Morgunblaðið - 23.04.1985, Síða 21
21
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Vindmyllum hefur þegar yeríA komiA upp f tilraunaskynL
ara hluta telja i raun allt tal um
öryggi í návist kjarnorku vera út í
hött hvað sem öllum rannsóknum
líður. Margt af þessu fólki vill
heldur ekki fórna þeim ám sem
ósnertar eru fyrir virkjanir. Nú
eru aðeins eftir fjórar stórar ár í
Norður-Svíþjóð óhreyfðar. Gróf-
lega reiknað má segja að hver um
sig geti framleitt álíka mikið raf-
magn og eitt kjarnorkuver. Vinir
hins óbeislaða vantsafls eru þess
albúnir að verja þessar ár fyrir
ágengni virkjanamanna.
Ut í veður og vind
Langtímaáætlun gerir ekki ráð
fyrir að auka innflutning á olíu
því sem nemur orkuframleiðslu
kjarnorkuveranna sem lögð verða
niður. Ráðherrann vill aftur á
móti að sólarorkan verði nýtt í
auknum mæli svo og kol.
Gert er ráð fyrir nokkurri aukn-
ingu í nýtingu vatnsorku, en
stærstu vonirnar virðist hún þó
binda við vindorkuver eða vind-
myllur í stórum stíl. Þeim á að
koma fyrir á Skáni, vesturströnd-
inni, og Gotlandi þar sem vinda-
samt er alla jafna.
Forsvarsmenn orkuvera og
orkufreks iðnaðar eru svartsýnir á
að vindorkuver myndu fullnægja
orkuþörf landsins í framtíðinni.
Þeir benda á að þær vindmyllur
sem settar hafa verið upp nú þeg-
ar í tilraunaskyni geri vart betur
en standa undir rekstrarkostnaði.
Þeir halda því fram að kjarnorkan
sé ódýrasti og öruggasti orkugjaf-
inn og benda á útreikninga máli
sínu til stuðnings.
Nu þegar hefur 270 milljónum
sænskra króna verið veitt til til-
rauna með vindorkuver. Ráðherr-
ann vill að orkuframleiðendur og
iðnaðurinn taki á sig aukna byrði í
sambandi við þessar tilraunir i
framtíðinni, en undirtektir hafa
enn sem komið er verið dræmar.
Ráðherrann bendir ennfremur á
að bygging og rekstur vindorku-
vera krefjist meira vinnuafls en
núverandi orkuframleiðsla og
þetta komi til með að hafa jákvæð
áhrif í atvinnumálum.
Ef svo fer sem orkumálaráð-
herrann vill munu íbúar Skáns og
Gotlands innan fárra ára sjá vind-
myllur rísa hér og hvar úr flötu
landslaginu. Ekki virðast þær þó
eins rómantískar ásýndum og píl-
viðartrén sem prýða akurlendið og
standa víða eins og vörður með-
fram vegum. Fólk sem þegar hefur
fengið vindmyllur í nágrenni við
sig kvartar undan sífelldum hvin
og skruðningum.
Höfundur er fréttamaður Mbl. í
Lundi. Svíþjóð.
,,Vöxtur fyrirtækisins hefur verið skjótur
síðustu árin. . .“
Kristinn: „Og það væri ógerlegt að reka fyrirtækið án tölvunnar mið-
að við núverandi. umsvif. Tökum útflutninginn sem dæmi. Allur út-
flutningurinn fer í gegnum tölvuna. Við notum IBM PC sem skjástöð
og einnig notum við Lotus 1,2,3 töflureikni. Hámarksskilvirkni náum
við með fjarvinnsluskjástöð og símasambandi, fasttengdri línu. Nú
erum við að skoða þess háttar samband við útlönd.“
"■„Eins og margir aðrir útflytjendur eigum
við allt okkar undir þvi að veita góða þjón-
ustu.“
„Réttar vörur á réttum tíma eru lykilorðin,11 segir Kristinn og heldur
áfram: „Það er geysilega mikilvægt að geta séð fyrir að þetta sé unnt,
geta síðan fylgt þessu eftir og séð hvort hægt sé að standa við þetta.
IBM PC tölvurnar okkar eru notaðar til að fylgjast með tölfræðileg-
um upplýsingum um sölu erlendis þ.e. hvaða vörur seljast best (gerðir,
litir, stærðir) á hvaða tíma selst best, hvernig breytast hlutföll á stærð-
arskiptingu eftir svæðum og milli ára. Þessar upplýsingar eru sífellt
sendar fram og til baka, milli verslana erlendis og aðalskrifstofunnar
okkar. Og þessar nákvæmu upplýsingar, sem IBM tölvukerfið flytur
i og vinnur úr, tengjast beint framtíðarsölu okkar.“
Helmingur starfsliðs Hildu vinnur nú við
IBM tölvurnar. Svo er IBM skólanum fyrir
að þakka.
Hilda hefur sent flest starfsfólkið á námskeið og IBM skólinn hefur
borgað sig vel í vinnu. Þetta var bráðnauðsynlegt til að flýta því að
tölvan kæmist í gagnið. Flestir fóru á almenna námskeiðið, á tölvu-
kynningu. Þeir sem vinna við tölvuna sjálfa fóru á námskeið í stjórn-
kerfum, vélstjórn og notkun á tölvuverkefnum.
