Morgunblaðið - 23.04.1985, Side 54
54
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Um 220 spiUrar tóku þátt I keppninni.
Undankeppni í bridge:
Magnús Ólafsson og Jónas P.
Erlingsson sigurvegarar
________Bridge
Arnór Ragnarsson
Magnús Ólafsson og Jónas P.
Erlingsson sigruðu nokkuð óvænt í
undankeppni íslandsmótsins í
tvímenningi sem fram fór um helg-
ina. Gífurlegur fjöldi, eða um 220
manns, tók þátt í keppninni sem
var spiluð í þremur lotum, 30 spil í
bverri lotu. Magnús og Jónas voru
meðal efstu para eftir tvær fyrstu
loturnar og skoruðu mjög vel í síð-
ustu lotunni og sigurinn var þeirra.
Mótið fór fram í Tónabæ. Þar var
spilað á allri efri hæðinni þar sem
hægt var að koma fyrir borðum.
Flest pörin sem spila til úr-
slita eru frá Bridgefélagi
Reykjavíkur og aðeins örfá utan
af landi. Bræðurnir Vilhjálmur
Sigurðsson og Þráinn Sigurðs-
son, elsta par mótsins, stóðu vel
fyrir sínu í keppninni og urðu í
14. sæti. Þá urðu Akureyr-
ingarnir Frímann Frímannsson
og Páll Pálsson i 20. sæti og
kostar þá væntanlega aðra bæj-
arferð. Selfyssingarnir Sigfús
Þórðarson og Vilhjálmur Páls-
son urðu í 24. sæti.
Ef nefna á eitthvert par sem
ekki komst í úrslit sem þar á
heima má nefna Hörð Arnþórs-
son og Jón Hjaltason, en þeir eru
1. varapar.
Mótið gekk snurðulaust fyrir
sig undir öruggri stjórn ólafs
Lárussonar, keppnisstjórans
Agnars Jörgenssonar, Björns
Theodórssonar forseta BSl og
fleiri góðra manna.
Pörin sem spila í úrslita-
keppninni:
Magnús Ólafsson
— Jónas P. Erlingsson 772
Guðlaugur R. Jóhannsson
— Örn Arnþórsson 762
Jón Baldursson
— Sigurður Sverrisson 756
Guðbrandur Sigurbergsson
— Ásgeir P. Ásbjörnsson 750
Rúnar Magnússon
— Stefán Pálsson 748
Guðmundur Páll Arnarson
— Þórarinn Sigþórsson 743
Jón Þorvarðarson
— Þórir Sigursteinsson 741
Valur Sigurðsson
— Aðalsteinn Jörgensen 737
Anton R. Gunnarsson
— Friðjón Þórðarson 736
Óli Már Guðmundsson
— Hermann Lárusson 735
Páll Valdimarsson
— Sigtryggur Sigurðsson 733
Jón Ásbjörnsson
— Símon Símonarson 726
Ásmundur Pálsson
— Karl Sigurhjartarson 720
Vilhjálmur Sigurðsson
— Þráinn Sigurðsson 715
Jón Páll Sigurjónsson
— Sigfús örn Árnason 713
Magnús Aspelund
— Steingrímur Jónasson 703
Björn Eysteinsson
— Guðmundur Sv. Hermannss. 701
Hrólfur Hjaltason
— Oddur Hjaltason 696
Kristján Blöndal
— Sverrir Kristinsson 692
Frímann Frímannsson
— Páll Pálsson 691
Geirarður Geirarðsson
— Sigfús Sigurhjartarson 690
Jóhann Jóhannsson
— Kristján Sigurgeirsson 690
Friðjón Margeirsson
— Valdimar Sveinsson 685
Sigfús Þórðarson
— Vilhjálmur Pálsson 684
Varapör:
Hörður Arnþórsson
— Jón Hjaltason 680
Ármann J. Lárusson
— Sigurður Sigurjónsson 680
Hallgrimur Hallgrímsson
— Sigmundur Stefánsson 678
Úrslitakeppnin fer svo fram á
Hótel Loftleiðum dagana 4.-5.
maí. Þá verður spilaður baro-
meter 5 spil milli para. Núver-
andi íslandsmeistarar eru Jón
Baldursson og Hörður Blöndal.
Yngri spilararnir stóðu sig með
miklum ágætura.
Að eignast þak
yfír höfuðið
— eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
1. Ráðgjafarþjónusta
Áð mínu áliti ætti ríkið eða
Húsnæðisstofnun ríkisins að
koma á fót ráðgjafarþjónustu.
Veit ég vel að Húsnæðisstofnun
veitir ráðgjafarþjónustu þeim sem
komnir eru í þann vanda að erfitt
er að komast út úr honum. Áð
mínu áliti á að bjóða upp á ráðgjöf
eða aðstoð áður en kaupsamning-
ur er gerður eða rétt eftir að hann
er gerður, þ.e.a.s. áður en kaupin
eru gerð, og svo áður en greiðsl-
urnar á fyrsta árinu fara fram. Að
sjálfsögðu verður fólk að bera sig
eftir þessari þjónustu sjálft. Ég er
viss um að það yrði gert ef þjón-
ustan væri auglýst. Ef möguleiki
er á að leiðbeina fólki með þessi
mál áður en allt er komið í vitl-
eysu tel ég að vandamálin yrðu
ekki eins stórvægileg og þau eru
nú. t annað eins fer nú skatt-
peningur almennings að ekki sé
hægt að halda úti örfáum
mönnum til að veita ráðgjöf þeim
sem vilja eignast þak yfir höfuðið.
