Morgunblaðið - 23.04.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö.
Innflutt
fjölmiölaefni
Vegna umræðna um jafn
sjálfsagðan hlut og
þann, að ríkið afsali sér ein-
okun á innflutningi á tób-
aksvörum, hefur athyglin
beinst að þeirri gamalkunnu
staðreynd, að bannað er að
auglýsa tóbaksvörur hér á
landi. Áður en þetta bann
gekk í gildi fyrir allmörgum
árum mátti oft sjá vindlinga
auglýsta í dagblöðum svo að
ekki sé minnst á slíkar aug-
lýsingar í kvikmyndahúsum.
Menn geta haft ólíkar skoð-
anir á gildi þess að banna
tóbaksauglýsingar í íslensk-
um fjölmiðlum. Flest bendir
til að bannið hafi ekki megn-
að að sporna verulega gegn
notkun tóbaks, hins vegar er
það í samræmi við þá al-
mennu viðleitni að halda
slíkri notkun sem mest í
skefjum.
Rolf Johansen, tóbaks-
innflytjandi, sagði í samtali
við sjónvarpið á dögunum, að
bann við auglýsingum í inn-
lendum fjölmiðlum kæmi
auðvitað við innflytjendur á
tóbaki en bætti því við, að
það væri bót i máli, að tölu-
vert væri flutt hingað af er-
lendum blöðum, þar sem
menn gætu séð tókaksvörur
auglýstar. Þessari staðreynd
mótmælir enginn og vonandi
verður auglýsingafrelsi í út-
löndum ekki til þess að
takmarka innflutningsfrelsi
á blöðum eða vikuritum
hingað til lands.
Mestu skiptir þegar litið er
til innfluttra fjölmiðla, að
þeir hafi upp á eitthvað það
að bjóða sem eykur menn-
ingarlega fjölbreytni hér á
landi eða stuðlar að upplýs-
ingu þjóðarinnar um þau
málefni í stjórnmálum, vís-
indum, viðskiptum eða tækni
er til heilla horfa. Aldrei
verður nægilega oft ítrekað
að einangrun í hvaða mynd
sem hún er hefur reynst ís-
lendingum hættuleg. í því
sambandi má rifja upp ítrek-
uð mótmæli Morgunblaðsins
við þeim hindrunum sem
lagðar voru í götu þeirra er
kaupa bækur beint frá út-
löndum með því að toll-
heimtumenn fengu húsaskjól
í nýju pósthúsi í Reykjavík.
Nýleg könnun sýnir, að á
38% heimila á íslandi eru
myndbandstæki, sem mun
vera heimsmet. Áður hefur
verið leitt getum að því hér á
þessum stað að áhugi íslend-
inga á myndböndum eigi
rætur að rekja til einhæfni í
dagsskrá ríkissjónvarpsins.
Auðvitað er ekki góður ilmur
af öllu því sem unnt er að fá
afnot af hjá myndbandaleig-
um og af sumu efni þar er
beinlínis fnykur.
Frá því var skýrt í Helg-
arpóstinum í síðustu viku, að
Rolf Johansen hafi fengið
umboð „fyrir tvö þekktustu
slúður- og léttmetisblöð
Bandaríkjanna, National
Enquirer og Star, sem hann
hyggst selja í matvöruversl-
unum hérlendis, svo og
myndbandaleigum og hótel-
um.“ Fyrsta sem kemur í
hugann við lestur þessrar
klausu í Helgarpóstinum
með hliðsjón af ummælum
Rolfs í sjónvarpinu er það,
hvort mikið sé um tóbaks-
auglýsingar í þessum banda-
rísku blöðum. Að hinu er svo
einnig að hyggja, að síst af
öllu höfum við þörf á því að
fá þessi bandarísku blöð í ís-
lenskar matvöruverslanir.
Fnykurinn af þeim minnir
helst á sorphaugana, enda
fólst rannsóknablaða-
mennska National Enquirer
í því á sínum tíma að gramsa
í öskutunnunni við heimili
Henrys Kissinger.
