Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 24

Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984 hlín J. Jónsdóttir Riehter skrifar frá Vestur-hýskalandi Hver verður næstur? Bonn og Flick-málið ' Það er svo sannarlega líf í tusk- unum hér um slóðir, og blaðamenn hafa úr nógu að moða. Sem betur fer hafa þeir að engu leyti verið hindraðir að störfum eins og starfsbræður þeirra á íslandi voru lengi vel. Yfirleitt er alltaf gaman, þegar menn eru svolítið rifnir upp úr lognmollunni, en í þetta sinn er tilefnið svo óskemmtilegt, að óskandi væri, að logndeyðan væri fallin á aftur. Enn er fjallað um rausnarskap Flick-samsteypunnar gagnvart stjórnmálaflokkum og mikilsmetnum einstaklingum, og um hríð beindust allra augu að fyrrum næstæðsta manni ríkisins, forseta sambandsþingsins, Rainer Berzel. Sterkur grunur leikur á, að hann hafi þegið 1,7 milljónir marka af Flick-samsteypunni á árunum 1972—1980. Þrátt fyrir það, að Berzel þvertekur fyrir að hafa þegið fé af samsteypunni, hefur honum ekki tekizt að hreinsa sig af hinum ljóta grun um mútuþægni, og þrátt fyrir „hreina samvizku" sagði hann af sér hinn 26. október sl. — vegna hins mikla þrýstings utan frá“. Þar með hafa tveir háttsettir menn úr stjórn Helmut Kohl sagt af sér vegna Flick-málsins. Hinn fyrri var Otto greifi Lambsdorff, fyrrum efnahagsmálaráðherra, sem lét af embætti fyrir nokkrum mánuðum. í hans tilfelli eru mála- vextir með svolítið öðrum hætti; Lambsdorff er reyndar ásakaður um að hafa tekið við fé frá Flick, sem þar með var að kaupa sér til- hliðrunarsemi stjórnmálamanna í sambandi við skattamál sín, en þeir peningar runnu til flokks Lambsdorffs, flokks frjálsra demókrata, en ekki í eigin vasa, eins og áiitið er í máli Barzels. Verður stjórninni að falli? Þetta gjafamál er svo flókið, að ég er í hreinustu vandræðum með að botna í því, en þar er ég víst ekki ein á báti. Það verður sjálfs- agt aldrei upplýst til fulls, því að þeir, sem við það eru riðnir, hafa fulla ástæðu til að vilja ekki ieiða menn í allan sannleika. Auðvitað gera sér flestir grein fyrir því, að fjöldamargir stjórnmálamenn, sem hafa völd í sínum höndum, eru ekki eins strangheiðarlegir og frábitnir ailri greiðasemi gegn endurgjaldi í einhverri mynd og þeir vilja vera láta. En það forað, sem hér kemur smátt og smátt í ljós, tekur út yfir allan þjófabálk. Mig skyldi ekki undra, þótt Flick- málið yrði stjórn Helmut Kohls að fótakefli áður en kjörtímabilið er á enda, jafnvel þótt að flest það, sem nú kemur á daginn, hafi átt sér stað í stjórnartíð sósíaldemó- krata. Samt sem áður voru of margir úr flokki Kohls, sem nefndir eru í þessu sambandi. Verðmætar álitsgerðir! En svo að ég snúi mér aftur að nýjasta hneykslinu, sem hefur komið svo miklu róti á hugi manna unanfarið — máli Rainer Barzels — þá virðist það liggja þannig við: einhverra hluta vegna hentaði ýmsum áhrifamiklum mönnum ekki formennska Barzels fyrir flokki kristilegra demókrata í kringum 