Morgunblaðið - 05.12.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
3
BÓK GRÆTIR, BÖK KÆTIR,
MAGNAR SPENNU, VEITIR HVÍLD
BÓK ER BEST VINA
LJÓNIÐ, NORNIN
OG SKÁPURINN
er skemmtileg og spennandi ævintýrabók.
Fjögur Lundúnabörn, Pétur, Súsanna, Lúsía og
Játvaröur, dveljast úti í sveit. Þau rekast á leiðina
til töfralandsins Narníu meö því aö fara í gegnum
fataskápinn. I Narníu er alltaf vetur því aö þar
ríkir nornin með harðri hendi og hún þarf einmitt
á tveimur drengjum og tveimur stúlkum að halda
til að geta framkvæmt galdra sína. Og það er
að undirlagi hennar sem börnin eru komin inn í
þetta töfraland. En margt fer öðruvísi en ætlað
er, og börnin verða hættulegri norninni en hún
hafði gert ráð fyrir, en ævintýrin sem þau lenda
í eru mikil og hætturnar margar.
Höfundur þessarar skemmtilegu ævintýrabókar,
C.S. Lewis (1898-1963), var prófessor í
Cambridge í Englandi. Hann var heimsfrægur
rithöfundur og þá ekki síst fyrir ævintýrabækur
sínar sem hann skrifaði fyrir börn. Honum var
líktvið H.C. Andersen vegna þess hve snjall
hann var að búa til töfralönd. Einnig má nefna
Tolkien. Sögumhans og C.S.Lewis svipar mjög
saman.sem ef til vil stafar af því að þeir voru
skólabræður, ungir menn. -jgg 5|s
Verð kr. 494,-
KVÆÐI 84
eítir Kristján ÍCarlsson
( einni af fyrri Ijóðabókum sínum segir Kristján
Karlsson að „kvæði sé hús sem hreyfist."
Hann hefur ennfremur látið svo um mælt að
„kvæði eigi hvorki að vera flöt rökræða né blaut
dula, það verður að rísa af pappírnum af eigin
rammleik. Ef það gerir það ekki væri efni þess
betur komið í öðru formi. Hugsun kvæðisins og
tilfinning er ekkert annað en kvæðið sjálft: Hús
þess.“
Kristján Karlsson er eitt af sérstæðustu skáldum
samtímans, ef til vill nokkuð seintekinn, en þeim
mun stórkostlegri við nánari kynni. Ljóðagerð
hans verður sennilega ekki lýst öllu betur í ör-
fáum orðum en með þessum Ijóðlínum úr síðustu
bók hans, - NEW YORK:
Ljóðið ræður, þess ræða er frjáls
þess rök skulu geyma yður litla stund.
90 bls. Verð kr. 617,-
TÖLVUBÓK AB
Það er tölva í þinni framtíð, enginn vafi á því.
Reyndar notar þú nú þegar ýmsan tölvubúnað,
s.s. í þvottavélinni, símtækinu, útvarps-, sjón-
varps- eða myndbandstækinu og nýtur hans í
margvíslegri þjónustu fyrirtækja og opinberra
aðila.
Tími er því til kominn að þú kynnist fyrirbærinu
betur en orðið er - bæði einkatölvum og hinum
stærri og afkastameiri. Þeim fjölgar sífellt sem
þurfa að kunna nokkur skil á tölvum til að geta
innt starf sitt af hendi, sem og þeim sem virkja
tölvu til bætts rekstrar fyrirtæki sínu, stóru eða
litlu.
Sem betur fer eru tölvufræði ekki flókin, síst þeg-
ar þau eru skýrð á svo einfaldan og alþýðlegan
hátt sem í Tölvubók AB.
Bókin er upphaflega unnin á vegum breska sjón-
varpsins (B.B.C.). Hér birtist hún í íslenskri þýð-
ingu með ítarlegum íslenskum viðauka sem ber
heitið: Notkuntölva í íslensku atvinnulífi. Viðauk-
inn er geysigagnlegur því að hann segir hvers
gæta þarf áður en farið er út í að tölvuvæða
fyrirtæki og hvernig unnt er að koma við tölvu
viðfiskveiðarogfiskvinnslu, í landbúnaði, í iðn-
aði og hvernig tölvan auðveldar bókhald, stjórn
framleiðslu, framleiðslueftirlit o.m.fl.
236 bls.
Verð kr. 784,-
SIÐASTA BINDI DALALÍFS
Nú er komið út þriðja og síðasta bindi Dalalífs,
hins sérkennilega og skemmtilega sagnabálks
skáldkonunnar frá Lundi - þess sem gerði hana
að mest lesna höfundi íslendinga.