Um leið og varað er við
hvers kyns einangrun í þess-
um efnum skal á það minnt,
að innflutningur á fjölmiðla-
efni ætti að vera mönnum
metnaðarmál eins og annað
er þeir taka sér fyrir hendur.
Stundum má efast um að
ríkissjónvarpið hafi nægi-
legan metnað á þessu sviði.
Þegar aðeins er kostur á
einni sjónvarpsrás fer ótrúl-
ega mikið af góðu efni fram
hjá okkur íslendingum. Lík-
lega fáum við til dæmis aldr-
ei tækifæri til að sjá sjón-
varpsþáttinn með Yves
Montand, leikara í Frakk-
landi og fyrrum kommún-
ista, sem í síðustu viku gekk
á hólm við friðarhreyf-
ingarnar meðal annars með
þessum orðum:
„Land eða álfa, sem ekki
er lengur fær um að tryggja
eigin varnir, verður fljótt og
sjálfkrafa öðrum háð. I stað
slagorðanna „Betra er að
vera rauður en dauður", sem
vestur-þýska friðarhreyfing-
in hefur tileinkað sér, kýs ég
fremur að hafa: „Hvorki
rauður né dauður — heldur
frjáls."
Hvað segja þau um niðurstöður Kjaradóms:
Stefán Ólafsson
form. samninga-
nefndar BHMR:
Gerðum
okkur vonir
um allt
að 40%
hækkun
„VIÐ ÁTTUM von á að fá miklu
meira en þetta, ekki síst eftir yfir-
lýsingar frá ríkisstjórninni um að
dagvinnulaun okkar myndu ná
jöfnuði við það, sem gerist á al-
mennum markaði," sagði Stefán
ólafsson, formaður samninga-
nefndar BHMR, í samtali við
blaðamann Mbl. um niðurstöður
kjaradóms frá því á sunnudags-
kvöldið.
„Þetta er afar lítið miðað við
væntingar okkar," sagði hann.
„Við gerðum okkur vonir um að
við fengjum um 40% hækkun því
allir vita að dagvinnulaun hjá rík-
inu eru ekkert annað en grín.
Það er þó mjög þýðingarmikið,
að dómurinn féllst á rök okkar um
dagvinnulaunastefnu, þeirri
stefnu verður fylgt framvegis.
Þeir vilja þó ekki fara alla leið —
telja sig þurfa betri upplýsingar
um launamismun, meiri rann-
sóknir. Við teljum hinsvegar
nægilegar upplýsingar liggja fyrir
um þetta atriði.
Þessi stefna felur í sér að dag-
vinnulaun hækka en draga á úr
eftirvinnu að sama skapi, þannig
að menn fái sömu laun fyrir 40
tíma og þeir fá nú fyrir 50 tíma,
sem er sá tímafjöldi sem ríkis-
starfsmenn í BHM vinna að jafn-
aði í hverri viku. Þetta þarf að
vera næsta skref ekki síst með til-
liti til þess, að í nágrannalöndun-
um keppa menn að því að stytta
raunverulega vinnuviku úr 40
stundum i 35 eða 38. Hér heima
eigum við langa leið fyrir höndum
á því sviði.“
Stefán sagðist hafa orðið var við
mikla reiði og óánægju með niður-
stöðu kjaradóms og kvaðst eiga
von á að sú óánægja myndi brjót-
ast út á næstu dögum. „Það hafa
margir verið í startholunum með
uppsagnarbréf sín og ég á von á að
margir láti verða af því nú að leita
fyrir sér hjá einkafyrirtækjum.
Þetta er að vísu aðeins áfanga-
hækkun en við þurfum að fá um
það mjög skýr svör á næstu dögum
hvert verður næsta skref ríkis-
valdsins," sagði Stefán ólafsson.