Þessi ráðgjöf eða aðstoð yrði vel
þegin af flestum. Það er of seint
að veita ráðgjöf þegar allt er kom-
ið í óefni og reyna einungis að
telja mönnum trú um að þeir hafi
byggt of stórt eða keypt of dýrar
íbúðir. Hjálp verður að bjóða tail
að fyrirbyggja að vandræðin verði
að veruleika.
2. Ríkisvaldið standi
við sitt
Húsnæðisstofnun ríkisin hefur
ekki getað staðið við skuldbind-
ingar sínar vegna þess að 185
milljónir vantaði inn í kerfið. En
skyndilega eins og hendi væri veif-
að finnur okkar hæstvirti
fjármálaráðherra, Albert Guð-
mundsson, 150 milljónir og þar
með var Byggung (tengdasyni
fjármálaráðherra) og öðrum sem
von áttu á láni frá rikinu bjargað
fyrir horn, þó seint hafi verið.
Hefði ekki verið eðlilegra að
láta þetta fjármagn streyma inn i
kerfið eins og lög gera ráð fyrir,
þ.e.a.s. jafnóðum. Ljóst er að ríkis-
sjóður stendur illa, en ég held að
það hafi vel verið hægt að láta
þetta fjármagn streyma jafnóðum
inn í kerfið, það hefði verið mun
eðlilegra og þá hefðu íbúðakaup-
endur og húsbyggjendur sloppið
við þau óþægindi sem biðinni eftir
lánunum fylgdi. Það finnur enginn
skyndilega 150 milljónir, ekki einu
sinni sá hæfi maður Albert vinur
minn Guðmundsson.
Minnstu íbúðir kosta i dag varla
undir einni og hálfri milljón og
fátt ungt fólk á undir kodda sínum
þá upphæð, en samt þarf þetta
sama unga fólk að eignast þak yfir
höfuðið. Þess vegna fer það til
traustra manna, vina og stofnana
og biður um lán. (Viðráðanleg
lán.) Einn þessara aðila sem lofar
láni er okkar elskulega ríki. En
hvað gerist. Fyrstu svikin eru þau
að sjálft rikisvaldið stendur ekki
við sitt. Það sem rikisvaldið hafði
lofað að lána er oft stærsta lánið
sem íbúðarkaupandinn eða hús-
byggjandinn fær á einum og sama
staðnum. Þess vegna verða þessi
svik reiðarslag fyrir þá sem von
áttu á láninu.
Á meðan þeir sem setja lög og
reglur í þjóðfélaginu geta ekki
staðið við loforð sin, þá geta þessir
sömu menn og konur aldrei búist
við að þegnar þeirra geri það.
Nýjar leiðir
Það hljóta að vera til fleiri fær-
ar leiðir til að auðvelda lánsgetu
Húsnæðisstofnunar rikisins en
þær sem nú eru farnar. Hvernig
Sigurbjörn Þorkelsson
„Það hljóta að vera til
fleiri færar leiðir til að
auðvelda lánsgetu Hús-
næðisstofnunar ríkisins
en þær, sem nú eru
farnar.“
væri að stofna til hugmyndabanka
um þetta málefni?
Ég læt mér nægja að nefna eina
auðvelda leið sem ég held að
mætti athuga. Sú leið sem ég hef í
huga er landshappdrætti, líkt
happdrætti Háskóla íslands. Það
yrði dregið einu sinni í mánuði um
skattfrjálsa vinninga að sjálf-
sögðu og helst yrði spilað um
beinharða peninga. Ég tel það
mun vinsælla en annað. Með þessu
gæfist einstaklingum kostur á að
styðja við bakið á þeim sem eign-
ast þurfa þak yfir höfuðið, og
þarna geta þeir heppnu unnið
góða aukasummu sem væri vel
þegið hjá allflestum. Ég er viss um
að ekki myndu færri taka þátt í
þessu happdrætti en í happdrætti
Háskóla fslands og ég tel einnig
víst að ekki muni happdrætti há-
skólans eða önnur lík happdrætti
bíða tjón af. Ég er ekki svo vel að
mér að vita hversu háskólinn fær
mikið út úr sínu happdrætti en ef
happdrætti Húsnæðisstofnunar
ríkisins yrði að veruleika myndi
það alla vega auðvelda Húsnæð-
isstofnun eða ríkissjóði að standa
við loforð sín.
Kæru ráðamenn! Reynið að leita
eftir nýjum fjáröflunarleiðum
fyrir Húsnæðisstofnun ríkisins
því það er ekkert grín að vera
svikinn um lán frá ykkur og bfða i
óvissu í nokkra mánuði.
Sigurbjörn Þorkelsson i sætí í
stjórn Heimdallar, félagi ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, og
rinnur rið heildrerslun Guðmund-
ar Arasonar.