Morgunblaðið - 15.03.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ1985
7
Hraðfrystihús Hellissands tekið í notkun:
Afkastagetan næg en fólkið vantar
— segir Rögnvaldur Ólafsson, framkvæmdastjóri
„I‘ETTA gengur Ijómandi vel. Við
byrjuðum að vinna í nýja húsinu á
lostudag og allt gengur eins og vera
ber. Það er bara vandamálið að fá
fólk til vinnu. Hráefnið og afkasta-
getan er næg,“ sagði Rögnvaldur
Olafsson, framkvæmdastjóri Hrað-
frystihúss Hellissands í samtali við
Morgunblaðið.
Hraðfrystihús Hellissands
brann árið 1983, en hið nýja hús
hefur verið reist við höfnina á
Rifi. Rögnvaldur sagði, að það
væri vissulega munur að vera'
svona nálægt höfninni, en talsvert
óhagræði væri á hinn bóginn að
því, að vera með vinnsluna á
tveimur stöðum. Saltfiskvinnsla
og slæging væri úti á Sandi, en
frystingin á Rifi. Því þyrfti til
dæmis að keyra allan fiskinn út
eftir til að slægja hann, áður en
frekari vinnsla á Rifi hæfist.
f næstu viku væri síðan fyrir-
hugað að hefja undirbúning að
surimi-vinnslunni, sem aetlunin
væri að gera tilraunir með.
Vinnsla gæti þá hugsanlega hafizt
mjög fljótlega.
„Okkur vantar bara fólk, eins og
10 kennara. Það er velkomið að
taka við þeim og sýna hvernig það
er að vinna í fiski, ef þeir sætta sig
við launin,“ sagði Rögnvaldur
ólafsson.
Úr vinnslusal nýja frystihússins.
Ný kennslubók
í bókmenntasögu
ÚT ER komin hjá Forlaginu ný bók
eftir Heimi Pálsson, Frásagnarlist
fyrri alda, íslensk bókmenntasaga
frá landnámsöld til siöskipta. Bók-
menntasaga þessi er einkum ætluð
til kennslu á framhaldsskólastigi en
hcntar jafnframt öllum þeim sem
fýsir í læsilegan fróðleik um íslensk-
ar fornbókmenntir, segir í frétt frá
Forlaginu.
í fréttinni segir ennfremur:
„Frásagnarlist fyrri alda skiptist i
þrjá meginkafla. í þeim fyrsta er
fjallað um skeið óskráðra bók-
mennta: eddukvæði og dróttkvæði.
Annar kaflinn og sá ítarlegasti
fjallar um sagnaritun miðalda.
Þar er gerð grein fyrir öllum
greinum lausamálsbókmennta á
tímabilinu 1100—1350, fjallað um
hugmyndaheim sagnanna sem og
listræn einkenni þeirra og rætt
um það samfélag sem skóp þær.
Þriðji og síðari kaflinn fjallar svo
um blómaskeið rímna og sagna-
dansa.
Frásagnarlist fyrri alda er
prýdd miklum fjölda mynda sem
veita lesendum innsýn í myndlist
og menningu miðalda. Hrafnhild-
ur Schram listfræðingur annaðist
Heimir Pálsson
val myndanna. Þá eru í bókinni
vandaðir ítarefnalistar með
ábendingum um hvert sækja megi
frekari fróðleik. Síðar í vetur er
svo væntanleg sérstök kennara-
handbók sem höfundur tekur sam-
an kennurum til stuðnings.“
Frásagnarlist fyrri alda er 191
bls. Ragnheiður Kristjánsdóttir
hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi
hf. prentaði.
Tíu ára afmælissýning textfl-
félagsins á Kjarvalsstöðum
Textflfélag íslands er tíu ára um
þessar mundir og af því tilefni verð-
ur efnt til samsýningar 29 textfl-
hönnuða að Kjarvalsstöðum dagana
16. mars til 7. aprfl.
Sýning þessi er stærsta samsýn-
ing félagsins, en áður hafa verið
haldnar þrjár samsýningar félags-
ins í Reykjavík auk fleiri sýninga
úti á landi. í textílfélaginu starfa
nú 40 félagar að ýmsum greinum
textíllistarinnar svo sem vefnaði,
tauþrykki, fatahönnun, mynstur-
hönnun, prjóni, bútasaum og text-
ilskulptúr.
Textílfélag íslands hefur unnið
með samnorræna textíltriennaln-
um sem stendur að samsýningum
víðs vegar á Norðurlöndunum. Á
meðan á sýningunni stendur
munu tveir félagar félagsins halda
fyrirlestra í tengslum við sýning-
una. Sigríður Halldórsdóttir, vefn-
aðarkennari, mun flytja fyrirlest-
ur sunnudaginn 31. mars klukkan
20.00, sem hún nefnir Kljásteina-
vefstaðinn. Hulda Jósefsdóttir,
textílhönnuður, mun síðan flytja
fyrirlestur miðvikudaginn 3. apríl
klukkan 20.00 um norræna prjóna-
hefð. Þá hefur textílfélagið látið
gera myndband til kynningar á
listamönnunum og verkum þeirra.
Félagið hefur gefið út félagatal
prýtt myndum.
Sýningin verður opin alla daga
frá 14.00 til 22.00.
ÚR STJÓRNSTÖÐINNI:
íbjúgt mæiaborö meö nýstár-
legu fyrirkomulagi mæla og
rofa. — Allt til aö auka á
öryggi og vellíöan þelrra, sem
í bílnum eru.
1985 ARCERÐIN FRA MITSUBISHI
5 manna „drossía" með framhjóladrifi
6 ÁRA RYÐVARNARÁBYRCÐ
39A.900,'
UR BETRI STOFUNNI:
í Lancer 85 sklptlr vaxtar-
lagið engu. Meö ótal mögu-
lelkum á stillingu, verða
sætin jafn þægileg fyrir alla.
Lancer er ótrúlega sparneytinn bíll.
Aðeins 5,51100/km í utanbæjarakstri (1500CLX).
□ Mjög lágur vindstuöull = 0,38.
□ Hagstæð þungadreifing á framhjól.
— □ Církassl meö 5 hraðastig - þar af elnn yflrgír.
□ Hlutfall mllli orku og þunga mjög hagkvæmt.
□ Léttarl vél meö betri nýtingu.
CLÆSILECUR LÚ.
FYRIRALLA FJÖLSKYl
Cl
HEK
Laugavegi 170 -1