Morgunblaðið - 23.04.1985, Side 47
annan hlutann strax og þær komu
út, og þegar hann vissi að bókin
seldist, sendi hann annan skammt
um miðjan desember eða svo, og
fór nærri um hvað duga myndi en
yrði þó ekki mikið um of, því að
það gat orðið bókaútgefendum
dýrt að sölubækur í Reykjavík
lægu óseldar í stöflum úti um
land. Afgerandi röggsemi og hag-
sýni samfara vandvirkni og góðu
skyni á söluefni gerði Skuggsjá
fljótlega að einu af stærstu forlög-
um landsins. Það var engin
skyndilukka í góðum viðgangi
þessa forlags, það byggðist upp
jafnt og þétt af dugnaði og hæfni
útgefandans.
Oliver tók fljótlega að hneigjast
að útgáfu þjóðlegra fræða og
Skuggsjá er það einkaforlag, sem
hin síðari ár hefur mest sinnt
þeim fræðum, gaf út stór verk, svo
sem íslendingasögurnar með nú-
tíma stafsetningu í mjög vandaðri
útgáfu í 9 bindum, Æviskrár sam-
tíðarmanna í 3 bindum, verk Ein-
ars Benediktssonar í 6 bindum,
Einar Jónsson (listaverkabók
ásamt Skoðunum og Minningum),
Kvæði Páls Ólafssonar, Ritsöfn
Benedikts Gröndals og Þorgils
gjallanda, og fjöldann allan af
þjóðlegum fróðleik af ýmsu tagi
og stórum og efnismiklum ævisög-
um.
Það hef ég fyrr nefnt, að fyrsta
bókaskráin frá Oliver Steini hafi
verið með fjórum titlum, en nú eru
á skrá hjá Skuggsjá 260 titlar og
eru þá vitaskuld margir horfnir
útaf skrá og heildar útgáfubæk-
urnar á þessum aldarfjórðungi,
sem Skuggsjá hefur starfað, miklu
fleiri. Það liggur mikið starf að
baki milli þessara tveggja bóka-
skráa. Oliver setti metnað sinn i
að vinna sem mest sjálfur, ásamt
fjölskyldu, að hinni stóru útgáfu
sinni og á forlaginu voru ekki aðr-
ir fastir starfsmenn en þeir feðg-
ar, Jóhannes og Oliver, þótt það
væri orðið með stærstu forlögum
landsins. Jafnframt bókaforlaginu
rak Oliver svo sína stóru bóka-
verzlun í Hafnarfirði.
Bókaútgáfa og bókasala eru
feikilega vinnufrekar verzlunar-
greinar; bókaútgáfan svo vand-
stunduð, að nú er enginn eftir af
öilum þeim fjölda einstaklinga,
sem reyndi fyrir sér í þessari
verzlunargrein á fimmta og sjötta
áratugnum, eða í þann mund sem
Oliver var að byrja sína útgáfu,
nema Arnbjörn í Setbergi og
Valdimar i Iðunni. Þessum ólíku
mönnum þremur var sameiginleg-
ur dugnaður, vinnusemi og útsjón-
arsemi og allir einstakir reglu-
menn í starfi sínu, en það er eitt
hið mikilsverðasta í útgáfustarf-
semi að hafa góðar reiður á öllum
rekstri — og á sama tíma og
þeirra samtímamenn gáfust upp,
hafa þessir allir komizt í álnir. I
engri grein meir en bókaútgáfu
veldur hver á heldur.
Oliver gaf sig allmikið að fé-
lagsmálum. Hann sat í stjórn Fé-
algs íslenskra bókaverzlana
1953—’55, í stjórn Bóksalafélags
tslands (nú Félags íslenzkra bóka-
útgefenda) frá 1959 og formaður
1964—’69 og 1980—’84, í stjórn
Styrktarfélags aldraðra í Hafnar-
firði frá stofnun 1968, f stjórn
Fimleikafélags Hafnarfjarðar um
langt árabil og í fyrstu stjórn
Frjálsíþróttasambands íslands.
