Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
50
HALLUR MAGNUSSON/ FINNBOGI MARINÓSSON
Syngdu med elskan.
Hopp og skopp
í Tónabæ
Fyrír stuttu sat Blöndungurinn og
beið eftir strætó. Með honum biðu
tvær stelpur sem kjöftuðu hver ofan
í aðra. Blöndungurinn gat ekki kom-
ist hjá því að heyra eitt og annað
sem frá þeim kom.
— Ætlarðu ekki í Tónabæ í
kvöld og sjá heimsmeistarann í
diskódansi?
— Jú, ætli það ekki.
Hér var áhugi Blöndungsins
vakinn. Heimsmeistarinn í diskó-
dansi, hvorki meira né minna!
Þetta var eitthvað sem ekki mátti
missa af. Þannig var það að
Blöndungurinn ákvað að skella sér
í Tónabæ þetta fimmtudagskvöld.
Klukkan var rétt rúmlega níu
þegar Blöndungurinn mætti á
staðinn. Heimsmeistarinn,
Frankie Johnson, og umboðsmað-
ur hans voru þegar mættir. Þeir
voru hinir rólegustu og reytti um-
boðsmaðurinn af sér gamla og
rótgróna fimmaurabrandara á
meðan heimsmeistarinn var að
undirbúa sig. Blöndungurinn
ákvað því að rölta og finna hvern-
ig stemmningin var á meðal
krakkanna. Honum að óvörum var
hún hálf döpur.
— Blessaður vertu. Þetta er
enginn heimsmeistari. Hann var í
öðru sæti!
— Hvað segirðu! Enginn heims-
meistari?
— Jú, sko. Gæinn sem var í
fyrsta sæti nennti ekki að stússast
í ferðalögum, sýningum og svo-
leiðis. Þessi tók því við titlinum.
Það var greinilegt að þessar
fréttir höfðu borist um allan
Tónabæ. Það var ekki laust við að
sumum þætti þetta drottinssvik.
En hvað um það, klukkan hálf tiu
þegar heimsmeistarinn átti að
byrja að dansa var hver einasta
hræða komin inn í salinn.
Dansarinn byrjaði á því að sýna
nokkur dansspor. Eða öllu heldur
hopp og skopp og heljarstökk. Það
var greinilegt að þetta var enginn
venjulegur frístundadansari! Eftir
þessi fyrstu spor fór aðeins að
lifna yfir áhorfendum. Þeir byrj-
uðu að klappa i takt og dilla sér.
Að þessum æfingum loknum bað
hann um þekkt lag með Lionel
Ritchie. Og viti menn! Hann tók
að syngja með þessari hljómþýðu
englarödd!
— Heyrðu mig, er maðurinn
ekki dansari?
— Jú, hvað er’etta maður. Viss-
uru ekki að hann er aðallega
söngvari? Dansinn er bara svona
með.
Nú var Blöndungurinn farinn að
finna stemmningu færast yfir
mannskapinn. Klappið varð þétt-
ara og fólk skemmti sér greinilega
vel. Frankie dillaði sér í takt við
Eiginhandaráritun.
Vá, er hann ekki sætur?
tónlistina og sýndi einnig nokkur
skrykk-spor. En þá var hann
hættur! Ekki voru áhrofendur til í
að sleppa honum svo fljótt. Mót-
mælahljóð fór yfir salinn og
krakkarnir klöppuðu af krafti.
Frankie átti ekki að sleppa svona
létt. Heimsmeistarinn rölti sér
aftur inn á gólfið og hélt sýning-
unni áfram. Nú vildi hann fá þá er
harðast gengu fram til að syngja
með sér, en minna varð úr því en
skyldi. Aftur hætti hann, en enn á
ný var hann klappaður fram á
gólfið. Nú var heldur betur komið
stuð í gæjann. Hann svipti af sér
skyrtunni og var nú ber að ofan.
— Guð hvað hann er sexy!
— Ertu eitthvað verri?
— Vá! Finnst þér hann ekki
sætur?
— Nehei! Hann er eins og hann
sé rétt dottinn úr trjánum. Minnir
helst á Neandertahlsmanninn.
— Ég meina það! Þú hefur nú
ekkert vit á karlmönnum.
I þessu hætti Frankie að dansa.