Mennskari heimur
Kemur þú auga á fimm
meginástæður þess
að Hilda hf valdi IBM?
A) Reynslan af IBM var góð almennt. B) IBM er þekkt fyrir að veita
góða viðhaldsþjónustu. QHilda hf. hafði keypt 4 skjástöðvar og 3
prentara frá IBM. D) IBM tölvur voru þekktar fyrir að hafa hæst
endursölugildi allra ef nauðsyn krefði. E) Hilda leitaði eftir sam-
vinnu við þekkt og traust fyrirtæki. F) Hilda hf. hafði ágæta reynslu
af S/34 og S/38 úr fjarvinnslunni. G) öll fjarvinnsla með IBM hafði
gengið vel. H) Hilda hf. gat reitt sig á tölvuuppbyggingu með IBM
í framtíðinni. I) IBM vörur eru ávallt í hæsta gæðaflokki. J)Upp-
lýsingastreymi frá IBM hafði gefið góða raun — allt frá sviði hugbún-
aðar til vélbúnaðar. K)Allar framleiðsluvörur IBM eru aðhæfðar
notandanum — vinnuhollar og auðveldar í notkun jafnvel þótt unnið
sé lengi í einu.
Velkomin í mennskari heim.
I------------------ ---------------------------------------------------1
Já takk. Mig langar til að vita meira um IBM leiðina til að betur
vinnist með líðan starfsfólks að leiðarljósi. Vinsamlegast
___ hafið samband við mig vegna sýnikennslu
___ sendið mér upplýsingar um:
___ IBM PC ____ IBM S/36 ____ IBM S/38
___ IBM PC AT ____________ IBM S/34 ____ IBM skólann
Nafn og starfsheiti: ___________________________________________
Fyrirtæki: _______________________________________________-
Heimilisfang:
Sími:.
Sendist til: IBM á íslandi, Skaftahlíð 24, Reykjavík.
Nemendur Revkhólaskóla:
Syntu 30
kílómetra
í þágu
skóla-
ferðalags
RejkbóUsreit, 19. aprfl.
í GÆR stóA nemendaráð Reykhóla-
skóla fyrir 30 kflómetra sundi í
sundlaug skólans. 30 nemendur
syntu á 4 brautum undir eftirliti
Skúla Einarssonar, kennara. Vega-
lengdin var synt á tæpum þremur
klukkustundum. Sá, sem synti
lengst, synti 1.800 metra en aórir
höfðu mismunandi langa sund-
spretti.
Áður en sundið hófst gekk nem-
endaráð milli húsa á Reykhólum
og safnaði áheitum og söfnuðust
um 8.000 krónur. Þær fara í ferða-
sjóð 7. 8. og 9. bekkjar skólans. í
vetur hefur nemendum tekizt að
safna í ferðasjóð sinn um 40.000
krónum og munu þeir ætla að fara
til Vestmannaeyja í sumar. Nem-
endaráð Reykhólaskóla skipa:
Gústaf Ólafsson, Reykhólum,
formaður, Margrét Ólafsdóttir,
Reykhólum, gjaldkeri og Guðrún
Hallgrímsdóttir, Skálanesi, ritari.
Meðstjórnendur eru þau Eyþór
Jónasson, Reykhólum og Inbjörg
Reynisdóttir, Króksfjarðarnesi.
Skólastjóri Reykhólaskóla er
Hugo Rasmus.
Sveinn
Bandalag jafnaðarmanna:
Alyktar gegn
lífeyrisgreiðsl-
um „toppanna“
ÞINGFLOKKUR Bandalags jafnað-
armanna hefur sent frá sér ályktun
um lífeyrisgreiðslur bankastjóra og
fleiri. Ályktunin er svohljóðandi:
„í Helgarpóstinum fimmtudag-
inn 18. apríl er enn ein staðfesting
þeirrar siðlausu misnotkunar
stjornmálamanna á trúnaði kjós-
enda, sem einkennir það banana-
lýðveldi sem landið er orðið.
Ofan á bílafríðindi njóta topp-
arnir margfaldra lífeyrisgreiðslna
úr öllu samræmi við kjör annarra
launþega. Hvers vegna þögðu full-
trúar kerfisflokanna um lífeyr-
issvindlið þegar þeir fordæmdu
bankaráðin sín vegna bílafríðind-
anna? Hverja ætlar Alþýðuflokk-
urinn að reka vegna þessa máls?
Það er engin tilviljun að þing-
menn og flokksbroddar hafa
hreiðrað um sig í þessum embætt-
um og það er heldur engin tilvilj-
un að kerfisflokkarnir þegja. Þeir
eru allir sekir. Það er ekki til
neins að skella skuldinni á menn
úti í bæ, sökin er Alþingis en þing-
menn hafa notað aðstöðu sína og
trúnað kjósenda til þess að skapa
sér þægilegar aðstæður að hverfa
að þegar kjósendur hafna þeim.
Það er ekki til neins að skipta
um menn. Þjóðin verður að kalla
kerfisflokkana til ábyrgðar og
taka af þeim það andstyggilega
leikfang sem þeir hafa gert sér úr
stjórnkerfinu."
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!