Morgunblaðið - 15.03.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.03.1985, Qupperneq 2
2 MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 r--.w V HSbI MorgunblaJiJ/Friftþjófur Um fjögur hundruð kalkúnum slátrað fyrir páska Mark Birchback t.v. og Guðmundur Jónsson bústjóri á Reykjum i Mosfellssveit. Bak við þá má sjá hóp af fjðgurra mánaða gömlum kalkúnum, sem flestir verða settir á til áframhaldandi ræktunar. Fyrirhugað er að slátra um 400 fuglum nú fyrir páskana og má búast við að f framtíðinni verði kalkún algengur matur á borðum íslendinga, sérstaklega um hátíðir. Tarkovskí til landsins í dag ANDREI Tarkovskí, hinn landflótta sovéski kvikmyndagerðarmaður, kemur til landsins í dag frá Svíþjóð af því tilefní að undanfarna viku befur kvikmyndahátið helguð hon- um staðið yfir í Reykjavlk að frum- kvæði íslensku Tarkovskínefndar- innar. Á þeirri hitíð hafa allar mynd- ir Tarkovskís í fullri lengd verið sýndar, en Tarkovskí mun sjálfur verða viðstaddur sýningu nýjustu myndar sinnar, Nostalgiu eða Heim- þrár, í dag. Mun hann að öllum lík- indum flytja stutt ávarp I upphafi sýningarinnar sem hefst klukkan níu í kvöld. Tarkovskí dvelst hér á landi yfir helgina. Vegna deilu sovéska sendiráðs- ins hér á landi við tslensku aðilana sem standa að kvikmyndahátíð- inni, um sýningarrétt á þeim myndum Tarkovskís sem hann gerði í Sovétríkjunum, sagði Jón Ottar Ragnarsson, framkvæmda- stjóri Tarkovskínefndarinnar, að myndirnar og sýningarréttur Há- skólabíós hefðu verið útveguð á fuilkomlega löglegan hátt eftir hefðbundnum leiðum og þegar verið greitt fyrir hann. „Sovét- menn hafa ekki framvisað svo miklu sem pappfrsbleðli málstað sinum til fulitingis. Auk þess neit- uðu þeir nefndinni um að útvega henni réttinn í tæka tið fyrir há- tíðina, ef svo ótrúlega hefði viljað til að réttindi Háskólabíós yrðu lagalega vefengd,“ sagði Jón Óttar. Tarkovskí mun meðan á dvöl hans stendur hér halda fund með blaðamönnum, á morgun, laugar- dag, og auk þess halda erindi fyrir leikstjóra og leikara um kvik- mynda- og leikstjórnartækni. Með Tarkovski til landsins kem- ur kona hans, Larissa, og vinkona þeirra, frú Bertoncini. ASÍ krefst tafarlausra að- gerða í húsnæðismálum MIDSTJÓRN Alþýðusambands Is- lands kaus á fundi sínum f gær sex manna nefnd undir forustu Asmund- ar Stefánssonar forseta ASÍ til að ganga á fund forsætisráðherra, for- manns Sjálfstæðisflokksins og fé- lagsmálaráðherra. Fyrsti fundur þess- ara aðila hefst kl. 10 árdegis og mun miðstjórn ASf þar, samkvæmt heim- ildum Mbl., leggja fram kröfur í hús- næðismálum, ennfremur mun hún krefjast svara af hálfu stjórnvalda hvað varðar luuptryggingar launa- fólks. f húsnæðismálum samþykkti miðstjórn ASf tillögur, sem að meginefni gera ráð fyrir, að hætt verði misgengi milli lánskjara og launa. Þá fer hún fram á, að nú þegar verði útvegað fjármagn til að rétta af stöðu þeirra húsbyggjenda Þingmenn Kvennalista mættu ekki í þingveizlu ÞINGVEIZLA, árshátíð þingmanna, var haldin í gærkvöldi á Hótel Sögu. Þingmenn Kvennalista mættu ekki til veizlunnar og sagði Guðrún Agn- arsdóttir þingmaður hans i viðtali við Mbl. í gær, að fjarvera þeirra værí byggð á sömu röksemd og í fyrra, þ.e. að taka ekki