Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
7
Útvarpslagafrumvarpið á Alþingi:
Afgreitt úr mennta-
málanefnd í vikunni
Ættu að geta verið afgreidd fyrir jól, segir Halldór Blöndal
IIALLDÓK Blöndal alþingismaður segir, að ekkert eigi að þurfa að vera í
veginum fyrir því, að ný útvarpslög veröi afgreidd frá Alþingi fyrir jól, sem
fela í sér aukið frjálsræði í útvarpsmálum. Málið er nú til meðferðar í
menntamálanefnd neðri deildar, þar sem Halldór er formaður, og sagðist
hann stefna að því að afgreiða það úr nefnd fyrir helgi, þannig að unnt væri
að taka það fyrir í deildinni nk. mánudag.
Halldór sagði, að hann hefði orðaði það, og nefndi hann sem
lagt fram breytingartillögur við dæmi tillögu um að á þeim lands-
frumvarpið í nefndinni. Þær væru svæðum sem byggju við erfið skil-
allar í frjálsræðisátt, eins og hann yrði yrði heimilað að nota milli-
bylgjur. Þá sagði hann að sér væri
kunnugt um að fleiri breytingar-
tillögur væru í vinnslu, en hann
kvaðst ekki hafa séð þær.
Ef frumvarpið verður ekki af-
greitt frá Alþingi fyrir jól stafar
það einvörðungu af því, að ein-
hverjir taka sig til og tefja það,
sagði Halldór Blöndal ennfremur.
Mjólkurframleiöslan
eykst, neysla minnkar
ntr í RiíAprHul Annarc etQAnr uar
„Smjörfjallið" orðið 302 tonn
FYRSTU tíu mánuði þessa árs var
innvegin mjólk hjá mjólkursamlög-
unum 93,8 milljónir lítra, en það er
2,82% meira en sömu mánuði í fyrra.
í fyrra var mjólkurframleiðslan 106
milljónir lítra allt árið og í ár er
búist við að hún verði um 109 millj-
ónir lítra. lnnanlandsneysla á mjólk
og mjólkurvörum samsvarar hins-
vegar rúmum 100 milljónum lítra á
ári. í ár hafa smjörbirgðir aukist svo
og útflutningur osta.
í fréttabréfi Upplýsingaþjón-
ustu landbúnaðarins kemur fram
að í október tóku mjólkursamlögin
á móti 8,15 milljónum lítra af
mjólk á móti 8,13 milljónum lítra í
október í fyrra. Aðeins varð um-
talsverð aukning hjá tveimur
mjólkursamlögum, á Sauðárkróki
og í Búðardal. Annars staðar var
frekar um samdrátt að ræða. Sala
á mjólk og mjólkurafurðum hefur
heldur dregist saman á árinu. Sala-
á nýmjólk er til dæmis 4% minni í
ár en í fyrra. Þann 1. nóvember
var „smjörfjallið" 302 tonn, en það
er 109 tonnum stærra en á sama
tíma í fyrra. Þá var framleiðslu-
aukning í ostum um 28%. Salan
jókst jafnframt og það sem af er
árinu hafa verið flutt út um 566
tonn af ostum.
Ásgeir Steingrímsson
einleikari með Sin-
fóníuhljómsveitinni
FIMMTU áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsvcitar íslands verða í
Háskólabíói á morgun, fimmtudag-
inn 6. des. og hefjast þeir kl. 20.30.
Efnisskrá tónleikanna verður
sem hér segir: Jónas Tómasson:
Vinnings-
númer í hagp-
drætti SÁA
Vinningsnúmer í happdrætti
SÁÁ munu í dag og framvegis
birtast í auglýsingu neöst á
næstöftugust síðu Morgunblaðs-
ins.
Því miður urðu mistök í
Morgunblaðinu í gær við birt-
ingu vinningsnúmera í happ-
drætti SÁÁ. Hiö rétta er að
vinningsnúmer þriðjudags,
þar sem dregið var um skauta,
voru: 213511, 39020, 193141,
3775 en vinningsnúmer fyrir
miðvikudag 5. des. birtust ein-
um degi á undan, en þau birt-
ast aftur í augl. á næstöftustu
síðu í blaðinu í dag.
„orgia“, Henry Purcell: Sónata
fyrir trompet og strengi, Joseph
Haydn: Sinfónía, Alerander
Arutjunjan: Trompetkonse.'t og
Richard Strauss: „Till Eulenspieg-
el“, tónaljóð op. 28.
Stjórnandi tónleikanna verður
Páll P. Pálsson sem hefur verið
fastráðinn stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands síðan 1971.
Einleikari tónleikanna er Ás-
geir Steingrímsson. Um hann seg-
ir í fréttatilkynningu: „Hann er
fæddur á Húsavík og hóf tónlist-
arnám sitt þar. Síðar fór hann í
Tónlistarskólann í Reykjavík og
lauk þaðan blásarakennaraprófi
vorið 1978 og einleikaraprófi ári
síðar undir handleiðslu Jóns Sig-
urðssonar. Einnig naut hann til-
sagnar Lárusar Sveinssonar. Þá lá
Forsætisráðherrar Norðurlanda
koma saman til fundar í Reykja-
vík 12. desember næstkomandi. 13.
desember verða sameiginlegir
fundir þeirra með samstarfsráð-
herrum Norðurlanda og forsætis-
nefnd Norðurlandaráðs. Olof
Ásgeir Steingríms.son.
leiðin vestur um haf til New York,
í The Mannes College of Music
með styrk úr Friðrikssjóði og
Menningarsjóði Kaupfélags Þing-
eyinga. Þar var aðalkennari hans
John Ware, fyrsti trompetleikari
New York-fílharmóníunnar.
Eftir að hann kom heim frá
námi hefur hann oft leikið í Sin-
fóníuhljómsveitinni og í mars s!.
kom hann í fyrsta sinn fram sem
einleikari með henni."
Palme, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, og kona hans, Lisbet Palme,
verða síðan í opinberri heimsókn
hér á landi föstudaginn 14. des-
ember, en halda heim laugardag-
inn 15. desember.
Palme í opinbera heimsókn
i
%
♦
s
Nýárshátíð \
í Broadway ÍJ
1. janúar 1985\
Vegna gífurlegs áhuga fyrir nýárshátíðinni í ^
Broadway I. janúar nk. viljum við biðja gesti f
okkar frá fyrri árum að staðfesta borð sín fyrir ^
miðvikudaginn 12. desember nk. Eftir þann tíma
áskiljum við okkur rétt til að ráðstafa borðunum.
Hátíðin er aðeins ætluð matargestum.
Skrifstofan er opin dagiega kl. 11 —19 og um
helgar kl. 14—17, sími 77500.
FYRIRTÆKI — FÉLAGASAMTÖK —
STARFSMANNAFÉLÖG
Pantanir og nánari upplýsingar veittar í
símum 77500 og 687370.
Nú fer tími jólatrésskemmtana í
hönd.
Viö viljum vekja athygli ykkar á því
aö viö leigjum Broadway út til jóla-
trésskemmtana.
Á skemmtunum er innifalið:
Jólasveinn.
Vídeósýningar. Barnaefni.
Töframaöur.
Dansflokkurinn Bjarkirnar, Hafnarfiröi.
Limbó- og húlahopp-keppni. Verölaun.
Diskótek á milli atriöa.
Gosdrykkir og sælgæti.