Morgunblaðið - 23.04.1985, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRH)JUDAGUR 23. APRÍL 1985
íöðru húsinu er rætt um hitt
Hér má sjá hið nýja hús Seðlabanka íslands í horni Arnarhóls, en það hús sem og starfskjör bankastjóra ríkisbankanna hafa verið mjög til umræðu
í fjölmiðlum undanfarið, m.a. í húsinu sem sést til hægri á myndinni, sem hýsir RÚV þangað til það flytur í veglegri „höll“ í nýja miðbænum.
Bankastjórar komu enn við sögu f umræðu á Alþingi í gær, sem ekki lauk, og framhald verður væntanlega nk. miðvikudag, þ.e. á morgun.
Guðmundur Einarsson um starfskjör bankastjóræ
Lítt breytt í bankaráðherra-
tíð allra gömlu flokkana
Baldri Möller ialin úttekt og tillögugerð um framtíðarfyrirkomulag
Starfskjör bankastjóra ríkisbankanna settu svip á störf Alþingis í gær, er
stjórnarfnimvarp um viðskiptabanka kom til framhaldsumræðu í neðri deild
. Gagnrýndu þingmenn stjórnarandstöðu starfskjör bankastjóra ríkisbank-
anna, einkum kaupauka, sem leysir af hólmi fyrri bflafríðindi, sem og
hlunnindi tengd eftirlaunagreiðslum. Það kom fram í þessari gagnrýni að
aðalbankastjórar eru ekki í lífeyrissjóðum viðkomandi bankastarfsfóiks,
greiða ekki iðgjöld til þeirra og skila mun styttri starfsævi til fullra eftir-
launa.
Þingmannafrumvarp:
Lífeyris-
sjóður
sjómanna
Fram hefur verið lagt frumvarp til
laga um breytingu á lögum um Lífeyr-
issjóð sjómanna. Flutningsmenn eru
Pétur Sigurðsson (S), Stefán Guð-
mundsson (F), Garðar Sigurðsson
(Abl.), Karvel Pálmason (A) og Guð-
rún Agnarsdóttir (Kvl.). Meðal efnis-
atriða er:
• Til grundvallar stigútreikningi
skal fyrir hvert almanaksár til árs-
loka 1984 reikna árslaun miðað við
fast dagvinnukaup 52 vikur á ári,
samkvæmt 2. taxta Dagsbrúnar með
fullri starfsaldurshækkun. Frá 1.
janúar 1985 skulu grundvallarlaun
vera 14.100 kr. á mánuði miðað við
þáverandi kauplag. Sjóðstjórn
ákveður, að fenginni umsögn Kjara-
rannsóknanefndar, breytingar á
grundvallarlaunum þessum í sam-
ræmi við breytingar á launum
verkamanna samkvæt kjarasamn-
ingum...
• Hver sjóðfélagi, sem orðinn er
fullra 65 ára að aldri, á rétt á ellilíf-
eyri úr sjóðnum.
• Heimilt er sjóðfélaga að fresta
tðku ellilífeyris til 75 ára aldurs og
hækkar þá upphæð Hfeyris vegna
réttinda sém áunnin vóru fram til
65 ára aldurs um 'k % fyrir hvern
mánuð sem töku hans er frestað
fram yfir 65 ára aldur. Hafi sjóðfé-
lagi öðlast rétt til töku ellilífeyris
frá 60, 61 eða 62 ára aldri, skv. 3.
mgr. 12. gr., hækkar upphæð ellilíf-
eyris vegna réttinda, sem áunnin
vóru fram að þeim tíma, um Vz%
fyrir hvern mánuð sem töku hans er
frestað fram yfir þann aldur.
• Haldi sjóðfélagi áfram að ávinna
sér réttindi eftir að hann hefur haf-
ið töku ellilifeyris skulu stig hans
reiknuð á ný er hann hefur náð 65
ára aldri og síðan aftur við 70 og 75
ára aldur, en reiknað skal með sama
meðaltali launa, sbr. 2. mgr., og gert
var við fyrri úrskurð.
• Andist sjóðfélagi, sem greitt hef-
ur iðgjald til sjóðsins og eöa notið úr
honum örorkulifeyris a.m.k. 6 mán-
uði á undanfarandi 12 mánuðum,
eiga þá börn hans og kjörbörn rétt á
lífeyri úr sjóðnum til 18 ára aldurs.
