Morgunblaðið - 13.02.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1985
ÚTVARP / S JÓNVARP
Tadek
Mánudagsmynd sjónvarpsins
var býsna dramatísk að
þessu sinni. Nefndist myndin í
þýðingu sjónvarpsmanna: Dónár-
valsar. Og lýsti kennslukonu nokk-
urri, Júdit að nafni, sem hefir sest
að í Vínarborg, en þangað hraktist
hún undan lögreglu kommúnista á
tímum uppreisnarinnar í Ung-
verjaiandi ’56. Júdit virðist hafa
fest rætur í Austurríki og því
skelfur heimurinn undir fótum
hennar, er fyrrum unnusti frá
Ungverjalandsárunum birtist
skyndileag á útidyratröppunum.
Maður þessi nefnist Tadek og
hafði Júdit talið hann af í ríflega
tvo áratugi. En sannleikurinn er
sá að nýlátinn eiginmaður Júdit
og fyrrum náinn vinur Tadeks,
ljósmyndarinn Páll, hafði ekki
bara logið til um dauða vinarins í
því skyni að komast yfir unnust-
una,. heldur og svikið Tadek í
hendur ungversku lögreglunnar,
er læsir hann inni í 15 ár. Er ekki
að orðlengja það að Tadek er kom-
inn til Austurríkis í því skyni að
„lifa lífinu" eins og hann kallar
það þau „fáu ár sem ég á eftir
ólifað“. Og ekki nóg með það
„ ... ég vil lifa þessi ár í örmum
þínum Júdit."
Gjáin mikla
En Júdit hefir, eins og ég sagði
hér áðan, fest rætur í Austurríki
og fundið sér þar hentugan lífsstíl.
Gjáin milli hennar og Tadeks
verður ekki brúuð. Hann er fórn-
arlamb óbilgjarnrar hugmynda-
fræði er ekki tekur mið af ein-
staklingunum, hinum mörgu
smáu, aðeins vilja þeirra er fara
með völdin hverju sinni og hann
er líka ... hið saklausa blóð, sem
hefir verið úthellt á altari ástríðn-
anna og sérgæskunnar. Slíkum
manni hefir raunar verið hrint út
úr mannlegu félagi. í blóma lífsins
er hann læstur inni í 15 ár fyrir
nánast engar sakir og þegar hann
kemur loks út kalinn á hjarta, fær
hann hvergi vinnu á sínu sérsviði,
því einsog hann segir „ ... tækn-
inni hefir fleygt fram og mín
menntun varð úrelt, og einskis
nýt“.
Þó fékk nú Tadek vinnu við að
þræða ungverskar skóreimar í ít-
alska skó með pappírssólum en
skór þessir voru ætlaðir „ ... látnu
fólki sem vildi vera í skórn" eins og
hann orðaði það.
Útskúfunin
Hvernig haldiði annars að öllum
þeim þúsundum Tadeka hafi liðið
og líöi er voru læstir inni um ára-
bil fyrir þær sakir einar að óska
eftir frjálsum kosningum, frjáls-
um verkalýðsfélögum, málfrelsi og
örum slikum grundvallarmann-
réttindum, og koma svo aftur út í
samfélag þar sem enn ríkja her-
stjórar er njóta náðar skriðdreka-
stjóranna „vinveittu"? Máski hefir
þeim liðið eitthvað svipað og Rub-
ashov í sögu Köstlers: Myrkri um
miðjan dag, þá sá ágæti maður
hafði játað svikin við flokkinn og
beið kúlunnar úr byssu Stalíns.
Gefum Rubashov orðið: Móses
hafði ekki heldur fengið að stíga
fæti inn í fyrirheitna landið. En
hann hafði fengiö að sjá það blasa
við sér ofan af fjallinu. Þannig var
auðvelt manni að deyja, er sjálft
takmark hans blasti í sjón og
reynd við honum. Hann, Nicolas
Salmanovitch Rubashov, hafði
ekki verið leiddur upp á neitt slíkt
fja.ll. Hvert sem hann beindi aug-
anu, var ekki annað en auðn og
svartnætti að sjá.
Ólafur M.
Jóhannesson
€
Kirhard ('hamberlain og Yoko Shimada í hlutverkum sínum.
Herstjórinn
Nýr bandarískur framhaldsmyndaflokkur
kvöld kl. 21.50
91 50 hefst í sjón-
** A — varpi nýr
bandarískur framhalds-
myndaflokkur í tíu þátt-
um sem nefnist Herstjór-
inn og er gerður eftir met-
sölubókinni „Shogun", eft-
ir James Clavell.
