Morgunblaðið - 21.02.1985, Side 60

Morgunblaðið - 21.02.1985, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1985 íslandsgangan á skíðum 1985 A HAUSTÞINGI SKÍ sem haldiö var á Egilsatöðum 9,—11. nóv. sl. var ákveðió að koma á allt að 5 trimmgöngum fyrir almennings sem kölluöust einu nafni fslandsgangan og vœri hver þeirra a.m.k. 20 km aö lengd. Ákveðið var aö mót þessi færu fram á eftirtöldum stööum árið 1985. 16.2. á Egilsstöðum, Skógar- gangan 20 km, 9.3. á Akureyri, Lambagangan 20 km, 23.3. í Reykjavík, Þingvallagang- an 42 km, 13.4. á ólafsfiröi, Lava Loppet 10-20-40 km, 4.5. á ísafiröi, Fossavatnsgang- an, 24 km. Þátttaka í islandsgöngunni gefur stig og eru þau reiknuö út eftir röð keppenda í hverju göngumóti fyrir sig skv. reglu- gerö SKÍ um stigaútreikning í göngu. Samanlögö stig þátttak- enda úr þrem þessara göngu- móta ráöa úrslitum um röö hans í islandsgöngunni. Sigurvegari hlýtur íslandsbik- arinn sem er farandgriþur en auk þess skulu verölaun veitt fyrir þrjú efstu sæti í eftirtöldum flokkum: Konur 17—34 ára. Konur 35 ára og eldri. Karlar 17—34 ára. Karlar 35 ára og eldri. Þátttökutilkynningar skal senda til viökomandi skíöaráöa. Fréttatilkynning • Skíðaganga hefur átt vaxandi vinaældum að fagna hér á landi á undanförnum árum. Jafnt ungir sem aldnir geta haft mikla ánægju og heilsubót af skíöagöngu. REGLUR varðandi fslandsgönguna á skíöum. 1. Keppnin heitir íslandsgangan. 2. Keppnin er fólgin í þátttöku í allt að fimm sjálfstæðum almenn- ingsgöngum á skíöum á sama vetri. 3. Stig þátttakenda eru reiknuð eftír röð í hverju göngumóti samkv. reglugerð SKÍ um stigaútreikning í göngu. Samanlögö stig þriggja bestu mótanna ráöa úrslitum í íslandsgöngunni. 4. Verðlaun í íslandsgöngunni skulu veitt hér fyrir þrjú efstu sæti í eftirtöldum flokkum: Konur: 17—34 ára 35 ára og eldri. Karlar: 17—34 ára. 35 ára og eldri. 5. Stefnt skalt að því aö mótin fari fram sem víöast um landið og eru þau nú þessi: 1. Skógargangan Egilsstöðum 25 km. 2. Lambagangan Akureyri 20 km. 3. Þingvallaganaan Reykjavík 42 km. 4. Lava Loppet Olafsfirði 10—20—40 km. 5. Fossavatnsganga ísafiröi 24 km. Lágmarks vegalengd hvers móts til útreiknings v/íslandsbik- arsins sé a.m.k. 20 km. SKÍ getur þó veitt undanþágu frá þessu ef ástæða þykir til. 6. Trimmnefnd SKf er framkvæmdaaðili fslandsgöngunnar. (Veitir almennar upplýsingar um keppnina, auglýsir hana og birtir úrslit.) 7. Framkvæmdaaöilar hvers göngumóts fyrir sig auglýsa það og birta úrslit í fjölmiðlum og tilkynna þau skriflega til Trimm- nefndar SKÍ innan viku. 8. Þátttakendur greiða þátttökugjald fyrir hvert göngumót fslandsgöngunnar og rennur hluti þess til SKÍ. 9. Leitast skal við aö reglugeröir hinna einstöku göngumóta séu samræmdar og skulu þær samþykktar af SKÍ. 10. Aó öðru leyti gilda mótareglur SKÍ um mótahald og keppni. Jón Þór þjálf- ar hjá Hetti á Egilsstöðum KNATTSPYRNUDEILD íþróttafé- lagsins Hattar á Egilsstööum hef- ur ráðið þjálfara fyrir alla flokka félagsins næsta keppnistímabil. Jón Þór Brandsson, sem þjálf- aöi yngri flokka félagsins síöastr sumar meö ágætum árangri, hefur veriö ráöinn þjálfari meistaraflokks og 4. og 5. flokks. Jón Þór er fæddur og uppalinn FH-ingur og mun samhliöa þjálfun leika meö meistaraflokki. Arni Ólafsson hefur verið ráöinn þjálfari 3. flokks og 6. flokks. Síö- asta sumar lók Árni meö Tindastóli frá Sauöarkróki. Formaöur knattspyrnudeildar er Björgvin Víöir Guömundsson. (Fréttatilkynmng.) • John McEnroe skeytir skapi sinu á myndavél og er það ekki í fyrsta sinn sem hann lætur óviökomandi hluti fara í taugarnar á sér og oft hefur hann fengið stórar sektir vegna framkomu sinnar við dómara og starfsmenn