Morgunblaðið - 02.02.1985, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚÁR 1985
í gæzluvarðhaldi vegna bifreiðainnflutnings:
Játar fölsun reikn-
inga til lækkunar
aðflutningsgjalda
44 ÁRA framkvæmdastjóri fyrirtækisins Mótorskips hf. var í fyrradag
úrskurðaóur í gæzluvarðhald til 6. febrúar næstkomandi vegna rann-
sóknar Rannsóknarlögreglu ríkisins á meintu fjársvikamáli í tengslum
við innflutning á bifreiðum. Framkvæmdastjórinn hefur viðurkennt að
hafa falsað vörureikninga í því augnamiði að lækka aðflutningsgjöld.
Húsleit fór fram í fyrirtækinu í fyrradag og í kjölfarið var maðurinn
handtekinn og úrskurðaður í gæzluvarðhald.
Rannsóknin beinist að innflutn-
ingi 131 bifreiðar frá meginlandi
Evrópu frá árinu 1981 til og með
ársins 1984. Mótorskip hf. keyptu
bifreiðir, sem ekki seldust á meg-
inlandinu — í langflestum tilvik-
um Toyota, og fluttu til landsins
og seldu í samvinnu við bílasölu í
Reykjavík. Skýrt skal tekið fram,
að umboðsfyrirtæki Toyota kemur
hvergi nærri þessu máli.
Framkvæmdastjórinn er grun-
aður um skjalafals, brot á lögum
um tollheimtu og tolleftirlit og
söluskattssvik. Á skrifstofu
mannsins var lagt hald á gögn,
sem tengjast málinu. Við saman-
burð á vörureikningum og fölsuð-
um reikningum ársins 1984 hefur
komið í ljós mismunur sem nemur
rúmum 108 þúsund v-þýzkum
mörkum, eða sem nemur tæpum
1300 þúsund krónum. Reikningar
hafa þó ekki fundist yfir allar bif-
reiðir, sem fluttar voru til lands-
ins.
Fundist hafa reikningar fyrir
innflutningi um 100 bifreiða, sem
grunur leikur á að hafi verið fals-
Akureyri:
Átján
árekstrar
ÓVENJUMARGIR árekstrar urðu á
Akureyri í gær, eða 18 talsins.
Lögreglumenn á Akureyri sögð-
ust enga skýringu eiga á þessu, því
jafnvel þó að hálka hefði verið og
gengið á með éljum, þá væri þessi
fjöldi árekstra ekki útskýrður með
því. Helst hölluðust menn að því
að einhver „föstudagstaugaveikl-
un“ væri í fólki og vildu lögreglu-
menn brýna fyrir mönnum að aka
varlega. Engin slys urðu á fólki í
árekstrunum.
aðir og útbúnir hér á landi, en sem
fyrr segir beinist rannsóknin að
innflutningi 131 bifreiðar. Grunur
leikur á, að þegar bifreiðirnar fóru
í gegnum tollakerfið, þá hafi verið
gefnar upp eldri árgerðir en þær í
raun voru. Að til að mynda bifreið
árgerð 1984 hafi verið gefin upp og
skráð sem árgerð 1983, en síðan
seld sem árgerð 1984.
Líklegt er talið, að þær fjárhæð-
ir, sem grunur leikur á að hafi
verið komið undan skattyfirvöld-
um skipti milljónum. Rannsókn er
skammt á veg komin. Þannig er
eftir að fara yfir og bera saman
reikninga frá árunum 1981, 1982
og 1983.
Morgunbladið/Árni Sœberg
Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður Alþýðuflokksins færði landsfundi Bandalags jafnaðarmanna bréf formanns
Alþýðuflokksins og blómin. Fyrir hönd bandalagsins tók Ragnheiður Ríkharðsdóttir fundarstjóri við sendingum.
