Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 57

Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984 57 í 100 metra hsð yfir sjávarmáli í austanverðan Botnsdal í Súgandafirði í 150 m haed og merkt B 4820 metra löng göng úr Seljahvilft í Súgandafirði í 200 m hæð í Þverdal í Önundarfirði í 180 m hsð. Gróflega áætlaður kostnaður við tueði göngin er um 900 milljónir króna. ríkis og sveitarfélaga og að tekjuöflun fylgi útgjöldum. Sveitarfélögin ráðstafa nú um 7% af þjóðartekjum, eða 20% af opinberu ráðstöfunarfé, en það er mun lægra hlutfall en í ná- grannalöndunum. Hvað varðar breytingar á sveitarstjórnarlög- unum, eru mest áberandi ákvæði um að fella niður sýslunefndirn- ar og taka upp héraðsþing í staðinn. Fulltrúafjöldi á heraðs- þingum yrðu 13—35, svo að minnstu hrepparnir þyrftu að sameinast um fulltrúa. Þá eru ákvæði um að sameina hreppa þannig að lágmarksíbúafjöldi yrði 400. í dag eru 223 sveitar- félög í landinu, þar af eru 117 með færri íbúa en 200 og í 16 sveitarfélögum eru 50 íbúar eða færri. Þrír hreppar í stað átta Samkvæmt 400 íbúa mörkun- um, yrði A-Barðastrandarsýsla ekki nógu stór til að mynda hreppsfélag og yrði að samein- ast V-Barðastrandarsýslu og mynda hrepp með suðurhluta. V-Barð., Patreksfjörður yrði áfram sérstakt hreppsfélag, en Tálknafjörður og Bíldudalur yrðu eitt hreppsfélag ásamt sveitunum í kring. Samkvæmt því yrðu þrír hreppir í Barða- strandarsýslu, en eru nú 8. Norðurhluti Arnarfjarðar og allur Dýrafjörður sameinuðust Þingeyri. Allur Önundarfjörður sameinaðist Flateyri, en Súg- firðingar héldu óbreyttum mörkum, nema þeim fækkaði um 10%, þá yrðu þeir að sam- einast Flateyri, ísafirði eða Bolungarvík, en hreppamörk Suðureyrarhrepps liggja að þessum byggðarlögum. Þá yrði allt ísafjarðardjúp að undan- skildum kaupstöðunum ísafirði og Bolungarvík að sameinast í eitt byggðarlag væntanlega með miðstöð í Súðavík. í Stranda- sýslu yrðu tvö hreppsfélög. Gert er ráð fyrir í frumvarpinu að ákvæðinu um 400 íbúa sveitar- félög taki að fullu gildi innan 16 ára. Drög að ályktun fjórðungs- þingsins um tillögu um ný sveit- arstjórnarlög er birt sérstaklega hér í blaðinu. Formannaskipti Guðmundur Ingólfsson ísa- firði lét af störfum sem formað- ur fjórðungssambandsins, en nú komu til framkvæmda lög um að formaður megi aðeins sitja í 8 ár samfleytt. I skýrslu sinni gat hann helstu viðfangsefna stjórnarinnar á liðnu starfsári og því sem framundan er. Hann lagði megináherslu á að í þeim mikla samdrætti sem væri í sjávarútvegi bæri að leggja höf- uðáherslu á nýsköpun og aukna framleiðni hjá þeim fyrirtækj- um, sem nú eru í sjávarútvegi á íslandi. í landbúnaði ber að leggja áherslu á sauðfjárbúskap, þar sem óvíða á landinu eru betri skilyrði til þeirra búskap- arhátta og búfjársjúkdómar fá- tíðari en annars staðar. Samgöngumál í brennidepli Hann lýsti vonbrigðum sínum með störf samgöngunefndar Vestfjarða sem samgönguráð- herra Steingrímur Hermanns- son þingmaður Vestfjarða skip- aði 1980. Hann sagði að eftir fjögur ár hefði hún aðeins lagt fram hugmyndir, sem virðast ekki byggðar á traustum grunni. Hann sagði að samgöngumálin væru í brennidepli og hvatti til að í engu yrði slakað til, þar sem byggðaþróun næstu ára byggð- ist á þeim. Hann sagði að heil- brigðismál væru í stöðugri upp- byggingu og taldi að vel horfði á Vestfjörðum í heild, svo fram- arlega að samgöngur kæmust í eðlilegt horf. I lok þingsins var kosin ný stjórn. Formaður Fjórðungs- sambands Vestfirðinga er nú Jónas Ólafsson sveitarstjóri á Þingeyri, aðrir í stjórn eru: Benedikt Kristjánsson Bolung- arvík, Björn Gíslason Patreks- firði, Guðmundur Ingólfsson ísafirði