þátt í að þingmenn bjóði sjálfum sér til veizlu á kostnað skattborgaranna. Guðrún sagði, að Kvennalista- þingmenn hefðu gert óformlega tillögu fyrir þingveizluna þess efn- is að þingmenn greiddu sjálfir kostnað við veizluhöldin en því hefði verið hafnað eins og í fyrra. Hefð er fyrir því, að í þingveizl- um fær enginn aö ávarpa sam- komugesti undir borðhaldi öðru vísi en í bundnu máli. Guðrún sagði í lok viðtalsins, að þær Kvennalistakonur ætluðu aö nota kvöldið til að funda um þingskap- arlög og að sú umræða yrði ekki í bundnu máli. sem orðið hafa fyrir fjárhagslegum áföllum frá því að áöurnefnt mis- gengi hófst. Tillögurnar eru út- færðar í tiu til ellefu liðum samkvæmt heimildum Mbl., en árhersla er lögð á, að það fjármagn sem varið skuli til að leiðrétta stöðu verst settu húsbyggjendanna verði ekki tekið af því fé, sem þegar hefur verið veitt til húsnæðismála, heldur komi til nýtt fjármagn. í umræðum á miðstjórnarfundi ASÍ í gær, sem stóð frá kl. 13.30 til 18.30, komu fram skiptar skoðanir um hvernig standa skuli að vænt- anlegum kjarasamningum. Ákveð- ið var að krefja stjórnvöld svara, áður en lengra verður haldið i um- ræðunni, um hvernig eða hvort þau hygðust tryggja launþegum aö næstu kjarasamningar yröu ekki að engu gerðir eftir undirritun með rýrnun kaupmáttar. Töldu viðmæl- endur Mbl. úr röðum ASÍ að kaup- tryggingar mætti ákveða eftir mörgum leiðum, þeir vildu þvf fá hrein svör frá stjórnvöldum, því annars þýddi litið að hefja þrfhliða viðræður um kjarasamninga á ár- inu. í nefnd ASÍ eiga sæti, auk Ás- mundar Stefánssonar, Björn Þór- hallsson varaforseti ASl, Grétar Þorsteinsson formaður Trésmiða- félags Reykjavíkur, Guðmundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks, Magnús Geirsson formaður Rafiðnaðarsambands Is- lands og Ragna Bergmann formað- ur Verkakvennafélagsins Fram- sóknar í Reykjavík. Formaður launamálaráös BHM: Vaka vinnur á SKIPTING fulltrúa I Stúdentaráð og Háskólaráð er óbreytt eftir kosningar I Háskólanum í gær. Vaka, félag lýðræóissinnaðra stúd- enta hlaut fimm menn kjörna I Stúdentaráð, Félag vinstri manna fimm og Félag umbótasinnaðra stúdenta þrjá. Félag manngiidis- sinnaðra stúdenta hiaut engan mann kjörinn. Háskólaráð er óbreytt, Vaka hlaut einn mann og Félag vinstri manna einn. Vaka hlaut 36,64% atkvæða í Stúdentaráð, Félag umbótasinn- aðra stúdenta 21,3%, Félag vinstri manna 31,4% og Félag manngildissinnaðra stúdenta 2,5%. Samtals kusu 1.793 en á kjörskrá voru 4.369. Auðir seðl- ar voru 138. Kjörsókn var 41,06% á móti 49,5 i fyrra. Vaka bætir við sig um 1% frá í fyrra, Félag vinstri manna tapar rúmlega 7% og Félag um- bótasinnaðra stúdenta tapar tæplega 1,5%. „Vænlegast að Kjaradóm- ur reyni sáttaleiðinaa ALLAR horfur eru nú á að deilur 25 félaga ríkisstarfsmanna innan BHM fari fyrir Kjaradóm, enda hafa engir samningar tekist. Ríkisstjórnin lýsti því yfir fyrr í vikunni, að hún teldi eðlilegt að deila Hins íslenska kennarafélags og ríkisins færi fyrir Kjaradóm og óskaði eftir að kennarar sneru til starfa á ný. Þeirri ósk hafnaði meiri- hluti kennara á félagsfundi sínum í fyrrakvöld. Kjaradómur er skipaður fimm mönnum. Þrír eru skipaðir af Hæstarétti en deiluaðilar skipa einn