Myndin gerist um alda-
mótin 1600 og hefst á því
að kaupfar ferst við Jap-
ansstrendur. Stýrimaður
þess er breskur, John
Blackthorne að nafni, og
er leikinn af hinum góð-
kunna Richard Chamb-
erlain. John kemst af
ásamt öðrum úr áhöfninni
en þeir mæta mikilli tor-
tryggni í fyrstu meðal
innfæddra og sæta mis-
þyrmingum.
Um þessar mundir ríkir
lénsskipulag í Japan og
innanlandserjur eru tíðar.
Fimm höfðingjar deila
með sér völdum og ríkj-
um, og er Blackthorne
handtekinn af einum
þeirra, Toranga, sem
hyggst verða einvaldur
herstjóri yfir öllu ríkinu. 1
samskiptum Blackthornes
við heimamenn mætast
vestur og austur og áhorf-
andinn er leiddur inn í
japanskan miðaldaheim.
Leikstjóri er Jerry
London, en aðalhlutverkin
eru í höndum Richards
Chamberlain, Toshiros
Mifune og Yokos Shim-
ada.
Morgunþáttur á rás 2
— gestur er Anna Júlíana Sveinsdóttir
HNNB Morgunþáttur
i noo rásar 2 er að
1U— venju á dag-
skránni kl. 10 til 12 í dag.
Umsjónarmaður að þessu
sinni er Kristján Sigur-
jónsson.
Er blm. hafði tal af
Kristjáni í vikubyrjun
hafði hann ekki endanlega
ákveðið allt efni þáttar-
ins. Þó var ákveðið að
Anna Júlíana Sveins-
dóttir óperusöngkona
verður gestaplötusnúður
þáttarins. Anna Júlíana
er okkur íslendingum að
góðu kunn fyrir söng sinn,
ekki síst fyrir túlkun sína
á Carmen í samnefndri
óperu sem nú gengur fyrir
fullu húsi í Gamla Bíói.
Mun Anna Júlíana
heldur lítið hafa fengist
við plötusnúning og því er
forvitnilegt að heyra
hvernig henni tekst upp í
dag. Hún verður við völd
frá kl. 11 og kynnir þá og
leikur nokkur vel valin
lög.
Þá verður Kristján með
sinn skerf, og ætlar hann
m.a. að leika tónlist af
eldri gerðinni í bland við
nýtt. Því allir geta jú orð-
ið leiðir á því að hlusta
sífellt á vinsældalistann
og topplögin austan- og
vestanhafs, ekki satt?
Úr safni sjónvarpsins:
Óskar
Gíslason
ljósmyndari
i kvöid ki. 22.40
00 40 verður sýndur í
— sjónvarpi þátt-
ur úr safni sjónvarpsins
sem að þessu sinni fjallar
um óskar Gíslason ljós-
myndara.
óskar er sem kunnugt
er einn af brautryðjend-
um íslenskrar kvik-
myndagerðar. óskar
fæddist í Reykjavík árið
1901. Hann nam fyrst
ljósmyndun hér heima en
lauk prófi í þeirri iðn í
Kaupmannahöfn 1921.
Hann stofnaði eigin ljós-
myndastofu hér og veitti
m.a. forstöðu fyrstu
ljósmyndastofu sjón-
varpsins.
óskar hefur starfað að
kvikmyndagerð frá 1940
og sem prófdómari í
ljósmyndaprófum frá
1943. Fyrsta kvikmyndin
sem óskar sýndi opinber-
lega var Lýðveldishátíð-
armyndin sem sýnd var
þremur dögum eftir há-
tíðina. Aðrar kunnustu
myndir hans eru: Síðasti
bærinn i dalnum; Björg-
unarafrekið við Látra-
bjarg; Reykjavíkurævin-
týri Bakkabræðra; Ágirnd
og Nýtt hlutverk.
í þættinum í kvöld, sem
er sá fyrri af tveimur um
Óskar, verður fjallað um
upphaf kvikmyndagerðar
hans og sýndir kaflar úr
nokkrum myndum sem
hann gerði á árunum 1945
til 1951. Höfundar þáttar-
ins eru Erlendur Sveins-
son og Andrés Indriðason
en síðari hlutinn verður
sýndur miðvikudaginn 20.
þ.m.
Óskar Gíslason með eina gamla í hettunni.
UTVARP
MiÐVIKUDAGUR
13. febrúar.
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Siguröar G.
Tómassonar trá kvöldinu áö-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorö: — Erlendur Jó-
hannsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Perla" eftir Sigrúnu Björg-
vinsdóttur.
Ragnheiður Steindórsdóttir
lýkur lestrinum (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Úr ævi og starfi Islenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
11.45 Islenskt mál.
Endurtekinn [Dáttur Guörúnar
Kvaran frá laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Barnagaman
Umsjón: Sólveig Pálsdóttir.