• Falli iðgjaldagreiðslur niður i
meira en 6 mánuði samfleytt af öðr-
um ástæðum en veikindum eða at-
vinnuleysi telst hlutaðeigandi ekki
lengur til sjóðfélaga.
HALLDÓR BLÖNDAL (S) kvað
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs, sem veitt eru árlega, leggja
þær kvaðir á þátttökuþjóðir, að
ieggja fram tvö skáldverk á þeim
tungum, sem talaðar eru i Dan-
mörku, Noregi eða Svíþjóð.
Halldór taldi Finna hafa sér-
stöðu með tvö ríkismál, finnsku og
sænsku. Færeyingar skrifuðu fær-
eysku og dönsku jöfnum höndum
enn sem komið er. Mál horfðu öðru
visi við íslendingum.
Við hljótum að minna á, sagði
Halldór, að íslenzkan geymir, ein
lifandi mála, elztu skáldverk og
bókmenntir norrænna manna.
Fyrir þá sök ætti metnaður allra
norrænna þjóða að standa til þess
að islenzk tunga sér virt til jafns
við aðrar norrænar tungur, þegar
úthlutun bókmenntaverðlauna
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
(A), Svavar Gestsson (Abl.) og Guð-
mundur Einarsson (BJ) gagnrýndu
einkum óhóflegan kaupauka, kr.
450.000.—, sem aðalbankastjórar
Norðurlandaráðs á i hlut. Skiptir í
því efni ekki máli þó við séum færri
að tölunni til en Danir, Norðmenn
eða Svíar.
Halldór harmaði það að nokkrir
íslenzkir þingmenn hafi vanhugsað
sett fót fyrir það á þingi Norður-
landaráðs, að réttur íslenzkrar
tungu og islenzkra skálda verði að
þessu leyti virtur. Þýðing úr ís-
lenzku yfir á aðrar þjóðtungur sé
vandasöm og skili oftlega ekki því
sem skila þurfi.
PÁLL PÉTURSSON (F) sagði
tillögu þessa óþarfa. Þegar sé
heimilt að leggja fram verk á ís-
lenzku. Hinsvegar hefur venjan
verið sú, eins og Páll komst að orði,
„að verkin hafa verið þýdd á ein-
hverja granntunguna". Núverandi
framkvæmdi hafi auk þess þann
kost að íslenzkar bækur séu á
fengju í stað fyrri bilafriðinda, sem
og fríðindi varðandi lifeyrisgreiðsl-
ur. Aðalbankastjórar Seðlabanka
fengju full eftirlaun eða 90% launa
eftir 12 ára starf sem slikir og aðal-
hverju ári þýddar yfir á annað
Norðurlandamál, „höfundum að
kostnaðarlausu".
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
(Abl.) sagði tvær ástæður liggja til
þess að íslenzkar bækur lagðar
fram í Norðurlandaráði væru
„þýddar á eitthvert hinna norrænu
mála“. í fyrsta lagi til þess að
„dómnefndin eigi auðveldara með
að lesa þær“. f annan stað til þess
að þær séu þá þegar tilbúnar til
útgáfu á Norðurlöndum. Ekkert
bannar viðkomandi höfundum að
leggja verk sín auk þess fram á
ensku, ef þeir kjósa svo að gera.
ÁRNI JOHNSEN (S) kvað hér
um að ræða reisn, rétt og virðingu
íslenzkrar tungu. Hann vitnaði til
greinar ungs rithöfundar, Jakobs
Ásgeirssonar, í Morgunblaðinu, þar
sem hann tiundaði viðhorf Jóns
Sigurðssonar forseta og Grims
Thomsen skálds, sem fyrr á tíð
héldu fram jafnrétti íslenzkrar
tungu gagnvart öðrum Norður-
bankastjórar viðskiptabanka i eigu
ríkisins eftir 15 ár. Hin almenna
regla í þjóðfélaginu væri hinsvegar
að miða við 35 starfsár til fullra
eftirlauna, sem fólk þar að auki
keypti rétt til með ákveðnum ið-
gjöldum í eigin lífeyrissjóði.
GUÐMUNDUR EINARSSON
(BJ) spurði m.a., hvers vegna er Al-
þingi að kjósa bankaráð? Er verið
að búa til fylgsni fyrir „lífskjara-
pot“ og „hákjarabaráttu”? Hvers
vegna gilda ekki sömu Hfeyriskjör
um bankastjóra og aðra starfsmenn
landamálum. Þeir hafi rökstutt sitt
mál með svipuðum hætti og flutn-
ingsmenn þeirrar tillögu, sem nú
væri rædd.