og Karl E. Loftsson Hólmavík. Úlfar. Nýi formaðurinn og húsbyggjandinn eftir Sigurð Antonsson Margir hafa orðið til að útlista hin dapurlegu örlög Alþýðuflokks- ins á leiksviði stjórnmálanna síð- ustu mánuði. Þar er varla á bæt- andi. Lánleysið virðist elta þennan fyrrum dugandi flokk og baráttu- mál hans hafa hvert af öðru gufað upp. Hafi einhvað haldreipi verið í þeim fyrir aðra stjórnmálamenn hafa þeir umsvifalaust gert þau að sínum, enda flestir þingmenn gjöfulir á fé er með sköttum ná og útdeila til fylgismanna sinna eins og frelsarinn forðum. Ekki af and- legu brauði, heldur afrakstri sem kominn er frá stritandi og vinn- andi höndum. Hinn nýi spámaður og formaður Alþýðuflokksins þykist nú himinn hafa höndum tekið og telur brýn- asta viðfangsefnið að boða hús- byggjendum ný sannindi er birst hafi á stjörnuhimni alþýðu- flokksklíkunnar. Hinn nýi for- maður boðar nú hvernig hjálpa megi húsbyggjendum fyrir horn með því að leggja nýjar milljarða- álögur á þá er nýlega hafa komið þaki yfir höfuðið. Telur hann þar fundið fé sem ekki þurfi að koma niður á neinum nema þá ef vera skyldi 2% eignaskattskyldra manna. Þvílíkri fölsun og ábyrgð- arleysi taka kjósendur ekki lengur mark á. Halda þeir sem lögðu sérskatta á verslunar- og skrif- stofuhúsnæði þvert ofan í stjórn- arskrána að einhverjir aðrir en notendur og þar á meðal allur al- menningur verði að greiða þegar öllu er á botninn hvolft. Hugljómun formannsins er mikil og geislar maðurinn af til- komuleika enda sannindin mörg er hann ætlar að boða á jeppaferð sinni um landið. Gömul sannindi Hvar eru kempurnar sem forð- um byggðu upp fylgi flokksins með skapandi aðgerðum? Hver man ekki Jón Axel er rak BÚR með myndarbrag og sýndi fram á að hægt væri að reka útgerð í fé- lagsanda og láta hana bere sig við hliðina á einkafyrirtækjum í út- gerð? Síðan hefur hver félagsspá- maðurinn tekið við af öðrum og að lokum tekist að gera BÚR að hinu eitraða epli Sjálfstæðisflokksins, er nú rekur það félag með millj- ónaálögum á útsvarsgreiðendur á degi hverjum. Það eru ekki Jón- arnir eða Guðmundarnir góðu er lögðu allan sinn hug og þrek í fyrirtækið er eiga sök á hvernig komið er fyrir fyrirtækinu í dag. Hinn venjulegi starfsmaður hefur skilað sínu verkefni vel, en æðri stjórn er fyrirhyggjulaus í ákvarðanatöku og í pólitískum loddaraleik, sem eftir fyrirskrift Jóns Baldvins formanns ber enga ábyrgð á því hvernig málum nú er komið hjá BÚR. Grikkir og Róm- verjar komu auga á að ábyrgð embættismanna og ákvarðana- taka meðal borgara stuðlaði að betri árangri í stjórnsýslu og rekstri stórvelda. Tilhugsun um ábyrgðarleysi var þeim andstyggð. Þingmenn þeirra urðu að færa rök fyrir að nýjar tillögur þeirra yrðu landi og lýð til góðs, ella taka af- leiðingunum. Væri ekki nær nýj- um formanni að líta á gömul sannindi en lýsa yfir ábyrgðar leysi stjórnmálamanna boða nýja skatta sem engan vanda leysa? Verkamannabústaðir Tómas Vigfússon, bygginga- meistari, vann árum saman við að draga að Alþýðuflokknum fylgi með ötulli starfsemi sinni og byggingu verkamannabústaða. Síðar tóku aðrir upp merki hans með nýjum hugmyndum og stfluðu allt á framkvæmdir enda kölluðu Sigurður Antonsson „Hinn nýi spámaður og formaður Alþýðuflokks- ins þykist nú himin hafa höndum tekið og telur brýnasta viðfangsefnið að boða húsbyggjendum ný sannindi er birst hafi á stjörnuhimni alþýðu- flokksklíkunnar.