Morgunblaðið - 15.03.1985, Page 56
FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Madur
smiðju
myrtur í tré-
í Kópavogi
Jósef heitinn fannst látinn á
trésmíðaverkstæði sem hann
rak við Smiðjuveg. Hann fór
þangað ásamt hinum grun-
aða eftir að þeir höfðu
kynnst á veitingahúsinu
Ypsilon, sem er hinum megin
við götuna.
Morgunblaðið/Júlíus.
Manninum veittur áverki með skrúf-
járni og eldur borinn að honum
- 19 ára piltur grunaður og játar átök
29 ÁRA gamall maður, Jósef Liljendal Sigurðsson, fannst
myrtur á trésmíðaverkstæði við Smiðjuveg í Kópavogi laust
fyrir klukkan þrjú í fyrrinótt. Honum höfðu verið veittir
áverkar með skrúfjárni og eldur borinn að honum. Jósef
heitinn fæddist 14. nóvember
Garðabæ. Hann lætur eftir sig
Nítján ára gamall piltur til-
kynnti starfsmönnum Smiðjukaff-
is laust fyrir klukkan þrjú í fyrri-
nótt, að eldur væri laus í tré-
smíðaverkstæði skammt frá.
Slökkviliðinu i Reykjavík var gert
viðvart og fannst hinn látni á gólfi
» í kaffistofu verkstæðisins.
Grunsemdir vöknuðu
við skýrslutöku
1955, til heimilis í Ásbúð 10 í
þrjú börn.
hinn látni hafi farið á verkstæðið
til þess að hringja. Þar hafi komið
til átaka, en pilturinn ber við
minnisleysi vegna ölvunar og
kveðst ekki muna hvernig þau
enduðu.
Þegar blaðið fór í prentun í nótt
hafði Rannsóknarlögregla ríkisins
ekki sett fram kröfu um gæslu-
varðhald yfir hinum grunaða.
Rannsóknarlögregla ríkisins hóf
rannsókn málsins. Meðai þeirra
sem voru kallaðir fyrir til að gefa
skýrslu í gærmorgun var piltur-
inn, sem tilkynnti starfsmönnum
Smiðjukaffis um eldinn. Við
skýrslutöku vöknuðu grunsemdir
um, að hann væri viðriðinn dauða
mannsins og var réttarstöðu hans
breytt, þannig að hann hefur verið
yfirheyrður sem grunaður í n.ál-
Viðurkennir að til
átaka hafí komið
Pilturinn neitaði í fyrstu að
þekkja nokkuð til hins látna. Við
yfirheyrslur í gærkvöldi breytti
hann framburði sínum og viður-
kenndi að hafa kynnst hinum
látna á veitingahúsinu Ypsilon við
Smiðjuveg laust fyrir klukkan eitt
í fyrrinótt og farið með honum yf-
ir á trésmíðaverkstæðið. Þeir hafi
ætlað til veislu í heimahúsi, en
Flugmenn Flugleiða
fá 37 % launahækkun
16%hækkun frá 1. nóvember
— Flugleiðir greiða skatta af
dagpeningum flugmanna
FLUGLEIÐIR hafa gert kjara-
samning við flugmenn félagsins.
Felur hann í sér liðlega 37 % launa-
Helgi Ólafsson
stórmeistari
„ÞUNGU fargi er af mér létt nú þegar stórmeistaratitillinn er í höfn. Því
er ekki að neita að efasemdir grófu um sig með mér að ég gæti bætt þriðja
og síðasta áfanganum viö. Eg held að þetta hafi komiö niður á tafl-
mennsku minni að undanfórnu, en ég er ákaflega ánægður að titillinn er í
höfn,“ sagði Helgi Ólafsson, sem í gærkvöldi náði þriðja og síðasta áfanga
að stórmeistaratitli, þegar hann sigraði enska skákmeistarann Plaskett á
alþjóðlegu skákmóti í Danmörku.
Helgi er þriðji stórmeistari ís-
lendinga, fetar í fótspor þeirra
Friðriks Ólafssonar og Guðmund-
ar Sigurjónssonar. „Ég tefldi stíft
til sigurs gegn Plaskett og valdi
frumlega byrjun og náði góðri
stöðu, en Plaskett varðist vel.
