Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.02.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 31 Kaupmannahöfn: Sædýrasafnið í þrot með sjó Kaupmannahöfn, 19. febrúar. AP. SÆDÝRASAFNIÐ í Kaupmanna- höfn er nú komiö í þrot með saltan sjó vegna ísalaganna á Eyrarsundi. Hafa forráðamenn þess af þeim sökum snúið sér til áhafnanna á ísbrjótunum og beðið þá um að koma safninu til hjálpar. í sædýrasafninu í Kaupmannahöfn eru um 100 ólíkar fisktegundir og horfir nú illa með framtíð þeirra ef safn- inu berst ekki sjór. Vanalega hefur hann verið sóttur á bát út á sundið og síðan fluttur til Þessi önd þoldi ekki kuldann og þá var ekki annað að gera en setja gogginn í sokk og vefja trefli um hálsinn. safnsins í tankbíl, en vegna ísa- laganna er það ógerningur. Birgðirnar eru yfirleitt um 300 tonn, en voru í gær aðeins 50 tonn. Skipstjórar á ísbrjótunum dönsku vilja allt gera til að hjálpa, en áhafnir skipanna hafa hins vegar í nógu að snúast þessa dagana og óvíst hvenær þær geta farið að sinna fiskun- um. Þessi pelikani þoldi ekki kuldann og þá var ekki annað að gera en að reyra fasta við hann hitapoka uns vorið ríður í hlað. Deilt um dánarorsök 7 8 ára gamals ekkjumanns l.undúnum. 20. rebníar. AP. ANDLÁT 78 ára gamals ekkju- manns á St. Mary’s-sjúkrahúsinu í Portsmouth hefur valdið miklum úlfaþyt og blaðaskrifum. Einkasonur gamla mannsins segir hann hafa lát- ist úr AIDS, áunninni ónæmisbækl- un, en sjúkrahússyfirvöld segja hann hafa látist úr lungnabólgu. Sonurinn segir fööur sinn hafa sýkst af AIDS við blóðgjöf er hann gekkst undir uppskurð fyrir tveimur árum, en talsmenn St. Mary’s neiti því til þess að hylma yfir eigin afglöp í læknismeðferð gamla mannsins. Hinn 78 ára gamli Sidney Reut- er var lagður á skurðborðið fyrir 2 árum sem fyrr segir og sjúkra- hússyfirvöld hafa staðfest að blóðgjafinn hafi verið alvarlega sjúkur, en þó ekki í bráðri lífs- hættu. Hann er nú látinn og lækn- ar neita að gefa upp dánarorsök blóðgjafans. „Faðir minn dó úr AIDS, ég verð alltaf sannfærðari um það. Síðustu sex mánuðina hef ég reynt að komast að hinu sanna í málinu, en verið leiddur fram hverja blindgötuna af annarri. Ég gerðist ágengur er faðir minn var settur í einangrun frá öðrum sjúklingum, án þess að læknar vildu gefa mér hinar minnstu skýringar á því hví það var gert.“ Það er sannað mál, að Sidney Reuter var ekki kynvilltur og niðurstaða krufningar leiddi I ljós, að aðaldánarorsök Reuters var lungnabólgan, en AIDS hafi einn- ig verið fyrir hendi og lagt lungna- bólgunni lið. Það sem sonurinn vill að komi fram er að AIDS hafi í raun verið aðaldánarorsök föður síns og afglöp lækna við blóðgjöf hafi átt þar alla sök. Æðislegir jazzballettbúningar í öllum regnbogans litum. Stærðir small, medium og large. Verð frá kr. 900-1.360.- Eigum einnig upphitunar buxur, kr. 850,- Póstsendum SÓLEYJA Sigtúni 9 • 105 Reykjavík © * 687701 Framfarir hjá gervi- hjartaþega Louisville, Kentucky, Bandaríkjunum, 19. febrúar. AP. Gervihjartaþeginn Murrey P. Haydon gerði að gamni sínu við lækna og hjúkrunarfólk þegar hann var aftur látinn fara ða anda upp á eigin spýtur, en hann hefur verið tengdur öndunarvél frá því að aðgerðin var gerð. Hin- um gervihjartaþeganum líður hins vegar ekki eins vel og þykir einsýnt, að hann eigi ekki aft- urkvæmt af sjúkrahúsinu. Haydon getur nú neytt mat- ar eins og annað fólk og þarf ekki lengur að fá næringu í æð. Segja læknarnir, að næst sé fyrir hendi að fjarlægja önnur hjálpartæki nema loftdæluna, sem knýr hjartað. Líkamlegt ástand Haydons er að öðru leyti mjög gott og binda því læknarnir miklar vonir við að hann geti náð sér að svo miklu leyti sem það er unnt með gervihjarta í brjósti. Heilsa Schröders, hins gervi- hjartaþegans, sem enn lifir, er mjög slæm, hann þjáist af hitasótt, sem læknarnir kunna ekki skýringu á, og minnis- leysi. Eru litlar horfur á að hann komist heim til sín aftur. NÝTT-NÝTT HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD VERÐ: 113 1. — kr. 11.200.- PRISMA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.