Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 © 1984 Umversal Prese Syndicate ,, ALLi í lagi. Hcr lccmur hanrv. Mundu nú Qllfc 6em ég Inef- kennfc ptr." ... að lakka á þér negl- umar þótt þú sért að fara á ströndina TM Reg. U.S. Pat. Otf — all rlghts reserved * 1978 Los Angetes Tlmes Syndlcate Ll a scmDr 142 Sjáðu hvað maðurinn þinn færði mér fallegan blómvönd? Heima hjá mér er foss, sem slökkva myndi svona smábál á svipstundu. HÖGNI HREKKVISI | bíláPotta' STÖP EG SAGPI péR AP SITJA OG BÍPA T eiPHEReEíöSlNU/" Bréfritari segir að sá eða þeir sem brutust inn í KFUK-húsið í Breiðholti hljóti að vera einmana sálir sem aldrei hafi kynnst samkenndinni og félagsþroskanum f KFUM og K. Óþokkar á ferð Nú er ár æskunnar og í sumar stendur til að 250 stúlkur frá Norðurlöndum hittist og dvelji saman eina viku á vegum KFUK. Mótið á að vera í Danmörku og fyrirhugað er að um það bil 30 stúlkur frá KFUK í Breiðholti, snari sér út fyrir pollinn ásamt sveitarstjórum sínum og haldi uppi heiðri íslands. Þetta eru allt mestu dugnaðarstelpur og setja metnað sinn i að safna sjálfar fyrir ferðinni eftir því sem geta og tækifæri leyfa. Ein fjáröflunar- leiðin er smá „sjoppa" í KFUK- húsinu sem opin er þegar fundir eru eða eitthvað er um að vera annað. Fimmtudaginn 21. febrúar var foreldrum þeirra stúlkna sem í ferðina ætla gefinn kostur á að hitta þá fjóra sveitarstjóra sem til Danmerkur fara og fá nánari upp- lýsingar og þar gafst stúlkunum einnig tækifæri til að hafa opna sjoppuna og ætlast til þess með ljúfu brosi að mamma og pabbi versluðu nú dálitið veglega sem þau og gerðu. Laugardaginn næsta á eftir sýndu þær „bíó“ í KFUK- húsinu og rennur allur ágóði af þvi í ferðasjóð. Þessar sýningar eru annan hvern laugardag. Mánudaginn 25. febrúar þegar komið var að húsinu blasti við ljót sjón, brotist hafði verið inn i húsið og allt sælgæti sem verið hafði i sjoppunni og átti að fjármagna ferðina eitthvað, var horfið. Ekk- ert annað var tekið. Þið getið hugsað ykkur sorg og vonbrigði stúlknanna yfir þessu óþokka- bragði. Hver gerir sig sekan um slíkt? Mörg börn hér í Breiðholt- inu hafa átt góðar stundir i gamla KFUK-húsinu við Maríubakkann og ég trúi því ekki að neitt þeirra hafi látið freistast, fremur ein- hver einmana sál sem aldrei hefur kynnst samkenndinni og félags- þroskanum í KFUM og K. Ef nú einhver sem þessar línur les hefur áhuga á að styrkja stúlk- urnar á einhvern hátt eru fundir hjá þeim á miðvikudögum kl. 20. Einnig ætla þær að hafa kökubas- ar i félagshúsinu sínu við Maríu- bakka laugardaginn 30. mars og vonast auðvitað eftir góðri sölu. Þar að auki verða þær með skeyta- sölu um fermingarnar. „Móðir úr Breiðholtinu“ Þessir hringdu . . . Skólakerfi á villigötum 5364—9483 hringdi: Ég vil láta í ljós þá skoðun mína að skólakerfið hér sé á miklum villigötum. Það er verið að troða í nemendurna alls kyns fróðleik sem skiptir ekki sköpum fyrir lífið, en auðvelt að afla sliks fróðleiks. Hins vegar þyrfti langtum meiri kennslu í al- mennri siðfræði og kristindómi, það er jákvætt. Steinaldar- mennina í sjónvarpið Húsmóðir hringdi: Ég vildi leggja eina spurningu fyrir eggjaframleiðendur: Eru egg kælivara? Ef svo er hvers vegna eru þau þá ekki höfð i kælihólfum i verslunum? Sjónvarpið vil ég svo spyrja að þvi hvort það eigi til þættina sem Steinaldarmennina sem voru svo vinsælir þegar þeir voru sýndir á sínum tíma. Mætti gjarnan sýna þá á nýjan leik og einnig Karíus og Baktus, ekki síst þar sem nú hefur mikið ver- ið fjallað um það hve tann- skemmdir eru algengar hér á landi. Verðtryggingu verði létt af lánum 9856—4802 hringdi: Ég vil beina orðum mínum til formanns Alþýðuflokksins, Jóns Baldvins Hannibalssonar, að hann og kollegar hans flytji þingsályktunartillögu þegar í stað, þar sem verðtryggingu verði létt af húsnæðismálalán- um og námslánum og leysi þar með fjölda heimila í landinu frá þeim húskrossi sem á þau hefur veriðlagður. Áfram yrðu eftir sem áður gefin út verðtryggð ríkisskulda- bréf þannig að þeir sem ekki vilja fjárfesta í steinsteypu geta fjárfest í ríkisskuldabréfum, líkt og áður þegar verðtrygging lána hófst. Skyldusparnaði yrði kom- ið á í stað lífeyrissjóðanna, sem allir vita að erfast ekki til greið- anda. Stofnað yrði samhliða þessum breytingum styrktar- sjóður aldraðra og öryrkja, tekið yrði 1% af atvinnurekendum og 0,50% af launþegum. Ég er hárviss um að ef verð- tryggingu yrði létt af húsnæð- ismálalánum og námslánum, myndi atvinna í byggingariðnaði aukast á ný og bilið milli ríkra og fátækra myndi styttast. Eða er það ekki stefna Alþýðuflokks- ins, Jón Baldvin? Góðir þættir frá RUVAK Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, safn- vörður í Kjarvalssafni, hringdi: Ég vil koma á framfæri kveðju frá mér og þakklæti til útvarps- fólksins á Akureyri, Signýjar Pálsdóttur með þættina sína Kotru og Hugleiðingar um Hávamál Hildu Torfadóttur, Einars Kristjánssonar og Arn- fríðar Sigurðardóttur. Þættir þeirra eru ákaflega skemmtilegir, þá sérstaklega þættir Signýjar. Hugleiðingarn- ar um Hávamál eru bæði fróð- legir og uppbyggilegir þættir og eiga erindi inn á hvert heimili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.