Blómin látin tala á landsfundi:
Jón Baldvin hvetur Bandalag
jafnaöarmanna til samstarfs
ALÞÝÐUFLOKKURINN sendi landsfundi Bandalags jafnaðar-
manna 16 rauð blóm — nellíkur og túlípana — í gær með bróður-
kveðjum og óskum um „skemmtilega samverustund og góðan
árangur í störfum". í bréfi Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem
blómunum fylgdi og varðar samstarfsgrundvöll jafnaðarmanna, seg-
ir, að hvert eitt blómanna 16 sé „tákn fyrir nýjan þingmann jafnað-
armanna, ef gengið væri til kosninga þessa stundina".
f bréfi sínu fer formaður Al-
þýðuflokksins þess á leit, að
bandalagsmenn á landsfundi hug-
leiði þær breytingar, sem orðið
hafi á stefnu og starfsháttum Al-
þýðuflokksins, eftir seinasta
flokksþing. Síðan rekur Jón Bald-
vin Hannibalsson einstök atriði úr
stefnuyfirlýsingu Alþýðuflokks-
ins. Þá segir:
„Ég hygg, að því verði ekki í
móti mælt, að með þessari stefnu-
yfirlýsingu, sem samþykkt var
einróma á flokksþingi, hafi Al-
þýðuflokkurinn og Bandalag jafn-
aðarmanna nálgast hvort annað í
grundvallarsjónarmiðum. Því er
hins vegar haldið fram, að enn
greini okkur verulega á um tvennt:
(1) Skipulag og starfshætti innan
verkalýðshreyfingarinnar og (2)
kosningu til bankaráða. Að okkar
mati eru þessi ágreiningsmál
óveruleg."
Formaður Alþýðuflokksins seg-
ir að ágreining um skipulag laun-
þegahreyfingarinnar megi leysa í
lýðræðislegu starfi innan hreyf-
ingarinnar. Og hann óskar eftir
viðræðum um kosningu til banka-
ráða.
Bréfi Alþýðuflokksins til
Bandalags jafnaðarmanna lýkur
með þessum orðum Jóns Baldvins
Hannibalssonar:
„Á flokksþingi Alþýðuflokksins
var forystu flokksins falið að taka
frumkvæði að „myndun samein-
ingarafls jafnaðarmanna og
frjálslyndra afla vinstra megin
við miðju íslenzkra stjórnmála".
— Alþýðuflokksmenn telja, að
með stefnuyfirlýsingu flokksþings
og málabúnaði síðan hafi Alþýðu-
flokksmenn gert sitt til þess að
nálgast valddreifingarsjónarmið
ykkar Bandalagsmanna, og til
þess að eyða ágreiningsefnum
okkar í milli. Á u.þ.b. 50 fundum
víðs vegar um landið hefur for-
maður Alþýðuflokksins lýst þeirri
skoðun sinni, að okkar í milli séu
Tekur vikur viÖ af mold í
íslenskum gróðurhúsum?
Tilraunir meö ræktun í Hekluvikri bera góðan árangur
ER MOLDIN að verða úrelt
sem ræktunarjarðvegur í gróð-
urhúsum? Þetta er spurning
sem gerist æ áleitnari hjá ís-
lenskum garðyrkjubændum. Við
Garðyrkjuskóla ríkisins á
Reykjum í Ölfusi eru í gangi til-
raunir með mismunandi tegund-
ir ræktunarefna til að fá svar við
þessari spurningu. Tilraunirnar
gefa til kynna að ræktun í
Hekluvikri gefi betri árangur en
ræktun í moldinni okkar góðu
og einnig betri árangur en rækt-
un í steinull sem víðast hefur
tekið við af moldinni í ná-
grannalöndunum. Ef fram fer
sem horfir má því búast við að
moldin verði gerð útlæg að
mestu úr íslenskum gróðurhús-
um og vikri mokað inn í staðinn.
„Eitt af grundvallaratriðum
þess að ræktun megi takast vel
er að við höfum góðan ræktun-
arjarðveg og að plantan fái
hæfilegt magn af hinum ýmsu
áburðarefnum. Þó að íslenskur
jarðvegur sé á margan hátt mjög
góður þá hefur reynst erfitt að
finna staði þar sem hægt er að
fá nógu mikið af eins jarðvegi
svo að sífellt hefur þurft að út-
búa nýjar áburðarblöndur eftir
samsetningu jarðvegarins,"
sögðu Grétar J. Unnsteinsson,
skólastjóri Garðyrkjuskólans og
Magnús Ágústsson, tilrauna-
stjóri, þegar þessi mál voru
rædd við þá á dögunum.
