Morgunblaðið - 23.04.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
53
Minning:
Erlingur Guðmunds-
son vélvirki
áhrifaríkt hugtak og oröið heild-
sali hafði sumstaðar miður fagran
hljóm. En af raunsæi sínu sá
Þorgrímur fljótt, að einnig á þessu
sviði má vinna þjóðnýtt starf. Þó
að hann skildi vel lögmálin sem
gilda í þeim leik, fannst mér hann
jafnan vilja vinna í þeim anda, að
það kæmi sem flestum að gagni,
sem gert var.
Ég undraðist líka stundum hve
vel honum tókst að gera góðan
hlut sumra, sem aðra hefði e.t.v.
ekki langað til að eiga mikil skipti
við. Hann var fljótur að finna hjá
hverjum einum, hvað sá hafði til
brunns að bera. Ef Þorgrímur réði
væri enginn atvinnulaus. Hvatn-
ingin til að vinna kæmi þá til
manna á annan hátt.
Samstarf okkar Þorgríms var
orðið langt og gott, þegar honum
var nú skyndilega kippt í burtu, ef
svo má að orði komast. Og ekki má
sleppa því alveg að minnast á
lífsskoðanir hér, enda ætti það
ekki að þurfa að vera neitt óleyfi-
legt. Og alveg er það víst að aldrei
gætti neinnar þvingunar frá at-
hafnamanninum Þorgrími gagn-
vart skrifandi manninum Þor-
steini. Hann var ekki þeirrar teg-
undar að vilja fara að framfylgja
„réttiæti almenningsálitsins"
gagnvart einhverjum, sem bregð-
ur frá venju í orði og háttum. Lík-
ari var hann í eðli þeim fornmönn-
um vorum sem lögðu sig í hættu
vegna einhverra, sem ekki áttu
vinsældum að fagna, og var það þá
stundum kallað drengskapur. —
Það kom fyrir stöku sinnum, en
ekki oft, að Þorgrímur vék að
fyrra bragði að því sem ég hef ver-
ið að fást við um ævina. Einu sinni
spurði hann mig nokkurra stað-
góðra spurninga um þau mál
hverrar af annarri, en ég svaraði
jafnharðan. „Ég sé það, að við er-
um þó nokkuð sammála um þessi
efni“ og gat ég ekki kosið mér
betri ályktunarorð. Það var háttur
hans að setja málin fram á þenn-
an hátt. Oll tilgerð og uppstrílun
lá honum fjarri.
En það vil ég nú ætla, að Þor-
grímur sé nú þegar orðinn virkur
og vakandi þátttakandi í fram-
faramannfélagi á öðrum hnetti, en
slík mannfélög hygg ég mjög mörg
til vera. Grónar grafir i görðum
eru eftir þeim skilningi aðeins
minningarmerki.
Þorsteinn Guðjónsson
Fæddur 1. maí 1918
Dáinn 13. april 1985
Þegar samtíðarmenn eru kvadd-
ir á braut leitar hugurinn aftur til
liðinna daga. Þannig var þegar sú
fregn barst að Erlingur á Melum
væri látinn. Þá liðu um hugann
góðar minningar um sómadreng,
sem átti virðingu samferðamanna
sinna.
Það er ekki ætlun mín að fara
að skrifa einhverja ævisögu eða
langa lofgjörð um Erling, slíkt
hefði verið honum á móti skapi,
heldur aöeins að minnast hans í
fáum orðum.
Erlingur bjó á Melum í Mela-
sveit lengst af eða þar til hann brá
búi fyrir u.þ.b. 20 árum og réðst til
íslenskra Aðalverktaka, en hjá
þeim starfaði hann til dauðadags,
fyrst í Hvalfirði en síðan á Kefla-
víkurflugvelli. Hann vann sem
vélvirki og hafði fyrir fáeinum ár-
um fengið réttindi sem slíkur.
Á búskaparárum sínum vann
hann mikið að félagsmálum, sér-
staklega í Ungmennafélaginu
Hauk, en þar var hann m.a. for-
maður um 10 ára skeið. Öll störf
hans fyrir félagið einkenndust af
dugnaöi og áhuga sem aldrei verð-
ur fullþakkað. Sem þakklætis- og
virðingarvott fyrir vel unnin störf
var hann gerður að heiðursfélaga
á 60 ára afmæli félagsins árið
1971. Það segir meira en mörg orð
hug félagsins til Erlings.
