Morgunblaðið - 21.02.1985, Side 41

Morgunblaðið - 21.02.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 41 Eiríkur Tómasson og Tómas Þorraldsson úr Grindavík. Rétta verður hlut sjávarútvegsins Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum um atvinnumál og fleira í Keflavík á laugardag: Atvinnuástand á Suðurnesjum hefur um skeið verið verra en ann- ars staðar á landinu. Mörg sjávar- útvegsfyrirtæki eru lokuð, önnur berjast í bökkum og mörg afkasta- mikil fiskveiðiskip hafa verið seld. Staða sjávarútvegsins á Suður- nesjum er verri en víða annars staðar. Liggja til þess ýmsar orsakir. Fyrirtæki nutu ekki sömu fjármagnsfyrirgreiðslu og annars staðar gilti til uppbyggingar á ár- unum 1970—1979, þegar fjármagn var næstum ókeypis, og uppbygg- ing var hvað örust annars staðar á landinu. Fyrirtækin standa því verr að vígi en systurfyrirtæki í öðrum landshlutum. Ekki er heldur vafi á því að markaðsbresturinn í skreiðarsölu bitnaði harðar á mörgum fyrir- tækjum á Suðurnesjum en annars staðar á landinu, vegna þess hver skreiðarverkun var ríkur þáttur í starfsemi þeirra. Fundurinn ályktar: Gengisstefna stjórnvalda hefur um langt árabil verið fjandsamleg sjávarútvegi og orðið til þess að flytja gífurlega fjármuni frá sjáv- arútvegi til innflutnings, verslun- ar og þjónustu, sem kemur fram í mikilli þenslu á Reykjavíkursvæð- inu. Það er grundvallarforsenda heilbrigðs rekstrar í sjávarútvegi að þessari gengisstefnu verði breytt og gengi erlendra gjald- miðla verði rétt skráð. Aflamiðlun til staða þar sem vandamál koma upp í fiskvinnslu vegna hráefnisskorts, eins og nú á sér stað á Suðurnesjum, verði framkvæmd á þann hátt að skip sem Fiskveiðasjóður, Byggðasjóð- ur eða ríkissjóður munu eignast vegna vanskila viðkomandi skipa verði leigð til staða þar sem at- vinnuvandamál koma upp. Átak verði gert í markaðsmál- um. Með sameiginlegu átaki fram- leiðenda, sölusamtaka og ríkisins verði leitað nýrra leiða í markaðs- þróun. Ráðgjöf til framleiðenda um framleiðsluhætti með tilliti til markaða aukin. Framleiðendur taki aukinn þátt í stefnumótun sölusamtaka sinna í því skyni að gera þau sveigjanlegri og mark- vissari. Fundurinn mótmælir vaxtaokri, sem á sér stað í landinu bæði hjá útgerð, fiskvinnslu og launþegum. Bendir fundurinn á að vaxtakostn- aður hjá sjávarútvegsfyrirtækjum er í mörgum tilfellum jafnhár og launakostnaður fyrirtækjanna. Seld hafa verið skip af svæðinu, sem fylgt hafa þúsundir tonna í veiðikvóta. Fundurinn leggur til að þegar skip eru seld út af at- vinnusvæði, sem býr við atvinnu- leysi verði sérstökum viðbótar- kvóta úthlutað til starfræktra veiðiskipa á svæðinu. Fundurinn krefst þess að nú verði þeirri öfugþróun snúið við sem orðið hefur í launamálum seinni ár. Fólk í framleiðslugrein- um ber sífellt minna úr býtum miðað við þá er starfa að hvers konar þjónustu og milliliðum. Fundurinn telur óraunhæft að laun þeirra einna, er starfa við sjávarútveginn séu miðuð við út- flutningsverðmæti. Fundurinn telur nauðsynlegt að sjávarútvegsfólkið í landinu, er þá átt við sjómenn, útvegsmenn, fisk- verkendur og verkafólkið í fisk- vinnslunni, myndi með sér órofa samstöðu um stórbætta aðstöðu sjávarútveginum til handa svo honum verði gert kleift að greiða hæstu fáanleg laun á vinnumark- aði landsmanna. Ein orsök mikils vanda í sjávar- útvegi Suðurnesjamanna er sá afl- abrestur, sem orðið hefur undan- farnar vertíðir, sem er afleiðing stóraukinnar sóknar í uppvaxandi fisk. Komið hefur skýrt fram í gögnum Hafrannsóknastofnunar- innar hversu þýðingarmikið er fyrir þjóðarbúið í heild að geyma fisk í sjónum, leyfa honum að stækka og þyngjast áður en hann er veiddur, en það gefur allt að 55% raunvexti, svo notað sé mál bankamanna. Fundurinn skorar þvi á stjórnvöld að hlýða á þennan boðskap og breyta eftir honum. Fundurinn hvetur fólk í sjávar- útvegi um land allt að mynda breiðfylkingu til varnar undir- stöðuatvinnugrein þjóðarinnar. Atvinnuöryggi fiskvinnslufólks, kjör sjómanna og afkoma sjávar- útvegsfyrirtækja krefst þess að menn snúi bökum saman og krefj- ist þess að sjávarútvegurinn hljóti styrkari sess í vitund ráðamanna en verslun og þjónustustarfsemi. Snúum vörn í sókn til traustari afkomu sjávarútvegs og launþega. hekla HF. hefur opnað nýja bílasölu ad Brautarholti 55 fyrir NOTAÐA BÍLA undir nafninu: BÍLASALAN BJALLAN - Mjög rúmgóöur sýnjngarsalur - Aðgengilegt útisvæöi - - Reyndir sölumenn - Notaleg aöstaöa fyrir viðskiptavini - Tökum allar gerdir notadra bíla í umboössölu. Úrval skiptibíla frá HEKLU HF. VERIÐ VELKOMIN í NÝJA „BJÖLLU" SALINN T* Bíia- 0JALlaN I Hekla hf. 1 J 1 BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 621240 FhIheklahf I" " iLauqaveqi 170 -172 Simi 21240 t , M FISHER Fermingar „smellurinn" i ar System MC — 708 15 watta hljómmögnun. Segulband meö „Metal“ og normal stillingum Útvarp, FM steríó og MW-bylgjur. 50 watta 3 way hátalarar. Fallegur viöarskápur meö gleri og á hjólum. Verö: 18.980,- Lágmúla 7. Reykjavík. S: 685333. SJONVARPSBIHHN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.