Guðrún Helgadóttir heldur því
fram, sagöi Árni, að íslendingar
hafi fengið nógu mörg verðlaun á
þessum vettvangi. Verðlaunin
skipta ekki öllu máli. Það er staða
okkar sem þjóðar og staða tungu
okkar gagvart öðrum norrænum
þjóðtungum sem skiptir megin-
máli. Árni kvað metnað Páls og
Guðrúnar fyrir hönd móðurmálsins
minni en verðugt væri.
HALLDÓR BLÖNDAL (S)
kvaðst hafa átt á ýmsu von vegna
þessarar tillögu sinnar þegar málið
kom til umræðu á þingi Norður-
landaráðs. Þó ekki orðum eins og
hroki og þjóðremba, þegar það eitt
er lagt til, að hlutur íslenzkrar
tungu sé gerður jafn öðrum þjóð-
tungum á samnorrænum bók-
menntavettvangi.
Fleiri tóku til máls, þó ekki sé
frckar rakið að sinni.
bankanna? Hann taldi fara betur á
því að bankaráðherra skipaði
bankaráð, sem siðan bæru ábyrgð
gagnvart honum. Hlunnindi banka-
stjóra standa rótum langt aftur i
tíma, sagði GE efnislega, og breytt-
ust i raun ekki, þó bilafríðindi væru
reiknuð i kaupauka. Þau hafa verið
þessi í bankaráðherratið manna úr
öllum gömlu flokkunum, hvort
heldur þeir eru nú í stjórnaraðstöðu
eða stjórnarandstöðu.
STEFÁN VALGEIRSSON (F)
sagði friðindi bankastjóra, sem nú
væri deilt um, vera meir en hálfrar
aldar gömul. Þeim hafi að vísu ver-
ið breytt í bankaráðherratið Gylfa
Þ. Gislasonar, formanns Alþýðu-
flokksins, og staðið lengst af siðan,
eins og þá var gengið frá þeim.
Stefán krafðizt þess að frumvarp
um Seðlabanka verði lagt fram áð-
ur en þingnefnd afgreiðir framkom-
ið frumvarp um viðskiptabanka.
Einnig þurfi að liggja fyrir, áður en
nefnd afgreiðir frumvarpið, hvort
og þá hvernig fækka eigi viðskipta-
bönkum.
MATTHÍAS Á. MATHIESEN,
ráðherra bankamála, kvað Alþingi
kjósa bankaráð ríkisbanka. Hug-
myndin að baki þess fyrirkomulags
væri eflaust sú að löggjafinn, sem
setur bönkunum laga- og starfs-
ramma, gæti í gegnum bankaráðin
fylgst með starfsemi ríkisbank-
anna.
Skiptar skoðanir væru hinsvegar
um, hvort bankaráð ættu að hafa
ákvörðunarvald um starfskjör
bankastjóra. Ýmsir héldu því fram
að Kjaradómur ætti þar um að
fjalla eins og kjör ýmissa aðila, sem
sérstöðu hafa í embættiskerfinu.
Hann gat þess að þegar síðast var
ráðinn bankastjóri f Seðlabanka
hafi viðkomandi sezt á bekk með
öðrum starfsmönnum bankans, að
því er Hfeyrisréttindi varðar. Sfðan
gat ráðherra þess að hann hefði fal-
ið Baldri Möller, fyrrum ráðuneyt-
isstjóra, að gera athugun á og meta
starfskjör bankastjóra og fyrir-
komulag þeirra, sem og að gefa
ábendingar um framtíðarfyrir-
komulag.
Umræðu lauk ekki.
Kvöldfundur var ráðgeröur í gær
um frumvarp til lánsfjárlaga, sem
efri deild hefur þegar afgreitt.
Halldór Blöndal í umræðu á Alþingi:
íslensk tunga virt til jafns
yið önnur Norðurlandamál
viö úthlutun bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Halldór Blöndal (S) mælti nýverið fyrir tillögu til áskorunar á ríkisstjórn-
ina, þess efnis, að hún beiti sér fyrir því að íslenzka verði jafnrétthá sænsku,
dönsku og norsku þegar verk eru lögð fram og metin til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs.