Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 33 t Móöir okkar, tengdamóðir og amma, AUDUR FINNBOGADÓTTIR fró Búöum, andaðist á Grensásdeild Borgarspitalans 12. mars. Kveðjuathöfn auglýst siöar. Erna Erlendsdóttir, Haraldur Árnason, Ragnhildur Erlendsdóttir, Björn Þorgilsson, Turid Anderson, Magnus Anderson, Örn Erlendsson, Renata Erlendsson og barnabörn. t N Móðir min og amma, HERTHA LÁRINA HELENA JENSEN, Bróvallagötu 42, Reykjavlk, lést 10. mars sl. Útförin verður auglýst siöar. Jens Friörik Jóhannesson, Jóhannes Ragnar Jensson, Hulda Jensdóttir, Helena Jensdóttir. t Eiginkona min, móðir okkar og tengdamóöir, UNA LILJA PÁLSDÓTTIR fró Höskuldsey, lést 13. mars á hjúkrunardeild Reykjalundar. Fyrir hönd aö- standenda. Sigurjón Eirlksson, Helgalandi 1, Mosfellssvelt. t Eiginmaöur minn og faðir okkar, SIGURDUR ÓLAFSSON skólastjóri, Sandgeröi, er látinn. Guörún Hansen og börn. t Móöir okkar og tengdamóöir, JÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR fró Hamrahóli, andaöist á heimili sinu, Eyjum i Kjós, aöfaranótt fimmtudagsins 14. mars. Guórún Tómasdóttir, Magnús Sœmundsson, Guójón T ómasson, Margrót Einarsdótt ir. t Konan min, VALGERÐUR HANNESDÓTTIR, lést i Borgarspitalanum 13. mars. Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna og barnabarna. Guölaugur Guömundsson. t Konan min, HILDUR KNÚTSDÓTTIR, andaöist i Borgarspftalanum 14. þm. Birgir Finnsson. t ÓLAFÍA PÁL8DÓTTIR, Hverfisgötu 102A, andaöist i Landspitalanum 12. þessa mánaðar. Vandamenn. t Eiginmaöur minn, GÍSLI DAN GfSLASON, lést I sjúkrahúsi Húsavikur 13. mars. Dagmar Guönadóttir. Minning: Petra Aradóttir í dag fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík útför tengdamóð- ur minnar, Petru Aradóttur, Víf- ilsgötu 21. Hún var Austfirðingur að ætt og uppruna, fædd á Stöðv- arfirði 30. júní 1903 og lést í öldr- unarlækningadeild Landspítalans, Hátúni lOb, að morgni föstudags- ins 8. mars sl. Foreldrar Petru voru þau hjón- in Ari Stefánsson, trésmiður, frá Laufási, og Marta Jónsdóttir. Ari var sonur hjónanna Stefáns Hös- kuldssonar og Ragnheiðar Ara- dóttur sem bjuggu að Þverhamri í Breiðdal, en Marta var dóttir Jóns Sigurðssonar og Oddnýjar Mart- einsdóttur búandi hjóna að Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði. Ari og Marta voru gefin saman 3. nóvember árið 1900. Fyrstu hjúskaparárin voru þau í vinnu- mennsku í kaupstaðnum hjá Karli, kaupmanni, Guðmundssyni og Petru Jónsdóttur konu hans. Þar fæddist fyrsta dóttir þeirra, Petra. Vorið 1905 byrjuðu þau búskap á Einarsstöðum í Kirkju- bólsþorpi og þar eignuðust þau fimm dætur til viðbótar, þær Oddnýju, Ragnheiði, Guðrúnu, Kristbjörgu og Önnu. Árið 1914 reistu þau sér nýtt hús á parti úr jörðinni Kirkjubólsseli og nefndu það Laufás. Þar fæddist sjöunda og síðasta barn þeirra, Jón. Hann varð tæplega misserisgamall. Næstelstu dóttur sina, Oddnýju, misstu þau tvítuga. Nú er ein af systrunum eftir á lífi, Ragnheiður, sem býr í Hamrahlíð 3. Bernsku- og uppvaxtarár systr- anna í Laufási voru mikill ham- ingjutími. Hjónin Ari og Marta voru einstaklega ástúðlegir og góðir foreldrar. Þau voru jafn- framt samhent og harðdugleg, enda ekki til setunnar búið að sjá fyrir svo stórum barnahópi. Ari var hamhleypa til verka og stund- aði aðallega smiðar, en sótti lika sjó og gerði út báta. Einhverja gripi höfðu þau hjónin einnig til búdrýginda. Marta var mikil hús- móðir og góð kona er öllum vildi gott gera, enda var heimilið að Laufási rómað fyrir myndarskap og gestrisni. Trúrækni og góðir siðir voru þar á hávegum hafðir, en það skyggði ekki á lifsþróttinn og glaðværðina er þar ríktu jafn- an. En tíminn líður hratt og dæt- urnar uxu úr grasi. Petra var rétt átján ára er hún fluttist til Reykjavíkur í