Morgunblaðið - 21.02.1985, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.02.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 25 sýningu stendur," sagði Davíð. Sagði hann að forráðamenn bíósins hefðu mikinn hug á að þetta mál yrði leyst og nú væri komin fram hugmynd um að taka sneið af leikvellinum sem væri fyrir aftan bíóið og nota sem bílastæði. Hann { bætti því við að þetta væri ekki góð lausn og engin ákvörðun hefði verið tekin þar að lútandi en ljóst væri að þarna væri mikið vandamál á ferðinni sem yrði að leysa. Margrét Einarsdóttir spurði hvort ekki væri þörf á samþykki íbúa þegar settur væri upp skemmtistaður í íbúðahverfi. Sagði hún að 200 undirskriftum hefði verið safnað meðal íbúa í nágrenni unglingastaðarins Traffic í því skyni að fá hann burt. Davíð sagði að fundir hefðu verið haldnir með ýmsum aðilum um þetta mál í því skyni að leysa það en mál sem þetta væri vandmeð- farið. Sagði Davíð að hann væri viss um að íbúar Stigahlíðar væru Vissir um að mál unglinganna væri leyst, því ekki yrðu þeir lengur var- ir við nein læti vegna Tónabæjar. „Vandamál sem þetta verða seint að fullu leyst,“ sagði Davfð, „því er hins vegar haldið fram af þeim sem til þekkja að í Traffic fari fram starfsemi sem er af hinu góða en það séu utanaðkomandi sem skapi þann vanda sem þarna er á ferð- inni, þ.e.a.s. lætin fyrir utan. Oft á tíðum eru þetta ungir menn sem eru að byrja feril sinn sem úti- gangsmenn." En svo hann svaraði spurningunni beint þá sagði Davíð að hann teldi að það væri hvergi að finna í reglum að hafa ætti samráð við íbúa hverfa vegna máls sem þessa, því hvar ætti að draga mörk- in? Hann kvað það þó æskilegt að haft væri sem mest samráð við borgarbúa varðandi málefni borg- arinnar. Óánægja með fyrir- hugaðar framkvæmdir í Stangarholti Þá spurði Guðmundur Garðars- son hvernig háttaði til með lagn- ingu Fossvogsbrautar og hvort borgarstjóra fyndist ekki að lækka Hér er llaukur Eggertsson í miðri ræðu sinni. ætti hámarkshraða á Kringlu- mýrarbraut. Borgarstjóri sagði að ekki hefði náðst nógu góð samvinna við bæj- aryfirvöld í Kópavogi þó að sam- ningar hefðu verið gerðir. Bæjaryf- irvöld þar teldu sig hafa visst neit- unarvald í þessu máli og á þessu stigi málsins væri óvíst um framtíð þessa máls. Varðandi lækkun hraðatakmarkana á Kringlumýrar- braut sagði Davíð að við fyrstu sýn teldi hann það ekki til bóta þar sem alltaf þyrftu að vera brautir sem flyttu bíla á milli borgarhluta og það yrði að ganga frekar fljótt fyrir sig því yfirleitt færu margir bílar um þessar götur á degi hverj- um. Davíð sagðist hins vegar vera fylgjandi því að lækka hámarks- hraða í íbúðahverfum því þar gegndi öðru máli. Næsti fyrirspyrjandi var Bjarni Pálmason og stóð honum ekki á sama um fyrirhugaðar fram- kvæmdir í Stangarholti. Sagði hann að íbúar hverfisins hefðu ætl- að að byggja þarna bílskúra fyrir 30 árum en hefði þá verið synjað á þeim forsendum að þarna ætti að koma dagvistarheimili. Nú væri það hins vegar komið á daginn að þarna ætti einnig að byggja íbúðir. Sagði hann að íbúar í Stangarholti hefðu mótmælt og þá verið boðið að koma á fund í Skúlatúni með borg- aryfirvöldum. Á þeim fundi hefði ekkert verið samþykkt en samt ætti að byggja þarna. Sagði Bjarni að íbúarnir vildu að farið yrði eftir upphaflegu skipulagi um þetta svæði, en í því hefði verið ráðgert að byggja þrjú eða fjögur lítil hús. Spurði hann að lokum hvort það væri staðföst ákvörðun borgaryf- irvalda að láta byggja þarna. Borgarstjóri sagði að borgaryf- irvöld hefðu ekki virt þetta sam- komulag að vettugi en mótmæli íbúanna hefðu ekki haft þau áhrif að þau féllu alveg frá fyrirhuguð- um byggingarframkvæmdum. Dav- íð sagðist vera þeirrar skoðunar að þetta væri til bóta, þarna yrði einn- ig komið fyrir bílastæðum fyrir íbúana, en þau hefðu verið af skornum skammti fram til þessa. Verða fleiri götur gerðar að vistgötum? Vistgötur eru alveg nýtt fyrir- bæri hér á landi og Jón Gissurar- son langaði að vita hvort borgin fyrirhugaði að gera fleiri