Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
19
Dapurlegar minningar
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Trygve Bratteli: NÓTT í NIFL-
UNGAHEIMI. Guðrún Vilmundar-
dóttir íslenskaði. 186 bls. Fjölvaút-
gáfa. Rvík, 1983.
Trygve Bratteli, höfundur þess-
arar bókar, var ungur krati í
stríðsbyrjun, virkur í pólitík.
Þjóðverjar tóku hann fastan og
settu í fangabúðir, fyrst í Noregi,
síðar í Þýskalandi. Hann púntaði
strax niður lýsing á vistinni. En
sem stríðinu lauk ákvað hann að
loka það niður og snúa sér að dag-
lega lífinu, slá striki yfir fortíðina.
Síðar — á efri árum — dró hann
fram minnisblöðin. Og úr varð
þessi bók. Hún er því samin af
viðlíka beiskju og tilfinningahita
og fangabúðafrásagnir þær, marg-
ar og þó hver annarri líkar, sem
komu út strax að stríðinu loknu,
þar með taldar lýsingar íslend-
inga sem lentu í fangabúðum nas-
ista.
Lýsingarnar í þessari bók eru í
engu frábrugðnar því sem þá
mátti lesa í nær hverju dagblaði,
tímariti og mörgum bókum:
hrottaskapur fangavarða, kuldi og
matarskortur, stritvinna við
verstu aðstæður; auk voveiflegra
atburða sem fangar urðu að horfa
upp á möglunarlaust.
En hver er þá ástæðan til að
svona síðbúin frásögn er gefin út
og meira að segja þýdd á önnur
mál? Meðal annars frægð höfund-
arins, en Bratteli var sem kunnugt
er í fremst röð norskra stjórn-
málamanna um áratuga skeið. En
orsakirnar mega vera fleiri og í
sumum greinum duldari. Þrátt
fyrir margvíslegar breytingar er-
um við enn að lifa eftirstríðsárin
þó senn séu liðin fjörutíu ár frá
stríðslokum. Evrópukortið er enn
hið sama. Að loknum tveim
heimsstyrjöldum með tveggja ára-
tuga millibili hefur ríkt fjörutíu
ára friður. Nasisminn er enn hafð-
ur að skotspæni. Vesturveldin
halda enn saman — með þeirri
viðbót að ítalir gengu í hópinn og
hlutu syndakvittun, enda munu
þeir hafa verið taldir heldur slakir
bandamenn af Þjóðverjum. Og
Sovétríkin hafa síst allra gleymt
því að þau urðu meðal sigurvegara
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Alfrún Gunnlaugsdóttir:
Þel, skáldsaga.
Útg. Mál og menning 1984.
Álfrún vakti á sér athygli með
smásagnasafninu Af manna völd-
um sem kom út fyrir tveimur ár-
um og fyrsta skáldsaga hennar nú
hlýtur að vekja forvitni, aukin
heldur sem til höfundar má maður
leyfa sér að gera töluverðar kröf-
ur. Er ekki að orðlengja að þær
uppfyllir Álfrún með sóma og vel
það. Sagan minnir á mósaík, þar
sem hver smáflís skiptir máli, í lit
og lögun, ef ég mætti leyfa mér að
orða það svo. Og eftir lestur, sem
þarf sem betur fer verulega ein-
beitingu, stendur eftir heilsteypt
í styrjöldinni. Ég er ekki viss um
að menn eins og Trygve Bratteli
séu fyrst og fremst að hrósa sér af
sigri sem er löngu unninn né held-
ur að minna á hvað þeir sjálfir
máttu þola til að sá sigur ynnist
heldur séu þeir allt eins að tjá með
þessum hætti þá leyndu ósk að
ástand það, sem skapaðist við lok
styrjaldarinnar, megi haldast
óbreytt um sína daga.
Ekki leikur vafi á að hrotta-
skapur var hafður í frammi af öll-
um þeim þjóðum sem þátt tóku í
styrjöldinni, enda þótt fullyrða
megi að Þjóðverjar hafi gengið
verk, þar sem öllu er haganlega
fyrir komið. Án þess að höfundur
leiti út af fyrir sig lausnar —
okkur er sannarlega ekki ljóst
hvern veg sögumaður muni ganga
að bókinni lokinni, en okkur
stendur ekki á sama um það.
