Morgunblaðið - 23.04.1985, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Morgunblaðið/Ámi S*berg
Þröstur ÞórhullssoD, skólaskák-
meisUri Reykjavíkur 1985 f eldri
flokkL
Skólaskák-
móti lokið
SKÓLASKÁKMÓTl Reykjavíkur er
nýlokió. Keppendur voru um 710 að
tölu í tveimur flokkum, um 180 í
eldri flokki, þ.e. 7.-9. bekk grunn-
skólans og um 530 í yngrí flokki, þ.e.
1—6. bekk.
Úrslit urðu þau að skólaskák-
meistari Reykjavíkur í eldri flokki
varð Þröstur Þórhallsson, Hvassa-
leitisskóla, með 8'A vinning, í 2.
sæti varð Tómas Björnsson,
Hvassaleitisskóla, með 6V4 vinn-
ing og I 3. sæti varð Baldur A.
Kristjánsson, Laugalækjarskóla,
með 6V4 vinning.
Þröstur Árnason, skólaskákmeistari
Reykjavíkur 1985 í yngrí flokki, er
til hægri á myndinni að tafli við
Andra Björnsson, Austurbæjarskóla.
Þröstur vann skákina og tryggði sér
yfirburðasigur í yngrí flokki, fékk
m vinning af 9 mögulegum.
í yngri flokki varð Þröstur
Árnason, Seijaskóla, skólaskák-
meistari Reykjavíkur með 8'A
vinning, í 2. sæti varð Hannes H.
Stefánsson, Fellaskóla, með 7
vinninga og í 3. sæti Sigurður D.
Sigfússon, Seljaskóla, með 7 vinn-
inga.
Tveir efstu piltarnir í hvorum
flokki komast áfram á landsmót
skólaskákar, sem fram fer í Al-
þýðuskólanum á Eiðum dagana
25.-28. april nk.
Hljómleikar
í Neskirkju
„HAF í DROPA“ nefnast hljómleik-
ar sem haldnir verða í Neskirkju
miðvikudagskvöldið 24. apríl og
hefjast kl. 20.30. Bera tónleikar
þessir yfirskriftina „Eitt mannlegt
samfélag, kærleikur, skilningur, um-
burðarlyndi".
f fréttatilkynningu frá forráða-
mönnum hlómleikanna segir að
þar verði flutt trúartónlist frá
ólíkum menningarsamtökum.
Flutt verður frumsamin íslensk
trúartónlist eftir Bergþóru Árna-
dóttur og Jónas Þóri, indverskur
jógi syngur indverska trúartónlist
ásamt litlum sönghóp og flutt
verða verk eftir J.S. Bach í nýjum
búningi. Á milli tónlistaratriða
verða lesin stutt stef úr ýmsum
helgiritum mannkyns, tengd yfir-
skrift tónleikanna og lesin verða
upp ljóð Sigvalda Hjálmarssonar.
Umsjón með tónlistarflutningi
hefur Jónas Þórir en ásamt hon-
um spila þeir Graham Smith,
Bjarni Sveinbjörnsson og Stefán
Jökulsson, að því er segir í frétta-
tilkynningu.
Vindur í stað kjarnorku
— eftirPétur
Pétursson
Sænski orkumálaráðherrann
Birgitta Dahl lagði fyrir nokkru
fram frumvarp að langtímaáætl-
un í orkumálum. Þar er gert ráð
fyrir að öll kjarnorkuver verði
lögð niður ekki síðar en árið 2010
og er það í samræmi við ákvörðun
er sænska þingið hafði áður tekið.
Ekki eru samt allir á eitt sáttir
um hvernig að þessu skuli standa
og enn síður hvað eigi að koma i
staðinn fyrir þau 12 kjarnorkuver
sem nú eru í notkun. Það er stórt
fjárhagslegt og þjóðhagslegt at-
riði hvenær á tímabilinu fram að
2010 kjarnorkuverin verða lögð
niður. Hér kemur einnig til álita
hvernig túlka beri niðurstöður
þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu
sem fram fór árið 1980 um tilvist
kjarnorkunnar sem orkugjafa í
Svíþjóð.