13.30 „Stjörnusyrpur."
Vinsæl lög flutt af „The Star
Sisters" o.fl.
14.00
„Blessuð skepnan" eftir
James Herriot.
Bryndls Vlglundsdóttir les
þýöingu slna (5).
14.30 Miödegistónleikar.
Hollenska blásarasveitin
leikur Kvintett I Es-dúr eftir
Ludwig van Beethoven.
14.45 Popphólfið
— Bryndis Jónsdóttir.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Islensk tónlist.
a. Adagio eftir Jón Nordal.
Börje Maarelius, Anna
Staangberg og Ragnar Dahl
leika á flautu, hörpu og pl-
anó með Sinfónluhljómsveit
sænska útvarpsins: Herbert
Blomstedt stj.
b. „Da-fantasla“ eftir Leif
Þórarinsson og Sembalsón-
ata eftir Jón Asgeirsson.
Helga Ingólfsdóttir leikur.
c. „Tónlist á tyllidögum" eftir
Pál P. Pálsson. Islenska
hljómsveitin leikur; Guð-
mundur Emilsson stj.
17.10 Siðdegisútvarp.
Tilkynningar.
18A5 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
19.50 Horft I strauminn með
Úlfi Ragnarssyni (RÚVAK).
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn
hans" eftir Jules Verne.
Ragnheiður Arnardóttir byrj-
ar lestur þýðingar Hannesar
J. Magnússonar.
20.20 Mál til umræðu. Matthlas
Matthlasson og Þóroddur
Bjarnason stjórna umræðu-
þætti fyrir ungt fólk.
21.00 Sinfónla I G-dúr eftír Jos-
eph Haydn. Sinfónluhljóm-
SJÓNVARP
19.25 Aftanstund
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni: Söguhornið
— Tommi og Tinna, sögu-
maður Þorbjörg Jónsdóttir,
Tobba, Litli sjóræninginn og
Högni Hinriks.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 60 ára afmælismót
Skáksambands íslands
Alþjóölegt skákmót I Reykja-
vlk 11.—24. febrúar — slð-
ari hluti.
20.55 Litið um öxl — slðari
hluti
Bresk heimildamynd um af-
komu jaröarbúa árið 1984.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.50 Herstjórinn (Shogun)
Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur I tlu þáttum.
MIÐVIKUDAGUR
13. febrúar
gerður eftir metsölubókinni
„Shogun" eftir James Clav-
ell.
Leikstjóri Jerry London. Að-
alhlutverk: Richard Chamb-
erlain, Toshiro Mifune og
Yoko Shimada.
Um aldamótin 1600 ferst
kaupfar viö Japansstrendur.
Stýrimaöur er breskur, John
Blackthorne að nafni. Hann
kemst af ásamt öðrum af
áhöfninni en þeir mæta mik-
illi tortryggni I fyrstu og sæta
misþyrmingum.
I Japan rlkir þá lénsskipulag
og innanlandserjur. Fimm
höfðingjar deila völdum og
rlkjum. Blackthorne verður
handgenginn einum þeirra,
Toranaga, sem hyggst verða
einvaldur herstjóri yfir öllu
rikinu. i samskiptum
Blackthornes við heima-
menn mætast vestur og
austur og áhorfandinn er
leiddur inn I japanskan
miðaldaheim.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.40 Úr safni sjónvarpsins
Oskar Gíslason Ijósmyndari
Fyrri hluti dagskrár um
Ctekar Glslason, einn af
brautryðjendum Islenskrar
kvikmyndagerðar. Fjallað er
um upphaf kvikmyndagerðar
Öskars og sýndir kaflar úr
nokkrum myndum sem hann
gerði á árunum
1945—1951.
Höfundar: Erlendur Sveins-
son og Andrés Indriðason.
Slðari hlutinn verður á
dagskrá miðvikudaginn 20.
febrúar.
23.40 Fréttir I dagskrárlok
sveit útvarpsins f Baden-
Baden leikur; Nikolaus Harn-
oncourt stj. (Hljóðritun frá
þýska útvarpinu).
21.30 Að tafli. Jón Þ. Þór flytur
skákþátt.
22.00 Lestur Passlusálma (9).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Tlmamót. Þáttur I tali og
tónum. Umsjón: Arni Gunn-
arsson.
23.15 Nútlmatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
13. febrúar
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Stjórnandi: Jón Axel Ölafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvals lög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Vetrarbrautin
Þáttur um tómstundir og úti-
vist.
Stjórnandi: Júllus Einarsson.
17.00—18.00 Tapað fundið.
Sögukorn um soul-tónlist.
Stjórnandi: Gunnlaugur Sig-
fússon.