Morgunblaðið - 02.02.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985
Flutningsgjaldið að-
eins hluti tilboðsins
segir Ólafur Gunnarsson, einn framkvæmdastjóra SH
„FINNBÍKÍI talar um það að við
hefðum átt að segja frá öllum þess-
um skilmálum fyrirfram með þjón-
ustu og annað þvílíkt. l»að lijjgur
auðvitað í augum uppi að þegar við
erum að hjóða út svona flutninga, er
flutningsgjaldið ekki nema hluti til-
boðsins,“ sagði Olafur Gunnarsson,
einn framkvæmdastjóra SH, er hann
var inntur álits á ummælum for-
stjóra Skipafélagsins Víkur, Finn-
boga Kjeld, í Morgunblaðinu á
fimmtudag.
„Það vita allir að þjónusta í
kringum þessa hluti verður alltaf
metin til fjár á sama hátt og
flutningsgjaldið. Ég hygg nú,
hefðum við sagt í upphafi að
ferðatíðni ætti að verða á 15 daga
fresti, hefðu allir sagt, Finnbogi
Kjeld fyrstur manna, að við vær-
um bara að gera þetta útboð að
gamni okkar. Við ætluðum okkur
að semja við Eimskip, því engir
aðrir hefðu möguleika á slíkum
flutningum. Við vildum einmitt
hafa þetta opið, því hefði verið
Myrkir músíkdagar:
Tvennir
tónleikar
um helgina
„Strengjakvartettar" er yfirskrift
tónleika, sem haldnir verða í Bú-
staðakirkju í dag kl. 17. Á morgun
verða haldnir aðrir tónleikar á sama
stað og sama tíma. Tónleikar þessir
eru liður í Myrkum músíkdögum,
sem standa yfir til 10. þessa mánað-
ar.
Hljóðfæraleikararnir, sem
flytja strengjakvartettina, eru
þau Guðný Guðmundsdóttir og
Szymon Kuran, sem leika á fiðlu,
Robert Gibbons, víóluleikari, og
Carmel Russill, sem leikur á selló.
Fyrsta verk tónleikanna er frum-
flutningur á verki Gunnars Reynis
Sveinssonar og nefnist verkið „Net
til að veiða vindinn". Síðan verður
flutt verk Þorkels Sigurbjörnsson-
ar, „Kaupmannahafnarkvartett",
„Sex lög fyrir strengj akvartett"
eftir Karólínu Eiríksdóttur og
loks strengjakvartett nr. 7 í fís-
moll eftir Dimitri Sjostakóvitsj.
Á sunnudaginn verða flutt verk
eftir 7 höfunda. Fyrst er það verk
Skúla Halldórssonar „Viva
strætó" og leikur Bernharður
Wilkinson það á flautu. Næst er
„Dúó“ fyrir bassethorn og selló. Á
bassethornið leikur Kjartan
óskarsson, en Inga Rós Ingólfs-
dóttir leikur á selló. Næst leikur
Carmel Russill á selló verk Áskels
Mássonar „Hrím“ og síðan verður
fluttur sextett eftir Fjölni Stef-
ánsson. Flytjendur eru Martial
Nardeau, flauta, Kjartan óskars-
son, klarinett, Lilja Valdimars-
dóttir, horn, Björn Árnason, fag-
ott, Hlíf Sigurjónsdóttir, fiðía, og
Arnþór Jónsson, selló. Síðasta
verkið á tónieikunum er eftir Pál
P. Pálsson, Werner Schulze og
Herbert H. Ágústsson og nefnist
„Þrír þættir fyrir 9 blásara".
Flytjendur eru Kristján Stephen-
sen og Daði Kolbeinsson, óbó, Sig-
urður I. Snorrason og Kjartan
Óskarsson, klarinett, Hafsteinn
Guðmundsson og Hans Ploder,
fagott, Herbert H. Ágústsson og
Joseph Ognibene, horn og Lárus
Sveinsson, trompet.
©
verulegur munur á flutningsgjöld-
unum, hefði hann kannski komið
upp á móti þessari þjónustu. Ef
flutningsgjöld annarra hefðu ver-
ið verulega lægri með einni ferð í
mánuði en hjá Eimskip með háifs-
mánaðar tíðni, hefði það bara ver-
ið reikningsdæmi á sama hátt og
verið skoðað. Til þess vildum við
hafa alla þessa möguleika opna.
Ef þú stendur einhvers staðar úti
á götu og þarft að ákveða hvort þú
kaupir Skoda eða Volvo ferðu ekki
bara eftir upphæðinni," sagði
Ólafur Gunnarsson.
Einvígi
Margeirs og
Agdestein
á mánudag
EINVÍGI Margeirs Péturssonar og
Simen Agdestein um efsta sætið á
svæðamótinu, sem lauk í Gausdal í
janúar, hefst á Hótel Loftleiðum á
mánudag. Kapparnir tefla í ráð-
stefnusalnum. Á morgun, sunnudag,
klukkan 20 verður dregið um lit; það
er hvor keppandinn stýrir hvítu
mönnunum á mánudag.
