Morgunblaðið - 13.02.1985, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1985
„Pereónuíega., pd hetd eg ab þak séu
öil þes&i efni sem þeir óba. ó- ctv/extina.■"
Ást er ...
... að leyfa honum að
se</ja þérfrá.
TM Roo U.S. Pal Off — all riflhls resefved
c1984 Los Angeles Titr.es SyndicaK'
Gettu hvart svona lítilra hi kostar.
HÖGNI HREKKVISI
„Vlp SBMJOM EKKI OM GÍSLA/.
SVONA, öEFSTU U9P!f"
Bréfritari telur rétt fótgangandi í umferðinni oft fyrir bord borinn.
Hafa fótgangandi engan
rétt lengur í umferðinni?
Kona hringdi:
HvernÍK er það, hafa fóttrang-
andi engan rétt lengur í umferð-
inni? Á veturna eru Kötur ruddar
vel og vandlega og snjónum ýtt
upp á gangstéttir. Þar þurfum við
fótgangandi hins vegar að klöngr-
ast yfir og veldur það auðvitað
ýmsum hinum mestu vandræðum.
Um daginn tók það mig um 40
mínútur að komast yfir Suður-
landsbrautina á mótum Vegmúla.
Umferðin þar er svo mikil og svo
koma bílar úr öllum áttum, niður
Vegmúlann og upp hann, eftir
Suðurlandsbrautinni og inn og út
hjá Gunnari Ásgeirssyni og þar í
kring. Hvernig væri að koma
þarna upp einhverjum gönguljós-
um. Ég veit um marga sem kvarta
undan þessum stað um að erfitt sé
að komast yfir.
Þá er ekki skárra að komast yfir
Kringlumýrarbrautina þar sem
umferðin er geysileg og ekkert til-
lit tekið til gangandi vegfarenda.
Vonandi verður komið upp göngu-
Ijósum víðar í borginni.
Virkið, athvarf allslausra, við Barónsstíg.
Allir veikomn-
ir í Virkið
Ásgeir Eiríksson, Virkinu, Bar-
ónsstíg 13, hafði samband við
Velvakanda:
Ég var að lesa grein í Velvak-
anda frá móður ungs fíkniefna-
neytanda. Því langar mig að
benda fólki á að hingað í Virkið
eru allir velkomnir, ungir sem
aldnir. Hér getur fólk sem
hvergi á höfði sínu að halla feng-
ið húsaskjól og svefnpláss.
Jafnframt vildi ég bæta því
við, að nú hefur verið opnaður
gíróreikningur fyrir Virkið þar
sem fólk getur lagt framlög inn
á reikninginn, en skiljanlega er
ég í mikilli þörf fyrir peninga
þar sem vistmenn Virkisins
þurfa ekkert að greiða. Númer
reikningsins er 23918-6 og vona
ég nú að sem flestir láti eitthvað
af hendi rakna, svo að Virkið
geti gengið áfram.
Hvar stóð
Birgittubær?
Örn Gunnarsson skrifar:
Er ekki einhver sem veit hvar
svonefndur Birgittubær stóð og
hvenær hjónin Birgitta Hall-
dórsdóttir og Sigmundur Jónsson
snikkari bjuggu þar?
í manntali frá 1845 er þessi bær
nefndur, en þá býr þar Gísli
Jónsson snikkari og kona hans
Rósa Grímsdóttir. Ég hef leitað í
þó nokkrum bókum um hina
gömlu Reykjavík, en hvergi séð
minnst á þennan bæ.
Prentvillu-
púkinn á ferð
Kæri Velvakandi!
Prentvilla í grein minni „Um
friðhelgi hins ófædda barns" í
þessum þætti 10. febr. hefur ger-
samlega snúið við merkingu text-
ans og gert mál mitt allt óljósara. I
stað orðsins „aldrei" var sett orðið
„aðeins“, en rétt er klausan sem
hér segir:
„Af þessari ástæðu eiga hags-
munir og velferð móður og annarra
í fjölskyldu hennar aldrei að vega
upp á móti sjálfu lífi hins ófædda
barns. Siðferðilegur réttur fósturs-
ins til lífs vegur þyngra en réttur
hinna til einhverra tiltekinna lífs-
kjara, og þeim vogarskálum verður
ekki haggað nema með gerræðis-
fullri íhlutun, þ.e. beinu ofbeidi."
í bréfi mínu var einnig vísað til
greinar, „sem bíður birtingar hér í
blaðinu", eins og þar stóð, en sú
grein birtist 6. febrúar.
Jón Valur Jensson