Hann bauð mér jafntefli eftir 26
leiki. Þá hafði ég um tvær leiðir
að velja — aðra sem virtist leiða
til jafnteflis, að því er virtist, en
hina að tefla í tvísýnu og taka á
mig erfiða stöðu. Eg tók áhætt-
una, sérstaklega þar sem Plaskett
var í tíroahraki. En frumkvæði
Plasketts varð ógnvekjandi og ég
ákvað að bjóða jafntefli. Það get-
ur verið góð sálfræði. Hann hafn-
aði boði mínu en lék skömmu síð-
ar illa af sér, heilum hrók. Þar
með var stórmeistaratitillinn í
höfn,“ sagði Helgi Ólafsson.
Ungverjinn Josef Pinter sigraði
á mótinu, hlaut 8% vinning.
Helgi, Bent Larsen og Curt Han-
sen urðu í 2.-4. sæti með 7 vinn-
inga, Vassily Smyslov í 5. sæti
með 6 vinninga og Jóhann Hjart-
arson í 6.-7. sæti ásamt De-
Firmian með 5 vinninga. Jóhann
gerði í gærkvöldi jafntefli. við
Larsen.
hækkun á samningstímabilinu,
auk fríðinda eins og þeirra að
Flugleiðir greiða nú afnotagjald af
síma fyrir flugmenn og skatta sem
lagðir eru á dagpeninga, sem
flugmenn fá greidda.
Þetta hefur Morgunblaðið eft-
ir áreiðanlegum heimildum, en
Björn Theódórsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Flugleiða, sagði í gær að samn-
ingarnir væru svipaðir þeim
samningum, sem gerðir hafi ver-
ið við launþega að undanförnu. í
samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Björn orðrétt, er hann var
spurður um innihald samning-
anna við flugmenn: „Við gerðum
bara hliðstæðan samning við þá
eins og við aðra launþega."
Síðasti samningur Flugleiða
við flugmenn rann út 1. febrúar
sl. og samningur sá, sem gerður
hefur verið nú, giidir til 1. janú-
ar 1986. Samningurinn felur í
sér 16% kauphækkun frá 1. nóv-
ember sl., 6% kauphækkun frá 1.
janúar sl. sem kemur ofan á þá
3% kauphækkun, sem flugmenn-
irnir fengu samkvæmt gamla
samningnum, 3% launahækkun
frá 1. mars sl., 3% frá 1. maí nk.,
4% frá 1. september nk. og 3%
frá 1. nóvember nk. Samtals er
hér um liðlega 37% launa-
hækkun að ræða. Annar yfir-
maður Flugleiða, sem blaðamað-
ur Morgunblaðsins ræddi við í
gær, sagði hins vegar að samn-
ingurinn við flugmenn fæli í sér
tvisvar sinnum 3% launahækk-
un fram til næstu áramóta.
Nýtt ákvæði kemur inn í þenn-
an samning, sem er það að Flug-
leiðir greiða afnotagjald af síma
flugmanna. Þá tókust samningar
um það á milli flugmanna og
Flugleiða að Flugleiðir greiði
þann skatt, sem lagður er á þann
hluta dagpeninga flugmanna,
sem er skattlagður.
Fjárhagsvandi húsbyggjenda vindur upp á sig:
Æ fleiri í vanskilum við
byggingarvörufyrirtækin
Fjárhagsvandi húsbyggjenda bitnar
nú verulega á byggingarvörufyrirtækj-
um og -framleiðendum. Stöðugt al-
gengara verður að viöskiptavinir þess-
ara fyrirtækja geti ekki staðið í skil-
um og eru dæmi um að það taki fyrir-
tækin allt að helmingi lengri tíma en
venjulegt er að innheimta útistand-
andi skuldir.
Þetta kom fram í viðtölum Mbl.
við forsvarsmenn nokkurra helstu
byggingarvörufyrirtækja Reykja-
víkursvæðisins í gær.
Þeim bar saman um, að ein helsta
orsök vaxandi vanskila sé sá drátt-
ur, sem orðið hefur á útborgun
byggingalána ríkissjóðs. „Þar er
uppspretta fjármagnsins og ef hún
þornar er það fljótt að hafa áhrif út
í þjóðfélagið," sagði einn.
Fasteignir úti á landsbyggðinni
hafa verið að lækka hægt og sígandi
í verði gagnvart samsvarandi eign-
um á höfuðborgarsvæðinu undan-
farin ár og eru jafnvel dæmi um að
verð á eignum sé aðeins 40 prósent
af því sem fæst fyrir sambærilega
eign í Reykjavík.
Sjá nánar og fasteigna- um
húsbyggingamál á bls. 4.