Þá var Oliver kjörinn varabæjar-
fulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Hafnarfirði 1970—74 og bæjar-
fulltrúi 1974—78, og var fulltrúi
flokksins í fræðsluráði Hafnar-
fjarðar 1970—78 og í stjórn BÚH
1978. Þrátt fyrir þessi félagsmála-
umsvif efast ég um, að það hafi átt
vel við Oliver að starfa í nefndum
og ráðum, því að hann var mjög
fastur á skoðunum sínum og ósýnt
um að láta af þeim.
Oliver Steinn kvæntist 31. des-
ember 1946 eftirlifandi konu sinni,
Sigríði Þórdísi, dóttur Bergs
Jónssonar bæjarfógeta Jenssonar
yfirdómara Sigurðssonar rektors,
og fyrri konu Bergs, Guðbjargar
Lilju Jónsdóttur verkamanns Er-
lendssonar. Börn þeirra hjóna,
Sigríðar og Olivers eru Guðbjörg
Lilja, gift Sævari Erni Stefáns-
syni, lögreglumanni, Jóhannes
Örn, bókasafnsfræðingur og sam-
verkamaður föður síns og Bergur
MORGUNBLADIP, ÞRIÐJUPAGUR 23. APRÍL 1985
Sigurður, lögmaður, kvæntur Sig-
ríði Ingu Brandsdóttur.
Það er heldur marklítið að gefa
látnum mönnum einkunnir í eftir-
mælum, þær eru háðar mati þess
sem einkunnina gefur og þeim
kynnum, sem hann hefur haft af
þeim látna, en sitt sýnist jafnan
hverjum um náunga sinn. Mitt
mat á þeim, sem hér er mælt eftir,
er af 40 ára kynnum, að hann hafi
verið maður skynsamur, duglegur,
skapmikill og hreingerður og hinn
besti drengur að innræti.
Blessuð sé minning Olivers
Steins og góðar vættir haldi til
með ekkju hans og vandamönnum
og geri þeim mikinn missi bæri-
legan.
Ásgeir Jakobsson
Þegar ég leit inn til Olivers á
heimili hans fyrir nokkrum vikum
héldum við enn í vonina um ein-
hvern bata á erfiðum veikindum
hans. Hann ráðgerði að fara
snemma í sumarbústaðinn og
endurnýja kunningsskapinn við
margan gjöfulan veiðistaðinn við
Þingvallavatn, sem hann þekkti
orðið eins og fingurna á sér. Allt
frá því að hann keypti bústaðinn
hafði hann haldið veiðibók, þar
sem hann skráði af stakri ná-
kvæmni, eins og hans var von og
vísa, allar þær upplýsingar sem
máli skiptu og komið gætu að not-
um síðar: veðurlýsingu, hitastig í
vatninu, tökustað, tegund og
stærð flugunnar o.fl., o.fl. Það var
því ætíð tilhlökkunarefni fyrir
okkur veiðifélaga hans, þegar
ákveðið var að fara til Þingvalla
og heimsækja Oliver og fá að
njóta félagsskapar hans og til-
sagnar við vatnið, en umfram allt
annað að verða aðnjótandi frá-
bærrar gestrisni þeirra hjóna og
hins glaða og góða viðmóts. Þær
sumarferðir verða okkur öllum
eftirminnilegar og ylja hugar-
heimi minninganna. Þessi kvöld-
stund á heimili hans varð þvl til
þess að glæða vonir mínar á ný um
að honum tækist að yfirvinna
sjúkdóminn, þótt ekki væri nema
um stundarsakir. En því miður
reyndist þetta bara draumur,
stund milli stríða. Kannski var
þetta hans aðferð til að telja í
okkur kjark, því eflaust vissi
hann best sjálfur hvað honum leið
og hvert stefndi. Því miður átti
hann ekki afturkvæmt í sitt fagra
umhverfi við vatnið til að sækja
sér líkamlegan þrótt og andlega
vellíðan. Enn einu sinni sannaðist
það spakmæli að „eigi má sköpum
renna".