“ þeir sjálfa sig Framkvæmda- nefndina. Þeir byggðu vítt og breitt um landið, eins og sjá má í Vestmannaeyjum og í Breiðholt- inu, án þess að hengja framtakið á neinn ákveðinn flokk. Fleiri góðum málefnum týndi alþýðuflokksforystan og virðist sem krafturinn hafi farið með mörgum góðum manninum er með skapandi frumkvæði gat bætt stöðu atvinnurekstrar eða ljáð verkamanni stoð í baráttunni. Virðist forystan nú aðallega sinna því að finna einhverja blóra- böggla, sem hægt er að kenna um ástand þjóðmála í dag og finna át- yllur til að skattleggja afrakstur kynslóða sem nú eru að kveðja. Hyggingakostnaöur Hinn nýi formaður veit víst varla að byggingakostnaður hér á landi er með því hæsta sem gerist á Vesturlöndum. Nýlega sýndi Húseigendafélag Reykjavíkur fram á að leiga af meðalíbúð þyrfti að vera um 35 þúsund kr. á mánuði til að standa undir skött- um og kostnaði við viðhald og af- borganir. Fyrir utan fasteigna- gjöld, sem renna til bæjarfélags- ins, eignaskatta og sérskatta á atvinnuhúsnæði tekur ríkið stórar fúlgur í aðflutningsgjöld af að- fiuttu byggingarefni og spennir þar með upp byggingakostnaðinn. Sum aðflutningsgjöld eru allt að 120% eins og á hreinlætistækjum. Fjöldamörg byggingaefni bera 70—80% aðflutningsgjöld er leggjast á húsbyggjendur. Hvergi í nágrannalöndunum eru húsbyggingar almennings fjár- magnaðar í eins ríkum mæli og hér með skattfé almennings eða lífeyrissjóðum. Enda gerist þess ekki þörf þar sem bankakerfi eru höfð í lagi og taka að sér hið sjálfsagða hlutverk að lána til 25 ára með sparnaði fólksins sjálfs, sem að sjálfsögðu ávallt leggur til peningana. Hér lofa stjórnmálamenn hús- byggjendum í blindni lán til 40 ára, án þess að hafa tryggt sparn- að á viðkomandi fé. Það er varla Sjálfstæðisflokknum til sóma frekar en öðrum að tryggja ekki sparnað með pólitískum ákvörð- unum í vaxta- og peningamálum um leið og hann lofar húsbyggj- endum því að láni, sem ekki er hægt að efna. Fjármálaráðherra hefur hvað eftir annað spurt sam- herja sína og félagsmálamenn hvar eigi að afla fjárins án þess að skattpína þegnana enn frekar. Fjármálaráðherra hefur einnig lagt til með nýrri tollskrá að að- flutningsgjöld á byggingavörum verði lækkuð, sem væntanlega kemur öllum er þurfa húsnæði til góða. Sá hinn sami stjórnmálamaður stendur nú upp úr eins og klettur i brimróti síðustu mánaða á meðan aðrir baráttumenn standa í braki óábyrgrar launastefnu sinnar. Enginn er ábyrgur fyrir mistök- um stjórnmálamanna í fjárfest- ingum, spillts pólitísk bankakerfis þar sem óarðbær fjárfesting hefur ráðið ríkjum undanfarin áratug, sagði hinn nýkjörni formaður Al- þýðuflokksins, Jón Baldvin Ha- nnibalsson í einni barátturæðu si- nni. Óþarfi ætti að vera að telja dæmi þar um, en hér skulu nokkur nefnd. Saltverksmiðja, Lands- smiðjugrunnur, Víðishús, sem enn er í viðgerð, vegur frá Hafnarfirði að Vífilsstöðum, sem verður að bíða notkunar þangað til viðteng- ing á sér stað við Breiðholt. Blá- fjallavegur hálfkláraður meðan tenging milli Breiðholts og Víf- ilsstaða dregst í ár eða lengur. Togarar og fiskiskip er liggja bundin í öllum höfnum. Er von að vel gangi ef enginn tekur á sig ábyrgð? Það þætti ekki góð pólitík á venjulegu heimili, jafnvel ekki hjá Eiríki á Brúnum. Sigurdur Antonsson er fram- kræmdastjóri Nýborgar hf. Árlegur jólabasar á Sauðárkróki Sauöárkróki 3. denember. Sjálfstæðiskvennafélag Sauðárkróks hélt sinn árlega jólabasar í Bifröst sl. laugardag. Að venju var á boðstólum margt ágætra muna og bakkels- is, sem allt seldist upp á skammri stundu. Töldu margir sig gera þar góð kaup. Sérstök nefnd undirbýr basarinn hverju sinni, en margar konur leggja hönd á plóginn til að gera hann sem veglegastan og er myndin af hópnum. Formaður nefndarinnar er Bára Jónsdóttir, sem í mörg ár hefur stjórnað undirbúningi af miklum dugnaði og áhuga. Kári

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.