Kristján Thor-
lacius formaður
Hins íslenska
kennarafélags:
„Eins og
svartsýn-
ustu menn
bjuggust viÖ“
„ÞETTA var eins og svartsýnustu
menn bjuggust við,“ sagði Krist-
ján Thorlacius, formaður Hins ís-
lenska kennarafélags er hann var
inntur álits á úrskurði kjaradóms,
en launadeild fjármálaráðuneytis-
ins metur það svo að HÍK-félagar
fái að meðaltali 16 til 20% launa-
hækkun með úrskurði kjaradóms.
Kristján sagði jafnframt: „Mað-
ur er ýmsu vanur frá kjaradómi,
en satt að segja, þá hélt ég að
dómurinn myndi nú stíga svolítið
skref í átt til leiðréttingar. Því
bjóst ég við eftir allt sem á undan
var gengið og eftir alla þá vinnu
sem búið var að leggja í sönnun á
þeim mismun sem fyrir hendi er.
Við vorum sannfærð um að við
vorum með eins gott mál og við
gátum fengið fyrir kjaradómi."
Kristján harmaði það að starf
það sem farið hefði fram á vegum
menntamálaráðuneytisins varð-
andi mat á starfi kennarans hefði
verið algjörlega forsmáð af kjara-
dómi. Hann sagði að nú myndu
þeir hjá HÍK knýja á með að
nefnd sú sem stjórnvöld hétu að
sett yrði á laggirnar, með bréfi í
vetur, myndi hefja störf hið
fyrsta. Kristján sagðist ekki búast
við að til fjöldauppsagna kennara
kæmi 1. júní nk. a.m.k. ekki til
skipulagðra. Engu að síður sagðist
hann eiga vona á mörgum upp-
sögnum kennara, og að þeir
myndu mæta treglega til kennslu i
haust.
„Auðna Ágústs-
dóttir, fulltrúi
háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga:
„Kjara-
dómur ýtir
vandanum á
undan sér“
„MÉR finnst sem kjaradómur hafi
valið þá leið að ýta vandanum á
undan sér. Það er verið að hafa að
engu alla þá vinnu sem lögð hefur
verið í að sanna þann mismun sem
á sér stað og það er auðvitað mjög
miður,“ sagði Auðna Ágústsdóttir,
fulltrúi Félags háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga í launamála-
ráði BHM er hún var spurð álits á
úrskurði kjaradóms.
Áuðna sagði að ómögulegt væri
að segja til um hver viðbrögð há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga yrðu við þessum úrskurði.
Ljóst væri að óánægja yrði mikil
með þennan úrskurð, en hjúkrun-
arfræðingar ættu alveg eftir að
ræða til hvaða aðgerða yrði gripið,
eða hvort gripið yrði til einhverra
aðgerða.
Forsendur Kjaradóm
FORSENDUR Kjaradóms fyrir
niðurstöóum sínum í málum
BHM-félaganna 24 voru eins í öllum
málunum. Þar segir í upphafi, að
málið hafi verið þingfest 22. mars
síðastliðinn og dómtekið að loknum
málflutningi sama dag. Síðan segir:
„Hinn 16. febrúar 1985 kvað
Kjaradómur upp dóm um aðal-
kjarasamning i máli launamála-
ráðs ríkisstarfsmanna innan
Bandalags háskólamanna gegn
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóös.
Með þessum dómi var ákveðinn
nýr og breyttur launastigi með
átta þrepum í stað fimm áður,
jafnframt því að starfsaldurs-
hækkanir voru felldar inn í launa-
stigann.
I kjölfar kjaradómsákvörðunar
um aðalkjarasamning hófust við-
ræður á milli hinna einstöku að-
ildarfélaga og fjármálaráðherra
f.h. ríkissjóðs um sérkjarasamn-
inga félaganna. Þær viðræður
báru ekki árangur og var sér-
kjarasamningsmálum hinna 24 fé-
laga vísað til Kjaradóms um miðj-
an mars. Málflutningur um sér-
kjarasamninga fór fram 21.—29.
mars.
