Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.03.1985, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985 Áhugamenn um at- vinnumál stofna félög Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi fréttatilkynning frá Félagi íhugamanna um atvinnumál á Þing- eyri og nágrenni: Nýverið var stofnsett Félag áhugamanna um atvinnumál á Þing- eyri og nágrenni. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að stuðla að fjöl- breyttara atvinnulífi á þessu svæði. Starfssvæði félags þessa er Auðkúlu- hreppur, Þingeyrarhreppur og Mýra- hreppur. Félagið er engum háð og meining félagsmanna, sem eru sjö Kirkjur á íandsbyggdinni Messur á sunnudag HVAMMSTANGAKIRKJA: Messa sunnudag kl. 14 og barnaguðsþiónusta kl. 11. Sr. Guðni Þór Olafsson. KIRKJUHVOLSPRESTA- KALL:Guðsþjónustunni i Kálf- holtskirkju frestað til pálma- sunnudags. Aðalsafnaðarfund- ur verður haldinn sama dag eftir guðsþjónustu þar. A mánudagskvöld heimsækir bibliuleshópurinn í Þykkvabæ hvitasunnufólkið í Fljótshlíð. Auður Eir Vilhjálmsdóttir sókn- arprestur. talsins nú í upphafí, er að láta fyrir- fram ákveðnar kennisetningar og fordóma hafa sem minnst áhrif á starfsemi þess. Þetta áhugamannafélag mun einkum leita til Japana um fyrir- myndir í starfi sínu. Þeir hafa sem kunnugt er náð þjóða lengst i þróun atvinnuvega og hefur Jap- anska efnahagsundrið", sem svo er kallað, byggst að verulegu leyti á því hversu opnir þeir hafa verið fyrir nýjungum, auk þes3 sem þeir hafa byggt á fornum merg heimil- isiðnaðar. Fyrsta verkefni áðurnefnds áhugamannafélags hefur verið að hrinda úr vör nýju fyrirtæki á Þingeyri sem ber nafnið Leik- fangasmiðjan Alda hf. Fjórir starfsmenn munu vinna hjá þvf fyrirtæki í upphafi og mun nánar skýrt frá þessu innan tíðar. Félag áhugamanna um atvinnu- mál á Þingeyri og nágrenni mun athuga í fullri alvöru hvort ekki er hægt að koma á hagkvæmum heimilisiðnaði á starfssvæði sínu, maðal annars með þvf að virkja það hugvit sem vitað er að býr með fólki á þessu svæði. Það er öllum vitanlegt að hinar dreifðu byggðir þurfa á fleiri atvinnu- tækifærum að halda, ef þær eiga ekki að líða undir Iok eða dragast stórlega saman' Stjórn FÁA skipa þeir Ólafur V. Þórðarson, Þingeyri, og Hall- grímur Sveinsson, Hrafnseyri. Þeir sem hefðu hug á að vita nán- ar um málefni þetta, snúi sér til þeirra. (Frítuuiky»»i«*) Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja ganga úr skóla! Hyggjast fá aðra framhaldsskóla í lið með sér Kefhrík, 13. aure. Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja voru 32 kennarar að stundakennurum frátöldum. Nú er svo komið, að af þeim 32 kennurum sem eru í HÍK sagði 21 upp störfum. Slíkt veldur að sjálfsögðu misvægi í kennslunni, sumir nemendur missa alla sína kennara á meðan aðrir missa færrí og jafnvel enga. í gær, miðvikudaginn 12. mars, hélt stjórn Nem- endafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja opinn fund þar sem ræða átti launadeilu háskólamenntaðra kennara og hvað nemar gætu gert í málinu. Stjórn félagsins kom með þá uppástungu að nem- endur myndu tafarlaust hefja sjálfsnám, það er að segja, þeir sem á annað borð misstu kennara í við- komandi fögum. Þegar orðið var gefið laust eftir ávarp skólameistara, tóku bæði nemendur og fyrr- verandi kennarar til máls. í ljós kom að allflestir nemar voru andvígir tillögu stjórnar nemendafé- lagsins. Lýstu þeir yfir eindregnum stuðningi við kennara og að beita ætti stjórnvöld þrýstingi á ein- hvern hátt svo að deilan leystist. Þó margt hafi verið rætt, kom aðeins ein tillaga fram utan hinnar fyrr- greindu: Að