Morgunblaðið - 21.02.1985, Page 43

Morgunblaðið - 21.02.1985, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 43 Harry og sonur. Vandræðin með Harry Kvíkmyndír Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Harry og sonur (Harry and Son) ★★ Leikstjóri: Paul Newman. Framleiðandi: Newman. Ilandrit: Newman og Ronald L. Buck, byggt á skáldsögunni A Lost King, e. Raymond DeCapite. Kvikmyndataka, í Technicolor: Donald McAlpine. Klipping: Dede Allen. Tónlist: Henry Mancini. Frumsýnd fyrri hluta árs 1984. Sýningartími: 117 mín. Bandarísk, frá Orion. Nýjasta mynd Pauls Newman, þar sem hann reyndar er allt í öllu; framleiðandi, leikstjóri, handritshöfundar að hluta, og aðalleikari, er hægfara, leik- sviðslegt verk um tilfinninga- tengsl föður og sonar. Sonurinn, Howard, (Robby Benson), hefur miklar áhyggjur af föður sínum, Harry, (Paul Newman), sem er kominn á sex- tugsaldur, er orðinn heilsuveill og þess vegna rekinn úr vinnu í upphafi myndarinnar. Móðirin er látin fyrir tveimur árum og syrgir Harry hana enn. Hann er einþykkur þverhaus í harðri skel með neikvæðar skoðanir á flest- um hlutum. Howard er algjör mótsögn föður síns á flestum sviðum. Kátur og blíður, vill öllum gott gera og má ekkert aumt sjá. Síð- an gengur Harry og sonur að mestu leyti út á þá ætlun How- ards að opna augu föður síns fyrir hinum skemmtilegri hlið- um tilverunnar, fá hann til að njóta hennar. Brjóta utanaf hon- um skelina. Þetta er notaleg og hjartahlý mynd en langdregin og jaðrar við væmni á stöku stað. Hefur greinilega ekki orðið sú vegtylla á glæsilegri framabraut New- mans, sem hann hefur ætlað. Hann getur sjálfum sér um kennt, einkum og sér í lagi hvað leikstjórnina snertir, sem er máttlaus. Sýndi hann þó í mynd- unum Rachel, Rachel og Never Give an Inch, að hann kann vel til verka bak við myndavélina. Hér skortir nefnilega mikið uppá að hraðanum og spennunni sé hald- ið fullnægjandi út myndina sem að auki er of kaflaskipt. En leikarinn Newman stendur fyrir sínu, nú sem endranær. Það hefur verið einkar ánægjulegt að fylgjast með glæsilegum ferli hans í gegnum tíðina. Gallinn er hinsvegar sá að Newman passar ekki nógu vel í hlutverk Harrys. Þótt Newman standi reyndar á sextugu — og sé því í rauninni eldri en Harry — lítur hann eng- an veginn út fyrir að vera erfið- ismaður á sextugsaldri. Þrátt fyrir gráu hárin og aldursárin er gamalkunni, bláeygði unggæð- issjarminn enn fyrir hendi. Benson er einstaklega geð- þekkur leikari og smellur inn í hlutverk Howards. Hjálpar myndinni mikið. Joanne Wood- ward fer með aukahlutverk af alkunnum skörungsskap, sömu- leiðis Wilford Brimley og gaman er að sjá gamla, góða Ossie Dav- is, (The Hill). Harry og sonur lítur laglega út, kvikmyndatakan góð, eftir- minnileg í upphafsatriðinu, hljóðupptaka og tæknivinna eins og best verður á kosið. Hins veg- ar hefði hún tvímælalaust orðið mun trúverðugri ef ellilegri og sjúskaðri leikari en Newman hefði farið með hlutverk Harrys og allmörg hliðarplott hefluð af. Hljómleikar í Mývatnssveit ANNA Áslaug Ragnarsdóttir pí- anóleikari heldur hljómleika í Skjólbrekku, Mývatnssveit, sunnudaginn 24. febrúar nk. kl. 15.00. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Scarlatti, Haydn, Chopin, sónatan Pathétique eftir Beet- hoven og fimm prelúdíur eftir Hjálmar Ragnarsson. Hafsjor góöra rétta X s § s Veitingastaðurinn Trillan í Armúla 34 er ekki aðeins frábær hamborgarastaður, þér býðst líka úrval annarra smárétta. Samlokur, kjúklingar, kínverskar pönnukökur og fískurinn.... Komdu um borð og smakkaðu hjá okkur. Við bjóðum uppá góðan mat og ódýran. Opið mánudaga - miðvikudaga til kl. 22 en fimmtudaga - sunnudaga til kl. 03. Trillan — tilvalinn fjölskyldustaður. Ármúla 34 — Sími 31381 ^Artline B/ILL2000M <&*= — ^ Artllne Ball 2000M Kúlutússpennl % með stáloddl sem þollr álagið. B Endlngargóður hversdagspennl ■ sem á engan sinn líka. Hægt m að velja um 4 liti. Fæstíflestum bóka- og rltfangaverslunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.