Þegar þjóðaratkvæðagreiðslan
fór fram hafði afstaðan til kjarn-
orkunnar verið eitt aðaldeilumálið
í stjórnmálunum um árabil. Af-
staðan til málsins fór ekki eftir
flokkslínunum og foráðamenn
flokkanna tóku það ráð að lokum
að vísa málinu til úrskurðar þjóð-
arinnar til að skera á þann póli-
tíska hnút sem málið var komið í.
Flokkarnir voru að nafninu til 1
forsvari fyrir ákveðnum leiðum úr
vandanum. Á bakvið leið 1 stóð
forysta Móderataflokksins
(íhaldsflokksins) sem vildi að þau
kjarnorkuver sem í notkun væru,
og þau sem hafin væri bygging á,
skyldi nota og reka samkvæmt
áætlun. Þessi leið fékk 18,9%
greiddra atkvæða. Sósíaldemó-
kratar og frjálslyndir stóðu að leið
2 sem einnig vildi að kjarnorku-
verin tólf yrðu rekin áfram, en að
þau yrðu tekin úr umferð fyrr en
leið 1 gerði ráð fyrir eða ekki
seinna en eftir 25 ár. Þessi leið
gerði einnig ráð fyrir að orkuverin
yrðu eign þjóðarinnar, þ.e.a.s.
yrðu þjóðnýtt. Þessi stefna fékk
39,1% greiddra atkvæða. Þriðja
leiðin, stutt af Miðflokknum,
kommúnistum og kristilegum
demókrötum, fól í sér að hætt yrði
tafarlaust við byggingu allra
Birgitta Dahl orkumálaráðherra
Svía hefur lagt fram ítarlega fram-
tíðaráætlun í orkumálum.
nýrra kjarnorkuvera og þau sex
sem í notkun voru þá skyldu lögð
niður innan 10 ára. Þessi leið (sem
töluvert margir jafnaðarmenn
studdu opinberlega) fékk 38,7%
fyigí-
Öryggid stærsta
vandamálið
Áætlun orkumálaráðherrans
tekur ekki fram hvenær á tímabil-
inu fram að 2010 kjarnorkuverin
verði lögð niður og ekki ( hvaða
röð. Það á að ákvarðast af öryggis-
þættinum sem hefur verið aðal-
málið í þessari umræðu frá byrj-
un. Ráðherrann bendir á að fram-
farir á þessu sviði hafi orðið og að
taka verði tillit til þeirra niður-
staðna semn vænta megi f fram-
tíðinni af rannsóknum þeim sem í
gangi séu. Eins og niðurstöður
þjóðaratkvæðagreiðslunnar sýna
er töluvert stór hluti þjóðarinnar
algerlega á móti kjarnorku sem
orkulind. Þessi hópur sem mikið
bar á seinni hluta áttunda áratug-
arins var i raun þess valdandi að
málið varð tekið upp til þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Hann hefur
mestar áhyggjur af slysa- og
mengunarhættu. Talsmenn þess-
,.1>AD ERIBM S/36 OG PC AÐ
ÞAKKA AÐ VÖRUBIRGÐIR
OKKAR ERU ÁKJÓSANLEGAR“
Kristinn Jörundsson, Hildu hf.
„Ef þú þarft að geyma 600 vörutegundir í
1—6 stærðum frá 30 framleiðendum ullar-
vara er þér vandi á höndum nema þú getir
treyst tölvunni þinni og starfsliði.“
„Hér hjá Hildu tölum við um „biblíuna okkar“. Hún er hjálpar-
gagnið okkar við stýringu á framleiðslu og ein meginforsenda þess
að framhald verði á vexti síðustu ára. Sjáðu til, hérna hjá Hildu not-
um við ekki aðeins IBM tölvur við fjárhagsbókhald, viðskiptamanna-
bókhald, lagerbókhald og launabókhald (þetta er hvort eð er nokkuð
sem sérhver tölva ætti að geta leyst nú á tímum). Nei, sem ég segi,
mergur málsins er „biblían44 sem við fáum frá S/36 og vinnum áfram
í PC vinnustöðvunum okkar. Þannig fáum við fullkomna mynd af öll-
um pöntunum fram á daginn í dag. Jafnframt veitir hún okkur ná-
kvæmar upplýsingar um vörubirgðir og allt sem við eigum von á að
fá afhent næstu þrjá mánuði.“