Morgunblaðið - 13.02.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1985
53
Af
sætum
strákum
i Duran
Duran
þungA
FINNBOGI MARINÓSSON
JENS ÓLAFSSON
I»að hefur víst ekki farið fram-
hjá mörgum að vinsælustu
hljómsveitirnar meðal ungl-
inganna í dag eru Duran Duran og
Wham!. Fyrir síðustu listahátíð
voru lesendadálkar dagblaðanna
fullir af bréfum frá fólki sem
óskaði eftir að fá Duran Duran til
landsins. Að undanTornu hafa ver-
ið haldnar sérstakar Duran Dur-
an-hátíðir auk þess sem lög með
Duran Duran og Wham! hafa verið
ofarlega á vinsældarlistum víða
um heim. Hafa jafnvel sumir líkt
þessu við bítlaæðið á sínum tíma.
Þrátt fyrir að töluvert hefur verið
fjallað um þessar hljómsveitir í
fjölmiðlum á íslandi berast Morg-
unblaðinu alltaf öðru hverju óskir
uim að fjallað verði um Duran
Duran og Wham!. Til að koma til
móts við þær óskir verður l»unga-
miðjan í dag helguð Duran Duran
og er svipuð umfjöllun um Wham!
í bígerð.
Hljómsveitin
Upphafsins að stofnun Duran
Duran má rekja til ársins 1978
er skólabræðurnir Nick Rhodes
og John Taylor, sem báðir voru
ættaðir frá Birmingham, ákváðu
að stofna hljómsveit sem þeir
nefndu Duran Duran. Nafnið
fengu þeir frá persónu úr kvik-
myndinni „Barbarella". Nick
spilaði á hljómborð og John á
bassa og á næstu tveimur árum
bættust í hópinn Roger Taylor
(trommur) og Andy Taylor (gít-
ar), sem gekk til liðs við sveitina
eftir að hafa svarað auglýsingu
frá þeim í Melody Maker. Síðast-
ur var síðan söngvarinn Simon
Le Bon. Stuttu síðar gerðust
bræðurnir Paul og Michael Ber-
row, sem áttu þekktan næt-
urklúbb í Birmingham, fram-
kvæmdastjórar hljómsveitarinn-
ar. Stuttu seinna seldi Michael
Berrow húsið sitt til þess að
fjármagna hljómleikaferð sem
stuðningshljómsveit fyrir Hazel
O’Connor haustið 1980.
Hljómsveitin fékk það mikla
athygli í þeirri ferð að þeir kom-
ust á samning hjá EM, og var
fyrsta smáskífa þeirra gefin út í
febrúar 1981 með laginu „Planet
Erth“. Það er víst óhætt að segja
að þar með hafi hljómsveitin
orðið fræg á einni nóttu. Þegar
svo fyrsta breiðskífa þeirra kom
út sumarið 1981 var híjómsveitin
orðið töluvert nafn í poppheim-
inum. Það sem e.t.v. var mest að
þakka skjótum frama þeirra er
að þeir notfærðu sér vel mynd-
bandatæknina og áttu
myndbandsupptökur með lögum
þeirra ekki lítinn þátt í þeirri
velgengni sem lög þeirra fengu. í
maí 1982 kom svo út önnur
breiðskífa þeirra „Rio“ sem
hlaut fádæma góðar undirtektir
og fóru þeir í sína fyrstu heims-
reisu í kjölfar hennar. Smáskífa
með laginu „Hungry Like the
Wolf“ var síðan sú fyrsta til að
ná inn á topp tíu í Bandaríkjun-
um. Eftirleikinn þekkja líklegast
flestir, eitt er víst að stjarna
þeirra fer ört hækkandi og er
næsta öruggt að lög frá þeim nái
toppsæti vinsældarlistanna. Á
þessu ári er væntanleg frá þeim
ein stúdíóplata, nokkur mynd-
bönd og titillag nýjustu James
Bond-myndarinnar „A View to a
Kill“.
Meðlimirnir
Það er óhætt að segja að
frægð Duran Duran birtist ekki
eingöngu í velgengni laga þeirra
heldur ekki síður í miklum
áhuga á einstökum meðlimum
hljómsveitarinnar. Af þeim sök-
um birtast hér þær upplýsingar
sem Þungamiðjunni hefur tekist
að grafa upp um þá.
Fyrstan skal nefna Simon Le
Bon sem heitir fullu nafni Simon
Charles Le Bon. Hann fæddist
27. október í Bushey á Englandi.
Hann er 188 sm á hæð, með ljóst
hár og blá augu. Áhugamál hans
eru að skrifa, mála, lesa og vera
á skíðum. Hann mun víst safna
símanúmerum. Hann var eitt
sinn í hljómsveit sem kallaðist
„Dog Days“.
John Taylor fæddist 20. júní
1960 í Birmingham. Hann er 187
sm hár, með dökkskollitað hár
og brún augu. Áhugamál eru bíl-
ar og James Bond. Hann safnar
leikfangabílum og blöðum.