Oliver Steinn Jóhannesson var
Snæfellingur að ætt og uppruna,
fæddist í Ólafsvík þann 23. maí
1920. Foreldrar hans voru hjónin
Guðbjörg Oliversdóttir og Jóhann-
es Magnússon sjómaður, sem þar
bjuggu. Árið 1933 fluttust þau til
Hafnarfjarðar og þegar Oliver
hafði aldur til innritaðist hann í
Flensborgarskóla og lauk þaðan
gagnfræðaprófi 1936. Síðsumars
það ár reið ógæfan yfir fjölskyld-
una. Faðir hans og bróðir voru
skipverjar á línuveiðaranum
„Erninum" frá Hafnarfirði, sem
það sumar var á síldveiðum fyrir
Norðurlandi, en í norðvestan ill-
viðri, sem gekk yfir norðanvert
land í ágústmánuði, hvarf skipið
með 19 manna áhöfn og kann eng-
inn frá að segja hvernig slysið
vildi til. Það eina sem fannst úr
skipinu voru nótabátarnir, sem
fundust tómir á reki út af Mel-
rakkasléttu. Þessi sorglegi atburð-
ur varð hinum unga sveini þungur
kross. Oliver var vel af Guði
gerður, greindur í besta lagi, og
hafði jafnframt góðar námsgáfur.
Hann hafði ríkan metnað, enda
stóð hugur hans mjög til frekara
náms. Þegar svo var komið högum
fjölskyldu hans var sá draumur úr
sögunni. Nú var ekki um annað að
ræða en að reyna að afla ein-
hverra tekna til heimilisins og um
haustið fór hann að vinna fyrir
sér, fyrst sem sendill hjá Pöntun-
arfélagi verkamanna og síðan var
hann innanbúaðarmaður hjá
KRON, fyrst á Selvogsgötunni í
Hafnarfirði en síðan í Reykjavík.
Árið 1942 söðlar hann um og geng-
ur í þjónustu Bókaverzlunar ísa-
foldarprentsmiðju þar sem hann
starfaði við góðan og vaxandi orð-
stír til ársins 1955, fyrstu tvö árin
sem verzlunarmaður en síðan var
hann ráðinn verzlunarstjóri og því
starfi gegndi hann unz hann réðst
sölustjóri hjá Sameinuðu verk-
smiðjuafgreiðslunni í Reykjavík.
Árið 1957 verða þáttaskil í lífi
Olivers og þau með nokkuð tilvilj-
unarkenndum hætti. Hann var þá
að byggja íbúðarhús í Hafnarfirði
og hafði hug á að skipta um bíl,
sem ekki væri í frásögur færandi,
ef ekki hefði komið fleira til.
Þannig var að hann frétti að
kunnur bóksali hér í bæ, Valdimar
Long, hygðist selja bíl, sem hann
átti. Oliver hringdi til hans og
spurðist fyrir um bílinn. Valdimar
svaraði því til að þetta væri á mis-
skilningi byggt, en hins vegar
hefði hann annað á boðstólum sem
hann vildi gjarnan selja honum.
Þegar Oliver innti hann frekar
eftir því hvað það væri, svaraði
Valdimar að hann vildi selja hon-
um bókabúðina sína. Þetta voru
tildrögin að því að Oliver hóf
rekstur bókaverzlunar í Hafnar-
firði sem hann rak með miklum
myndarbrag allt til dauðadags.
Mér hefur skilist að efnin hafi
ekki verið mikil fyrst í stað, og
fjárhagsáhyggjur miklar, en með
frábærum dugnaði og elju, geysi-
mikilli vinnu, þar sem nótt var
lögð við dag, ef á þurfti að halda,
útsjónarsemi en umfram allt heið-
arleika í viðskiptum við alla menn,
ávann hann sér virðingu og traust
lánardrottna sinna, sem og ann-
arra er hann átti skipti við. Þetta
allt til samans fleytti honum yfir
erfiðasta hjallann og varð til þess
að um 10 árum síðar lagði hann út
í það stórvirki að reisa eitt
stærsta verzlunar- og skrifstofu-
hús bæjarins að Strandgötu 31,
þar sem bókaverzlunin og útgáfu-
fyrirtæki hans, Skuggsjá, fengu
veglegan samastað. Segið svo að
tími ævintýranna sé liðinn.