1970. Skömmu eftir að vantraustsyfirlýsing hans á þá- verandi kanziana, Willy Brandt, var felld, var honum steypt af stóli formanns, og Helmut Kohl kom í hans stað. Barzel hvarf þá af sviði stjórnmálanna í nokkur ár. Það lítur út fyrir, að einhver hafi þjáðst af samvizkubiti vegna meðferðarinnar á aumingja manninum og viljað gera honum gott fyrir hlýðnina, og þessi ein- hver mun hafa verið stóriðjuhöld- urinn Karl Friedrich Flick. Ýmislegt er á huldu, en stað- reynd er, að Barzel, sem er lög- fræðingur að mennt, varð ráðgjafi mjög mikils metins lögfræðings í Frankfurt. Svo undarlega vildi til, að Flick-samsteypan var eða varð viðskiptavinur einmitt þessarar lögfræðiskrifstofu og greiddi henni u.þ.b. 1,7 milljónir marka fyrir störf hennar — er sagt — næstu árin á eftir. Hvíiík tilviljun, að lögfræðiskrifstofan greiddi Barzel svo til nákvæmlega sömu upphæð á nákvæmlega sama tímabili fyrir nokkrar álitsgerðir. Mikið mega þessar álitsgerðir hafa verið mikilvægar og verð- mætar, úr því að launin voru svona há — og það fyrir íhlaupa- vinnu! Og svo er bíræfnin mikil, að fullyrða fullum fetum, að „laun“ þessi hafi ekki staðið í neinu sam- bandi við greiðslurnar frá Flick og ætlazt til, að því sé trúað. Þessir menn hafa ekki mikið álit á dóm- greind kjósenda sinna. Sagði af sér Eins og komið hefur í ljós, er Flick-gjafamálið svo umfangsmik- ið og óljóst, að það mun taka óra- langan tíma, þar til niðurstöður fást, ef endaniegar niðurstöður fást þá nokkurn tíma. Sambandsþingið setti svokall- aða Flick-nefnd á fót, skipaða þingmönnum allra fiokka til þess að rannsaka málið, og hefur hún RAINER BARZEL fyrnun þingforseti. — Þáði hann mútur? þegar starfað í marga mánuði og yfirheyrt marga helztu menn úr stjórnmálalífinu. Þriðjudaginn 23. október, var Barzel gert að ganga fyrir nefndina. Næstu daga á und- an var Barzel aðalefni blaðanna, en hann var hinn bjartsýnasti; kvaðst hafa tandurhreina sam- vizku, og að hann yrði hreinsaður af öilum grun eftir framburð sinn fyrir nefndinni. Ennfremur sagði hann, að ekki kæmi til greina að láta af embætti sem þingforseti; til þess væri ekki hin minnsta ástæða. En svo fór sem fór; grun- urinn um mútuþægni Barzels var jafnsterkur eftir yfirheyrslurnar yfir honum og lögfræðingnum fyrrnefnda frá Frankfurt sem áð- ur, og þrem dögum síðar sagði Barzel af sér. HELMUT KOHL kanslari, stundum kallaður „kreppukanslarinn" vegna hinna mörgu hneyksla, sem upp hafa komist eftir að hann tók við. Samvizkusamur bókari Fyrir nokkrum dögum mætti Helmut Kohl, kanzlari, fyrir nefndinni. Hann viðurkenndi að hafa nokkrum sinnum tekið við fé fá Flick — reiðufé í hvítum um- slögum — samtals 155 þúsund mörkum, sem hann síðan afhenti féhirði flokks síns. Bækur flokks- ins bera sönnur á þennan fram- burð. En ósannað er, hvort Kohl hefur tekið við 400 þúsund mörk- um til viðbótar, sem hinn sam- vizkusami bókari Flicks, Diehl að nafni, hafði fært inn á lista sinn, sem frægur er orðinn. Á