Morgunblaðið - 05.12.1984, Qupperneq 9
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
9
Jólafatnaður
Karlmannaföt kr. 1995 — 2995
Terelynbuxur kr. 595 — 625 og 785
Peysur nýkomar, U ger&ir.
Nærför, skyrtur, sokkar og m. fl.
Andrés,
____ Skólavörðustíg 22A.
Vatnsþynnt lyktarlaust
lakk, auðvelt að mála
með og þú færð mjúka,
perlumatta áferð með
Latex lág glans lakkinu
frá Hörpu.
Spred Latex lakkiö má nota a múr, tré og járn
og er kjöriö i eldhús. böö. glugga, huröir og
husgögn.
Látiö Hörpu
geta tonmn.
J
"r
Ördeyða Hjör-
leifs Gutt-
ormssonar
• Örkuverð til ÍSAL stóð f
stað öll iðnaðarráöherraár
Hjörleifs Guttormssonar,
1978—1983, 6,5 núll/kWh.
• Fljótlega eftir stjórn-
arskipti, 1983, náðist
brádabirgðasamkomulag;
hækkun orkuverðs um
50% eða í 9,5 mill.
• Nýr samningur, sem
náðst hefur, hskkar orku-
verðið f 12,5 mill lágmarks-
verð, sem síöan er til
hækkunar í 18,5 mill eftir
þróun álverðs í heiminum.
Þetta er tvö- til þreftildun
frá tfma Hjörleifs Gutt-
ormssonar.
• Ef hinn nýi samningur
hefði gilt frá sl. áramótum
hefði orkuverð til ÍSAL
verið 133 mill, samkvæmt
upplýsingum frá Lands-
virkjun, sem þýðir að al-
mennt orkuverð hefði get-
að verið 19,8% lægra en ef
6,5 mill-verðið hefði áfram
gilt
• Ef hinn nýi samningur
hefði gilt frá 1979 hefði
orkuverð til ÍSAL verið á
bilinu 12,5—16,5 mill.
Viðbótartekjur hefðu num-
ið 55 milljónum dala á
þessum sex árum, eða
þremur milljörðum og tvö
hundruð milljónum króna
með vöxtum talið, þ.e. 530
m.kr. á ári.
„Af ávöxtunum skuluð
þér þekkja þá,“ segir mál-
tækið. Sex ára vertíð Hjör-
leifs Guttormssonar skilaði
engum ávöxtum, ördeyð-
unni einni. Hann luifði
hinsvegar varla lokað dur-
um á hæla sér í iðnaðar-
ráðuneytinu þegar mál
þróuðust til rétts vegar.
Skattadeilan
Forstjóri Cooper & Ly-
brand og Charles J. Lipton,
ráðagjafarlögfræðingur í
New York, sem Hjörleifur
Guttormsson hafði sér til
halds og trausts í álstrfði
sínu, lögðu báðir eindregið
til að farín yrði sú leið til
sátta, er nú hefur verið
Jóhannes Nordal,
seólabankastjóri, form.
samninganefndarinn-
ar,
gengin, ef viðunandi orku-
sölusamningur fylgdi.
Þeir töldu ýmis óvissu-
atriði fyrir hendi, varðandi
gerðardómsleiðina, auk
þess sem hún gat dregizt
verulega á langinn, en brýn
nauðsyn stóð til að ná fram
orkuverðshækkun sem
allra fyrst.
Forstjóri Cooper & Ly-
brand segir: „Ef ætla má
að væntanleg lausn leiði
einnig til orkuverðs ...
sem ríkisstjómin getur
sætt sig við, er það því
skoðun mín, að uppgjör
krafnanna um framleiðslu-
gjöld fyrir árin 1976—
1980 á þeim grundvelli að
Ahisuisse greiði ríkisstjórn-
inni 3 milljónir Bandaríkja-
dala muni vera mjög viðun-
andi lok skattadeilunn-
ar...“
Umsagnir
forsjár-
manna Lands-
virkjunar
Forstjóri og varaforstjóri
Guömundur G. Þórar-
insson, verkfræðingur,
fyrrv. alþingismaöur,
Landsvirkjunar telja hið
nýja samkomulag við Alu-
suisse „Landsvirkjun mjög
í vil og fyrirtækinu til vera-
legra hagsbóta". í umsögn
þeirra kemur m.a. efnis-
lega fram:
• 1) Að viðbótartekjur
Landsvirkjunar skv. hinum
nýju samningum verði
2.230 m.kr. fram til árs-
loka 1989.
• 2) Að meðalorkuverð til
álvera f Noregi sé innan
við 9 Bandaríkjamill en f
V-Evrópu á bilinu 14—15
mill. Sérfræðingar telja að
vegna markaðsfjarlægðar
ÍSAL þurfi orkuverð hér að
vera u.þ.b. 4 mill lægra en í
V-Evrópu til að samkeppn-
isstaða sé sambærileg.
