Morgunblaðið - 21.02.1985, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985
Vegið að atvinnuöryggi
og afkomu fólksins hér
— segir Ellert Kristinsson, framkvæmdastjóri Sigurðar Ágústs-
sonar hf., um skelvinnsluleyfi Hraðfrystihúss Grundarfjarðar
FYRIRTÆKIÐ Sigurdur Ágústsson hf. er einn af brautryðjendunum í skel-
fiskvinnslu við Breiðafjörð. I>að hefur undanfarið haft 5.400 lesta aflakvóta
upp úr sjó og verið með 9 báta í viðskiptum. Hjá fyrirtækinu vinna um 100
manns á sjó og landi og það rekur einnig saltfiskverkun á Rifí. I>að lausfryst-
ir skelfiskinn og selur á Bandaríkin í gegn um eigið sölufyrirtæki, Royal
Icelandic.
Er Morgunblaðsmenn voru í
Stykkishólmi fyrir skömmu
ræddu þeir við Ellert Kristinsson,
framkvæmdastjóra fyrirtækisins
um skelvinnsluna og leyfisveit-
ingu fyrir skelvinnslu til Grund-
arfjarðar.
„Starfsemin hjá okkur byggist
upp á skelvinnslu 5 mánuði ársins,
en bolfiski hinn hlutann, meðal
annars saltfiskvinnslu í útibúinu á
Rifi. Hins vegar fylgir sá bðggull
skammrifi, að bátar okkar fá nær
engan bolfisk vegna skelveiðanna.
Það er því skelin, sem öllu máli
skiptir, en af henni fengum við
5.400 lestir upp úr sjó á síðasta
ári. Það er hins vegar spurningin
hvað breytist með nýju leyfisveit-
ingunni, sem er óskiljanleg. Haf-
rannsóknastofnun leggur til
11.000 lesta heildarkvóta eins og í
fyrra. Hér er aðeins um 5 mánaða
vinnslu á ári hverju að ræða, sem
sýnir meðal annars hve vinnslu-
getan er mikil. Hún er vannýtt og
við höfum ekkert í annað að fara.
Halldór Ásgrímsson sagði við
mig á síðasta ári, að skelvinnslur
við Breiðafjörð væri þegar of
margar. Þetta gengur auk þess
gróflega á svig við gildandi lög um
samræmingu veiða og vinnslu,
sem háðar eru sérleyfum. Við vilj-
um ná fundi ráðherra áður en við
segjum meira, en trúm ekki öðru
en að þessi ákvörðun verði endur-
skoðuð og sjónarmið þeirra, sem
við þetta hafa unnið í 15 ár, verði
virt. Endanlegur kvóti hefur enn
ekki verið gefinn út, en við teljum
Kllert Kristinsson
víst, að viðbótarveiði stofni aðeins
miðunum í hættu.
Við erum eins og margir aðrir
ekkert frjálsir af því hvaða at-
vinnu við stundum. Við fáum
sjálfsagt ekki að kaupa skuttogara
enda höfnuðum við þeirri leið á
sínum tíma. Við teljum ennfremur
að lögin frá árinu 1975 veiti okkur
vissan rétt, en samt hefur veiting
nýrra leyfa við Breiðafjörðinn
verið nær árviss viðburður.
Þá hefur verðlagningu á skel
upp úr sjó verið þannig háttað, að
hún er ekki í neinu samræmi við
sölumöguleika. Verðið miðast við
stærstu skelina, en af henni er til-
tölulega minnst og það gengur
heldur ekki. Á þessum málum
verður að taka á raunhæfan hátt.
Það hefur miklu verið til kostað
við þessa atvinnuuppbyggingu hér
á staðnum og allt byggist á því að
öryggi sé til staðar í atvinnu- og
afkomumálum. Það er hart að
hafa verið einn af brautryðjend-
unum og þegar ljóst er að vel
gengur, vilja allir Lilju kveðið
hafa og taka af okkur, það sem við
höfum unnið og byggt upp. Með
þessari síðustu leyfisveitingu er
því vegið að atvinnuöryggi og af-
komu fólks hér,“ sagði Ellert
Kristinsson.
— HG
Bitinn er aðeins lítill hluti heildarþunga skeljarinnar og þvf fellur til mikið af
skel og brotum, sem erfítt getur verið að losna við.
