Morgunblaðið - 05.12.1984, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
%
i
1
l
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Leigir íslenska þotu til að
flytja matvæli til Eþíópíu
HJÁLPARÍfrOFNUN kirkjunnar
hefur ákveðið að taka íslenska
þotu á leigu og senda til Eþíópíu
innan mánaðar, fulHilaðna prót-
einríkum matvælum. Jafnframt
mun íslenskt hjúkrunarfólk fara
Gunnlaugur 'Stéfánsson, starfs-
maður Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar. - * !
með vélinni til aðstoðar við svelt-
andi fólk á þurrkasvæðunum.
Gunnlaugur Stefánsson,
starfsmaður Hjálparstofnunar-
innar, er nýkominn heim ár íjtta
daga skoöunarferð urrj þlirrka-
svæði Eþíópíu.i þar serti; hánn ;
kýnnti sér ástandið á Jn‘ey<!(ai>
svæðunijm og hjálparstarfið þar. .
Sáf^i hann í-sanlta^ !«ið Um.
Morgunþlaðsins aí iáridssöfnilrj .
• Hjálþarstrrfnunar ’ ; Járkjunnár 1
vaeí n\i.að‘ fara i garig óg ýæru
fytstu viðbrögð stofnurrarinnar
að sehda matiiali pf* hjúktdrrar-i .’
fólk á þurrkasyáeðin, • ' '
' i,Á»tandiö er mlin alvárlegra •
ani eg hajfði’gertírhér íhrugir'lond
Ög fer .dagverínanili," * ságði
Gunnlaugur.. „t»að rjkir ekki áþ- (
éifts npyðarástand piéðal fólks-
ins héldur ér híjálparstárfið • í ,
hættu yegna skorts á matvælum
og hjálpargögnumlSexTÓilljónir
manna þjást végria þurrkanna,
þar-af eru'tvær miljónir rtianoa i .
mjög mikilli hættu. Stefnt er að
því að flytja um tvær milljónir
Sveltandi fólk í þurrkasvæðunum.
manna á næstu vikum og mán-
uðum, frá þurrkasvæðunum ‘í
riorðri til suðurs og vestUrs þar
sem ástandið á að heita skárra.
Nú eru til matvælabirgðir í lahd-
inu til að sinna brýnustu þörfum
fólks í JO til 20 daga. Að þeim
tíma loknum sjá menn fram á
algera matvælaþurrð á þurrka-
svæðunum. Þar vantar tilfinn-1 .
anlega hjúkrunarfólk til starfa ‘
auk skorts á nauðsyntegum
hjálpárgögnufn eins og teppum ;
ogitjöjdum. Érfiðúétu sjðkdóin-»}
arnif .sem við er áð etjaierú •
lungnabðlga, j lifrarsjúkdóipar,
jniðurgangur óg rtiálahía. ] ' 5 ( , !
j i Yið.höfijm lgitað sanlráðs við
tjjörgurjarSVejtjr ’ lándsins og
, ieitað. eftir starfsfólk! innan
raða fójks, sem reynglu;hefur.af
hjúkrunarstörfum og fúst er til • .
1 að dyelja við hjálparstörf í ’
Eþiópíu í lehgri eða skemmri *
tnria. Ég.vil minna á landssöfri-,
un Hjálþárstofnunarinnar sem
er að fara af stað. Við tréyátijm
því að lándsmenrl taki höndum
saman og svarj neyðarkalli með ’
‘virkum' stuðningi. Tíminn er
dýrmætur og því' fyrr sem að-
stoðin berst, því betra,” sagði
Gunnlaugur Stefánsson. >
Skuldir Kolbeinseyjar ÞH
nema fimmföldu kaupverði
Kaupverð var 49 milljónir,
áhvflandi skuldir nú 258
„ÞEGAR Kolbeinseyin var komin
hingað frá slippstöðinni fullbúin til
veiða árið 1981 kostaði hún 49 millj-
ónir króna. I dag eru áhvílandi skuld-
ir á skipinu 258 milljónir króna og
vöntun til skuldbreytingar um 94
milljónir. Við byggingu skipsins feng-
um við 3,8 milljónir að láni í Byggða-
sjóði, sem nú er orðið að 11,3 milljón-
um og 5 milljóna dollara lán í Fisk-
veiðasjóði. Þegar lánið var tekið var
gengi dollarans 7,305 krónur og upp-
hari því 36,5 milljónir íslenzkar. Nú
er gengið um 40 krónur og lánið
ásamt áfóllnum vöxtum 246,5 millj-
ónir króna. Skipið er og hefur verið í
eðlilegum rekstri," sagði Kristján
Ásgeirsson, útgerðarstjóri Höfða hf. á
Húsavík, sem gerir skuttogarann
Kolbeinsey út í samtali við blm.
