Morgunblaðið - 23.04.1985, Page 14
14
MORGUNBLAÐID, ÞRIDJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Egilsstaðin
Undirbúningi
Héraðsvöku lokið
Egilastödum, 21. aprfl.
STJORN Menningarsamtaka
Héraðsbúa hefur verið önnum
kafin að undanförnu við að undir-
búa árlega Héraðsvökuhátíð sem
haldin hefur verið um sumarmál
ár hvert hér á Egilsstöðum. Undir-
búningi er nú lokið og hefst Hér-
aðsvakan á fimmtudag, sumardag-
inn fyrsta, og lýkur á sunnudag,
28. apríl.
Héraðsvakan hefst að þessu
sinni með opnun ljósmyndasýn-
ingar — er Safnastofnun Aust-
urlands hefur veg og vanda af.
Ljósmyndirnar eru úr Ljós-
myndasafni Austurlands og
verður sýningin opin alla daga
Héraðsvökunnar. Henni verður
fyrir komið í anddyri Vala-
skjálfar.
Á sumardaginn fyrsta efnir
Karlakór Fljótsdalshéraðs til
söngskemmtunar í Egilsstaða-
kirkju. Stjórnandi karlakórsins
er Árni ísleifsson en undirleik-
ari David Knowles. Að kvöldi
sumardagsins fyrsta verður síð-
an sérstök unglingavaka í Vala-
skjálf — þar sem grunnskóla-
nemendur á Fljótsdalshéraði
munu annast skemmtiatriði.
Á föstudag verður sérstök
dagskrá í Valaskjálf er brott-
fluttir Héraðsbúar munu ann-
ast. Má þar til nefna Hákon Að-
alsteinsson, Silju Aðalsteins-
dóttur, Þórhall Guttormsson og
Jón Steinar Jónsson.
Á laugardag verður dagskrá í
Valaskjálf í revíu-stíl. Þar mun
Lúðrasveit Tónskóla Fljótsdals-
héraðs koma fram, þjóðdansa-
flokkurinn Fiðrildin og galvask-
ir harmonikkuleikarar auk stór-
leikara úr Leikfélagi Fljótsdals-
héraðs. Að dagskrá lokinni verð-
ur almennur dansleikur í Vala-
skjálf.
Héraðsvöku mun síðan ljúka á
sunnudag, 28. apríl, með
dagskrá kl.16 — þar sem endur-
tekin verða ýmis atriði undan-
genginna daga.
— Ólafur
Doktorsvörn við
verkfræði- og
raunvísindadeild
DOKTORSVÖRN fer fram vió
verkfræði- og raunvísindadeild
Háskóla íslands laugardaginn 27.
aprfl nk. Páll Imsland jarðfræó-
ingur mun þá verja ritgerð sína
„Petrology, Mineralogy and the
Evolution of the Jan Mayen
Magna System“ til doktorsnafn-
bótar í raunvísindum.
Andmælendur af hálfu verk-
fræði- og raunvísindadeildar
verða Peter Baker, prófessor í
jarðvísindum við háskólann í
Nottingham, og prófessor, dr.
Sigurður Steinþórsson. Deild-
arforseti verkfræði- og raunvís-
indadeildar, prófessor, dr. Þor-
leifur Einarsson stjórnar at-
höfninni.
Doktorsvörnin fer fram í há-
tiðarsal háskólans og hefst kl.
14. Öllum er heimill aðgangur
segir í frétt frá Háskóla Is-
lands.
Snæfellsnes og Dalir:
Gefa öllum kirkjum í
prófastsdæminu sálmabækur
Saurbæ, 20. apríl.
NÝLEGA hefur Gísli Sigur-
björnsson forstjóri á Elliheimilinu
Grund í Reykjavík ákveðið að færa
kirkjum í Snæfellsness- og Dala-
prófastsdæmi, en þær eru 26 að
tölu, sálmabækur að gjöf, 620 tals-
ins, og kemur það sér mjög vel, þar
sem víða var viðbótar þörf og i
sumum tilfellum höfðu kirkjurnar
ekki áður eignast nýju útgáfuna
frá 1975. Hér er um sérlega góða
gjöf að ræða og eru gefanda fluttar
alúðarþakkir fyrir hlýhug hans og
stuðning við kirkjulegt starf með
þessari góðu gjöf, og jafnframt er
þess minnst, að þetta framtak er þó
aðeins liður í margvíslegri viðleitni
hans til að styrkja kirkjur og söfn-
uði víða um land.
UH
Fiskverkendur
— útgerðarmenn
Útvegum til afgreiöslu strax eftirfarandi notaöar vólar
til fiskverkunar:
ATLAS VD740 ísvél, sem framleiöir 20 tonn á dag.
SABROE ísvél, sem framleiöir 40 tonn á dag.
Lárétt „Jackstone“ frystitæki fyrir fiskiskip (20 stööva),
notuö.
Lárótt „APV“ frystitæki fyrir fiskiskip (30 stööva), not-
uö.
Arenco roðflettivélar.
Verö mjög hagstætt.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Sjávarvörur hf.
Bergþórugötu 21,
símar 26204 — 26280.
Morgunblaðid/Július
Peysufatadagur í
V erslunarskólanum
Peysufatadagur var haldinn í
Verslunarskólanum í fyrri viku
með hefðbundnum hætti. Nem-
endur fjórða bekkjar mættu
prúðbúnir í skólann, stúlkurnar í
upphlutum og peysufötum og
drengirnir kjólfötum með pípu-
hatta á höfði. Gengu nemendur
síðan í fylkingu um bæinn með
blóm í barmi og kættu vegfar-
endur með söng sínum. Þá var
tekið lagið fyrir utan Stjórnar-
ráðið, Alþingi og Kvennaskólann
og að síðustu sungið fyrir vist-
menn á Elliheimilinu Grund.
Peysufatadeginum lauk með
dansleik á Hótel Sögu um kvöld-
ið.
Þrátt fyrir að tískan sé frá annarri ðld en stúlkurnar verður því ekki neitað að vel fer saman æskufegurðin og
þjóðbúningurinn.
í
Hvort stúlkurnar hafa komizt í kast við lögin skal ósagt látið, en ekki virðist vörður laganna er ræðir við þær
strangur á svip.