarstjórnin fór frá. f 15 ár hef-
ur verið svo gífurlegur órói í kaup-
gjalds og verðlagsmálum að það
sem gefið hefur verið með annarri
hendinni hefur verið tekið aftur
með hinni. Þetta kemur fram í því
sem nú hefur verið gert, enda læt-
ur árangurinn ekki á sér standa
því nú er verið að framkvæma
12% gengisfellingu, þegar þetta er
ritað.
Gr það ekki siðlaus fjandi þegar
hámenntaðir menn, sem kosnir
eru af launafólki til þess að fjalla
um launakjörin, koma ljúgandi í
fjölmiðla og lýsa því yfir, að ekki
hafi boðist annað en prósentu-
hækkun á laun að semja um sem
þýðir meira launabil, og hækkun
hæstu launa er nemur þvf, sem
lægstu laun eru nú. Fyrir þetta á
láglaunafólkinu og ellilífeyrisþeg-
um að blæða. Heyrði einhver vini
alþýðunnar nefna hækkun í
krónutölu á laun? Nei. En vinum
alþýðunnar bauðst að semja um
skattalækkun, eða annað það, sem
ekki ylli óróa á vinnumarkaði.
Þetta vildu vinir alþýðunnar ekki,
þeir kusu lygina, þennan siðlausa
fjanda var þeim umhugað að fá
fyrir bandamann.
Er ekki kominn tími til þess að
launþegar velji menn úr sinum
röðum, eins og fyrr á árum til þess
að fara með sín félagsmál, þá má
ætla að sá tími komi að þjóðar-
tekjunum verði skipt með nútíma-
legri hætti en verkföllum. 1 þriðju
og síðustu greininni má lesa um
samtök fyrir ellilífeyrisþega.
Hungurhagkerfi
Karls Marx
Húsmóðir skrifar:
Þá er nú hungurhugmyndafræði
Karls Marx búin að sanna ágæti
sitt, svo ekki verður um villst. Eft-
ir 68 ára reynslu i Sovétríkjunum,
þá keyptu stjórnvöld 100 þúsund
tonn af óætu smjöri frá Efna-
hagsbandalagi Evrópu, sem öreig-
arnir í gamla kornforðabúri Evr-
ópu eiga að leggja sér til munns.
Þá geta kirkjan og aðrar liknar-
stofnanir i lýðræðisríkjunum
sannfærst um, að alltaf verður
hungurvofan æðandi áfram í
Eþiópiu, því að stjórnvöld þar eru
nýbúin að lýsa því yfir að eftir
hungurhagfræði Marx skuli farið.
Hagfræðingarnir á Vesturlöndum
sem eru kommúnistar, geta fagn-
að tíðindunum, þvi þar er nú ekki
hagspeki Friedmans að verki. Mér
dettur í hug vísa eftir Jón forna
sem lýsir hallæri, sem kom hér á
miðöldum, þar sem stendur: „Fala
nú guðsmenn gráðasmér." Meðal-
aldur karla í Rússlandi fer lækk-
andi og ætli ekki að gráðasmjörið
geti ekki líka hjálpað til.
Kvennalistakonurnar, sem
þykjast vera málsvarar kvenna, en
eru bara taglhnýtingar Alþýðu-
bandalagsins, þær ættu að taka til
athugunar heilsufar rússnesku
þjóðarinnar, áður en þær fara
lengra i baráttunni fyrir alræði
öreiganna á íslandi. Það er ekki
Karl Marx
eftirsóknarvert að vera húsmóðir i
löndum þar sem hungurhagfræði
Karls Marx er notuð. Fyrst er
matarskorturinn, svo mannrétt-
indabrotin, trúarofsóknir, ekkert
tjáningarfrelsi, ekkert ferðafrelsi,
geðveikrahæli fyrir pólitíska and-
stæðinga, og þrælabúðirnar, sem
núna eru fjölmennari en allir
Danir og írar til samans. Hags-
munir kvenna og hungurhagkerfi
Marx fara ekki saman.
m
Opiö til kl. 8 k kvold
Laugardag kl.
ss'W'
Dollars
Oxford
Lux
Nova
Lugano
Bonzo
**“**"• ...........
HIS6&6NAH0LLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 -110 REYKJAVfK S 91-61199 og 81410