lista þessum standa nöfn þeirra, sem við bitlingum tóku og upphæðirn- ar, sem að þeim voru réttar. Bók- hald fyrnist nefnilega etfir 7 ár, Síðara bindið af „Ítvísýnum leiku „MASTER of the Game“ nefnir Sidn- ey Sheldon þessa óhemjuvinsælu sögu sína á frummálinu. Hún var næstum heilt ár á metsölubókalista „The New York Times" og komst í efsta sæti á 8 öðrum metsölubókalistum þekktra blaða og tímarita í Bandaríkjunum. Myndböndin með „Master of the Game“ voru í efsta sæti vinsældalist- ans hjá 19 stærstu myndbandaleigum á íslandi sumarið 1984. Fyrra bindi verksins, sem í is- lenskri þýðingu Hersteins Pálsson- ar nefnist „í tvísýnum leik“, kom út í fyrra hjá Bókaforlagi Odds Björnssonar, sem nú sendir frá sér síðara bindið. Áfram er rakin þessi ævintýralega saga um þrjár kyn- slóðir kvenna, metnað þeirra, bar- áttu og ástir. Sögusviðið er Suður- Afríka, Bretland og Bandaríkin. Auður og völd eru helsta keppikefli sögupersónanna, sem þurfa að hjúpa feril sinn leyndarmálum og yfirhylmingum, enda allt í húfi. Sidney Sheldon er nú vinsælasti sagnahöfundur Bandaríkjanna og sá sem flestar metsölubækurnar hefur skrifað. Bindin tvö eru samtals 464 bls. (Fréttatilkynning.) Fjölgun kenn- ara og nemenda BLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá menntamálaráðuneytinu: f riti Framkvæmdastofnunar ríkisins, Mannfjöldi, mannafli og tekjur, sem út kom í ágúst sl. kem- ur fram að ársstörfum í skólum hefur fjölgað um 93,8% áratuginn 1971—1981. Samhliða birtust tölur þar sem sagt var að nemenda- fjölgun hefði aðeins verið 6,5% á sama tímabili. Þessi mikli munur vakti að vonum athygli og olli um leið nokkrum misskilningi, því að í uniræðu, sem um þessar tölur spannst, var talað um að kennur- um hefði fjölgað um 93,8%. Ársstörf í skólum voru sam- kvæmt upplýsingum fram- kvæmdastofnunar 6.383 árið 1981, en samkvæmt upplýsingum launa- deildar fjármálaráðuneytisins voru kennurum við opinbera skóla, þ.e. skólar sem kostaðir eru af ríki og sveitarfélögum, greidd 4.395 árslaun það ár. Mismunurinn er tæplega 2.000 ársstörf. Þar með eru talin önnur störf við opinbera skóla svo sem skrifstofustörf, húsvarsla, ræst- ing, störf í mötuneytum og fleira. Einnig telur stofnunin með störf við ýmsar einkastofnanir og skóla svo sem vinnuskóla barna og unglinga, námsflokka, bréfaskóla, tískuskóla ogdansskóla. Ennfrem- ur fellur undir þennan lið starf- semi eins og ökukennsla, vélritun- arkennsla og öll einkakennsla. ekki er unnt að gera sér grein fyrir fjölgun ársstarfa við kennslu í opinberum skólum á umræddum áratug, því að tölur þær, sem fyrir liggja frá 1971 í fjármálaráðu- neytinu gefa ekki rétta mynd þar sem hluti kennara fékk þá greidd laun úr sveitarsjóðum. Hvað varðar höfðatölu kennara við opinbera skóla 1971 og 1981, eru tölur fyrirliggjandi og fylgir með yfirlit yfir þær. Af þeim kem- ur fram að föstum kennurum við opinbera skóla hefur fjölgað um 62,1% og stundakennurum um 18,8%. í heild hefur kennurum fjölgað um 43,3%. Fjölgun þessi stafar m.a. af eft- irfarandi ástæðum: 1. Fjölgun nemenda í forskóla. 