Andy Taylor fæddist 16.
febrúar 1961 skammt frá New-
castle. Hann er 168 sm hár og er
Draumaprin.s
ungmeyjanna
Simon Le Bon.
með brúnt hár og blá augu.
Áhugamál eru tennis, krikket og
hestar. Hann safnar gíturum,
dýrum og húsum.
Roger Taylor heitir fullu nafni
Roger Andrew Taylor. Hann
fæddist 26. apríl 1960 í Birming-
ham. Hann er 175 sm á hæð og
er með svart hár og brún augu.
Áhugamál eru trommur. Hann
safnar plötum og trommum.
Nick Rhodes heitir réttu nafni
Nicholas James Bates og fæddist
8. júní í Birmingham. Hann er
173 sm hár og er raunverulega
með svart hár en hefur litað það
Ijóst. Hann er með græn augu og
áhugamál eru ljósmyndir,
skemmtilegt fólk og jarðarber.
Hann safnar myndböndum.
Fyrir ókunnuga skal tekið
fram að John, Ándy og Roger
Taylor eru óskildir.
Þar með eru upptaldar þær
upplýsingar sem Þungamiðjan
hefur um þá stráka en ef einhver
lumar á nánari upplýsingum,
geta þeir haft samband við Jens
í síma 13631 eða Finnboga í síma
74448. Hér á eftir kemur svo
heimilisfang aðdáendaklúbbs
þeirra og listi yfir útgefnar
hljómplötur með þeim.
Aðdácndaklúbbur:
Duran Duran Fan Club
273 Broad Street
Birmingham
B12Ds
England
Utgefnar breiðskífur
„Duran Duran“ 1981
A: Girls on Film, Planet Erth,
Anyone Out There, To the
Shore, Careless Memories.
B: Night Boat, Sound of Thund-
er, Friends of Mine, Tel Aviv.
„Rio“ 1982
A: Rio, My Own Way, Lonley in
Your Nightmare, Hungry
Like the Wolf, Hold Back the
Rain.
B: Ne Religion, Last Chance on
the Stairway, Save a Prayer,
The Cauffer.
„Seven and the Ragged
Tiger“ 1983
A: The Reflex, New Moon on
Monday, Cracks in the Pave-
ment, I Take the Dice, Of
Crime and Passion.
B: The Chauffer, The Seventh
Stranger, Union of the
Snake, Planet Earth, Care-
less Memories.
„Arena“ 1984
Hljómleikaupptökur + The
Wild Boys
lltgefnar smáskífur:
Planet Earth/Late Bar —
febrúar 1981
Carless Memories/Khanada
— apríl 1981
Girls on Film/Faster Than
Light — júlí 1981
My Own Way/Like an Angel
— nóvember 1981
Hungry Like the Wolf/Care-
less Memories (hljóml) —
maí 1982
Save a Prayer/Hold Back the
Rain (ný útg.) — ágúst 1982
Rio/The Chauffeur — nóv-
ember 1982
Is There Something I Should
Know?/Faith in This Colour
— mars ’83
Union of the Snake/Secret
October — október 1983
New Moon on Monday/Tiger
Tiger — janúar 1984
The Reflex/ Make Me Smile
— apríl 1984
The Wild Boys/Cracks in the
Pavement — október 1984
Slysaalda meðal rokkara
Idesember á nýliðnu ári urðu
óvenju alvarleg slys á ýmsum
þekktum rokktónlistarmönnum.
Alvarlegasta slysið varð þegar
trommuleikari Hanoi Rocks,
Nicholas „Razzle" Dingley, lést í
bílslysi í Kaliforníu. Var hann
farþegi í bíl söngvara Mötley
Crúe, Vince Neil, sem ók bílnum.
Missti hann stjórn á bílnum og
lenti á öðrum bíl með áðurnefnd-
um afleiðingum. Neil slapp
ómeiddur en hefur verið ákærð-
ur fyrir manndráp af gáleysi.
Annar trommari, nánar tiltek-
ið í Def Leppard, Rick Allen,
missti handlegg í bílslysi á ný-
ársdag. Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir lækna tókst ekki að
græða handlegginn aftur á og
mun frama hans að öllum líkind-
um vera lokið. Þó hafa óstaðfest-
ar fregnir borist um að drengur-
inn ætli ekki að gefast upp og
þreifi fyrir sér með sérhannað
trommusett.
Þriðja slysið varð þegar hinn
skeggjaði bassaleikari ZZ Top,
Dusty Hill, varð fyrir voðaskoti
á heimili sínu. Samkvæmt heim-
ildum Þungamiðjunnar varð
slysið með þeim hætti að 38 kal.
Derringer (hvað annað?) sem
hann geymdi í stígvélinu (?) sínu
féll á jörðina og hljóp skot úr
henni í maga suðurríkjarokkar-
ans. Var gerð þriggja klukku-
stunda aðgerð á honum til að
fjarlægja kúluna og mun hún
hafa tekist vel. Vonast hann til
að losna fljótlega af sjúkrahús-
inu og hefja aftur starf með fé-
lögum sínum í ZZ Top.
Razzie, trommuleikari Hanoi Kocks,
lést í bílslysi.