Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985
17
Um að klæmast á
prentsmiðjudönsku
eftir Arnór
Hannibalsson
Hugsum okkur tvo menn að tali.
Annar talar móðurmál sitt. Hinn
talar sama mál, en fyrir honum er
það erlend tunga. Það vefst fyrir
honum að orða hugsun sína. Og
aldrei tekst honum það jafn skýrt
og á sínu eigin móðurmáli. Þessir
tveir menn standa ekki jafnt að
vígi. Jafnvel hinir færustu málvís-
indamenn ná ekki sömu tökum á
erlendum málum og á móðurmál-
inu.
Ottó Jespersen hét danskur
maður. Hann var víðþekktur sér-
fræðingur í ensku máli. Hann lét
aldrei neitt frá sér fara á ensku
nema borinn og barnfæddur Gng-
lendingur læsi það yfir. Ottó vildi
komast hjá ambögum, sem ætíð er
hætta á, þegar menn bögglast við
að tjá sig á erlendri tungu.
íslenzka og norður-
landamál
Fyrir Alþingi Islendinga liggur
nú tillaga til þingsályktunar um
að íslenzk verk verði lögð fram á
íslenzku til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Skandinavar
hafa sett þar þá reglu, að verk
skuli lögð fram á einhverju skand-
inavamáli. Með þvi krefjast þeir
þess, að verkin verði lögð fram á
þeirra móðurmálum.
Nú yrkja íslendingar ekki á
þeirra mállýzkum. Því eru íslenzk
verk undir þá sök seld að verða
dæmd af meir eða minna heppn-
uðum eða misheppnuðum þýðing-
um. Ef dæma á hús út frá bygg-
ingarlistarsjónarmiði, er þá ekki
einfaldast að skoða húsið? Gða
eiga menn að dæma út frá mynd
sem sýnir húsið í spéspegli?
Skandinavar segjast ekki skilja
íslenzku. Þeir um það. En þeir
hafa samt rétt til að krefjast þess
að við skiljum þeirra mál eins og
við höfum til þess að krefjast að
þeir skilji okkar mál. Bókmennta-
verk ber að dæma eftir frumtext-
anum, svo sem höfundur gekk frá
honum. Úr því skandinavar skilja
ekki íslenzku, liggur þá ekki beint
við að bjóða þeim þá beztu þýð-
ingu sem fyrirfinnanleg er á ein-
hverju því máli sem hægt er að
ætlast til að þeir skilji? Eða þá, ef
skandinavar neita að skilja önnur
mál en norsku, dönsku og sænsku,
getur þá ekki Norðurlandaráð
kostað þýðingu á eitthvert þessara
mála? Öðru eins hefur verið
spanderað á þeim vettvangi, þar
sem menningin er í miklum há-
vegum höfð og útgjöld til hennar
hátt á annað hundrað milljóna
skandinavíukróna á ári.
Er það jafnrétti, að sumir mega
leggja fram texta á frummálinu,
en aðrir ekki? Þetta er líklega
norrænt bræðralagsréttlæti í
verki. Svíar ætlast til þess að
verbúðafólk af eyju úti í Atlants-
hafi láti það vera að troða sér upp
á sama bekk og þeir.
Það er furðulegt, þegar Islend-
ingar tala máli útlendinga gegn
Reyðarfjörður:
155 tonn eftir 6
daga veiðiferð
RevAarfirdi, 12. mars.
Mánudagskvöldið 5. mars
sömdu sjómenn hér og hélt Snæ-
fugl til veiða hálfeitt á þriðju-
dagsnótt. I gærmorgun kom
Snæfugl inn með 155 tonn af
fiski, 110 tonn af þorski og 45
tonn af grálúðu, eftir 6 daga
veiðiferð. Hófst vinna strax á
mánudagsmorguninn og er at-
vinnulíf í fiskvinnslústöðvunum
orðið eðlilegt hérna. — Gréu
löndum sínum. Það gerðist þó í
Norðurlandaráði þann 7. marz sl.
Fulltrúi þess flokks á íslandi, sem
þykist berjast fyrir „þjóðfrelsi"
vildi ekki heyra að íslenzk verk
yrðu lögð fram á íslenzku. Með
sjónarmið stórskandinava að
bakhjarli var þessi tillaga sögð
vera á misskilningi byggð.
Sjónarmið stórskandinava eru
þessum Islendingum orðin svo
inngróin, að þeir skilja ekki þá
sjálfsögðu jafnréttiskröfu að ís-
lenzku sé gert jafn hátt undir
höfði og tungum skandinava.