• Framleiöslukostnaður
úr fullnýttu orkukerfi
okkar er 12,7 mill á kVVst,
en 8.6 mill úr Búrfellsvirkj-
un, sem gagngert var
byggð vegna álversins.
Hinn nýi samningur tryggir
söluverð til fSAL frá 12,5
mill til 18,5 mill, eftir ál-
verðsþróun.
Góð
frammistaða
Miðaö við allar aðstæður
Gunnar G. Schram,
prófessor og alþingis-
maöur.
eru niðurstöður nýrra
samninga vel viðunandL
Eftir er að semja um
stækkun álvcrsins, ef úr
verður, og orkuverð til
stækkunarínnar, sem þá
miðast við framleiðslu-
kostnað frá nýrri virkjun-
um.
Gagnrýni Hjörleifs Gutt-
ormssonar og Alþýðu-
bandalags, sem að loknum
sex ára valdaferli stóðu í
sömu sporum og í upphafi
hans, varðandi orkuverð til
álversins, kemur úr hörð-
ustu átt — og er marklaus.
Menn geta haft skiptar
skoðanir um, hvort breyta
eigi fallvötnum okkar með
þessum hætti í vinnu og
verðmæti til útflutnings;
hvort nýta eigi þetta vopn í
lífsbaráttu þjóðarinnar,
sem önnur tiltæk, til að
tryggja atvinnuöryggi og
lífskjör. Um hitt verður
ekki með sanngirni deilt
að nýir samningar um
orkuverð til ÍSAL og sátt
um eldri deilumál er stórt
spor fram á við — miðað
við ördeyðu og þráhyggju
Hjörleifstímabilsins.
Orkuverðið skipti meginmáli
Tekjur Landsvirkjunar í orkuverði til ÍSAL 1983 nema um 20
milljónum Bandaríkjadala en tekjur ríkisins í sköttum 1,6 milljón-
um dollara. Þaö var því hreinn barnaskapur að láta hagstæöan
orskusamning stranda á skattadeilu, sem hægt var aö eyða meö
skaplegum hætti. Orkuveröiö skipti meginmáli.
Það er dómur iðnaðarráðherra og flestra annarra aö íslenzku
samninganefndarmennirnir hafi staðið sig vel miðað við aðstæð-
ur.
10 ára ábyrgð.
RR BYGflI NGAVÖKUK HE
PlastmöLJ
lakrennur og fylgihlutir
Ný kynslóð
SflyirtlmDgjyr
Vesturgötu 16,
simi 13280.
Heimildaþættir frá
millistríðsárunum
Aldarspegill eftir Elías
Snæland Jónsson
Aldarspegill heitir bók sem Vaka
hefur gefið út. Höfundur er Elías
Snæland Jónsson og er þetta fyrsta
bók hans, en Elías hefur árum sam-
an stundað ýmiskonar ritstörf og
fjölmiðlun.
Á bókarkápu segir meðal ann-
ars: Þegar litið er í spegil þessarar
aldar blasa við örlagaríkir atburð-
ir og ólgandi mannlíf. Þetta á ekki
síst við um fyrri helming aldar-
innar. Að því tímabili er sjónum
beint í jiessari bók eins og undir-
titill hennar sýnir: Átök milli
stríða.
Elías Snæland Jónsson, fyrrum
ritstjóri Tímans og núverandi að-
stoðarritstjóri Dagblaðsins Vísis
hefur hér skráð fróðlega og ný-
stárlega heimildaþætti um ís-
lenskt mannlíf og eftirminnilega
atburði. Hann reisir frásögn sína
á traustum sögulegum grunni og
ítarlegri könnun viðamikilla
heimilda, þar á meðal má nefna
réttarskjöl og dómabækur, dag-
blöð og tímarit, og samtöl við þá,
sem tengdust þessum atburðum á
sínum tima, segir í frétt frá for-
laginu.
I Aldarspegli eru fjórir ítarlegir
heimildaþættir sem bera þessi
heiti: Evangelíum mannhatursins:
Slagurinn um hakakrossinn,
Elías Snæland Jónsson
Andalæknar á sakborningabekk.
Ég gef þér straum í Jesú nafni,
Stórsmyglarar á bannárunum:
Færandi spírann heim, og Hala-
stjarnan á bolsahimninum:
Ilannibal handtekinn í Bolungar-
vík.
Aldarspegill — Átök milli
stríða er 224 blaðsíður. Mynd á
kápu gerði ólafur Pétursson,
teiknari. Bókin er sett í Prent-
tækni og Rún sf., filmuunnin og"
prentuð í Prenttækni og bundin I'
Bókfelli hf.