Margeir og Agdestein urðu efst-
ir og jafnir í Gausdal með l'h
vinning. Bent Larsen hafnaði í
þriðja sæti með 7 vinninga. Agde-
stein og Margeir heyja fjögurra
skáka einvígi og nægir Agdestein
jafntefli, þar sem hann bar sigur
úr býtum í innbyrðisviðureign
þeirra í Gausdal. Sigurvegarinn
öðlast rétt til þess að tefla á milli-
svæðamóti, en sá er lægri hlut bíð-
ur teflir við þann, sem hafnar í 2.
sæti á svæðamóti, sem fram fer í
ísrael.
Lýst eftir
bifreið
í FYRRINÓTT var bifreiðinni G-
20158 stolið þar sem hún stóð við
Lágholt 21 í Mosfellssveit. Bifreið-
in er Lada Sport-jeppi, rauð að lit.
Þeir sem kunna að búa yfir upp-
lýsingum um bifreiðina eru vin-
samlega beðnir að láta lögregluna
í Hafnarfirði vita.
Morgunblaðið/Július
Hér sýnir Tryggvi Magnússon markaðsstjóri Slippfélagsins muninn á eldfimi nýja UniBond-límsins og venjulegs
þynnislíms. Þynnislímið fuðraði upp en það slokknaði á cldspýtunni sem hann henti á UniBond-límið.
Málningarverksmiðja Slippfélagsins:
Lím án leysiefna
Dreifir nú upplýsingum um skaðsemi sniffs í sam-
ráði við Æskulýðsráð og Félagsmálastofnun
MÁLNINGARVERKSMIÐJA Slippfélagsins í Reykjavík hefur hafið
framleiðslu á nýrri tegund af lími sem er laust við lífræn lcysiefni. Einnig
hefur Slippfélagið látið útbúa veggspjald og upplýsingabækling, þar sem
varað er við þeim afleiðingum sem geta hlotist af sniffi. Slippfélagið
hyggst dreifa þeim í samráði við Æskulýðsráð og Félagsmálastofnun á
ýmsa staði sem unglingar sækja.
Blaðamönnum var kynnt þessi
nýjung fyrir helgina. Tryggvi
Magnússon markaðsstjóri Slipp-
félagsins sagði að forráðamenn
Málningarverksmiðju Slippfé-
lagsins hafi byrjað að leita út
um heim að lími og tengdum
vörum sem ekki væri hægt að
sniffa eftir að Kastljósþáttur í
sjónvarpinu sl. vetur fjallaði um
ungan pilt sem varð fyrir alvar-
legu líkamlegu og andlegu tjóni
eftir að hafa sniffað.
Á síðastliðnu vori tókust svo
samningar við stjórnendur
breska fyrirtækisins UniBond.
Það hefur um nokkurra ára
skeið framleitt leysiefnafrítt lím
og tekið virkan þátt í baráttu al-
mennings og yfirvalda gegn
snifffaraldri meðal unglinga.
Fyrirtækið lét t.d. prenta
veggspjald og upplýsingabækl-
ing í stóru upplagi til dreifingar
í skólum og öðrum samkomu-
stöðum ungs fólks. Slippfélagið
hefur notað þessar hugmyndir í
sínum upplýsingagögnum, en
framan á bæklingnum og á
veggspjaldinu er íslensk mynd
sem Rúnar Gunnarsson tók í
samvinnu við starfsmenn
Slökkviliðsins í Reykjavík.
Þessi efni hafa verið kynnt öll-
um söluaðilum líms og munu
þeir taka virkan þátt í dreifingu
upplýsingagagnanna. Einnig
hyggst Slippfélagið senda öllum
heilsugæslustöðvum og sjúkra-
húsum bæklinga og veggspjöld
til dreifingar.
Iðnaðarmönnum, t.d. dúklagn-
ingamönnum og trésmiðum,
stafar mikil hætta af vörum sem
framleiddar eru úr uppleysandi
efnum í starfi sínu. Slippfélagið
hefur dreift upplýsingum til
þeirra og sagði Einar Ragnars-
son sölumaður Slippfélagsins að
hann hafi haft samband við
marga iðnaðarmenn að undan-
förnu og tóku þeir þessari nýj-
ung ákaflega vel.
UniBond-lím er framleitt úr
vatnsþynnanlegum efnum, en
hin svokölluðu sniff-lím úr líf-
rænum leysiefnum. Niðurstöður
rannsókna sýna að UniBond
stenst vel samanburð við önnur
lím hvað styrkleika snertir.
Knútur Hauksson framleiðslu-
stjóri Slippfélagsins sagði að
UniBond-límið væri mjög auð-
velt í notkun. Einn af kostum
límsins væri sá að hægt er að
bera það á fleti með pensli. Ann-
ar er sá að límið er hvítt, en
verður glært þegar það er tilbúið
til samlímingar. Þynnislím er
hinsvegar látið standa þar til
það er sem næst snertiþurrt og
breytir það ekki um lit.