atvinnu til Björg- ólfs Stefánssonar, skókaupmanns, á Laugavegi 22, föðurbróður síns, og Oddnýjar konu hans. Að hverfa burt frá bernskuheimilinu og átt- högunum fyrir austan voru henni þung spor, en öll él birtir upp um siðir. Hinir nýju húsbændur í Reykjavík tóku henni opnum örm- um og bjuggu henni gott heimili. Nóg var að starfa. Á næstu árum vann Petra við það að selja Reyk- vikingum og öðrum skó á Lauga- vegi 22. Síðar vistuðust svo systur Petru, þær Anna og Guðrún, til hjónanna á Laugavegi 22, ýmist til starfa á heimilinu eöa í skóbúð- inni. Á þessum árum kynntist Petra mannsefninu sínu, Bjarna Kemp Konráðssyni frá Reyðarfirði. Bjarni var þá bátsmaður á strand- ferðaskipinu Esju. Þau gengu í Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Innilegar þakkir flytjum viö þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför SVERRIS HARALDSSONAR LISTMÁLARA Aöstandendur hjónaband þann 28. desember 1928 og stofnuðu heimili. Börn þeirra eru Arnheiður Marta, eiginkona mín, og Hörður, starfsmaður á pósthúsinu í Reykjavík. Fyrstu hjúskaparár sín leigðu Petra og Bjarni sér húsnæði á Þórsgötu 12 og síðar á Grettisgötu 66, en árið 1934 fluttust þau í nýtt hús á Víf- ilsgötu 21, sem þau byggðu í félagi með öðrum og bjuggu þar æ síðan. Ari og Marta brugðu búi árið 1928 og fluttu þá til Reykjavíkur. Þau bjuggu iengst af í skjóli dótt- ur sinnar og tengdasonar, fyrst á Grettisgötunni, en síðan á Vífils- götu 21. Bjarni var á þeim árum mikið á sjó, en árið 1942 varð hann að hætta sjómennsku sökum veik- inda og fá sér vinnu í landi. Heimilið á Vífilsgötunni var frá upphafi miðstöð ættingja og vina að austan. Þar var alltaf nóg hús- pláss, þótt íbúðin væri ekki stór. Á hátíðum og tyllidögum komu syst- ur Petru og Bjarna með eiginmenn sína, börn og barnabörn í heim- sóknir, orgelið var opnað og ætt- jarðarlögin sungin af hjartans lyst. Margt bar á góma eins og að Iíkum lætur, en oft beindust sam- ræðurnar að átthögunum fyrir austan, mannlfinu þar og gömlu góðu dögunum. Petra Aradóttir var gjörvileg kona, prýðilega greind og vel að sér, þótt skólagangan væri ekki löng. Sjálfmenntuð var hún af miklum bókalestri, þótt ekki væri því nú flíkað. Móðurmálið var henni sérlega hjartfólgið, enda var hún afar vel að sér á því sviði. Ást hennar á firðinum fagra fyrir austan var einlæg og sterk. Hún hafði ætíð mikinn áhuga á trúar- og líknarmálum og starfaði árum saman á þeim vettvangi. Að öðru leyti var Petra hlédræg að eðlis- fari, hógvær og lítt fyrir að trana sér fram. Allt skrum og skjall var lítt að hennar skapi, enda skal hér nú staðar numið hvað þetta varð- ar, þótt margt sé ótalið af hennar verðleikum. Sambúð Petru og Bjarna ein- kenndist af ástríki og farsæld. Þau stóðu saman í blíðu og stríðu. Okkur hjónunum og syni okkar, Pétri Bjarna, veittu þau athvarf í mörg ár og vöktu jafnan yfir vel- ferð okkar meðan líf og kraftar entust. Á kveðjustund gefst nú til- efni til að þakka þetta allt. Það var Petru og okkur öllum mikið áfall er Bjarni féll skyndi- lega frá þann 21. september 1971. Eftir það virtist hún ekki söm og jöfn. Hörður, sonur hennar, bjó með henni áfram á Vífilsgötunni og reyndist móður sinni frábær- lega vel til síðasta dags. Fyrir um það bil fjórum til fimm árum kenndi Petra fyrst sjúkdóms, sem hægt og hægt dró úr líkamskröftum hennar og and- legu atgervi. Síðustu tvö árin dvaldist hún á öldrunarlækninga- deild Landspítalans í Hátúni lOb. Þar fékk hún þá bestu umönnun sem völ er á. Læknum og hjúkrun- arfólki sem sinnti henni og líknaði eru hér með færðar alúðarþakkir. Við kveðjum elskulega móður og . ömmu með þeirri bæn að hún sé á Guðs vegum. Blessuð sé minning Petru Aradóttur. Magnús Guðjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.