Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
29
SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI/Ólafur Ormsson
í bakhúsi við Laugaveg
AKUREYRI
Akureyri,
blómlegur
bær í norðri
BÓKAFORLAG Odds Björnssonar á
Akureyri gefur nú út í samvinnu viö
Iceland Review nýja og gltesilega Ak-
ureyrarbók: Akureyri — blómlegur
bær í norðri. Textann ritar Tómas
Ingi Olrich, en Svisslendingurinn
Max Scmid birtir fjölda nýrra litljós-
mynda, sem hann hefur tekið undan-
farin ár.
Tómas Ingi Olrich hefur verið
menntaskólakennari og konrektor á
Akureyri um árabil, en er nú rit-
stjóri „Islendings" á Akureyri og
formaður Skógræktarfélags Eyfirð-
inga. Max Scfnid er víðkunnur fyrir
listrænar íslandsmyndir sínar, sem
hafa birst víða, auk þess sem hann
hefur sýnt þær, stækkaðar, opin-
berlega.
Bók þessi bætir úr brýnni þörf
því fyrri Akureyrarbók Bókafor-
lagsins, „Akureyri og norðrið fag-
ra“ hefur verið uppseld um nokkurt
skeið. Höfundar nýju bókarinnar
eru framúrskarandi, hvor á sínu
sviði, enda afraksturinn listaverk,
sem fara mun víða, því bókin er
samtímis gefin út á ensku. 96 bls.
(Fréttatilkynning.)
Hús eru til margra hluta nýti-
leg. Fyrir miðjum Laugavegi, á
baklóð, er lítið hvítt timburhús,
bárujárnsklætt og ekki mjög
áberandi, stórhýsi ofar við göt-
una skyggja á það og úr fjarlægð
minnir það helst á gamla hey-
hlöðu. Húsið er byggt sem íbúð-
arhúsnæði snemma á öldinni.
Þegar frá leið var það flutt neðar
í lóðina, eftir að ys og þys versl-
unargötunnar tók að aukast.
Nokkrir kunnir borgarar hafa
búið i þessu húsi og nægir þar að
nefna Alfreð Andrésson, hinn
kunna gamanleikara og söngv-
ara sem látinn er fyrir mörgum
árum. Ekki er langt síðan gerðar
voru gagngerar breytingar á
húsinu að innan sem utan en það
Iátið halda upprunalegum svip
sínum. f dag er þar innan dyra
skartgripaverkstæði á tveim
hæðum á vegum Gull og Silfur
hf. og gullsmiðirnir fara á kost-
um, smíða athyglisverð djásn
handa Reykvíkingum sem öðrum
landsmönnum. Þar hafa margir
trúlofunarhringar, eyrnalokkar,
armbönd og aðrir sérsmíðaðir
hlutir orðið til á þeim skamma
tíma sem liðinn er síðan verk-
stæðið flutti þangað frá húsi við
Vatnsstíg þar sem einnig voru
gerðir skemmtilegir hlutir. Þeir
eru til sem koma í litla báru-
járnsklædda timburhúsið ekki
eingöngu vegna skartgripa held-
ur einnig til að leita sér andlegr-
ar næringar, þeir leyna nefni-
lega á sér gullsmiðirnir, meira
að segja svo að tveir af fjórum
sem þar starfa að staðaldri
myndu sóma sér vel í heimspeki-
deild Háskólans, sá þriðji senni-
lega á fasteigna- og verðbréfa-
markaði og sá fjórði, sem er ung
og myndarleg stúlka, hefur þá
hæfileika sem hinir hafa þá ekki.
Á verkstæðinu er stundum efnt
til málfunda um lífið og tilver-
una, oft þá í kringum hádegi, um
það leyti sem kunn hetja úr bar-
áttu blaðasala um markaðinn
lítur inn og bíður dagblöðin til
kaups; hann er oftast fyrstur á
vettvang með blöðin. Einhvern
veginn þannig er stundin: Auðunn
bankar uppá þegar sagðar eru
hádegisfréttir í útvarpi, brosir
út í annað munnvikið, er með
pokann sinn um axlir og Einar
Haki er ekki lengi að taka við
sér, rís á fætur úr sínum sér-
smíðaöa stól, gengur til dyra og
þeir Auðunn skiptast á orðum
um lífsbaráttuna á meðan Einar
leggur í lófa Auðuns andvirði
síðdegisblaös og svo óska þeir
hvor öðrum gæfu og gengis og í
því birtist Höskuldur Skagfjörð
leikari einn af fastagestunum og
býður góðan daginn að hætti
diplómata og með sinni sérstæðu
rödd er minnir oft á búktalara.
Það er hellt uppá kaffi eftir að
Einar hefur farið í gegnum
fyrirsagnir blaðanna og Hös-
kuldur sagt sögur af lífsreyndu
kvenfólki á Islandi. Bræðurnir
Magnús og Sigurður Steinþórs-
synir bæta við sögum af erlend-
um vettvangi og þegar skáld eru
á staðnum sem stundum kemur
fyrir þá segja þau eftilvill enn
magnaðri sögur og þá oft af öðr-
um vettvangi. Spáð er í stjórn-
málaástandið innanlands sem
utan og vinstri menn reynast
ekki eiga miklu fylgi að fagna,
Einar er að vísu hrifinn af Svav-
ari og telur hann sinn leiðtoga,
aðrir eru þjóðlegir íhaldsmenn
og frjálslyndir umbótasinnar.