I máli Tryggva Magnússonar
markaðsstjóra kom fram að
markaðshlutdeild innlends líms
er nú um 24% og hefur farið
minnkandi undanfarin ár. Uni-
Bond framleiðsla Slippfélagsins
verður því til þess að auka inn-
lenda markaðshlutdeild.
UniBond-límið er í hættu-
flokki 0 og er því ekki eldfimt.
Lím sem hingað til hafa verið á
markaðnum eru hinsvegar í
hættuflokki 3. Til þess að sýna
fram á muninn bar hann þessar
tvær tegundir á plötur og kveikti
í. Munurinn var greinilegur. Það
slokknaði á eldspýtunni á Uni-
Bond-líminu, en hitt límið fuðr-
aði upp á augabragði.
Haukur Nikulásson hjá Microtölvunni sf:
Virt tölvutímarit styðja full-
yrðingar um undirboð HP
„EG GET nefnt þrjú dæmi þeirri fullyróingu minni til stuðnings aö banda-
ríska fyr'irtækið Hewlett Packard stundar undirboð til að komast inn á
íslenskan markað, enda neitar Frosti Bergsson, framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins hér á landi, því ekki beinlínis í viðtali í Morgunblaðinu,“ sagði Haukur
Nikulásson, einn af eigendum Microtölvunnar sf. í samtali við blm. Mbl. en
hann hefur, eins og kunnugt er, vakið athygli verðlagsstofnunar á samningi
Hewlett Packard við aðila innan verkalýðshreyfingarinnar um tölvubúnað og
telur að HP hafa þar verið með undirboð.
INNLENT
„í fréttabréfi IBM frá því í
október sl. er birtur samanburður,
ættaður frá kaupendum, þar sem
gerður er samanburður á verði
fjögurra tilboðsgjafa í verkalýðs-
félagaverkefnið þar sem fram
kemur að tilboð annarra seljenda
er á 49% til 62% hærra verði en
Hewlett Packard býður. Síðar í
fréttabréfinu er sagt að ef bornar
séu saman verðtölur Hewlett.
Packard, uppgefnar í virtri tölvu-
handbók í Bandaríkjunum, séu
tölur hans hér 40% lægri en fram
kemur í handbókinni. 1 fréttabréf-
inu eru framleiðendur auðkenndir
með bókstöfun en augljóst hverj-
um þeim sem til þekkir hvaða
búnað hver bókstafur táknar.
Annað dæmi; í blaðinu Comput-
erworld, sem einnig er virt tímarit
á þessu sviði, frá því í ágúst, kem-
ur fram að bæði búnaðurinn frá
Digital og sá, sem við buðum, er
mun ódýrari en búnaðurinn frá
HP sem verkalýðshreyfingin festi
kaup á. Þegar hingað er komið
hefur þetta snúist við og þessar
tegundir orðnar 51% til 62% dýr-
ari en Hewlett Packard. í þriðja
lagi get ég nefnt að Friðþjófur
Johnson, sölu- og markaðsstjóri
HP, sagði í blaðaviðtali fyrr í vik-
unni að HP stefndi að því að verða
markaðsleiðandi hér innan
þriggja ára og einnig að útibúið
hér þyrfti ekki ætíð að krefjast
hagnaðar strax á öllum þeim verk-
efnum sem það tæki þátt f.
Ég vil leyfa mér að fullyrða,
þvert á það sem Björn Líndal seg-
ir, að það sé ekkert mál að koma
íslenskum hugbúnaði, tölvum eða
öðrum varningi á erlenda mark-
aði, ef menn á annað borð kunna
viðkomandi tungumál. Það er frá-
litt að nauðsynlegt sé að veita er-
lendum fyrirtækjum starfsleyfi
hér á landi á þeim forsendum. Við
hjá Microtölvunni sf. höfum getað
komið okkar hugbúnaði á fram-
færi við þá framleiðendur sem við
erum með umboö fyrir, þegar við
höfum viljað. Ef það er eitthvert
vit í þeim hlutum sem við erum að
gera eru þeir gjaldgeng söluvara
hvar sem er.
Ég vil einnig að það komi fram,
að eftir því sem ég kemst næst
voru þau vinnubrögð viðhöfð við
veitingu starfsleyfis Hewlett
Packard, að ekki var leitað um-
sagnar annarra hagsmunaaðila en
IBM og Verslunarráðsins. Það er
mín skoðun, að sé það stefna við-
skiptaráðuneytisins að veita er-
lendum fyrirækjum starfsleyfi
hér á landi, þá verði að opna fyrir
erlenda banka þannig að við, sem
erum í samkeppni við þessi er-
lendu fyrirtæki, sem eru í við-
skiptum við banka erlendis, getum
fengið fjármagn til okkar starf-
semi án þess að þurfa að skríða
fyrir bankastjórum hér heima,
sem ekki hafa úr neinu að spila.
Annars verður samkeppnisaðstað-
an alltaf ójöfn,“ sagði Haukur.