nemar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja skyldu tafarlaust leggja nám sitt niður, þar til úr deilunni yrði skorið. Með slíku næðist þrýstingur á stjórnvöld og launadeilan leystist fyrr en ella. Gengið var til atkvæðagreiðslu um málið og var síðarnefnda tillagan samþykkt af meirihluta fund- armanna. Klukkan ellefu í morgun voru nemendur svo boðaðir aftur á fund þar sem ræddar voru frek- ari aðgerðir. Mikill hugur var í mönnum á fundinum og voru áframhaldandi aðgerðir ákveðnar. Mönnum fannst of fljótt hlaupið til með því að ganga út strax. Hafa skyldi fyrst samráð við aðra framhaldsskóla um samræmda útgöngu nemenda og var sérstök nefnd skipuð til þess. Nefnd þessi vinnur nú að málinu og að öllu óbreyttu munu nemar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja ekki mæta í tíma á mánudegi komanda. Skólameistari, Ingólfur Halldórsson, var inntur álits, auk nokkurra nema, bæði þeirra sem hlynntir eru útgöngu og hinna sem eru henni andvigir. Utganga hefur engin áhrif — segir Ingólfur Halldórsson skólameistari Ingólfur Halldórsson skóla- meistari sagði meðal annars: „Slíkt mun engin úrslitaáhrif hafa á samningana. Hér í skól- anum höfum við aðeins haldið uppi þriðjungi kennslu eftir upp- sagnir. Þvi er skiljanlegur kvíði í nemendum vegna þess að skap- ast hefur mismunur i hinum ýmsu námsgreinum. Margir nemendur missa alla kennslu, en sumir eru svo heppnir að missa enga. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að semja þarf við Ingólfur Halldórsson skólameistari. 25 stéttarfélög BHM-manna sem vinna hjá ríkinu og því er ómögulegt að einhliða aðgerðir eins félags innan bandalagsins hafi afgerandi áhrif á að samn- ingum verði flýtt." Stjórn- völdum sama! — segja Una Steinsdóttir og Hörður Karlsson Una Steinsdóttir og Hörður Karlsson voru innt álits á úrslitum fundarins. „Að mínu áliti mun útganga ekki hafa nein áhrif. Stjórnvöld- um er skítsama um okkur nem- endur, við erum bara smápeð," sagði Una og Hörður var á sama máli. „í slikum aðgerðum mun aldrei nást samstaða meðal nemenda. Til dæmis í mínu til- felli, þar sem ég er nemi á rafið- naðarbraut og hef þegar misst heila önn úr námi, mun ég ekki taka til greina að ganga út og ég Alþjóðlega mótið f Kaupmannahöfn: Helgi teflir af hörku og er meöal efstu manna Skák Margeir Pótursson HELGI Ólafsson hefur staðið sig mjög vel á alþjóðlega mótinu f Kaupmannahöfn sem nú er Ijúka. Þegar þetta er skrífað er Helgi f 4. sæti með 6 v. af 10 mögulegum og þó hann eigi ekki möguleika á að verða efstur þýðir sigur gegn Eng- lendingnum Plaskett í síðustu um- ferðinni það að Helgi nær sínum þríðja og síðasta áfanga að stór- meistaratitli. Helgi befur teflt af mun meiri hörku en á afmælismóti Skáksambandsins í febrúar. Þá vann hann enga skák en tapaði tveimur. Nú hefur hann einnig tap- að tvívegis, en unnið fjórar skákir. Sama má segja um Jóhann Hjart- arson sem einnig tekur þátt í mót- inu, en stríðsgæfan hefur ekki ver- ið með honum og hann er nú í 6. sæti með 4Vi v. Margt hefur komið á óvart á mótinu f Kaupmannahöfn og baráttan hefur verið gifurlega hörð og skemmtileg. Svo virðist sem Danir hafi verið heppnari með val þátttakenda en Islend- ingar á afmælismótinu um dag- inn. Hinn öflugi en litt þekkti ungverski stórmeistari, Joszef Pinter, hefur stolið senunni og hafði hlotið 6 vinning úr sjö fyrstu skákunum. Hann er enn f efsta sæti með Vh v. og biðskák. Pinter kom beint af svæðamót- inu f Prag þar sem hann vann sér rétt til þátttöku á milli- svæðamóti. í öðru sæti er Dan- inn Curt Hansen, sem varð neðstur á afmælismótinu, fyrst- ur útlendinga til að hljóta það dapurlega