586 bls. Verð kr. 988,-
NÍU ÁR í NEÐRA
eftir Svein Einarsson
Sveinn Einarsson var
leikhússtjóri í Iðnó á
gróskuárum Leikfélags
Reykjavíkur 1963-1972.
Þá voru tekin til sýningar hin margvíslegustu
leikverk, sum sannarlega mikils háttar, og
leikhúsið var afar vel sótt.
Sveinn segir hér frá þessum ágætu 9 árum sín-
um í hinu þrönga en vinalega leikhúsi, árum sem
einkenndust af framsækni og bjartsýni. Hann
segir frá kynnum sínum og samvinnu við leikara,
lífinu á vinnustaðnum Iðnó og lýsir því hvernig
leikverkin hlutu þá ásýnd sem leikhúsgestirfengu
að sjá. Að baki þeirri ásýnd lágu oft mikil átök,
stundum brosleg, en umfram allt mikil vinna.
Níu ár í neðra íjallar um þá Iðnó sem leik-
húsgestum er ekki sýnd.
220 bls., auk mynda Verð kr. 988,-
ÍSLENSK HAGLÝSING
Ritgerðasafn, sígildar úrvalsgreinar ellefu höf-
unda um íslensk efnahagsmál, þannig valdar að
þær spanni sem víðast svið.
Hver sem áhuga hefur á hagfræði og íslenskum
efnahagsmálum getur haft af bókinni full not,
enda er í henni að finna margt af því besta sem
skrifað hefur verið um þjóðarbúskap íslendinga.
Einkum er þó bókin ætluð til kennslu í íslenskri
haglýsingu við Háskóla (slands.
Höfundar ritgerðanna eru þessir:
Ásmundur Stefansson
Björn Matthíasson
Bolli Þór Bollason
Eiríkur Guðnason
Guðmundur Magnusson
Jóhannes Nordal
Jón Sigurðsson
Jónas Haralz
Ólafur Björnsson
Þórður Friðjónsson
Þráinn Eggertsson
237 bls.
Verð kr. 988,-
ÖSKRIÐ
Nýr höfundur, Lilja K. Möller,
kveður sér hljóðs í sterkri
og bersögulli frásögn af
átakamikilli atburðarás
í lífi ungrar konu sem sjálf
vill fá að móta líf sitt, springa Ú1
og sprengja af sér fjötra:
„öskra: Þú hefur engan rétt til að aðskilja
líkama minn og sálu! Ég er líka til inni í þess-
um líkama. Ég er! Ég er ekki bara nautn
holdsins, því fyrir innan brjóstin og kynfærin
er manneskja sem sér hvað fram fer.“
„Eins og kjarni verður að sprengja af sér skel-
ina til þess að blóm hans vaxi upp í Ijósið,
eins hljótið þið að kynnast þjáningunni.“
„Ég hlýt því að vera seinþroska blóm, því
mér gengur illa að sprengja skelina.“
„ „Hvar er hvíti gæðingurinn?“ spurði ég og
blíðkaðist.“
„„Hann er hérna fyrir innan,“ svaraði hann
og nuddaði buxnaklaufinni upp við vinstra
lærið mitt.“
„Hann var svo undurblíður, rómantískur, að
ég grét á meðan, hægum fallegum gleðitár-
um.“
„Ekki gat ég farið til lögreglunnar og
beðið hana að hjálpa mér að leita að Áru
Davíðsdóttur. Þeir myndu biðja um nákvæma
lysingu og í rauninni þekki ég hana of lítið
til að geta lýst henni nákvæmlega. Aldur: 25
ára. Hæð: Yfirleitt í skýjunum. Þyngd: Já,
stundum þunglynd en oftar bjartsýn. Staða:
Frekar völt. Heimili: í óreiðu. Tunga: Ulla.
Háralitur: Nei, ólitað. Augnalitur: Stundum
regnblár eða dökkblár eða svartur eða rauð-
ur... Ég gæti ímyndað mér að þeir yrðu
fljótir að skella henni í möppuna með yfir-
skriftinni: „Óskist ófundnir.““
öskrið er áhrifamikil skáldsaga, í senn átakanleg
og spaugileg, um unga og draumlynda konu.
Hún leitar að ást og skilningi í tilfinningasnauðum
heimi og berst fyrir því að halda einstaklingseðli
sínu.
188 bls. Verð kr. 697,-