2. Ný löggjöf 1974 sem heimilar m.a. ráðningu fleiri kennara en áður að dreifbýlisskóla. 3. Fjölgun kennslustunda í yngri bekkjum grunnskóla. 4. Mikil fjölgun nemenda á fram- haldsskólastigi og háskólastigi. 5. Aukið námsframboð t.d. með stofnun fjölbrautaskóla. 6. Breyting á iðnnámi. Verknáms- þáttur þess hefur verið fluttur í miklum mæli frá meisturum inn í verknámsskóla. 7. Stofnun þjálfunarskóla. 8. Minnkun kennsluskyldu á tíma- bilinu. í yfirlitinu kemur einnnig fram fjöldi nemenda við opinbera skóla sömu tvö skólaár og hefur þeim fjölgað um 15,07% á umræddu tíu ára tímabili. Ástæðan til þess að talan er lægri í upplýsingum þeim, sem birtust jafnhliða skýrslu fram- kvæmdastofnunar er sú, að 1971 eru taldir með tæplega 6 þús. nem- endur í skólum eins og t.d. kvöld- skólum og námsflokkum, sem ekki eru taldir með 1981. Samanburdur á fjölda nemenda og kennara í skólum á íslandi skólaárin 1971—’72 og 1981—’82 samkvæmt skólahaldsskýrslum og nemendaskrán- ingu Hagstofu Islands. Tala nemenda fastir kenn. Stundakenn. Skólar 71/72 81/82 71/72 81/82 71/72 81/82 Forskóli 2.678 4.195 1.997 2.561 1.009 604 (>iunn.skóli 1.—9. b. 40.558 37.253 Þjálfunaiskólar 458 135 22 (■ninnakólastij; alls: 43.236 41.906 1.997 2.696 1.009 626 FramhaldfHkólar 4. bekkur gagnfrKðaskóla 2.340 í tölu kennara á grunnskólastigi. FramhaldHd. gagnfraeóask. 541 937 Vöróuskóli — fornám 270 Krennaak. í Rejkjarík 190 14 Menntaskólar 3.041 3.835 130 225 133 146 Menntaskólar öldungad. 827 Fjölbrautaskólar 4.376 285 164 Fjölbrautask. öldungad. 809 Verslunarskólar 802 763 29 41 27 31 Leiklístarskóli ísl. 10 23 1 8 12 fþróttakennarask. fsl. 30 47 4 5 6 1 lónskólar 1.909 1.280 50 115 162 % Vélskólar 290 281 16 20 32 13 Sjómannaskólar 307 169 11 12 44 20 Fiskrinnsluskóli 39 4 8 Hótel- og veitingaskóli 67 76 3 4 6 8 Myndlista og handíóask. ísl. 322 177 11 12 27 37 Bænda- og garóyrkjusk. 136 135 11 17 18 17 Ilússtjórnarskólar 750 695 44 23 34 21 Ilúsmjeórakennarask. fsl. 13 3 12 Skólar fyrir heilbrigóisst. 329 453 14 28 68 81 Fósturskóli fslands 116 180 8 3 Lýóháskólinn í Skálholti 23 3 3 Tónlistarskólar 3.056 7.663 38 297 162 233 Framhaldsskólar alls: 14.049 23.248 364 1.123 731 814 Skólar Tala nemenda 71/72 81/82 Fastir kenn. 71/72 81/82 Stundakenn. 71/72 81/82 Háskólastig Hiskóli fslands Kennarahiskól. fsl. Tekniskóli fsl. 1.967 3.413 701 355 242 345 123 233 39 33 10 19 140 700 19 35 43 52 AIIk 2.910 4.113 172 285 202 787 Heildaryfirlit Tala nemenda 71/72 81/82 Fastir kenn. 71/72 81/82 Stundakenn. 71/72 81/82 GninnskólasL + forskóli 43.236 41.906 +3,1% 1.997 2.696 +35% 1.009 626 +38% Framhaktaskólastig 14.049 23.248 +65,5 % 364 1.123+208 % 731 894+22,3% Hinkólastig 2.910 4.113+41,3% 172 285+65,5 % 202 787+ 289% Alls: 60.195 69.267+15,07 % 2.533 4.106+ 62,1 $ 1.942 2.307+18,8%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.