Hinn 6. apríl fór fram sérstakur
málflutningur um athugun Þjóð-
hagsstofnunar á launakjörum há-
skólamenntaðra manna á árinu
1983, samkvæmt skattframtölum,
en könnun þessari, sem var gerð
að beiðni samanburðarnefndar
fjármálaráðherra og launamála-
ráðs BHMR, lauk ekki fyrr en eftir
dómtöku málanna.
Launastigi sá sem Kjaradómur
ákvað hinn 16. febrúar 1985 var
með 30 launaflokkum eða frá 126
til 155, en sóknaraðilar hafa með
kröfugerð sinni aukið launaflokk-
um við launastigann, sbr. grein
1.1.2. í aðalkjarasamningi.
Kröfur hinna einstöku félaga
um mánaðarlaun eru á bilinu frá
147. til 168. launaflokks, sem í
krónum talið og miðað við 5. þrep
og 6 ára starfsaldur eru 41.041 til
76.348 kr„ en 46.835 til 87.126 kr.
sé miðað við 8. launaþrep og 18 ára
starfsaldur.
Með sama hætti eru kröfur
varnaraðila þær, að mánaðarlaun
verði ákveðin á bilinu frá 128. til
146. launaflokks eða 23.405 til
39.846 kr. sé miðað við 6 ára
starfsaldur, en 26.709 til 45.471 kr.
sé miðað við 8. þrep og 18 ára
starfsaldur í sðmu launaflokkum.
Samkvæmt hinum nýja launastiga
er mismunur á milli flokka 3%. Á
milli neðri marka kröfugerðar að-
ila munar 19 1. fl. eða um 75%, en
í efri mörkum 22 launaflokkum
eða um 92%.
Af framansögðu er ljóst, að
mjög mikið ber á milli í kröfugerð
málsaðila. Kröfur launamálaráðs
BHMR í aðalkjarasamningsmál-
inu voru um 60—70% hækkun
launastigans, en kröfur hinna ein-
stöku aðildarfélaga nú eru í ýms-
um tilvikum um tvöföldun launa.
II
Sóknaraðilar vísa til þess, að
samkvæmt 21. gr. laga nr. 46/1973
um kjarasamninga opinberra
starfsmanna beri kjaradómi að
gæta þess við úrlausnir sínar, að
ríkisstarfsmenn njóti sambæri-
legra kjara og þeir menn með
svipaða menntun, sérhæfni og
ábyrgð, sem vinna hliðstæð störf
hjá öðrum en ríkinu.
Kröfur um launahækkun byggja
sóknaraðilar á túlkun sinni á
fyrstu áfangaskýrslu samanburð-
arnefndar fjármálaráðherra og
launamálaráðs um rannsókn, sem
gerð var af Hagstofu íslands fyrir
samanburðarnefnd og lögð var
fram í aðalkjarasamningsmálinu.
Sóknaraðilar telja einkum þrjú
félög hafa beina viðmiðun við al-
menna markaðinn, þ.e. félög verk-
fræðinga, tæknifræðinga og við-
skipta- og hagfræðinga. Kjarafé-
lag verkfræðinga byggir kröfur
sínar alfarið á 21. gr. laga nr.
46/1973 og beinni viðmiðun við al-
mennan markað. Taka önnur fé-
lög, sem ekki hafa ytri viðmiðun
við störf utan ríkisgeirans, mið af
þessari kröfu verkfræðinga með
vísan til 1.3.1. i aðalkjarasamningi
um, að gæta skuli innbyrðis sam-
ræmis við röðun í launaflokka. öll
félögin hafa lagt áherslu á að
hlunnindi ríkisstarfsmanna, svo
sem vegna atvinnuöryggis og líf-
eyrissjóðsréttinda, séu ekki um-
talsverð og eigi því ekki að hafa
áhrif til lækkunar á launum fé-
lagsmanna.
Af hálfu varnaraðila er því
haldið fram, að sóknaraðilar mis-
túlki það talnaefni, sem er að
finna í fyrstu áfangaskýrslu sam-
anburðarnefndar, og dragi af því
rangar ályktanir. Telur hann að
munur á launum sambærilegra
hópa háskólamenntaðra starfs-