Er hann starfaði í Hvalfirði lét
hann verkalýðsmál til sín taka,
var um skeið í stjórn verkalýðsfé-
laginu Herði, Hvalfirði.
Sennilega verður Erlings þó
lengst minnst fyrir annað starf
gjörólíkt félagsmálum. En það var
lagni hans sem dýralæknir. Þær
eru ófáar mjólkurkýrnar sem
hann hefur bjargað um dagana, og
ég veit að sveitungar hans bera til
hans hlýjan hug, fullir þakklætis.
Því að það var alveg sama hvenær
hringt var í Erling, hvort það var
nótt eða dagur, brakandi þurrkur
eða norðan stórhríð, alltaf kom
Elli.
Tryggð Erlings við átthagana
eftir að hann fluttist suður var
mikil, það sýnir að öll þau ár sem
hann starfaði á Keflavíkurflug-
velli kom hann heim nánast um
hverja helgi. Hann hélt góðu sam-
bandi við sveitunga sína og var
aufúsugestur á hverjum bæ.
Erlingur var ókvæntur og
barnlaus en átti marga vini og fé-
laga sem sjá nú á bak honum
langt um aldur fram. Ég veit að ég
mæli fyrir munn sveitunga minna
er ég færi honum þakklæti fyrir
allt það sem hann var sveit sinni
og samferðamönnum.
Við sem í dag kveðjum Erling
Guðmundsson sjáum á bak góðum
vini og félaga, en minningin um
þennan sómadreng lifir.
Blessuð sé minning Erlings á
Melum.
Elinbjörg Magnúsdóttir
Hafnarfjörðun
Verðlaun fyrir skipulag Víðistaðasvæðis
B/EJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
ákvad árið 1982 að efna til hug-
myndasamkeppni um skipuiag Víði-
staðasvæðis. Upphafiega átti þetta
svæði að vera fyrir íþróttastarfsemi
ýmiss konar, en frá því var fallið og
skal það verða opið útivistarsvæði
fyrir almenning. Átta tillögur bárust.
Á fimmtudag var kunngjört um
úrslit keppni þessarar. Fyrstu
verðlaun hlutu Þráinn Hauksson,
Reynir Vilhjálmsson og Ragnheið-
ur Skarphéðinsdóttir, en þau eru
öll landslagsarkitektar, ásamt
Helga Hafliðasyni arkitekt og Sig-
ríði Jóhannsdóttur, tækniteikn-
ara. Dómnefndin samþykkti ein-
róma að veita þeim verðlaunin og
var tekið fram í úrskurði nefndar-
innar að heildarmynd svæðisins
væri sérlega góð í tillögu þeirra.
1 dómnefnd voru þrír fulltrúar
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, þeir
Sigþór Jóhannesson verkfræðing-
ur, sem var formaður hennar,
Snorri Jónsson fulltrúi og Bjarni
Snæbjörnsson arkitekt. Einn full-
trúi Pélags íslenskra arkitekta
átti sæti f nefndinni, Gunnar
Óskarsson, og loks átti þar sæti
landslagsarkitektinn Einar E.
Sæmundsen.
MorgunbladiA/Bjarni
Verðlaunahafar í samkeppni Hafnarfjarðarbæjar um skipulag Víðistaðasvæðis. Yst til vinstri er Sigríður Jóhannsdótt-
ir tækniteiknari, þá Ragnheiður Skarphéðinsdóttir landslagsarkitekt, Helgi Hafliðason arkitekt, Þráinn Hauksson og
Reynir Vilhjálmsson, en þeir eru báðir landslagsarkitektar. Yst til hægri er bæjarstjórinn i Hafnarfírði, Einar I.
HaUdórsson.
hefur aldrei staðió betur
Daihatsu Charade hefur létt mörg þúsund íslendingum lífiö sökum ótrúlegrar sparneytni og
alhliöa lægsta reksturskostnaöar ásamt hæsta endursöluveröi.
Á tímum þrenginga og erfiöleika hjá heimilum er Charade öflugt vopn gegn lífskjaraskerð-
Landsþekkt gæði og þjónusta tryggja endursöluna.
329.3°0’ ót„og
«minn4-Œ
um bensintanw
tuH-
Daihatsu-umboðið
Ármúla 23, sími 685870 • 81733
■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■