slíkar götur. Borgarstjóri sagði ástæðu þess að farið var út í þessa framkvæmd með Þórsgötu þá, að þar þurfti að skipta um hitaveitulagnir og annað þess háttar og því hefði verið ákveðið að athuga hvort tilraun sem þessi heppnaðist. Sagði hann að nýlega hefðu íbúar við Kárastíg óskað eftir svipuðum framkvæmd- um þar en sú ákvörðun hefði verið tekin að ef íbúar einstakra gatna óskuðu eftir því að þeim yrði breytt í vistgötur yrðu þeir að greiða hluta af kostnaðinum við fram- kvæmdina. Davíð sagði að þessi til- raun við Þórsgötu hefði tekist mjög vel og hefði kostnaður við þessa framkvæmd verið helmingi dýrari en ef einungis hefði verið skipt um lagnir og ekkert annað gert, en kostnaður hefði alls verið um 5 milljónir króna. Margar fyrirspurnir komu fram á fundinum og voru fundargestir Sveinn Guðmundsson vildi að sem best væri gert við hjólreiðamenn. óhræddir við að láta í ljós viðhorf sín til einstakra mála. í lok fundar- ins sté í pontu Björn Loftsson handmenntakennari, og sagði að við upphaf hans hefði hann búist við því að borgarstjóri myndi ræða um kosningaloforð sín fyrir síðustu kosningar og efndir þeirra, en ekki hefði verið á þau minnst. Það kæmi hins vegar ekki á óvart, því á þeim tíma sem liðinn væri frá síðustu borgarstjórnarkosningum hefði öllum slíkum loforðum verið gefið langt nef með því að uppfylla þau. Nú væri ekki verið að ræða um það sem þá átti að gera heldur væri farið að tala um nýjar fram- kvæmdir og nýjar áætlanir þessu ættu borgarbúar ekki að venjast. Sagðist hann hafa séð að einhverjir fjölmiðlar hefðu verið að reyna að hnýta í borgarstjórann og fundið honum það helst til foráttu að vera ekki nógu kvensamur. Kvensemina hefði hins vegar annar maður tekið að sér suður á Keflavíkurflugvelli, en það væri önnur saga. Björn bar mikið lof á borgar- stjóra í ræðu sinni og var mál manna að þarna væri fundinn hinn ágætasti kosningastjóri fyrir Dav- íð í næstu kosningum. ískappreiðar Sleipnis á Selfossi, 17. febrúar. ÍSKAPPREIÐAR íþróttadeildar hestamannafélagsins Sleipnis fóru fram sl. laugardag á Ölfusá. Þetta voru 5. ískappreiðar félagsins en þetta mót er orðinn fastur liður í starfí hestamanna. Hestamenn ruddu braut á vík- inni norðan Sjúkrahússins og hófaslögin dundu á ísilagðri ánni. Keppt var í tveimur greinum, ístölti og 150 m skeiði. I ístölti sigraði Snorri ólafsson á Smára, Davíð Guðmundsson varð annar á Stíganda, Leifur Bragason þriðji á Stolt, Gunnar Ágústsson fjórði á Nös og Halldór Vil- hjálmsson fimmti á Frosta. í 150 Ölfusá m skeiði varð Einar Öder Magn- ússon hlutskarpastur á Merði með tímann 16,1 sek. Snorri Sig- finnsson varð annar á Vin með tímann 16,3 sek.og Magnús Einarsson þriðji á Hróa á 17,4 sek. Næsta mót Sleipnis verður íþróttamót 11. maí. Sig. Jóns. APABRÓÐIR StórkosUegasta Tarzanmynd sem nokkurn tíma hefur verið geró. Myndin hefur alls staðar verið sýnd við metaósókn og hlotið aðdáun áhorfenda jafnt sem gagnrynenda. mmmmsm . . . Besta Tarzanmynd, sem nokkru sinni hefur veriö gerö. — Sun. Apaatriöin eru svo snilldarleg, aö þau eru ótrúleg. — The Standars. Glæsileg mynd, sem hrífur. — Sunday Mirror. Þrefalt, innilegt frumskóga- öskur. Tarzan hefur sigraö. — Mail on Sunday. Besta Tarzanmynd, sem ég hef nokkru sinni séö. — Sunday Express. Tarzan snýr aftur sigri hrós- andi. — Daily Mirror. Dásamlega skemmtileg ævintýramynd. — Daily Star. Hrifandi ævintýri. Þiö verðið sem dáleidd af þessari töfr- andi ævintýramynd. — Cosmopolitan. ★ * * * V4 Glæsileg. Dásam- leg. Undursamleg. Besta Tarzanmynd, sem nokkru sinni hefur veriö gerö. Ein sérstæöasta ævintýramynd, sem gerö hefur verið. — Los Angeles Magazine. * ★ ★ V2 Listaverk. Mikilfeng- leg, heillandi fögur, ögrandi, áhrifarik, orkar mjög á tilfinn- ingarnar. Ein besta kvikmynd ársins 1984. — Newsday. Tarzanmynd, sem á engan sinn líka. Skemmtileg, skyn- samleg og hrifandi. — News- week. ÍSLENSKUR TEXTI W&BSk D0LBY STERE0 BÖNNUÐINNAN W ÁRA Sýndkl. 5, 7.30 og 10 Hækkað verð J
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.