Morgunblaðið - 15.03.1985, Síða 22
22
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985
Mikið fjölmenni á stofnfundi Félags kúabænda á Suðurlandi
borgunarreglum fyrir mjólk þyrfti
að breyta og staða bænda væri
erfið vegna verðtryggingar lána.
Þá nefndi hann áróður gegn at-
vinnugreininni og væri óhróður-
inn nógu oft endurtekinn, væri
hætta á því að fólk færi að trúa
honum gagnrýnislaust. Félaginu
væri ætlað að verða á varðbergi og
andmæla slíkum óhróðri á mál-
efnalegum grundvelli.
Sérhæfing
í landbúnaði aukist
Að Ioknum framsöguerindum
voru lög félagsins kynnt og urðu
af því loknu fjörugar umræður um
þau. Einkum var rætt um það
hvort félagið skyldi einungis taka
til kúabænda, eða til nautgripa-
ræktarbænda almennt. Þá kom
fram tillaga um það að sauðfjár-
ræktarbændum skyldi heimilt að
vera í félaginu og félagið vera Fé-
lag kúa- og sauðfjárræktarbænda,
þar sem hagsmunir þessara
tveggja búgreina færu saman í
mörgu. Á það var bent á móti að
þróunin innan samtaka bænda
hefði á undanförnum árum verið
sú að búgreinafélög mynduðust og
væru þau nú tíu að tölu. Hefð-
bundnar búgreinar hefu setið eftir
hvað þetta snertir og væri löngu
orðið tímabært að þau mynduðust
þar einnig. Sérhæfing i landbún-
aði hefði aukist hröðum skrefum á
undanförnum árum og áratugum
og ylli því að bændur innan hverr-
ar búgreinar þyrftu vettvang til
þess að ræða sín mál sameiginlega
og berjast fyrir hagsmunum bú-
greinarinnar. Kom fram í máli
Hákons Sigurgrímssonar, fram-
kvæmdastjóra Stéttasambands-
ins, að breytingar á lögum Stétt-
asambandsins sem nú væru til at-
hugunar tækju mið af þessari
þróun. „Mér er ánægja að vera
staddur á þessum myndarlega
fundi, sem hefur talsvert annað
yfirbragð en flestir þeir fundir
sem ég hef setið áður. Bæði er hér
mikið af ungum mönnum og m.a.s.
konur, sem maður hefur ekki átt
að venjast á bændafundum. Ég er
ánægður með þetta framtak og þá
forsendu að til félagsins sé stofnað
til að styðja við bakið á bænda-
samtökunum. Eins og ég hef skilið
fundarboðunina, er forsendan sú
að búa til vettvang þar sem hægt
er að ræða málefni mjólkurfram-
leiðenda sérstaklega," sagði Há-
kon meðal annars.
Laganefnd skipuð
Einnig spunnust nokkrar um-
ræður um, og voru skiptar skoðan-
ir á, hve fastmótaður félagsskap-
urinn ætti að vera, hvort inn-
heimta bæri félagsgjöld og hvort
takmarka ætti kjörgengi stjórn-
armanna, þannig að þeir væru
ekki kjörgengir þrjú ár eftir
stjórnarsetu. Sýndist sitt hverjum
en að tillögu Guðmundar Sigurðs-
sonar, Reykhóli var ákveðið að
skipa laganefnd til að fjalla um
lögin og breytingar á þeim fram
að næsta fundi.
Félagsstofnunin var síðan sam-
þykkt einróma. Meðal þeirra sem
til máls tóku um lagabreytingar
má nefna Kjartan Georgsson,
ólafsvöllum, Sigurð Eggertsson,
Halldór óttarsson, Halldór Gunn-
arsson í Holti, Magnús Finnboga-
son, Sigurjón Pálsson, Galtalæk,
Arnór Karlsson, Hóli, Eirík
Loftsson, Sandvogi og fleiri.
Framkvæmdastjórn
kjörin
Var þá gengið til kjörs níu
manna félagsstjórnar í samræmi
við lög, en þrjá skyldi kjósa úr
hverju sýslufélagi. Sjálfkjörið var
í Vestur-Skaftafellssýslu, en
uppástungur komu fram um fimm
menn í Arnes- og sex í Rangár-
vallasýslu. Kosningu hlutu: Úr
V-Skaftafellssýslu, Arnór Hall-
dórsson, Brekkum, Ómar Hall-
dórsson, Syðri-Hvammi og Sigur-
jón Einarsson, Langholti, úr
Rangárvallasýslu, Bergur Pálsson,
Hólmahjáleigu, Birna Þorsteins-
Bændur samþykkja stofnun Félags kúabænda á Suðurlandi. Eins og sjá má var hvert sæti setið og þurftu frammistöðustúlkur á Hvoli að drífa jólakökur í
ofninn til að fæða þennan óvænta fjölda. Eiga þær hrós skilið fyrir frammistöðuna, því allir fengu kaffi og með því, þrátt fyrir stuttan fyrirvara.
Stofnað til að gæta hags-
muna mjólkurframleiðenda
STOFNFUNDUR Félags kúabænda á óuðurlandi var haldinn
aö Hvoli, Hvolsvelli, að kvöldi 13. mars síðastliðin að við-
stöddu miklu fjölmenni, en rúmlega 200 bændur gerðust
stofnfélagar á fundinum. Félagið tekur yfir félagssvæði Bún-
aðarsambands Suðurlands, Arnes-, Rangár-, og Vestur-
-Skaftafellsýslu, en bændur á þessu svæði munu vera á 8.
hundrað samtals. Miklar umræður urðu á fundinum og lýstu
allir sem til máls tóku mikilli ánægju með stofnun félagsins.