fulltrúa hvor. Ef svo fer sem horfir mun Kjara- dómur kalla eftir kröfugerðum og greinargerðum allra félaganna 25 á næstunni. Samninganefnd ríkisins þarf síðan tíma til að svara greinar- gerðum félaganna allra. Málflutn- ingi ætti að vera lokið fyrir næstu mánaðamót, en þó eru allar líkur á „Verðum að taka tillit til nemenda okkar“ — sagði Ólafur Oddsson menntaskóla- kennari á fundi HÍK á miðvikudag „Á FUNDI framhaldsskólakennara, sem sagt hafa upp störfum, sagði ég að við kennarar yrðum að taka tillit til nemenda okkar. Standi þessi stöðvun öllu lengur er misserið, og i hefðbundnum skólum jafnvel allt námsárið, í hættu, jafnvel ónýtt. Að því get ég ekki, samvisku minnar vegna, staðið,“ sagði Ólafur Oddsson menntaskólakennari í samtali við blm. Mbl. „Góður maður kenndi mér fyrir mörgum árum að ég yrði að líta á nemendur sem skjólstæðinga mína,“ sagði Ólafur. „Það hefur verið min stefna. Ég get ekki stað- ið að því sem ég tel að skaða myndi stórlega þeirra hagsmuni. Ég lýsti því yfir á fundinum að ég skuldbindi mig ekki til að fara að meirihlutasamþykkt fundarins, bryti hún i bága við samvisku mína. Mér er kunnugt um að margir kennarar eru annarrar skoðunar og ég virði fyllilega þeirra sjónarmið. En meginatriði þessa máls er það, að þeir, sem fjármálunum ráða hafa sýnt að ^minni hyggju ótrúlega þröngsýni í málum kennara og mat þeirra á skýlausri og glöggri skýrslu endurskoðunarnefndar hins háa menntamálaráðuneytis er að minni hyggju móðgun við heil- brigða skynsemi. Þar sem kennur- um, stórskuldugum úr löngu námi, eru greidd smánarlaun, sem þeir lifa alls ekki á, hef ég sagt lausu mínu embætti, er ég hef gegnt í tæp 15 ár. Verði hér ekki breyting á mati á þessum mjög svo mikilvægu störfum, stend ég við mína uppsögn og fæ lausn frá störfum nú 1 vor“, sagði ólafur Oddsson að lokum. að það dragist fram í miðjan apríl- mánuð, enda félögin mörg. Ef seint gengi gæti farið svo, að úrskurður Kjaradóms yrði ekki ljós fyrr en f lok apríl, enda hefur Kjaradómur heimild til þess í lögum að fresta úrskurði sínum sem þvf nemur. Stefán Ólafsson, formaður Launamálaráðs BHM, sagði, að Kjaradómur gæti leitað sátta með samninganefnd rfkisins og kennur- um til að flýta fyrir lausn þeirra mála. „Ég tel það vænlegustu leið- ina nú, enda tekur það Kjaradóm minnst tvær vikur að komast að niðurstöðu,” sagði Stefán. „Þessar tvær vikur eru of langur tími, þvf þá er skólaárið ónýtt, hvað þá ef úrskurðurinn dregst enn frekar á langinn." Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins, sagðist ekki trúaður á að Kjaradómur gæti farið sáttaleiðina. „Kröfur félag- anna eru allt of háar og f raun þýða þær 30—40% hækkun framyfir há- skólamenntaða menn á almennum vinnumarkaði, miðað við þær tölur sem félögin benda á. Á meðan kröf- ur þeirra eru óbreyttar, þá er ekki viðræðugrundvöllur fyrir samn- inganefnd ríkisins og þessi félög. Við höfum haldið fundi með félög- unum undanfarið, til að undirbúa meðferð Kjaradóms og ég á von á að Kjaradómi þyki tvær vikur held- ur knappur tími til að vinna úr öll- um gögnum,“ sagði Indriði H. Þor- láksson að lokum. Sjá urafjöllun ura kennaradeil- una í leiðara blaðsins { dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.