Málfrelsi og málpólitík
Á Norðurlandaráðsþingum tala
Norðmenn, Danir, Svíar og Finnar
móðurmál sín. Hafa íslendingar
ekki sama rétt? Á þingum þessum
er aðstaða til að þýða beint af og á
finnsku. Því nota íslendingar á
þinginu sér ekki þessa aðstöðu og
krefjast þess að þeirra mál sé þýtt
beint af og á íslenzku? Hvað neyð-
ir íslendinga til að klæmast á
prentsmiðjudönsku í ræðustóln-
um. Líklega ekkert annað er
þeirra eigin aumingjaskapur. Þá
skortir hugmyndaflug til aö gera
sjálfsagða kröfu fyrir hönd móð-
urmáls síns og menningar. Þarna
þylja þeir tölur, alvarlegir í
bragði, á þessu skrítna máli sem
vellur upp úr íslendingum þegar
þeir halda að þeir séu að tala
dönsku, og hefur verið kallað
skandinavíska eða skollabaunska.
Gera þeir sér ekki grein fyrir því
hvað þeir verða afkáralegir? Þeir
eru að viðurkenna, að réttur
þeirra til að tala móðurmálið sé
enginn, þótt aðrir í ráðinu líti á
þann rétt sem sjálfsagðan hlut. ís-
lendingarnir í ráðinu eru með
þessu að gefa þeirri skoðun undir
fótinn, en hún heyrist oft í Skand-
inavíu, að skolladanska þessi sé
hin eiginiega íslenzka.
Finnski bókmenntaverðlauna-
hafinn Antti Tuuri sló íslending-
unum við með því að flytja ræðu
sína að hluta til á íslenzku, en ís-
lendingurinn sem afhenti honum
þau hafði um stund gleymt móð-
urmálinu.
Með því að viðhafa þennan sið
er einnig verið að útiloka þá is-
lenzka þingmenn frá störfum í
Norðurlandaráði, sem ekki treysta
sér til að tjá sig á skandinavísku.
Málfrelsi þessara manna er af
þeim tekið, en tjáningarmöguleik-
ar hinna heftir, því að enginn tjáir
sig á erlendu máli jafn eðlilega og
á móðurmáli sínu. En það á ekki
að vera skilyrði fyrir þátttöku í
störfum Norðurlandaráðs að
Arnór Hannibalsson
„ÞaÖ er furöulegt,
þegar íslendingar tala
máli útlendinga gegn
löndum sínum. Það
geröist þó í Norður-
landaráði þann 7. marz
sl. Fulltrúi þess flokks á
íslandi, sem þykist berj-
ast fyrir „þjóðfrelsi“
vildi ekki heyra aö ís-
lenzk verk yrðu lögð
fram á íslenzku.“
menn kunni einhverja Norður-
landamállýzku.
En það eru til íslenzkir þing-
menn sem eru þeirrar skoðunar.
Eiður Guðnason, sem er íslenzkur
þingmaður, gerði þessi orð Svía
nokkurs að sínum: „í Svíþjóð eig-
um við marga svona menn en við
tökum þá aldrei með á Norður-
landaráðsþing." Þessi orð voru
sögð eftir að Árni Johnsen hafði
mælzt til þess að íslenzk tunga
nyti jafnréttis. Þau verða ekki
skilin öðruvísi en svo, að þeir sem
halda fram rétti íslenzks máls eigi
ekki erindi á Norðurlandaráðs-
þing.
En hvaða erindi eigum við inn á
þessa samkundu, ef íslendingar
sem þar eru gleyma því að þeir eru
fulltrúar fyrir fullvalda ríki og
líta á það sem sjálfsagðan hlut, að
þeir sitji ekki við sama borð og
aðrir?
Páll Pétursson lýsti því yfir i
útvarpi að málflutningur Árna
Johnsens væri „ómerkilegt mál“.
Upphefð Páls er mikil og kemur að
utan. Hann virðist vera orðinn svo
samdauna skandinavískum hroka,
að það er eitur í hans beinum, er
íslenzkur þingmaður neitar að
hugsa sem Svíar og horfir raun-
sæjum augum á ástand mála við
Eystrasalt.
Hvaða hagsmunum er Páll Pét-
ursson að þjóna með þessu? Kem-
ur fram í þessu virðing fyrir
málfrelsi? Er hann að ýta undir
málefnalega umræðu? Hvorugt.
Gagnkvæmni
Við íslendingar eyðum bæði fé
og einnig tíma og atorku kennara
og skólabarna til kennslu í dönsku
í almennum skólum, jafnvel áður
en skólabörnin hafa náð tökum á
móðurmáli sínu. Hvað er íslenzka
kennd í mörgum almennum skól-
um í Skandinavíu? Ekki i einum
einasta, svo ég viti. Þetta er gagn-
kvæm bróðursamvinna i verki.