„Að undanförnu hefur starfs-
hópur unnið að því að taka þessi
mál fastari tökum og felst starf-
ið meðal annars í því að finna þá
staði hér á landi sem heppi-
legasti ræktunarjarðvegur er til
notkunar í gróðurhúsum. Einnig
að gera ýmsar tilraunir við
Garðyrkjuskólann, meðal ann-
ars hefur verið borin saman
ræktun í venjulegum jarðvegi,
Hekluvikri og steinull. Tilraun-
irnar hafa fram til þessa einkum
verið gerðar á ræktun á tómöt-
um og gúrkum. Margt athyglis-
vert hefur komið fram, m.a.
virðast miklir möguleikar felast
í ræktun í vikri, sé vökvun og
áburðargjöf í góðu lagi.
Þessum tilraunum er ekki lok-
ið en í öllum tilvikum hefur vik-
ur skilað jafn góðum árangri eða
betri en steinull og einnig betri
en íslensk mold. Moldin er á
hverfandi hveli hjá garðyrkju-
bændum í nágrannalöndum
okkar og hefur steinullin tekið
við sem aðalræktunarefnið. Því
er það að garðyrkjubændur hafa
sýnt þessum athugunum okkar
mikinn áhuga og er einstaka
maður farinn að reyna ræktun í
ólífrænum efnum. Við höfum
einnig gert tilraunir með ræktun
salats í rennandi vatni en það
hefur reynst mjög athyglisvert
verkefni að fást við. Þess má
geta að allar þessar tilraunir
kalla að meira eða minna leyti á
koltvísýringsgjöf og gervilýsingu
í gróðurhúsunum," sögðu Grétar
og Magnús einnig.
engin þau ágreiningsmál er rétt-
læti, að jafnaðarmenn dreifi
kröftunum á sama tíma og þjóð-
inni er brýnni nauðsyn á stjórn-
arforystu öflugs jafnaðarmanna-
flokks en nokkru sinni frá kreppu-
árum.
Ég vil ljúka þessu bréfi með því
að lýsa því yfir f.h. Alþýðuflokks-
ins, að við erum reiðubúin til að
gera allt sem í okkar valdi stendur
til að eyða fyrri misklíðarefnum
og treysta pólitíska samstöðu
allra jafnaðarmanna um brýnustu
framtíðarverkefni þjóðarinnar.
Við teljum ekki tímabært að
leggja fyrir ykkur nákvæmar til-
lögur um, hvernig þetta megi ger-
ast. Við lýsum okkur hins vegar
reiðubúin til að ræða opnum huga
og fordómalaust aliar hugmyndir
og tillögur, sem stefna að sameig-
inlegum markmiðum. Við viljum
hins vegar að þið vitið okkar hug.
Og að þið ræðið þessar hugmyndir
um leið og þið skyggnist á lands-
fundi inn í óorðna tíð 21. aldarinn-
ar.“
í upphafi bréfsins kemur fram
að Alþýðuflokkurinn og formaður
hans hafi viljað senda Bandalagi
jafnaðarmanna rauðar rósir, en
þær „voru því miður ekki til“ að
sögn bréfritara.
Fundir í
farmanna-
deilunni
SAMNINGAFUNDI í deilu útgerð-
arfélaga og undirmanna á kaupskip-
um lauk laust fyrir kl. 18 í gær og
hafði þá staðið frá kl. 10 um morg-
uninn. Að sögn Guðlaugs Þorvalds-
sonar, ríkissáttasemjara, gekk
hvorki né rak á fundinum og verður
næsti fundur haldinn á morgun kl.
14.
Nú hefur eitt skip, Hekla, stöðv-
ast vegna verkfallsins og Ljósa-
foss, Skaftafell og Hofsjökull eru
væntanleg til landsins á næstu
dögum. Á morgun kemur Kyndill
til Reykjavíkur og stöðvast þar.