Morgunblaðið - 02.02.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985
31
Morgunblaðið/Friðþjófur
Bílasalan Bjallan var formlega opnuð föstudaginn 1. febrúar. A myndinni eru Sigfús Sigfússon, framkvæmdastjóri
Heklu, og Finnbogi Eyjólfsson, fréttafulltrúi.
Gáfu fullkominn
öndunarmæli
EIGENDUR barnafataverslunarinnar Valborgar, Laugavegi 83, Sigurður
Halldórsson og kona hans Mattea P. Porleifsdóttir, færðu nýlega Styrktarfé-
lagi lamaðra.og fatlaðra að gjöf fullkominn öndunarmæli (spirometer), sem
sérstaklega er notaður við endurhæfingu asthma- og lungnasjúklinga, jafnt
barna sem fullorðinna.
Sjálfur hefur Sigurður Hall-
dórsson þurft að stríða við
asthmasjúkdóm í mörg ár og lét
hann því þau orð falla í gjafabréfi,
að þau hjónin vonuðust til að
þetta taeki kæmi að góðum notum
fyrir asthmasjúklinga.
Að sögn Björns Magnússonar,
sérfræðings í lungnasjúkdómum,
eru tæki sem þessi afar þýð-
ingarmikil, m.a. til sjúkdóms-
greininga, til að fylgjast með með-
ferð og til notkunar í sambandi
við álagsprófun. (Krctuiilkynning.)
Kópavogur:
Félagsvist
SPILUÐ verður félagsvist í Safn-
aðarheimili Digranessprestakalls
á Bjarnhólastíg 26, Kópavogi, í
dag, laugardag, kl. 14.30.
Hekla hf.
opnar nýja
bílasölu
NÝ BÍLASALA í eigu Heklu hf„
Bflasalan Bjallan, hefur verið opnuð
í húsakynnum fyrirtækisins við
Brautarholt. Er ráðgert að hafa á
boðstólum notaða bfla í umboðssölu
af öllum tegundum fólksbfla, jeppa
og minni sendibfla, en einnig verða
til sölu bílar í eigu Heklu sem teknir
hafa verið í skiptum fyrir nýja bfla.
Fram til þessa hefur aðstaða til
sölu á notuðum bílum verið tak-
mörkuð hjá Heklu og er Bílasalan
Bjallan sett á laggirnar til að
bæta úr því.
Arinbjörn Jónsson veitir bíla-
sölunni forstöðu og sölumaður er
Júlíus Ólafsson.
Félag einstæðra foreldra:
Tíkallaflóa-
markaður
um helgina
FÉLAG einstæöra foreldra heldur
flóamarkað í Skeljanesi 6, laugardag
og sunnudag, 2. og 3. febrúar og er
opið frá kl. 14—17 báða dagana. All-
ur ágóði rennur í nýjan húsbygg-
ingarsjóð FEF, sem skýrt verður frá
á næstunni.
f fréttatilkynningu FEF segir
að flóamarkaður þessi sé nýstár-
legur að því leyti að á laugardag-
inn verða allar flíkur, kjólar, káp-
ur, barnaföt, peysur o.fl. seldar á
tíu krónur stykkið. Einnig verða
til sölu skrautmunir og búsáhöld,
svefnbekkir og ýmiss konar hús-
Kögn.
Á sunnudag verða seldir nokkr-
ir vandaðir leður- og mokkajakkar
og skulu gestir bjóða í. Minnt er á
að strætisvagn nr. 5 stoppar við
húsið.
Síðasta sýning á
Skugga-Sveini
Á MORGUN verður allra síðasta
sýning á uppfærslu Þjóðleikhúss-
ins á leikriti Matthíasar Joch-
umssonar Skugga Sveini eða Úti-
legumönnunum. Með helstu hlut-
verk fara: Erlingur Gíslason sem
leikur Skugga Svein, Ketill Larsen
leikur Ketil Skræk, Árni Tryggva-
son er Grasa-Gudda, Randver
Þorláksscn er Gvendur smali, Há-
kon Waage leikur Jón sterka, Gísli
Alfreðsson leikur Sigurð í Dal og
Pétur Einarsson leikur Lárenzíus
sýslumann. Ungu elskendurna
leika þau Sigrún Edda Björnsdótt-
ir og Örn Árnason.
BILL AfíSINS 1985
OPELKADETT
Bílvangur hefur sýningarsali sína fyrir nýja og notaða bíla opna í dag
og býður ykkur m.a. að reynsluaka hinum snaggaralega og stórskemmtilega
OPEL KADETT - bíl ársins 1985.
Þú getur jafnframt kynnst öðrum OPEL-bifreiðum, skoðað japönsku
ISUZU TROOPER jeppana og fleiri fyrsta flokks bíla.
OPEL KADETT
OPEL KADETT-bíllinn var aldeilis ekki kosinn „Bíll ársins"
fyrir neina náð og miskunn! Yfir 50 sérfræðingar allra viðurkenndustu
bílablaða Evrópu tóku bílinn rækilega í gegn.
Hvert smáatriði var skoðað og þegar upp var staðið var OPEL KADETT
ótvíræður sigurvegari vegna einstakrar hönnunar, minnstu loftmótstöðu allra bíla
í sínum stærðarflokki (0,30), þæginda, öryggis, sparnaðar, stjórnunar- og
aksturseiginleika, snerpu og vinnslu, hæfni við ólíkar aðstæður og
GÆÐA MIÐAÐ VIÐ VERÐ! s
Verð frá kr. 359.300 j
miðað við gengisskráningu 24. janúar 1985.
&
Nýr Opel er nýjasti bfllinn
BÍLVANGUR Sf?
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO