Morgunblaðið - 23.04.1985, Qupperneq 2
2________________
Þorsteinn Pálsson:
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Fulltrúi sjálf-
stæðismanna í þrí-
hliða viðræðum
ÞORSTEINN Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið
að hann mun fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins taka þátt í þeim þríhliða
viðræðum samningsaðila vinnu-
markaðarins og ríkisvaldsins sem
nú standa fyrir dyrum.
„Ég tilkynnti ráðherrum Sjálf-
stæðisflokksins þessa ákvörðun
mína sl. fimmtudag, og í dag
greindi ég þingflokknum frá þess-
ari ákvörðun,“ sagði Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, í samtali við blm. Mbl. í
gær, er hann var spurður hvenær
þessi ákvörðun hefði verið tekin.
Aðspurður hvort hann tæki þátt
í þessum viðræðum fyrir hönd
ráðherranna eða þingflokks
Sjálfstæðisflokksins: „Að sjálf-
sögðu er ég fulltrúi þingflokksins í
þeim viðræðum," sagði Þorsteinn,
„og að því er okkar flokk varðar,
þá fer þátttaka okkar fram á veg-
um þingflokksins."
Utgerðarfélag Akureyringa:
Gert við Hrímbak
fyrir 17 milljónir
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hefur nú ákveðið að ganga að til-
boði Stálvíkur hf. í Garðabæ í við-
gerð og endurnýjun á togara fé-
lagsins Hrímbak, áður Bjarna
Herjólfssyni, sem keyptur var af
Landsbankanum. Tilboð Stálvíkur
hljóðar upp á 17,1 milljón króna.
Gísli Konráðsson, annar fram-
kvæmdastjóra ÚA, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að veru-
legra viðgerða væri þörf áður en
skipið yrði hæft til veiða. Áætlað
er að viðgerð á Hrímbak ljúki
eftir 8 vikur og hann verði kom-
inn á veiðar um mánaðamót
júní-júlí. Ekki verða sett um
borð tæki til frystingar, heldur á
skipið að sjá frystihúsi ÚA fyrir
hráefni eins og önnur skip þess.
Tilboð í verkið bárust frá
tveimur aðiljum öðrum en Stál-
vík. Eftir samræmingu tilboð-
anna var tilboð Stálvíkur lægst
eða 17,1 milljón króna, næst var
þýzkt tilboð upp á 19,1 milljón og
loks tilboð frá Noregi upp á 22,4
milljónir.
Starfskjör bankastjóra ríkisbankanna:
Baldri Möller
falin úttekt
og tillögugerð
Matthías Á. Mathiesen, ráðberra
bankamála, befur falið Baldrí MölL
er, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, að
gera athugun á og meta starfskjör
bankastjóra ríkisbankanna. Jafn-
framt fól ráðberra honum að gefa
ábendingar um, hvernig þessum mál-
um verði bezt komið fyrir í framtíð-
iuL
Stjórnarfumvarp um viðskipta-
banka var til framhaldsumræðu í
neðri deild Alþingis í gær. Einstak-
ir þingmenn gagnrýndu launakjör
bankastjóra ríkisbankanna, eink-
um kaupauka í tengslum við fyrri
bílafríðindi og hlunnindi tengd eft-
irlaunagreiðslum, sem lúta allt
öðrum reglum um iðgjöld og starf-
stíma en hjá öðrum starfsmönnum
banka eða ríkisstofnana. Ráðherra
bankamála, Matthias Á. Mathie-
sen, greindi í umræðunni frá þvf,
að hann hefði falið Baldri Möller,
fyrrum ráðuneytisstjóra, að fara
ofan í þessi mál öll.
Sjá nánar á þingsíðu Morgunblaðs-
ins í dag, bls. 40.
Morgunblaöið/Guömundur Theódórs
Klakkur að veiðum í gærmorgun á bannsvæðinu umdeilda á Selvogsbanka um það leyti sem Landhelgisgæslu-
flugvélin TF-SÝN stóð hann að meintum ólöglegum veiðum.
Veiðar á friðuðum svæðum:
Bátar dæmdir
og togari tekinn
Bera fyrir sig frétt
Vestnunnaejjum, 22. aprfl.
FLUGVÉL Landhelgisgæslunnar,
TF-SÝN, stóð togarann Klakk VE-
103 að meintum ólöglegum veiðum
á Selvogsbankatá, eða svokölluð-
um „Tómasarbaga“, um klukkan
6.30 í morgun. Töldu landhelgis-
gæslumenn að togarinn hefði verið
að veiðum 1,3 sjómílur inni á af-
mörkuðu línu- og netasvæði sem
lokað er fyrir togveiðum frá 9. apr-
fl tfl 15. maí.
Skipstjóra togarans var skip-
að að hætta veiðum þegar í stað
og halda strax af stað til hafnar
í Vestmannaeyjum. Þar var mál
skipstjórans tekið fyrir hjá
Sakadómi Vestmannaeyja síð-
degis í dag.
Við rannsókn málsins kom það
fram hjá skipstjóra Klakks að
hann taldi sig hafa verið á lög-
legum veiðum, því til stuðnings
vitnaði hann í frétt Morgun-
blaðsins frá 27. mars sl. þar sem
skýrt var frá reglugerð sjávar-
útvegsráðuneytisins um þetta
ákveðna svæði, en fréttin hefur
reynst vera í ósamræmi við
reglugerð ráðuneytisins sem gef-
in var út þann 26. mars og birt í
Stjórnartíðindum. Skipstjórinn
taidi sig hafa fengið vissu fyrir
því að tölur í fréttinni um af-
mörkun svæðisins væru réttar í
Morgunblaðsfréttinni. Hann
vitnaði í þessu sambandi til
skipstjórans á Bergey VE sem
hafði símasamband við sjávarút-
vegsráðuneytið og taldi sig þar
hafa fengið það staðfest að um-
ræddar tölur væru réttar. Með
vísan til þessa kvaðst skipstjór-
inn á Klakki hafa verið í góðri
trú um að hann væri að lögleg-
um veiðum.