Sögumaður hittir á ný bernsku-
vininn Einar og þeir rifja upp
gamlar stundir. Unga dreymdi þá
stóra drauma um háleit markmið,
ungir felldu þeir hug til sömu
stúlkunnar, Unu. Sögumaður gift-
ist henni, en Einar hefur hún lík-
ast til elskað, til kynjafuglsins
Bárðar leitar hún á erfiðum
stundum í hjónabandinu — og fær
þar svo sem enga úrlausn. Einar
hefur nokkurra ára viðdvöl á
Spáni, hann er að skrifa Skáldsög-
una sem átti að leysa hann úr öll-
um viðjum og gefa honum þá
sjálfstrú sem hann skortir svo
átakanlega, þrátt fyrir gleypu-
Trygve Bratteli
gang og gaspur oft á yfirborði.
Hann kynnist rauðvínsdrykkju og
Hondúras-stúlkunni Yolöndu.
Rauðvínsdrykkjan reynist honum
ekki sá ágæti vin sem hann hugði,
Yolanda verður að vísu stúlkan
hans um hríð, en þau ná ekki sam-
an og sú hefnd, sem Einar beitir
hana og félaga hennar, verður ör-
lagarík honum og framtíðar-
draumunum. Á meðan þessu fer
fram á Spáni er sögumaður búinn
að kvænast Unu á Islandi. Hjóna-
bandið og námið og vinnan vefjast
fyrir honum, hjákona bætir lítið
úr skák. Hver er hann sjálfur og
hvað ætlar hann að gera við sitt
líf? Við fáum engin svör við því.
Við fáum svar við því hvað Einar
gerir við sitt líf og viðbrögð sögu-
manns við því.
Þetta er ákaflega vönduð saga,
skemmtilega uppbyggð eins og ég
minntist á í byrjun. Orðfæri höf-
undar gætið og ég fékk sterka til-
finningu fyrir því að Ásrún beri
ákaflega mikla virðingu fyrir orð-
um og hvernig þau eru notuð. Inn-
sæi og manneskjulegur skilningur
mun lengra í þeim efnum en nokk-
urt annað ríki í Vestur-Evrópu
eða Ameríku. Og meðferð þeirra á
Gyðingum var auðvitað eins og
hvert annað brjálæði. Hins vegar
hefur sú lexía ekki reynst hald-
betri en svo fyrir mannkynið að
sams konar óþverraskapur — að-
eins í smærri stíl — hefur víða
viðgengist síðan, sums staðar
átölulaust af fjölmiðlum heimsins
og áhrifamönnum.
Trygve Bratteli var ekki stríðs-
fangi, heldur pólitískur fangi. En
það eru einmitt slíkir sem mest og
verst hefur verið þjarmað að um
víða veröld á seinni árum. Ég skil
tilganginn með útgáfu þessarar
bókar á íslensku svo að verið sé að
minna á þær staðreyndir — þó
með óbeinum hætti sé.
Erlendur Jónsson
Álfrún Gunnlaugsdóttir
á því skilningsleysi sem getur
aldrei gert annað en brjóta niður.
Og þó er þetta ekki myrk bók,
fjarri því. Hún er að mínum dómi,
alveg sérstaklega vitlega unnin og
listræn tök höfundar á efni, máli
og stíl slík, að ánægjulegt er að
lesa hana.
Sjálf fegurðin
Sól hf.
Hver hrepplr
FIATUNO?
Um þessar mundir verður 20.000. SODA STREAM vélin
seld hér á landi.
í tilefni af þessum tímamótum hefur Sól hf. ákveðið að
færa einhverjum SODA STREAM eignda FIAT UNO bíl
að gjöf. Það er ekki ónýtt að fá slíkan farkost í nýársgjöf.
Nafn hins heppna verðurdregið úr ábyrgðarskírteinum
allra SODA STREAM eigenda milli jólaog nýárs n.k. og
mun nafn hans birtast í dagblöðunum í byrjun janúar.
EIGIR ÞÚ SODASTREAM VÉL ÁTT ÞÚ
ÓKEYPISBÍL!