Morgunblaðið - 23.04.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRlL 1985
27
Hjólið varlega —
akiö varlega
Langflestir þátttakenda eru
börn á skólaaldri, en allir eru
hvattir til að vera með ef þeir
mögulega geta og leggja jafnframt
góðu málefni lið. Hjólað verður
frá skólum úthverfa og nágranna-
bæja höfuðstaðarins og þaðan á
Lækjartorg þar sem tekið verður á
móti söfnunarfénu. í Mosfellssveit
verður einnig hjólreiðadagur Hkt
og í fyrra.
Umferðarlögreglan verður að
venju öll af vilja gerð að aðstoða
og koma í veg fyrir óhöpp. Hjól-
reiðafólk og fólk á ferð í bílum
sínum er áminnt um að fara með
gát. Auðvitað verða hjól að vera í
lagi og best er að halda hópinn.
Ekkert liggur á.
Á Lækjartorgi verður sitthvað
til skemmtunar og á heimleiðinni
verður þess gætt af fremsta megni
að ekkert fari úr skorðum. Um
kvöldið má þess vænta, að margir
stuttfættir velgerðarmenn gangi
lúnir til náða, en vonandi lofa þeir
daginn.
Látum hjólreiðadaginn heppn-
ast að öllu leyti, stuðlum að góðri
skemmtun og tilbreytingu, hollri
útivist og áreynslu. Sýnum þeim
rausn sem ætla að hjóla í þágu
þeirra sem geta ekki hjólað, svo að
hinir síðarnefndu geti sem fyrst
notið stærri og betri húsakynna og
útivistar í Reykjadal í Mosfells-
sveit.
Höfundur er reðurfræóingur og
befur rerió í framkræmda- og eft-
irlitsnefndum bins árlega bjól-
reiðadags frá byrjun 1980.
Fimmti hjól-
reiðadagurinn
— eftir Þór
Jakobsson
Á laugardaginn 27. apríl nk.
verður hinn árlegi hjólreiðadagur
á vegum Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra. Kvennadeild félagsins
skipuleggur daginn og vinnur nú
að framkvæmd hans í samvinnu
við skólastjóra og kennara, um-
ferðarlögreglu, bílstjóra strætis-
vagna og sendibíla o.fl. Síðast en
ekki síst ber að nefna samvinnuna
við skólabörnin í grunnskólum á
Reykjavíkursvæði og í Mosfells-
sveit, en þau safna nú fégjöfum
meðal almennings til styrktar
góðu málefni.
{ kvennadeildinni eru aðallega
mæður fatlaðra barna og er þetta
í annað sinn sem deildin sér um
skipulagninguna. Deildin tók við
stjórn dagsins af Sigurði Magn-
ússyni, sem til skamms tíma var
framkvæmdastjóri styrktarfé-
lagsins og sá hann um fram-
kvæmd þriggja fyrstu hjólreiða-
daganna. Það er því fimmti hjól-
reiðadagurinn, sem nú stendur
fyrir dyrum.
Vinnunefnd kvennadeildar hef-
ur um skeið unnið ötullega að vel
heppnaðri hátíð. Hjólreiðadagur-
inn er margþættur dagur, en meg-
intilgangurinn er að safna fé til
styrktar lömuðum og fötluðum
börnum og unglingum. Söfnunar-
spjöld eru afhent í skólum, en tím-
inn fram að hjólreiðadegi er síðan
notaður til að leita eftir fjárstuðn-
ingi manna.
Kjöroðið er að venju: „Hjólið í
þágu þeirra sem geta ekki hjólað",
en söfnunarféð verður eins og
undanfarið notað til að flýta mjög
mikilvægu verki. Það er bygging
dvalar- og hvíldarheimilis fatlaðra
barna, í Reykjadal í Mosfellssveit.
Því verki miðar áfram og hefur fé
það vegið þungt, sem skólabörn og
aðrir söfnuðu á hjólreiðadegi und-
anfarin ár. Höldum hraðanum og
tökum þátt í hjólreiðadegi á laug-
ardaginn!
Kvennadeild styrktarfélagsins
fer þess á leit við fólk, og þá ekki
sist aðrar mæður, að það stuðli að
skilningi á málefni hjólreiðadags-
ins.
Frá hjólreiðadeginum á sl. ári.
jgBtm
frd
Wterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
ptor^tmhluhih
dágóöur kostur
DalaPyi^^í^nda9sma,ur'
_ fijótlagaour og
ttir Búhnykksmerkinu
Muridu ettir £ *slar
TlMABÆR