hlutskipti á alþjóð- legu móti á íslandi. Nú þarf Hansen aðeins jafntefli f sfðustu umferðinni til að verða stór- meistari. Bent Larsen er i þriðja sæti með sex vinninga og biðskák við Pinter. Larsen hélt upp á fimm- tugsafmæli sitt f upphafi móts- ins og var seinn f gang. En hann vann þrjár skákir f röð seinni hluta mótsins og hefur greini- lega ekki misst sjálfstraustið, þvi hann sagði í viðtaii við Politiken að nú væri hann byrj- aður að vinna, á meðan Pinter gerði jafntefli. Hann myndi síð- an ná forystunni með því að vinna Ungverjann f innbyrðis viðureign þeirra. Skákin fór f bið og hefur ekki frést hvernig stað- an er. Fréttir af mótinu hafa verið skammarlega stopular, ef það er haft í huga að það er afar sterkt og tveir af tólf þátttakendum is- lenskir. Dagblöðin hafa lítið sem ekkert sinnt mótinu og áhuga- menn orðið að láta hraðlestur úrslita í kvöldfréttum útvarps- ins svala frettaþorsta sfnum. Mér er því ekki kunnugt um stöðu annarra keppenda en áð- urnefndra. Dönsku blöðin hafa hins vegar fylgst vel með mót- inu, sérstaklega uppgjöri þeirra Larsens og Hansens, þar sem hinn síðarnefndi hékk á jafntefli eftir mikla baráttu. Vassily Smyslov, fyrrum heimsmeistari, sem senn verður 64 ára gamall, byrjaði vel, en tapaði síðan tveimur skákum í röð fyrir alþjóðlegu meisturun- um Mortensen (Danmörku) og de Firmian (Bandaríkjunum). Hann á þvf enga möguleika leng- ur á að hreppa eitt af toppsæt- unum. Mikils var vænst af þeim Lars Karlsson (Svíþjóð) og de Firmi- an, en eftir fjórar umferðir hafði hinn fyrrnefndi engan vinning hlotið, en hinn síðarnefndi hálf- an. E.t.v. hefur afmælisveizla Larsens slegið þá út af laginu. Lítum nú á eina af vinnings- skákum Helga Ólafssonar á mót- inu: Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Hsi (Danmörku) Kóngsindversk vörn 1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — c6,3. Rc3 — Bg7, 4. d4 — O—O, 5. e4 — d6, 6. Be2 - Bg4, 7. Be3 - Rbd7. Hér þykir vænlegra að leika 7. — Rfd7 og opna fyrir Bg7. Skák Helga og Hei á svæðamótinu f Luzern 1979 tefldist: 7. — Rfd7, 8. Rgl! - Bxe2, 9. Rgxe2 - Rc6, 10. 0-0 - e5,11. d5 - Re7,12. Dd2 og hvítur stendur heldur betur. 8. 0—0 - e5, 9. Hcl — Bxf3,1«. Bxf3 — a5, 11. Be2 — He8? Betra var að leika fyrst 11. — exd4. Eftir lokun miðborðsins er Ijóst að þessi hrókur hefur farið erindisleysu til e8. 12. d5! - h5, 13. Dd2 — Kh7, 14. Bdl — Hh8, 15. Í3 — Df8. Svartur hyggst skipta upp á „góða biskup* hvfts með 16. — Bh6, en Helgi hindrar slík býti og bætir stöðuna um leið: 16. g4! — h4, 17. a3 — Re8,18. b4 — axb4, 19. axb4 — f6. Hei virðist úrræðalaus eftir að uppskiptaáætlunin mistókst. 20. Ba4 — Rb6, 21. Bb5 — Rc8, 22. Hal - Hb8, 23. f4! Aðeins mögulegt vegna þess að f framhaldinu kemur svartur ekki riddara til e5. - exf4, 24. Bxf4 — De7, 25. HÍ3 - Rb6, 26. Hafl — Hf8, 27. Df2 - Kg8, 28. Bd2 - g5, 29. h3 — Hd8, 30. c5 — Rc8. Það þarf ekki mikið innsæi til að gera sér grein fyrir þvf að svartur hefur þegar verið jarð- aður. Lið hans hírist á 7. og 8. reitaröðunum og vinnur ekkert saman. Samt hefur honum tekist að valda helstu veikleika sína og það er ekki hlaupið að því fyrir hvít að brjótast f gegn. í slíkum tilfellum þarf oft að koma til fórn og þessi skák er kennslu- bókardæmi: 31. e5!! — dxe5. Svarta drottningin fellur eftir 31. - Dxe5, 32. Hel. 33. Re4 — Df7, 33. Bxe8 — Dxe8, 34. Rxf6+ - Bxf6, 35. Hxf6 - Re7, 36. De3 - Hxf6, 37. Hxf6 - Rg6, 38. Dxg5 — Kg7, og Hei gafst síðan upp án þess að bfða eftir hróksfórninni: 39. Dh6!+ — Kxf6, 40. Bg5+ - Kf7, 41. Dh7+ og mátar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.