Skelfískurinn yfírfarinn.
n ■ X * m
Morgunblaðid/Fridþjófur.
i
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Mosfellssveit
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Mosfellinga verður haldinn fimmtudag-
inn 21. febrúar nk. kl. 20.30 i Hlógaröi.
Fundarefni:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Friörik Sophusson alþingismaöur maetir á fundinn, ræöir stjórn-
málaviöhorfin og svarar fyrirspurnum ásamt Salome Þorkelsdóttur
alþingismanni.
Allt sjálfstæöisfólk velkomiö á fundinn.
Stjórnin
Maður er nefndur:
Jón Magnusson lógfræöingur
Hann kemur í kjallara Valhallar Háaleitisbraut 1, föstudaginn 22.
februar kl. 21.00 og ræöir þaö sem efst er á baugi i þjóömálum.
Er Jón Magnússon istjórnarandstöóu?
Neytendamál: Er SlS eitthvaö ofan á brauö?
Heimdellingar mæt'im timanlega og fjölmennum á áhugavekjandi
"rabb kvöld".
Ath.: Léttar veitingar.
Týr Kópavogi
Uppsagnir framhaldsskólakennara
Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráö-
herra verður gestur á rabbfundi Týs F.U.S.
Kópavogi laugardaginn 23. febrúar kl. 15.00
i Sjálfstæöishúsinu aö Hamraborg 1, 3.
hasö. Framhaldsskólanemendur og kennar-
ar eru hvattir til aö koma og taka þátt í
umræðum og þiggja kaffiveitingar gegn
vægu veröi.
Stjórn Týs.
Eldri borgarar í Nessókn
Eftirmiödagsstund veröur i Neskirkju laugardaginn 23. febrúar kl.
15.00—17.00.
Einsöngur í kirkjunni: Svala Nielsen söngkona.
Jónasson organleikari.
Siödegiskaffi í félags-
heimilinu.
Gamanvisur: Sigriöur
Hannesdóttir leik-
kona. Undirleikur Aage
Logange pianóleikari.
Undirleikur Reynir
i.....
Félag sjálfstæóismanna i Nes- og Melahverfi
Akranes
Almennur stjórnmálafundur veröur haldinn
i Sjálfstæöishúsinu mánudaginn 25. febrúar
kl. 20.30. Albert Guömundsson fjármálaráö-
herra ræöir störf og stefnu rikisstjórnarinnar
og svarar fyrirspurnum. Þingmenn Sjálf-
stæöisflokksins i Vesturlandskjördæmi
Friöjón Þóröarson og Valdimar Indriöason
mæta á fundinn. Allir velkomnir.
Fulltrúaráö sjálfstæöistélaganna Akranesi
Hafnarfjörður
Landsmálafélagiö Fram heldur fund nk.
fimmtudag, 21. febrúar, kl. 20.30 i
Sjálfstæöishúsinu aö Strandgötu 29,
Hafnarfirði.
Fundarefni.
1. Fjárhagsáætlun Hafnarfjaröar fyrlr áriö
1985. Frummælandi: Arni G. Finnsson,
bæjarfulltrui.
2. Önnur mál.
Sjálfstæöisfólk er hvatt til aö mæta á fundinn.
Landsmálafélagiö Fram.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vörn
Fundur veröur haldinn laugardaginn 23. febrúar kl. 14.00 i Kaupvangi
viö Mýrarveg. Gestur fundarins verður Halldóra J. Rafnar formaöur
Landssambands sjálfstæöiskvenna. Kosnir veröa fulltrúar á lands-
fund. Skemmtiatriöi. Boöið upp á veitingar.
Félagskonur fjölmenniö og takiö meö ykkur gesti.
Stjórnin.
Skólanefnd TÝS
Hvernig er rauöur friöur?
Skólanefnd Týs F.U.S. Kópavogi hefur boöiö
Arnóri Hannibalssyni til kvöldveröarfundar i
veitingastaönum Y viö Smiöjuveg þriöju-
daginn 26. febrúar kl. 19.00.
Arnór stundaói nám i Póllandi og Sovétrikj-
unum eins og kunnugt er, og ætlar hann aö
segja frá llfinu og tilverunni þar austur frá
og hugmyndum þarlendra valdhafa um friö
og afvopnun Fundurinn er opinn öllum
áhugamönnum.
Skólanefndin.