móta. McEnroe tekjuhæsti tennisleikari heims JOHN McEnroe sigraði í alþjóða- Leikur jjeirra McEnroe og Mecir McEnroe er lang tekjuhæsti tennismóti innanhúss sem fram stóö í tæpa tvo tíma. í tviliöaleik tennisleikari heimsins á síöasta ári, fór í Bandaríkjunum fyrir unnu þeir Joachim Nystrom og en þá námu tekjur hans 600 þús- skömmu, og vann sér inn 54.000 Mats Wilander þá Wojtek Fibak frá und dollurum . Hann er líka á góöri dollara. Póllandi, sem nú býr í Banda- leiö meö aö veröa tekjuhæsti tenn- ríkjunum og Sandy Mayer Banda- isleikari heims frá upphafi. Hér að McEnroe sigraöi í úrslitum ríkjunum, 3—6, 6— 2 og 6-2, og neöan birtum viö lista yfir 13 tekju- naumlega áöur óþekktan tennis- fenau 16.800 dollara i sinn hlut. hæstu tennisleikara heims á síö- leikara frá Tekkóslóvakíu, Miloslav annaö sætiö aaf 8.400 dollara. asta ári. Mecir, meö 6—3, 7—6 og 6—1. McEnroe vann þrátt fyrir aö hafa snúið sig á hné í öörum leik sínum 1. McEnroe 3393 12 8 1 0 $600.000 við Mecir. 2. Connors 2903 15 5 2 6 400.000 3. Lendl 2714 14 3 6 1 300.000 Mecir, sem er aöeins 20 ára, 4. Wilander 2450 14 1 2 2 200.000 fékk 27.000 dollara fyrir annaö 5. Gomez 2223 18 5 1 2 100.000 sætiö í þessari keppni, þaö er 6. Nyström 1314 23 4 0 3 80.000 meira en helmingur af þeim tekjum 7. Sundström 1218 21 3 3 0 65.000 sem hann haföi allt síöasta ár, þá 8. Teltscher 1213 19 1 1 4 50.000 haföi hann rúma 53.000 dollara i 9. Jarryd 1205 19 2 2 2 40.000 tekjur. Mecir er númer 60 á lista 10. Smid 1156 25 0 4 3 32.000 yfir bestu tennisleikara heims, og 11. Kriek 991 16 2 1 1 30.000 er þetta langbesti árangur hans til 12. Gerulaitis 962 19 0 2 2 28.000 þessa. 13. Krickstein 961 16 3 2 0 25.000 Nægur snjór í Bláfjöllum í Bláfjöllum er nú nægur snjór sem nýst hefur skíöafólki vel til skíöaiökunar, allir vegir eru greiöfærir og næg bifreiðastæði. Brekkur hafa verið nokkuð harð- ar á stundum, en til er tæki sem notaö er til aö rífa upp hjarniö í brekkunum og hefur það gefist vel. Einnig hafa verið lagðar allt að 10 km göngubrautir með snjó- troðara. Sú nýbreytni hefur veriö tekin upp í Bláfjöllum, aö nú gilda dagskort í allar lyftur á svæöinu um helgar og á frídögum, árskort gilda alltaf í allar lyftur á svæöinu. Geta því skíöamenn nú feröast um fjöllin á milli lyftanna á þessum sömu kortum. í þjónustumiöstööinni er skíöa- leiga, veitingasala og önnur aö- staöa fyrir skíöamenn. Skíöaskólinn í Bláfjöllum hefur veriö starfræktur í vetur á vegum skíöadeildar Ármanns og fer kennsla fram um helgar kl. 11.00 og 14.00, þriöjudaga, miövikudaga og fimmtudaga kl. 19.00. Einnig geta hópar fengiö sér tíma. Skrán- ing þátttakenda fer fram í þjón ustumiöstööinni. Á síöasta vetri var opnaöur nýr vegur frá Krísuvíkurvegi og tengist hann Bláfjallavegi neöan Rauöu- hnjúka, hefur vegurinn veriö auöur lengst af í vetur og styttir mjög leið þeirra sem koma sunnan aö. En vakin er athygli á því aö vegagerö er enn ekki aö fullu lokiö, eftir er að byggja upp veginn niöur við Krísuvíkurveg þar sem hann getur lokast fljótt ef snjóar. Einnig vant- ar vegarkafla upp aö þjónustumiö- stööinni til aö mynda hringveg og veröur væntanlega bætt úr því á næsta sumri. Daglega eru veittar upplýsingar um veður og skíöafæri í símsvara Bláfjallanefndar 80111. Forstöðumaöur Bláfjallafólk- vangs er Þorsteinn Hjaltason. Eftirtalin sveitarfélög eiga aóild aö Bláfjallafólkvangi: Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjöröur, Kefla- vík, Garöabær, Seltjarnarnes, Njaróvík, Grindavík, Miöneshrepp- ur, Geröahreppur, Bessastaöa- hreppur, Vogar og Selvogshrepp- ur. (Fréttatilkynning frá Bláfjallanefnd.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.