Morgunblaðsins. Kolbeinsey er eitt
þeirra skipa, sem ekki nær skuld-
breytingu vegna of mikilla skulda og
skorts á veðum og tryggingu.
Kristján sagði, að þó alltaf hefðu
verið greidd 20% af skiptaverð-
mæti aflans til Fiskveiðasjóðs,
væri það bara eins og að henda
þeim út um gluggann eða það hefði
jafnvel enn minni áhrif. I greina-
gerð fyrirtækisins til Fiskveiða-
sjóðs um greiðslugetuna hefðu
meðai annars verið teknar 5 millj-
ónir dollara á gengi september-
mánaðar, 32.550 krónur, sem gerði
þá 162 milljónir króna. Síðan hefðu
þessar 5 milljónir dollara verið um-
reiknaðar í pund, eða 2,5 miiljónir
punda á genginu 41,794 krónur.
Þannig kæmi í Ijós, að hefði lánið
verið tekið í pundum upphaflega,
hefði skuldin fyrir gengisfellingu
numið 105 milljónum í stað 162 án
áhrifa vaxta. Væri þau tekin inn í
dæmið, yrði það enn hagstæðara
gagnvart pundinu. Þarna sæjust
einfaldlega afleiðingar þess, að
menn hefðu nánast verið knúnir af
bönkum landsins til að taka þessi
lán í dollurum.
Fyrirtækið hefði skilað ráða-
mönnum vissum tillögum, sem
miðuðust að því, að það greiddi
skipið á eðlilegum tíma og með
nauðsynlegum ráðstöfunum. Við
þeim tillögum hefðu enn engin svör
fengizt. Greiðsluþol fyrirtækisins
fyrir Kolbeinsey væri áætlað miðað
við 3.000 iesta ársafla á meðalverði
12,40 krónur á kíló, brúttóverð 37,2
milljónir og skiptaverðmæti 26,7.
Miðað við 20% í stofnfjársjóð
næmi ársgreiðslugeta 5,4 milljón-
um króna, miðað við 25% 6,7 millj-
ónum. Síðan væri miðað við að
greiðslugeta Fiskiðjusamlagsins
vegna afla Kolbeinseyjar gæti orð-
ið 2 til 2,5% af brúttó verðmætum
aflans eftir vinnslu, um 80 milljón-
um, sem væru 1,6 til 2 milljónir.
Því gæti greiðslugeta fyrirtækj-
anna beggja á ári orðið 7 til 8,7
milljónir. Eins og málum væri nú
háttað væri þetta auðvitað óviðráð-
anlegt. Fiskverð hefði frá árinu
1981 hækkað um 63% miðað við
100% hækkun dollars þannig að
þar væri verulegur mismunur. Þá
væru lánakjörin óviðunandi og
gengisstefnan sömuleiðis. Yrði
ekkert aðgert liti málið því anzi al-
varlega út, fyrirtækið væri með
gott skip og góða útgerð, en dæmið
væri vonlaust samt. Ákvarðana-
taka um framtíð þessara skipa og
viðhald eða endurnýjun flotans
hiyti að byggjast á þvi, hvernig
stjórnvöld myndu taka á málum.
Gunnar Dal
! i;.;
• i
Gunnars Dai
,• • 11. t'
• ’ Víkurútgáfan hefur gefið út nýja
.IjóðaMk ‘ eftir Gunnar Dal. Bókin
hejtir Orþ npilli vina og er 8Í. bók’
'Girnnark'Daj, cn sumar þeirra hafa
verið endutútgefnar, þ.á m. Spámað-
urinh, sem í eru þýdd Ijóð, og 'kom
j fyrst út 1958 og sjötta útgáfa henpar
kom út á 'þessu ári.
. 1
• 1 nýju ljóðabókinni eru 39 ljóð.
.Hún • er ,51 blaðsíða, sett og
offsetpyentuð hjá Prentsmiðju
Á rna Valdemarssonar hf. og
bunidin hjá Bókbandsstofunni
Örkin hf. Káputeikning er eftir
Kristján Jóhannsson.
SH býður út Rúss-
landsflutninga
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna hefur nú boðið út flutninga á
frystum fiski til Sovétríkjanna. Er
hér um opið útboð að ræða, bæði
hér heima og erlendis og frestur
til að skila tilboðum er til 14.