Rannsókn málsins lauk síð-
degis í dag og f kvöld gaf sak-
f Morgunblaðinu
sóknaraembættið út ákæru á
hendur skipstjóranum fyrir
ólöglegar veiðar í hólfi þar sem
dragnótaveiðar eru bannaðar.
Dómsuppkvaðningar er ekki að
vænta fyrr en á morgun, þriðju-
dag.
- hkj.
Ráðuneytið sagði
tölurnar réttar
Vegna ummæla skipstjórans á
Klakki hér að ofan, ræddi
Morgunblaðið við Sverri Gunn-
laugsson, skipstjóra á togaran-
um Bergey. Hann staðfesti þá að
hann hefði fengið upplýsingar
um það í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, að tölurnar í Morgunblaðinu
um afmörkun svæðisins væru
réttar.
Hann sagði það hafa verið í
vikunni fyrir páska, sem hann
talaöi við mann að nafni Stefán í
sjávarútvegsráðuneytinu. Hefði
það verið vegna þess, að menn
hefðu ekki verið fyllilega vissir
um hvernig skilja bæri frétt
Mbl. um lokun veiðihólfa eins og
„Tómasarhagans". Stefán hefði
sagt að hólfið lokaðist þann 9.
apríl en ekki 27. marz eins og
sumir höfðu haldið. Þá hefði
hann borið undir hann þær töl-
ur, sem í fréttinni voru um
markalínur og punkta vegna
hólfanna og Stefán sagt að þær
væru réttar. „Hann lofaði enn-
fremur, að koma reglugerðinni í
kvöldfréttir, en þar hefur ekki
heyrzt af henni enn. Eins og af-
mörkun svæðisins er sýnd í
Morgunblaðinu, kemur dágóður
fleygur inn í svæðið, þar sem
ágætis svigrúm er til togveiða,"
sagði Sverrir Gunnlaugsson.
Fimm bátar dæmdir
Morgunblaðið hefur einnig
aflað sér frétta af dómum , sem
kveðnir voru upp í vikunni eftir
páska yfir skipstjórum fimm
togbáta. Voru þeir dæmdir í
80.000 til 180.000 króna fjársekt
og afli þeirra og veiðarfæri gerð
upptæk vegna meintra ólöglegra
veiða á lokuðu netaveiðihólfi út
af Stafnesi þriðjudaginn 9. apríl.
Verjandi þeirra allra bar meðal
annars fyrir sig áðurnefnda
frétt Morgunblaðsins, sem hann
taldi veita rangar upplýsingar.
Var ekki tekið tillit til þeirra
raka á þeim forsendum að
stjórnartíðindi væri eini löggilti
birtingarstaðurinn fyrir reglu-
gerðir af þessu tagi. Ollum dóm-
unum hefur verið áfrýjað til
Hæstaréttar.
Skipstjórar bátanna töldu
frétt Mbl. gefa það til kynna, að
svæðinu yrði ekki lokað fyrr en
12 á hádegi fyrsta dag eftir
páska eins og hafði verið árið
áður, en ekki á miðnætti eins og
var í reglugerð ráðuneytisins.
Jónas Haraldsson, hdl. var verj-
andi skipstjóra bátanna fimm.
Hann sagðist í samtali við Morg-
unblaðið fullviss um það, að
skipstjórar bátanna hefðu ekki
brotið gegn reglugerðinni vísvit-
andi. Þeir hefðu farið eftir frétt
Morgunblaðsins og ennfremur
hefði það haft sín áhrif, að ráðu-
neytið hirti ekki nægilega vel um
að kynna reglugerðina og þá
breytingu, sem á henni hefði
orðið frá siðasta ári. Taldi hann
ráðuneytið verða að nýta sér þá
möguleika, sem mestum árangri
skiluðu, Tilkynningaskylduna og
talstöðvasamband, til að koma
upplýsingum til skipstjórnar-
manna. Stjórnartíðindi sem eini
löggilti birtingarstaðurinn dygði
hvergi.
Á jeppum yf-
ir Vatnajökul
NÍU Keflvíkingar fóni á laugardaginn
sl. á fjórum jeppum yfir Vatnajökul,
fri Jökulheimum að vestan og niður í
kverkina við Eyjabakkajökul. Er
þetta í fyrsta skipti svo vitað sé, að
ekið er á bifreiðum yfir þveran Vatna-
jökul.
Tveir félaganna, Guðjón Ómar
Hauksson og Sævar Reynisson,
sögðu í samtali við Morgunblaðið að
ferðin hefði verið í undirbúningi í
um það bil eitt ár og hefðu ferða-
langarnir verið vel útbúnir og gætt
þess að flana ekki að neinu, enda
hefðu þeir, sem stjórnuðu leiðangr-
ínum, margra ára reynslu í fjalla-
ferðum að vetrarlagi. Lagt var upp
frá Jökulheimum um klukkan 6.00
að morgni laugardags, ekið á Há-
bungu og um Grímsvötn og þaðan á
Breiðubungu og komið niður I
kverkina á milli Brúarjökuls og
Eyjabakkajökuls um klukkan 18.00
um kvöldið.
Að sögn þeirra félaga var ferðin
ævintýri líkust enda bjart og fagurt
veður allan tímann. Meðfylgjandi
mynd tók sá yngsti í hópnum, Sig-
urður Haukur Guðjónsson, 16 ára, á
Breiðubungu.