Morgunblaðið - 05.12.1984, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
+
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
STEFÁNLÚTHERSTEFÁNSSON,
Hjaröarhaga 58,
lést mánudaginn 3. desember.
Gyöa Ólafsdóttir,
Stefán G. Stefánsson, Hafdfs Hannesdóttir
Ella Stefánsdóttir,
og barnabörn.
t
ÓLÖF HALLDÓRSDÓTTIR
frá Litlu - Skógum,
Stigahlfö 20,
Reykjavfk,
andaöist aöfaranótt föstudagsins 30. nóvember. Kveöjuathöfn
veröur frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. desember kl. 10.30. Jarö-
aö verður aö Stafholti í Stafholtstungum laugardaginn 8. desember
kl. 14.00.
Systkini.
+
Fósturmóöir mín,
GUDBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR,
Skjólbraut 3A, Kópavogi,
lést 4. desember sl. á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhliö.
Útförin fer fram mánudaginn 10. desember kl. 13.30 í
Fossvogskapellu.
Hilmar Þórarinsson.
+
Eiginkona min, móöir okkar og tengdamóðir,
RÓSA FRIÐJÓNSDÓTTIR,
Engihjalla 9,
lést i Borgarspitalanum mánudaginn 3. desember.
Bjarni P. Jónasson,
Friójón Bjarnason, Inga Brynjólfsdóttir,
Siguröur Bjarnason, Hilde Stoltz,
Valgeir Bjarnason, Margrát Bjarnadóttir.
Guðjón Árni Magnús-
son - Minning
Fæddur I l. september 1899
Dáinn 9. nóvember 1984
Frá því að ég man eftir mér var
tilvera hjónanna Önnu Þor-
steinsdóttur og Guðjóns Magnús-
sonar föðurbróður míns óaðskilj-
anleg lífi mínu. Þau fluttu til
Ólafsfjarðar frá Blönduósi árið
1942 þegar ég var á fyrsta ári og
settust að á neðri hæðinni í
Bræðraborg, húsinu sem þeir áttu
saman pabbi og Guðjón.
Og þau tóku strax ástfóstri við
stelpukornið sem barðist hetju-
legri baráttu við kíghóstann og
það varð gagnkvæmt, ég leit mikið
upp til þeirra og bæði þau og aðrir
brostu í laumi þegar ég var að
upplýsa fólk um að hún Anna lík-
lega vissi hlutina því að hún hefði
verið í Reykjavík. Alla tíð síðan
átti ég athvarf hjá þeim, bæði sem
barn og líka sem fullorðin.
Eftir að þau voru flutt suður á
höfuðborgarsvæðið var mér alltaf
tekið sem langþráðri dóttur þegar
ég kom til þeirra.
Guðjón Árni Magnússon fædd-
ist á Hóli ólafsfirði og var 3.
yngstur 10 systkina. Foreldrar
hans voru hjónin Anna Baldvins-
dóttir og Magnús Magnússon. Oft
hefur trúlega verið þröngt í búi
+
Eiginmaöur minn,
ÓLAFURARNLAUGSSON
fyrrverandí slökkviliösstjóri,
Ölduslóó 18, Hafnarfirói,
veröur jarösunginn frá Frlkirkjunni i Hafnarfiröi föstudaginn 7.
desember kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Ruth Guömundsdóttir.
+
Eiginmaöur minn, faöir tengdafaöir og afi,
ÞORGEIR ÞORGEIRSSON
frá Hrófá,
Reynimel 74,
Reykjavfk,
sem lést á Borgarspítalanum aöfaranótt 27. nóvember, veröur jarö-
sunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. desember kl. 10.30.
Stefanfa Guörún Jónsdóttir,
Jónfna Þorgeirsdóttir, Jakob Björnsson,
Þorgeir K. Þorgeirsson, Elfn Ingólfsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginkona min, móöir okkar og amma,
ÁRNÝ ÓLAFSDÓTTIR,
Borgarvegi 9, Njaróvfkurbœ,
lést i Landakotsspitala 3. desember.
Eirfkur Þorsteinsson, börn og barnabörn.
+
Maöurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
ÖGMUNDUR HANNESSON,
Stóru-Sandvfk,
verður jarösunginn frá Selfosskirkju, föstudaginn 7. desember. kl.
14.00.
Hrefna Gfsladóttir,
Gfsii Ögmundsson, Marfa M. Jónsdóttir,
Magnús Ögmundsson, Anna K. Siguróardóttir,
Ari Páll ögmundsson, Rósa J. Guömundsdóttir
og barnabörn.
+
Útför
ÞORBJARGAR EIRÍKSDÓTTUR,
Unnarholtskoti, Hrunamannahreppi,
veröur gerö frá Hrepphólakirkju fimmtudaginn 6. desember nk. kl.
14.00.
Helga Runólfsdóttir, Gfsli Hjörleifsson.