Þrátt fyrir miklar annir gaf
Oliver sé ætíð tíma til að sinna
félagsmálum. Hann sat í stjórnum
Félags isl. bókaverzlana 1953—
1955 og Félags ísl. bókaútgefenda
frá 1959 þar til á síðasta ári, að
hann baðst lausnar er kraftar
tóku að þverra. í því félagi var
hann formaður stjórnar 1964—1969
og aftur 1980 og þar til hann lét af
störfum í stjórninni. En það var
ekki aðeins á hinu faglega sviði,
sem hann haslaði sér völl í félags-
málum. Oliver bar alltaf mikla
umhyggju fyrir öldruðum sam-
borgurum sínum og þegar Styrkt-
arfélag aldraðra var stofnað hér í
Hafnarfirði árið 1968 var hann
kjörinn í stjórn þess og sat þar æ
síðan. Oliver var í tvígang a.m.k.
fararstjóri, af hálfu félagsins,
fyrir hóp aldraðra Hafnfirðinga er
fóru til sumardvalar að Bifröst í
Borgarfirði. Eru mér minnisstæð
ummæli fullorðinna hjóna um þá
eiginleika Olivers að laða að sér
fólk. Þau sögðust ætíð minnast
þessara samverustunda með mik-
illi geði og þakklæti til þeirra
hjóna, svo mjög hefðu þau gert sér
far um að ferðin yrði fólkinu til
ánægju á allan hátt.
Oliver Steinn var ekki pólitískur
maður í venjulegum skilningi þess
orðs. Hins vegar hafði hann mjög
eindregnar skoðanir á mönnum og
málefnum og fór ekki dult með.
Hann tók þátt í bæjarmálum
Hafnarfjarðar um árabil, var
kjörinn varabæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins árið 1970 og aðal-
fulltrúi í bæjarstjórn var hann á
árunum 1974—1978. í fræðsluráði
Hafnarfjarðar sat hann 1970—1978
og einnig átti hann sæti í stjórn
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar um
tíma. Oliver var einn þeirra
manna, sem bar málefni Hellis-
gerðis fyrir brjósti. Hann var
áhugasamur félagi í Málfunda-
félaginu Magna sem ræktaöi og
rak Hellisgerði og formaður þess á
árunum 1971—1974. Á þessari
þurru upptalningu á margþættum
félagsmálastörfum Olivers, sem
þó eru engan veginn upp talin, má
glöggt sjá, að hann unni sér ekki
mikillar hvíldar um dagana, þegar
það er haft í huga hversu anna-
samt og tímafrekt lífsstarf hans
var. Eigi verður skilist svo við
áhugasvið Olivers að ekki sé
minnst á íþróttirnar, svo ríkan
þátt sem þær áttu í lífi hans.
Sjálfur var hann á yngri árum
landsþekktur afreksmaður i
frjálsum íþróttum og margfaldur
Islandsmeistari og methafi í
mörgum greinum. Hann var skap-
mikill og það kom honum til góða
í harðri keppni svo sem árangur
hans ber bezt vitni um. Oliver var
gæddur ríkri kímnigáfu og var oft
gaman að hlýða á hann, þegar
hann sagði frá ýmsum spaugi-
legum uppákomum á íþróttamót-
um og ekki síst á ferðum íþrótta-
manna innanlands og utan. Þrátt
fyrir kímniblandaðar frásagnir
leyndi sér ekki hve hlýjan hug
hann bar enn til sinna gömlu fé-
laga í íþróttahreyfingunni. Oliver
lét ekki sitja við það eitt að sinna
æfingum og keppni. Hann tók
einnig virkan þátt í uppbyggingu
og stjórnarstörfum í félagi sínu
FH og vann þar mikil og góð störf,
enda átti hann félagi sínu gott að
gjalda því að þar varð uppspretta
gæfu hans í lífinu. Það mun hafa
verið á dansleik, sem félagið efndi
til að hann kynntist fyrst þeirri
konu, sem siðar varð lífsförunaut-
ur hans og styrkasta stoð, Sigríði
Bergsdóttur, dóttur Bergs Jóns-
sonar, bæjarfógeta í Hafnarfirði
og konu hans, Guðbjargar Lilju
Jónsdóttur. Þann 18. apríl sl. voru
liðin nákvæmlega 40 ár frá því að
þau Oliver og Siddý opinberuðu
trúlofun sína, en í hjónaband
gengu þau 31. desember 1946.
Oliver fór ekki leynt með það hann
unni konu sinni heilshugar enda
voru þau einkar samhent í lífinu.
Hygg ég að hann hafi engu ráðið
svo til lykta hvort sem var í at-
vinnurekstri hans eða öðru, að
hann bæri það ekki fyrst undir
hennar dóm. Hún var honum
hvoru tveggja í senn, hollur ráð-
gjafi og góður vinur, enda mat
hann hana mikils. Börn þeirra eru
þrjú: Guðbjörg Lilja, Jóhannes
Örn og Bergur Sigurður og barna-
börnin, augasteinar afa og ömmu,
þegar orðin sex að tölu.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um lífshlaup góðs vinar. Á kveðju-
stund hrannast upp í huganum
Ijúfar minningar um samveru-
stundir við ár og vötn, á einhverj-
um fcgurstu stöðum á jarðríki
þegar vel veiðist: Norðurá í Borg-
arfirði, Þingvellir og Hlíðarvatn í
Selvogi, svo einhverjir séu nefnd-
ir. Þessar minningar verða mér
ómetanlegur fjársjóður.
Frímúrarabræður hans kveðja
nú góðan vin og bróður þakka hon-
um samfylgdina og aílt það, er
hann lét þeim í té fyrr og síðar.
Þeir óska honum fararheilla á
þeim brautum, sem hann nú geng-
ur, sannfærðir um að aðskilnaður-
inn sé aðeins tímabundinn og að
hann muni taka á móti þeim þegar
þeirra stund rennur upp, hvort
sem þess verður langt eður
skammt að bíða. Sigríði og fjöl-
skyldu hans allri sendum við ein-
lægar samúðarkveðjur.
Eggert ísaksson
Þegar mér barst sú fregn að
morgni sl. þriðjudags, að Oliver
Steinn væri látinn, fannst mér svo
ótrúlega stutt síðan við ásamt
fleirum sátum á samningafundum
um bóksölumál, sem hann stjórn-
aði markvisst af sinni alkunnu
festu. Þessum fundum, sem sann-
arlega voru oft erfiðir, lauk eftir
langar viðræður með samkomu-
lagi sem allir máttu vel við una.
Við slíkar aðstæður naut Oliver
sín vel. Hann gat verið harður og
ákveðinn, en beitti sér ekki nema
hann væri þess fullviss að hann
hefði rétt fyrir sér.
Það er vert fyrir okkur sem
fáumst við bókaútgáfu og bóksölu
að minnast þess, að hann vann af
alúð og festu allt sl. ár, þá orðinn
sársjúkur, við að finna lausn á
þeim margvíslegu vandamálum
sem steðjað hafa að íslenskri
bókaútgáfu síðustu fjögur árin. Og
þegar hann hætti störfum sem
formaður Félags ísl. bókaútgef-
enda í haust var kominn grund-
völlur fyrir því að sameina kraft-
ana í þágu bókarinnar, en Oliver
var sífellt að minna menn á að
láta ekki stundarhagsmuni ráða
gerðum sínum, heldur taka mið af
—.......................H4t7
því hvað bókinni væru fyrir bestu
þegar til lengri tíma væri litið.
Þegar ég kynntist Oliver fyrst
var ég að læra prentverk, en hann
byrjaður að fást við bókaútgáfu.
Það vakti strax athygli mína
hversu ákveðinn hann var í öllum
sínum verkum. Okkur þótti hann
stundum full harður við okkur, en
lærðum síðan að meta þann eigin-
leika hans að standa við ákvarð-
anir sínar svo Iengi sem honum
fannst þær réttmætar.
