Morgunblaðið - 17.03.1985, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1985
41
ingu. Lífræn og brennanleg efni í
mó eru aðeins 40—45%, miðað við
þyngd.
Námagröftur
Á íslandi hefur námagröftur
lítt verið stundaður, enda er land-
ið fátækt af þeim verðmætum,
sem jafnan eru sótt í jörðu. Þó
hafa hér verið gerðar virðingar-
verðar tilraunir til námareksturs
og einu sinni hefur verið borað
eftir gulli, eins og frægt er orðið.
En snúum okkur nú að þeim stöð-
um helstum þar sem námavinnsla
hefur átt sér stað.
Silfurbergið við Helgustaði:
Allt frá því á 17. öld hefur silf-
urberg verið sótt í námu þá, sem
er skammt undan bænum Helgu-
stöðum við norðanverðan Reyðar-
fjörð. Náman hefur um aldir verið
talin ein besta sinnar tegundar í
heiminum, vegna tærleika silfur-
bergsins. Silfurbergið frá Helgu-
staðanámunni var notað í ýmis
nákvæm tæki, eins og smásjár.
Náman var nytjuð fram á þessa
öld, en þá var farið að nýta ýmis
gerviefni í stað silfurbergsins. ís-
lenskt silfurberg er til á flestum
steinasöfnum heims, en á erlend-
um málum er silfurberg jafnan
kennt við fsland og heitir t.d. á
ensku, Iceland Spar.
Surtarbrandsnám
Þegar líða tók á heimsstyrjöld-
ina fyrri hækkuðu vörur mjög í
verði og þótti verð á kolum hækka
fram úr hófi. Vegna þessa var
gripið til ýmissa úrræða og var
eitt þeirra að nema surtarbrand
úr jörðu, en honum svipar nokkuð
til steinkola, en brennslugildið er
líkt og hjá brúnkolum. Á þessum
árum var surtarbrandur unninn á
nokkrum stöðum, t.d. í Bolungar-
vík, Súgandafirði, Stálfjalli,
Skarðsströnd, Reyðarfirði, en
þekktustu og stærstu námurnar
voru á Tjörnesi.
Kolanámurnar á Tjörnesi voru
tvær, Hringversnáman, sem var
einkafyrirtæki, og Tungunáman,
sem rekin var af hinu opinbera.
Námurnar munu hafa þótt fremur
óaðlaðandi vinnustaður, en Theó-
dór Friðriksson lýsir staðnum svo
í bók sinni í verum:
„Óslétt er undir fótum og dimmt
í öllum göngum, þar til kveikt er á
lýsiskolum, sem reknar eru inn í
bergið á ýmsum stöðum um alla
námuna. Frá kolunum leggur mik-
inn reyk og sterkju, en lýsingin er
draugalegri en sjálft myrkrið.
Innst í námunni er hitasvækja og
þungt loft, en framan til er svo
mikil gufa, að varla sést handa-
skil, þó kveikt sé á öllum ljósum.
Það er svo mikill leki ofan úr loft-
inu, að menn verða að vera klædd-
ir olíustökkum til að verða ekki
gegndrepa, en á gólfinu safnast
saman stórar frostkúlur, sem öðru
hvoru verður að brjóta burtu til
þess að þær verði ekki fyrir vögn-
unum, sem renna á sporum.“
Haustið 1918 var öllum kola-
greftri hætt í Tjörnesnámum og
sjást nú engar menjar þessarar
atvinnugreinar, nema gjallhaugar
framan við námagöngin, sem fall-
in eru saman fyrir löngu. Ein-
hverntíma komst eldur i kolasor-
ann framan við göngin og er sagt
að þar hafi logað í tvö ár.
Kalknáman
í Esjunni
Að lokum ber að geta kalknámu
þeirrar í Esjunni, sem var í landi
Mógilsár í Kollafirði, en kalkið úr
henni var um árabil flutt til
Reykjavíkur og brennt þar.
Brennslan fór fram í ofni einum
miklum, sem stóð undir rótum
Arnarhóls, en Kalkofnsvegur
dregur einmitt nafn sitt af ofni
þessum.
Þeir sem einhverjar upplýsingar geta
veitt með myndum þeim sem hér eru
birtar, eru vinsamlegast beönir um
að hafa samband við Ljósmynda-
safnið í síma 17922, en þar eru slík-
ar upplýsingar þegnar með þökkum.
Freistandi páskatilboð
á Nordmende
myndbandstækjum
Nú áttu kost á
að eignast Nordmende myndbandstæki,
árgerð 1985,
á sérstökum páskakjörum:
Staðgreitt
39.980.-
GREIÐSLUKJÖR
*
Utborgun er kr. 8.000,- og eftirstöðvar greiðast á 8 mánuðum!
NORDMENDE er heimsþekkt gæðamerki.
Mjög góð reynsla af
NORDMENDE -tækjum á íslandi
skipar þeim í forystusveit.
••
Orugg þjónusta
Gott verð
Ending
Gæði
Skipholti 19. Revlgavlk, S
NORDMENDE