+
Bróöir okkar,
STEFÁN TRAUST ASON
prentari,
Kleppsvegi 80, Reykjavfk,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. desember
kl. 15.00.
Pálfna Björnsdóttir,
Ingibjörg Björnsdóttir.
+
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför sonar okkar, bróöur, mágs og frænda,
ÁRMANNS HALLDÓRS BJÖRNSSONAR ÓSK ARSSONAR,
Ásavegi 30, Vestmannaeyjum.
Sigrföur Síguróardóttir, Óskar E. Björnsson,
Margrét Óskarsdóttir, Auöberg Óli Valtýsson,
Ármey Óskarsdóttir, Siguröur Sigurbjörnsson,
Guörún Óskarsdóttir,
Guöný Óskarsdóttir,
Óskar Eifas Óskarsson
og systkinabörn.
+
Innilegar þakkir til þeirra er auösýndu
SOFFlU JÓHANNESDÓTTUR
frá Laxamýri,
tryggö og vináttu eöa helöruöu mínningu hennar. Einnig bestu
þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Borgarspitaians deild A7 fyrir
hjálp og umönnun é siöustu ævidögum hennar.
Systur og systrabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýhug viö andlát og útför sonar
okkar, bróöur og mágs,
VIGFÚSAR JÓNSSONAR
frá irafossi.
Jón Vigfússon, Svanhildur Stefánsdóttir,
Steinunn Kristfn Jónsdóttir, Elfs Reynarson,
Ingi Þór Jónsson.
+
Þökkum samúö og vinarhug viö andlát og útför
RÓSUJÓHANNSDÓTTUR.
Guömann Halldórsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
hjá foreldrum hans enda fór hann
snemma að vinna fyrir sér eins og
venja var á þeim árum.
Hann fór 16 ára til Hjalteyrar
og réðst vinnumaður og síðar
ráðsmaður til hjónanna Árna
Jónssonar og Þóru Stefánsdóttur.
Hjá þeim er hann í mörg ár. Má af
því ráða að honum hefur líkað
vistin vel og húsráðendum líkað
vinnubrögð hans enda var hann
einstaklega traustur maður í öllu
sem hann lagði hönd að.
Haustið 1924 veikist Guðjón af
berklum og dvelur á Vífilsstöðum í
1 ár. í þá daga voru engin heilsu-
hæli sem berklasjúklingar í aft-
urbata gátu dvalið á og veiktust
fjölmargir þeirra aftur vegna þess
að þeirra beið ekkert annað en
þrældómur og vosbúð, en Guðjón
hafði þá forsjá til að bera að hon-
um tókst að útvega sér létta vinnu
sem vökumaður á síldarplani á
Hjalteyri og með stakri reglusemi
og sjálfsaga náði hann fullri
heilsu á ný.
Guðjón nam smíði hjá Þorsteini
Esper Hallssyni, en hann hafði
smíðaskóla í Ólafsfirði, það var
tveggja vetra nám. Eftir það má
segja að smíðar væru hans aðal-
starf þó að hann ynni hvað sem
var ef því var að skipta.
Árið 1928 kvæntist Guðjón
Þorbjörgu Sigurðardóttur frá
Hamri í Laxárdal en hana missti
hann eftir fárra mánaða sambúð.
Næstu ár býr hann í ólafsfirði,
leigir á hinum ýmsu stöðum eða
hefur ráðskonu. Á þeim árum
sagði hann mér að heimili Magneu
systur hans og Sæmundar
Steinssonar á Akureyri hefði verið
sem hans eigið, þar hefði sér alltaf
verið tekið tveim höndum.
1939 kvænist Guðjón öðru sinni
Önnu Þorsteinsdóttur og byrja
þau sinn búskap á Blönduósi. Eins
og áður sagði flytjast þau til
Ólafsfjarðar 1942 og búa þar til
ársins 1954 að þau flytja suður í
Kópavog í nábýli við Emilíu Bald-
vinsdóttur, dóttur önnu af fyrra
hjónabandi. Hann frændi minn
var ekki allra, en tæki hann ást-
fóstri við einhvern eða einhverja
væsti ekki um viðkomandi og
hann var drengjunum hennar
Emilíu góður afi.
Þau hjón fluttust til Reykjavík-
ur árið 1968 að Bergstaðastræti 9b
og eftir að Anna lést bjó Guðjóh
þar einn. Það var alveg sérstakt
hvað hann var duglegur að hugsa
um sig í einverunni, en þegar
heilsan bilaði var Emilía honum
stoð og stytta, á hana setti hann
allt sitt traust og hún brást því
ekki til síðasta dags.
Nú kem ég ekki oftar í Berg-
staðastrætið þegar ég er í bænum
að fá kaffi og út í það, að ylja mér
á, en það hafði Guðjón gaman af
að veita þó ekkert óhóf væri á því
fremur en öðru í fari hans. Nú
þegar hann er genginn á vit feðra
sinna á ég samt margar hlýjar
minningar að orna mér við.
Helga Magnúsdóttir