þessa mánaðar. Eimskip hefur til
þessa annazt þessa flutninga fyrir
SH.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson,
forstjóri Sölumiðstöðvarinnar,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að hér væri um að ræða
næsta árs flutninga, sem næmu
16.000 til 17.000 lestum, en
eitthvað væri þegar búið að
flytja út upp í næsta árs samn-
inga. Þegar hefðu flutningar á
frystum sjávarafurðum Sölu-
miðstöðvarinnar til Japan og
Vestur-Evrópu verið boðnir út
og hefði það gefið góða raun,
sem komið hefði fram í tals-
verðri lækkun flutningsgjalda
og hærra skilaverði tii framleið-
enda.
Álverið:
Skuldbreyting útgerðarinnar:
10 til 15 skip eru ekki
skuldbreytingarhæ f
FRÁGANGI skuldbreytingar útgerft-
arinnar er nú að Ijúka og þegar er
Ijóst, að útgerðir 10 til 15 skipa eiga
ekki veft efta tryggingu fyrir skuldum
sínum. Skuldi skip meira en því sem
nemur 90% af vátryggingarverði, er
þeim gert aö setja slíkar tryggingar
fyrir skuldbreytingu fyrir því, sem
þar er umfram, eigi hún að fást.
Skuldir þessara skipa við Fisk-
veiðasjóð nema 1 til 1,6 milljörðum
króna.
Að sögn Sigurðar P. Sigmunds-
sonar, starfsmanna sjávarútvegs-
ráðuneytisins, var sótt um skuld-
breytingu fyrir um helming þeirra
skipa, sem kost áttu á henni. í
skuidbreytingunni felst meðal ann-
ars, að vanskil við Fiskveiðasjóð
eru endurlánuð og lánin lengd frá 1
upp í 7 ár. Síðan er veittur 60%
afsláttur á vöxtum sjóðsins árin
1984 og 1985. Án skuldbreytingar
og annarra ráðstafana hefði
greiðslubyrði fiskiskipa hjá Fisk-
veiðasjóði á árunum 1984 og 1985
orðið um 2,6 milljarðar króna mið-
að við verðlag í árslok 1983, en mið-
að við þær ráðstafanir, sem nú
hafa verið gerðar, lækkar greiðslu-
byrðin í um 1,1 milljarð, eða um 1,5
milljarða. Þetta skiptist þannig, að
endurlán vanskila nemur um 500
milljónum og lenging lána og
vaxtaafsláttur um einum milljarði.
Sigurður sagði, að af 487 skipum
hefði verið sótt um skuidbreytingu
fyrir um helming þeirra. Sumir
væru með hagstæðari lán en svo, að
það borgaði sig að breyta skuldum
og aðrir ættu ekki veð og hefðu því
ekki sótt um. Nú væru 10 til 15
skip, sem virtust ekki geta sett veð
eða tryggingu fyrir skuldum um-
fram 90% markiö og næðu því ekki
skuldbreytingu. Heildarskuldir
þessara skipa við Fiskveiðasjóð
næmu 1 til 1,6 milijörðum króna og
fyrirsjáanlegt væri, að á næsta ári
gætu þau ekki staðið undir nema
um helmingi greiðslubyrðinnar að
meðaltali, þrátt fyrir allar aðgerð-
ir. Heildar áhvílandi skuldir fiski-
skipa við Fiskveiðasjóð nema nú
alls á bilinu 6 til 8 milljörðum
króna, þannig að hlutur þessara 10
til 15 skipa væri anzi stór. Þessi
skip, sem væru bæði togarar, nóta-
skip og bátar, ættu flest það sam-
eiginlegt að vera íslenzk seinni
tíma smíði eða þeim hefði verið
breytt nýlega innanlands. Þriðj-
ungur þeirra væru togarar, tvö
nótaskip og afgangurinn bátar yfir
100 brúttólestum.
Öll félögin
hafa samþykkt
samningana
Verkalýðsfélögin tíu, sem fara
með samningsumboð fyrir starfs-
mcnn álversins í Straumsvík, hafa
nú öll samþykkt þá samninga, sem
gerðir voru við fyrirtækið í síðustu
viku, að því er Hallgrímur Péturs-
son, formaður verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði, sagði { samtali
við blm. Mbl.
Samningurinn gildir fram til
ársloka 1985, eins og aðrir samn-
ingar, sem gerðir hafa verið að
undanförnu. Skv. upplýsingum
Mbl. færir samningurinn starfs-
mönnum álversins talsvert meiri
kauphækkun en aðrir nýgerðir
samningar, eða yfir 30% á samn-
ingstímanum. Hallgrímur vildi
hvorki staðfesta það né neita en
sagði að miðað við aðra samninga,
sem gerðir hefðu verið að undan-
fömu, væri hann ánægður með
samninginn við ISAL.