Morgunblaðið - 23.04.1985, Síða 26
æi jih<ta ks fliJOAqm.qia»t ,ordA wwjdhom
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
jficfHjflýr
. essííses***1
3S5if$fe58fi&ssí,
^Hár/ð greiöist og leggst
* HÍrtó s'á e,ðslufroðunn/genr
* slrstöX-^nng^a gefur Þv, g/ans.
I hárið vrðra ejnföld og fljótteg 'e'ð
Hlg^ ^ap^faltega hárgrerðslu J
*!££S?°b *var sem e I
Heildsölubigrðir:
Halldör Jónsson hf. Dugguvogi 8-10, 104 Reykjavík sími:686066
Syngja
englarnir?
— eftir Einar J.
Gíslason
Syngja englarnir? var fyrir-
sögnin í greinarflokki „Svar mitt“
eftir Billy Graham, 17. apríl. Und-
irritaður vill nota tækifærið og
þakka þessa mjög ágætu þætti.
Sýna þeir styrkleik Morgun-
blaðsins fram yfir önnur blöð. Svo
markvissir eru þeir, svörin skýr og
greinargóð. Hafa þau orðið mörg-
um til hjálpar í andlegum efnum.
Þakka ég Morgunblaðinu heils-
hugar.
Mikið liggur til grundvaliar
fyrir hæfni Billys Graham í and-
legum málum. Eg heyrði fullyrt á
erlendri grund, það sem diplómat-
ar og pólitíkusar gátu ekki komið
með málefni til lausnar fyrir for-
seta sinn og ríkisstjórn Bandaríkj-
anna. Þá gat Billy Graham skapað
þann „goodwill" með samkomu-
herferð í Búdapest, að lausn varð
og þýða, sem varð til blessunar
fyrir bæði löndin.
Sjálfur gerði ég mér ferð fyrir 8
árum til Svíþjóðar og hlustaði á
þennan mikilhæfa prédikara í 14
kvöld í einu stærsta samkomuhúsi
Gautaborgar, Scandinavium, sem
rúmar 15 þúsundir manna. Þarna
stóð Billy Graham og heillaði allt
þetta mannhaf kvöld eftir kvöld.
Það verður mér ógleymanlegt.
Ég hefi í höndum mínum bók
eftir Billy Graham, sem heitir
„Angels: Gods Secret Agents".
Bókin hefir komið út i sænskri
þýðingu og heitir „Ánglar Guds
hemliga agenter". Inter Skrift
förlag AB 1976. Herrljunga. Fljótt
sagt, þá er sú bók eitt það allra
besta, sem hægt er að lesa um
engla. Bókin er skrifuð af þekk-
ingu og mikilli nákvæmni við
Heilaga ritningu.
Mér kom það sannarlega á óvart
hve „Svar mitt“ um englasöng
geigaði. Hvað segir Ritningin?
Hún segir ákveðið að englarnir
syngi. Lesum Job. 38.7. versið: „Þá
er Morgunstjörnurnar sungu
gleðisöng allar saman, og allir
guðs synir fögnuðu." Skýring neð-
anmáls í Biblíuútgáfu 1981. Hér er
í skáldlegu máli notuð mynd
„hinnar himnesku hirðsveitar".
Guðssynirnir merkja sveitir engla
á himnum er standa umhverfis
hásæti Guðs. Þessi útskýring er
samkvæm Biblíu Aulens sem var
útgefin í Stokkhólmi 1873. Þegar
því spurt er hvort Biblían taki
fram með englasöng, þá er svarið
jákvætt. Staðurinn er Job. 38.7.
„Heyra má himnum í frá. Englasöng.
„Allclújá."
FriAur á jörðu því faðirinn er.
Fús þeim að líkna sem tilreiðir sér.
Samastað syninum hjá.“
St. Egilsson.
Höfundur er forstöðumaður Fíla-
delfíusafnaðarins í Reykjarík.
Tillögu vísað til stjómar Eimskips:
Korpúlfsstaðir veröi dvalar-
heimili fyrir aldraða starfsmenn
Á AÐALFUNDI Eimskipafélags Is-
lands lagði Árni Jón Jóhannsson fram
tillögu þess efnis að Eimskip leitaði
eftir því við borgaryfirvöld að hafa
makaskipti á Skúlaskáia við Skúlagötu
og Korpúlfsstöðum með það fyrir aug-
um, að breyta húsunum á Korpúlfs-
stöðum í dvalar- og hvíldarheimili fyrir
aldraða starfsmenn, sem hættir eru
störfum vegna aldurs, sem og hluthafa
sem vilja dvelja þar í ellinni.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, sagði m.a. í umræðu um
tillöguna, að eldri starfsmenn fé-
lagsins væru ails góðs maklegir en
hins vegar væri það ekki á færi fé-
lagsins að hafa frekari umsvif með
lífeyrismálum starfsmanna. En
vegna möguleika á nýrri uppbygg-
ingu við Skúlagötu teldi hann rétt að
vísa tillögu Árna Jóns Jóhannssonar
til stjórnar félagsins og var sú til-
laga samþykkt án mótatkvæða.
H&\m er' w
'ftjc $>1$
6.-17. maí
kl. 1830 — 2 1 00
Gríska
Spænska
Franska
ítalska
Ert þú eins og ómálga barn í útlöndum?
20. - 31. maí
kl. 1830 —2100
Serb-króatíska
Pýska
Enska
Danska
ATHUGIÐ:
Mélaskóiinn Mfmir
er fluttur í
nýtt 03 3»æsile3t
húsnaeöi aó
Ánanaustum 15.
Vel heppnuð ferð er ekki sjálfsögð. Það þarf undirbúning til. Ferðanámskeið
Mímis eru sérsniðin fyrir ferðamanninn. Við kennum tungumál og hagnýta
ferðafræði. Markmið okkar er að þú lærir að bjarga þér á tungumálinu við
sem flestar aðstæður. Jafnframt færðu innsýn í líf og hugsunarhátt þjóðar-
innar sem þú heimsækir.
Innritun í símum
I00G4og 21655.
Hjón
03 systkini
fá 20% afslátt
á öll námskeið Mímis
svo 03 allir félajsmenn
Stjórnunarfélass Islands.
Viö bjóöum upp á kennslu í ensku, þýsku, dönsku,
frönsku, spænsku, ítölsku, serb-króatísku og grísku, —
átta tungumál — átta þjóölönd.
Ferðanámskeið Mímis er gott veganesti.
MALASKOLINN
Ananauslum 15