Lífsgátan er kryfjuð til mergjar,
Einar býður í nefið til að skerpa
hugsunina, er síðan kannski rok-
inn út, niður á Jáverfisgötu, í
matvöruverslun að sækja sér og
vinnufélögum eitthvað i matinn
og þegar hann birtist að nýju er
gengið uppá loft, í matsalinn,
borðað og haldið áfram að fjalla
um lífið og tilveruna. Óvænt
hringir síminn, það er spurt um
hluti varðandi brúðkaupsveisl-
una annað kvöld eða fimmtugs-
afmælið og allt er samkvæmt
áætlun á verkstæðinu, hlutirnir
til á réttum tíma eins og um var
samið, gullsmiðirnir eru þekktir
fyrir að vinna vel og samkvæmt
áætlun enda hafa vinsældir
fyrirtækisins ekki komið af
engu, að baki er mikil vinna og
góð uppbygging á liðnum árum
sem ekki er síst að þakka Stein-
þóri heitnum Sæmundssyni, föð-
ur bræðranna, sem er nýlátinn
og sjónarsviptir er að. Sigurður
leynir á sér, hann hefur lengi í
tiltölulega þröngum hóp verið
þekktur fyrir myndlistarhæfi-
leika sína og uppá veggjum á
verkstæðinu hanga nokkur verk
eftir hann, en Sigurður verður
allt að því feiminn þegar minnst
er á snilldina og fer þá út í aðra
sálma eða spyr skyndilega í hlé-
drægni sinni hvort ekki vanti
mynd við smásögu. Matartíminn
er á enda, Magnús á förum í
banka að huga að innstæðu á
bankareikningi og er tíðrætt um
verð á fasteignum og Einar Haki
er enn kominn með tóbaksdósina
á loft og enginn vill í nefið nema
Höskuldur Skagfjörð sem er
nautnamaður. Gullsmiðirnir eru
komnir í hvítu sloppana, log-
suðutækin komin í gang, stúlkan
sem er í læri hjá stórmeisturun-
um, líklega rétt rúmlega tvítug,
hefur gaman af heimsókn lit-
ríkra persóna, brosir ýmist eða
hlær. Hakinn fínpússar gleraug-
un og þegar ég kveð þá sé ég að
hann rýnir í hring sem er með
merki Frímúrarareglunnar ...
NYJAR BÆKUR
Skagamenn skoruðu mörkin.
Saga knattspymunnar á Akranesi.
Stórkostleg bók um frægasta
knattspyrnulið íslands.
Borgfirzk blanda 8. Safnað
hefur Bragi Þóröarson.
Þjóðlífs- og persónuþættir. Syrpa
af gamanmálum. Þetta er lokabindi
bókaflokksins.
Hvunndagsspaug, eftir háöfugl-
inn Ephraim Kishon.
Kímnisögur úr daglega llfinu. Bók
sem kitlar hláturtaugarnar.
Huglæknirinn og sjáandinn,
Sigurrós Jóhannsdóttir.
Þórarinn Elfs Jónsson skráði.
Frásagnir af lækningaferli,
draumum og dulskynjunum.
Heiðin. Kvæðabók eftir Svein-
björn Beinleinsson allsherjargoða,
sem er einn af okkar mestu rím-
snillingum.
Komið af fjöllum. Ljóðabók eftir
Sigríði Beinteinsdóttur.
Ljóð sem birta næman skilning
höfundar á umhverfi og samtíð.
HEITAR ÁSTIR OG RÓMANTÍK SPENNUSÖGUR
B&tUP
Sigur
ástarinnar
DIINCAN
KYLE
ÍGILDRU
ÁGRÆNLANDSJÖKU
Lyáll
LAUIMRÁO í
LEYIMIÞJÓIMUSTU
Sigur ástarinnar, eftir Bodil
Forsberg.
Spennandi bók um ást og afbrýði.
Forboðin ást, eftir Nettu Muskett
Hrffandi ástarsaga um unga
elskendur.
Ást og hatur, eftir Erling Poulsen.
Saga um ástir og dularfulla atburði.
Flóttinn meö gullið. eftir Asbjörn
öksendal.
Sönn, lifandi lýsing frá hildarleikn-
um í Noregi.
GÓÐAR BÆKUR FRÁ HÖRPUÚTGÁFUNNI
I
í gildru á Grænlandsjökli, eftir
Duncan Kyle.
Hrollköld og ógnvekjandi spennu-
bók.
Launráð í leyniþjónustu, eftir
Gavin Lyall.
Æsispennandi og mögnuð njósna-
saga.
HÖRPUÚTGÁFAN
Akranesi-sími 93-2840