Oliver Steinn Jóhannesson
bókaútgefandi var fæddur 23. maí
1920 í ólafsvík. Foreldar hans “
voru hjónin Jóhannes Magnússon
sjómaður og Guðbjörg Olivers-
dóttir. Oliver lauk gagnfræðaprófi
frá Flensborgarskóla í Hafnar-
firði árið 1936 og stundaði síðan
verslunarstörf hjá KRON í Hafn-
arfirði og Reykjavík á árunum
1936 til 1942 og hjá Bókaverslun "
ísafoldar frá 1942 til 1955, þar af
sem verslunarstjóri frá 1944.
Hann rak eigin bókaverslun í
Hafnarfirði og jafnframt forlagið
Skuggsjá frá 1957 til dauðadags.
Hann var í stjórn Félags ísl. bóka-
verslana 1953—1955, í stjórn
Bóksalafélags íslands, sem nú
heitir Félag ísl. bókaútgefenda,
frá árinu 1959, og formaður þess
1964 til 1969 og aftur 1980 til 1984.
Oliver Steinn kvæntist eftirlif-
andi konu sinni, Sigríði Þórdísi
Bergsdóttur, árið 1946. Börn
þeirra eru: Guðbjörg Lilja, Jó-
hannes Örn og Bergur Sigurður.
Af hálfu bókaútgefenda verður
Olivers Steins ætíð minnst sem H
mikilhæfs forystumanns og
drengskaparmanns. Okkur sem er
vel kunnugt um hvað starf útgef-
andans og bóksalans getur verið
erilsamt reyndist oft erfitt að
skilja hvernig hann komst yfir að
reka umfangsmikið útgáfufyrir-
tæki og glæsilega bókaverslun, og
verja þó svo miklum tíma sem
raun bar vitni í félagsmálastörf
sem snertu margt fleira en bækur
og bókaútgáfu. Við í Félagi ísl.
bókaútgefenda minnumst með —
þakklæti þess sem Oliver Steinn
var okkur og félaginu og sendum
aðstandendum hans hugheilar
samúðarkveðjur á sorgarstund.
F.h. Félags ísl. bókaútgefenda,
Gyjólfur Sigurðsson.
Kveðja frá FH-ingum
Sú sorgarfrétt barst okkur
FH-ingum um miðjan dag þann
15. þ.m. að vinur okkar og heiðurs-
félagi í FH, Oliver Steinn Jóhann-
esson, hefði látist þá um daginn,
löngu fyrir aldur fram, tæplega 65
ára.
Okkur var reyndar ljóst að Oliv-
er hafði átt við veikindi að stríða
um nokkurt skeið, en engan grun-
aði að svo stutt yrði i endalokin,
því ótrúlega stutt er síðan við hitt-
um þennan hressa mann, sem allt-
af var sami glettni og uppörvandi
„strákurinn“ er fylgdist með bar-
áttu félaganna. Þannig var Oliver
sífellt að velta fyrir sér hvað betur
mætti fara í starfi og leik, svo
ungu íþróttamennirnir okkar
mættu ná lengra og árangurinn
yrði erfiðisins virði.
Oliver þekkti stöðu hins unga
íþróttamanns — af eigin raun —
þar sem efnalítill drengur gat ekki
nýtt hæfileika sína til hlítar,
vegna erfiðrar lífsbaráttu, — -
greindur ungur maður, sem ekki
átti þess kost að ganga mennta-
veginn. Þessi lífsreynsla Olivers
Steins kom best fram í löngun
hans til að greiða veg unga fólks-
ins.
Oliver Steinn var ein af stærstu
íþróttastjörnum okkar og sá sem
varpaði fyrst mestum frægðar-
ljóma á nafn FH. í frjálsíþrótta-
feril Olivers eru greyptir margir
íslandsmeistaratitlar, en sérgrein
hans var langstökk. Þar naut sín
hans mikia keppnisskap er hann
geystist einn fram óháður.
Eitt hið eftirminnilegasta úr
íþróttaferli Olivers var er hann í
hópi frækinna íslenzkra frjáls-
íþróttamanna tók þátt í Evrópu-
mótinu í Osló 1946. Það var aðeins
óheppni að sú þátttaka hans varð
ekki gullverðlaunaför, en Oliver
tognaði í úrslitakeppninni og þar
með var draumurinn búinn. Þrátt