Kom fram sú skoðun manna að bændur þyrftu skilvirkara
tæki til kjarabaráttu, heldur en væri við núverandi skipulag
og vettvang til að ræða sérmál mjólkurframleiðenda.
Magnús Finnbogason.
asta veikleikamerkið, bændur
yrðu að standa þétt saman, því að
fjölmörg öfl í þjóðfélaginu létu
einskis ófreistað að vinna gegn
þeim. Eitt meginverkefni félags-
ins væri að vera tæki í kjarabar-
áttu bænda, mörgum fyndist þau
samtök sem fyrir væru sein til
svara fyrir bændur, þegar skjótra
aðgerða og umræðu væri þörf.
Nefndi hann sem dæmi samþykkt
kjarnfóðursgjaldsins. Nú væru
fyrst umræður að koma upp þegar
þeirra hefði verið þörf strax og
það var lagt á.
Staða bænda erfið
Sigurður nefndi nokkrar ástæð-
ur fyrir slæmri stöðu bænda nú,
heyskapartíð á Suðurlandi undan-
farin tvö ár hefði verið slæm, út-
Kjör bænda farið
versnandi
Stutta framsögu á fundinum
höfðu Bergur Pálsson Hólmahjá-
leigu, ómar Halldórsson Syðra-
Hvammi og Sigurður Steindórs-
son, Hæli. Bergur rakti aðdrag-
andann að því að ákveðið var að
boða til stofnfundar Félags kúa-
bænda á Suðurlandi. Kom fram í
máli hans að kjör bænda hafa far-
ið mjög versnandi á undanförnum
árum og útlitð nú sé síst til þess
fallið að efla með mönnum bjart-
sýni, þyrftu margir að ganga á
þær fyrningar sem þeir ættu, ef
um þær væri að ræða, til að halda
í horfinu. Sagði hann að upphaf
þess hóps sem að lokum hefði boð-
að til stofnfundarins mætti rekja
til nóvembers síðastliðins, en þá
hefðu nokkrir ungir bændur úr
Árnessýslu hist og rætt þessi mál
í sínum hóp. Ákveðið hefði verið
að hafa samband við bændur í
nágrannasýslunum og hefðu þessi
mál veriö rædd á fundum með
þeim í desember. Nánast hefði til-
viljun ráðið því við hverja hefði
verið rætt, en það hefðu einkum
orðið ungir skuldugir bændur,
enda brynni ástandið í málum
bænda heitast á þeim.
Félagið ekki stofnað til
höfuðs því félagskerfi
sem fyrir er
Bergur lagði á það ríka áherslu
að Félag kúabænda á Suðurlandi
væri ekki stofnað til höfuðs því
félagskerfi bænda sem fyrir væri,
heldur ætlað til að styrkja það enn
frekar. Félagið ætti að styðja við
bakið á forustumönnum bænda og
veita þeim jafnframt aðhald ef á
þyrfti að halda. Þó ef til vill megi
finna að ýmsu sem samtök bænda
hafi gert á undanförnum árum,
séu þau það haldreipi sem ekki
megi sleppa, ef illa eigi ekki að
fara.
Oddviti félagsráðsins, Guðmundur
Lárusson bóndi í Stekkum II.
Sigurður Steindórsson á Hæli í
Gnúpverjahreppi.
lenskir bændur væru 25 daga að
framleiða mjólk fyrir þessari
hækkun.
Afurðir séu greiddar
1. hvers mánaðar
Hann sagði ennfremur að greiða
bæri út verð afurðanna til bænda
1. hvers mánaðar og vextir að
reiknast á tímann þar fram yfir.
Hann sagði að það yrði ekki fal-
legt til afspurnar ef ísland yrði
fyrsta landið í Vestur-Evrópu sem
hætti að styrkja hefðbundinn
landbúnað.
Sigurður Steindórsson sagði það
grundvallaratriði að stofun fé-
lagsins væri og ætti að vera til
styrktar heildarsamtökum bænda.
Það væri þekkt úr verkalýðssög-
unni að sundrung væri alvarleg-
Ómar Halldórsson sagði að fáar
stéttir hafi farið jafnilla út úr
efnahagsaðgerðum ríkisstjórnar-
innar og bændur og verði ekkert
að gert blasi ekkert annað en
gjaldþrot við fjölda þeirra. Rakti
hann dæmi máli sínu til sönnunar
Páll Sigurjónsson bóndi á Galtalæk
í pontu. Hann mælti fyrir lögum fé-
lagsins.
um þá vexti og verðbætur sem
bændur sem hefðu staðið i fram-
kvæmdum þyrftu að borga og
hækkanir á lánskjaravísitölu sam-
anborið við hækkun á mjólkur-
verði. Sagði hann að þörf væri á
að lengja lánstíma lána stofnlána-
deildar úr 20 árum í 35—40 ár.
Væri það eðlilegt, þegar mið væri
tekið af þeim mannvirkjum sem
lánað væri til, en þau væru mun
vandaðri en áður hefði verið. Þá
tók hann dæmi af láni sem hefði
verið útvegað bændum til að
breyta lausaskuldum í lengri lán.
Lánið hefði verið gengistryggt
miðað við dollar og með 9% vöxt-
um. Dollarinn hefði hækkað um
40% frá því 1. júli og hefði lánið
hækkað úr 100 milljónum í 147.
Mætti nefna sem dæmi að sunn-
Hákon Sigurgrímsson framkvæmda-
stjóri Stéttarsambandsins í pontu.