Væri ekki sanngjarnt, að islenzka
ríkið léti þau boð ganga til Dana,
að danska verði strikuð út af
námsskrá grunnskóla, þar til Dan-
ir gefi grunnskólanemendum I
Danmörku kost á að kynnast ís-
lenzku? Og hvað gefa skandinavar
mikið út af kynningarefni um ís-
lenzkt mál handa almenningi?
Eitthvað er það nú rýrt I roðinu.
Að vísu eru til nokkrar kennslu-
bækur og orðabækur. Hafa Islend-
ingar vakið máls á því í Norður-
landaráði að á þessu sviði bæri
skandinövum að gera meira? Ekki
hefur það heyrzt.
íslenzkur málfræðingur hefur
lagt til að skandinövum yrði kennt
að þekkja stafina þ og ð, og einnig
að átta sig á íslenzkum manna-
nöfnum. Með þessu er ekki farið
fram á mikið. Ekki ætti að vera
hætta á því að stundaskrá í skand-
inavískum grunnskólum yrði
ofhlaðin, þótt þessum tveim atrið-
um yrði komið þar á framfæri. En
hafa íslendingar í Norðurlanda-
ráði gert þetta að tillögu sinni?
Ekki hefur það komið í fréttum.
Eða íslenzki menntamálaráðherr-
ann á fundum með bræðrakolleg-
um? Við höfum heyrt að það eigi
að demba yfir okkur ótextuðu
norsku sjónvarpi, jafnvel þótt
enginn biðji um það. En um
ofannefnt atriði hefur ekkert
heyrzt.
Það er með réttu hægt að ætlast
til þess að íslenzkir þingmenn noti
öll tækifæri sem gefast, bæði
heima og erlendis, til að efla ís-
lenzka tungu. En við hverju er að
búast þegar þeir hafa ekki hugsun
á að krefjast jafnréttis fyrir ís-
Ienzku í Norðurlandaráði, og þá
heldur ekki fyrir sjálfa sig?
Ef íslenzka og íslendingar njóta
ekki jafnréttis á þeim vattvangi,
eigum við þangað ekkert erindi.
Dr. Arnór Hannibalsson er dósent í
heimspeki rió Háskóla fslands.
Brenndur í Bátanausti
Snarfari S.T. 17 var brenndur í slipp Bátanausts sl. mánudag og þriðjudag. Snarfari var 45 tonna bátur,
smíðaður á Í.safiröí, en var orðinn gamall og þreyttur og var síðast við sjósókn fyrir um níu árum.
fi^annfRi
amaDÓfö
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Laxfoss 26. mars
Bakkafoss 3. apr.
City of Perth 29. apr.
Laxfoss 15. apr.
NEW YORK
Laxfoss 25. mars
Bakkafoss 1. apr.
City of Perth 26. apr.
Laxfoss 17. apr.
HALIFAX
Laxfoss 29. mars
Bakkafoss 26. apr.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 17. mars
Vessel 24. mars
Eyrarfoss 31. mars
Alafoss 8. apríl
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 18. mars
Vessel 25. mars
Eyrarfoss 1. apr.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 19. mars
Vessel 26. mars
Eyrarfoss 2. apr.
Álafoss 9. apríl
ROTTERDAM
Eyrarfoss 20. mars
Vessel 27. mars
Eyrarfoss 3. april
Álafoss 10. apr.
HAMBORG
Eyrarfoss 21. mars
Vessel 28. mars
Eyrarfoss 4. apr.
Álafoss 11. apr.
GARSTON
Fjallfoss 25. mars
LEIXOES
Skeiösfoss 26. apr.
BILBAO
Skeiðsfoss 29. apr.
NORÐURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Skógafoss 15. mars
Reykjafoss 22. mars
Skogafoss 29. mars
Reykjafoss 5. apr.
KRISTIANSAND
Skógafoss 18. mars
Reykjafoss 25. mars
Skógafoss 1. apr.
Reykjafoss 8. apr.
MOSS
Skógafoss 19. mars
Reykjafoss 26. mars
Skógafoss 1. apr.
Reykjafoss 9. apr.
HORSENS
Skógafoss 21. mars
Skógafoss 3. apr.
GAUTABORG
Skógafoss 20. mars
Reykjafoss 27. mars
Skógafoss 2. apr.
Reykjafoss 10. apr.
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss 22. mars
Reykjafoss 28. mars
Skógafoss 4. apr.
Reykjafoss 11. apr.
HELSINGBORG
Skógafoss 22. mars
Reykjafoss 29. mars
Skógafoss 5. apr.
Reykjafoss 12. apr.
HELSINKI
Hornburg 8. apr.
GDYNIA
Hornburg 13. apr.
ÞÓRSHÖFN
Skógafoss 25. mars
Reykjafoss 1. apr.
RIGA
Hornburg 11. apr.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
fra REYKJAVIK
alla manudaga
fra ISAFIRÐI
alla þriójudaga
fra AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
f.