Hann hvarf inn í búningsherberg-
ið og ætlaði greinilega ekki að
koma fram aftur þrátt fyrir kröft-
uglegt uppklapp. Þegar krakkarn-
ir gerðu sér grein fyrir því hljóp
stelpuskarinn fram í sjoppu í leit
að pappír og skriffærum.
— Við verðum að fá eiginhand-
aráritun. Blað og blýant.
— Snögg, við megum ekki
missa af honum.
Eftir að blöð og blýantar höfðu
fengist var rokið að búningsklef-
anum. Heimsmeistarinn var
meira en fús til að gefa undir-
skriftir. Hann krotaði meira að
segja upp eftir handleggjunum á
þeim er ekki höfðu blað. En allt
tekur sinn endi. Hendur og blöð
urðu útskrifuð svo hinir nýju að-
dáendur héldu sælir frá klefanum.
Blöndungurinn hugðist nú ræða
við kappann sem hafði öllum að
óvörum slegið í gegn í Tónabæ. En
þar sló stelpa sem greinilega var
fréttaritari við innanhúsblað
þeirra Tónbæinga honum við. Hún
hafði króað dansarann af úti í
horni og með hjálp starfsmanna
spurði hún Frankie í þaula. Því
hélt Blöndungurinn heim á leið
eftir ágæta skemmtun hjá heims-
meistaranum sem ekki var heims-
meistari, en heimsmeistari þó.
Blöndungurinn var ánægður með
dansinn, krakkarnir voru ánægðir
með dansinn og Frankie var
ánægður með dansinn. Betra gat
það ekki verið.
Framhalds-
skólamálæði
Síðastliðinn vetur kom JC á Is-
landi af stað ræðukeppni milli
framhaldsskóla. Þar sem allmikil
deyfð hafði verið í málfundafélög-
um flestra framhaldsskólanna ár-
in áður, kom hinn mikli áhugi á
þessari keppni mjög á óvart.
Keppnirnar urðu sífellt harðari og
stemmningin í kringum þær varð
gífurleg. Hápunktur keppninnar
var úrslitakeppnin á milli MH og
MR sem haldin var í Háskólabíói.
Þrátt fyrir ágætt húsrými á þeim
stað var varla sá blettur sem ekki
var nýttur af áhorfendum. Bíóið
var stútfullt og áhorfendur studdu
sinn skóla með ráðum og dáð.
Keppt var um tvo farandbikara,
annars vegar sigurlaun ræðuliðs
og hins vegar bikar til handa
besta ræðumanni keppninnar. í
fyrra fóru leikar þannig að lið MH
vann með litlum mun. Ræðumað-
ur keppninnar var einnig úr þeim
skóla.
Nú í haust fór þessi keppni aft-
ur af stað. Fjörið hefur verið síst
minna og mörg spakyrði fokið
milli manna. Ekki hafa allir verið
sáttir við úrslit, en það er nú svo
að seint þýðir að deila við dómar-
ann.
Úrslit í fyrstu umferð urðu eft-
irfarandi: MR bar sigurorð af
Fjölbraut á Sauðárkróki. MH
vann Menntaskólann á Isafirði.
Flensborg sigraði Menntaskólann
á Akureyri. Fjölbraut á Selfossi
hafði betur gegn Versló. Fjölbraut
Garðabæ tapaði gegn Samvinnu-
skólanum Bifröst. MS laut í lægra
haldi gegn Fjölbraut Breiðholti.
Kvennaskólinn hafði betur gegn
Menntaskólanum Egilsstöðum.
Fjölbraut Vestmannaeyjum vann
Fjölbraut Akranesi. Ármúlaskóli
sigraði Fjölbraut Suðurnesja.
Menntaskólinn í Kópavogi sat hjá.
I annarri umferð sátu allir hjá
nema MH sem tapaði fyrir MK og
Fjölbraut Breiðholti sem sigraði
Flensborg. Þriðja umferð fer fram
í kringum 22. janúar. Dregið verð-
ur u.þ.b. tíu dögum fyrir keppnina.
Blöndungurinn mun halda
áfram að fylgjast með keppninni,
birta úrslit og jafnvel segja frá
skemmtilegum atvikum sem upp
koma. Að sjálfsögðu verður hann í
Háskólabíói þegar úrslitakeppnin
fer fram. Ljóst er að MH mun ekki
verja titilinn en hver það verður
veit nú enginn, vandi er um slíkt
að spá!