Morgunblaðið - 23.04.1985, Side 69
69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 23. APRÍL 1985
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldason
í flokki óbreyttra bfla, sem eru eins og þeir koma frá
verksmiðju, sigruðu Ævar Sigdórsson og Ægir Ár-
mannsson á Subaru 1600, eftir grimman akstur fyrri
dag keppninnar þar sem þeir náðu afgerandi forystu.
Búið spil. Brotinn framdempari endaði möguleika
Bjarma Sigurgarðarssonar og Birgis Viðars Halldórs-
sonar á kraftmesta keppnisbflnum. Félagar úr Hjálpar-
sveit skáta eru hér komnir til aðstoðar, en þeir óku á
eftir bflunum sem eftirfarar.
Ómar og Jón unnu rall
BÍKR og Skeljungs
„ÉG VAR í góðu stuði fyrri daginn
og náði mér vel á strik. Ég var því
vongóður um að halda forystu síðari
daginn, en engu að síður er þetta
óvæntasti sigur sem ég hef unnið,“
sagði Ómar Ragnarsson, sem ásamt
Jóni bróður vann sína átjándu
keppni í rallakstri um helgina. Unnu
þeir á sannfærandi hátt 10 ára Af-
mælisrall BÍKR og Skeljungs hf. á
.Toyota Corolla 1600. í öðru sæti eft-
ir að hafa sýnt mikla akstursleikni
og djarfan akstur urðu Birgir Braga-
son og Gestur Friðjónsson á gamalli
Toyota Corolla, sem flestir áttu von
á að ienti í einhverju af botnsætun-
um. Ásgeir Sigurðsson og Pétur Júlf-
usson á Escort 2000 urðu þriðju, en
þeir óku geysivel eftir óhapp í byrjun
rallsins.
Rallið hófst á föstudagskvöld og
lögðu nítján keppendur af stað frá
bensfnstöð Skeljungs f Oskjuhlfð.
Strax á annarri leið bilaði gfrkassi
í Toyota fyrrum íslandsmeistara,
Halldórs Ulfarssonar og Hjörleifs
Hilmarssonar, og voru þeir úr
leik. Það var því undir Ómari
komið að halda merki Toyota á
lofti og það gerði hann svo sann-
arlega og jafnframt nokkuð
óvænt. Er keppendur komu f næt-
urhlé á föstudagskvöld hafði
ómar náð tæplega mínútu for-
ystu, og enn óvæntara var að Birg-
ir Bragason var f öðru sæti á Toy-
ota, sem talinn hafði verið gat-
slitinn og vélarvana. Bjarmi Sig-
urgarðarsson og Birgir Viðar
Halldórsson á kraftmesta bflnum,
240 hestafla Talbot, voru sfðan
þriðju. Var búist við hörkuakstri
frá þeim seinni daginn. En hann
stóð þó ekki lengi, því framdemp-
ari gaf sig hjá þeim á Reykjanes-
leið á laugardagsmorgun og var
bilunin rakin til of stffrar still-
ingar á framfjöðruninni.
Omar var því með þægilega
stöðu á toppnum, Birgir stóð vel
að vfgi í öðru sætinu, en hörku-
keppni var um það þriðja og hefur
líklega aldrei verið jafnspennandi
keppni um verðlaunasæti í rall-
keppni hérlendis. Fóru leikar
þannig að efstu sætin héldust
óbreytt en Ásgeir og Pétur á Es-
cort nældu í þriðja sæti. Höfðu
þeir þá unnið upp timatap vegna
bilunar á fyrstu leið keppninnar,
með góðum akstri. Þórhallur
Kristjánsson og Sigurður Jensson
á Talbot komu á eftir þeim en voru
aðeins fjórum sekúndum á undan
Eiríki Friðrikssyni og Þráni
Sverrissyni á Escort. Þessar
áhafnir kepptu grimmilega um
fjórða sætið. Á tveim þeim síðustu
sérstaklega, en á þeirri fyrri vorú
,Jæja gamli minn, þá er að komast ofan af bflþakinu ..." Ómar Ragnars-
son gantast viö Jón bróöur eftir aö hafa fagnað sigri 1 átjánda skipti f
rallkeppni. Þeir hafa sjaldan unniö jafnsannfærandi sigur.
Þórhallur og Eiríkur jafnfljótir að
aka bílum sfnum, en sá sfðar-
nefndi var tveim sekúndum fljót-
ari á síðari leiðinni, en það nægði
ekki.
I flokki óbreyttra bíla sigraði
Ævar Sigdórsson ásamt Ægi
Ármannssyni á Subaru 1600, en
þrír bílar kepptu í þessum flokki,
sem er fyrir bíla sem ekki eru
sérsmíðaðir fyrir rallakstur. Eru
þeir eins og venjulegir bílar, en
með nauðsynlegum öryggistækj-
um. Er meiningin að gera mikið úr
þessum flokki í sumar, en mun
ódýrara er að keppa á honum en á
sérútbúnum keppnisbíl. Það hefur
aldrei jafnmörgum tekist að ljúka
rallkeppni hérlendis og f afmæl-
israllinu miðað við fjölda kepp-
enda, en 15 af 19 komust f mark.
Eru það að vissu leyti tfmamót,
því það sýnir að rallökumenn eru
nánast hættir að koma með illa
undirbúna bíla, sem hrynja fljót-
lega úr keppni. Er þvf von á jafn-
ari keppni í rallakstri en áður og
harðri Islandsmeistarakeppni.
„Islenska
kartaflan
leynirá sér“
íslenska kartaflan er meira en meðlæti.
Hún er eitthvert besta hráefni sem völ
er á og fullgild uppistaða í vandaðri
máltíð, ódýr, holl og ljúffeng. Matreiðsla
úr íslenskum kartöflum kostar þig litla
fyrirhöfn en árangurinn kemur skemmti-
lega á óvart, hvort sem stefnan er sett á
einfaldan hversdagsmat, þríréttaða
veislu eðafrísklegaskyndirétti. Hver
kartöflumáltíð er full af mikilvægum
næringarefnum og er auk þess fyrsta
flokks megrunarfæða.
Kyiuttu þér nýju kartöOuleiðina
CGixenmetisverslun
I landbúnaðaríns
f
Síðumúla 34 — Sími 81600
Kartöflugratin m/karríbeikoni fyrir 4-5
• 500 g kartöflur • 150 g spergilkál • 1 stk. laukur • 150 g beikon • 3A tsk.
salt • örl. pipar • Vi tsk. karrí • 2 egg
Skerið kartöflurnar og rífið á rifjárni. Sjóðið spergilkálið í saltvatni í 3-5 mín.,
skerið það niður, saxið laukinn. Skerið beikonið og steikið það á pönnu ásamt
karríi. Smyrjið eldfast mót, blandið saman grænmeti og beikoni, allt sett í
mótið. Þeytið saman egg, salt og pipar . Hellið eggjunum yfir grænmetið. Bakað
neðst í ofni við 200°C í 30 mín. Borið fram sem sjálfstæður réttur með grófu
brauði.
Islenskar kartöflur eru auðugar af C-v(tamlnl, einkum ef þeirra er neytt með hýðinu. Þær innlhalda einnig B, og B^ vttamfn, niasfn, kalk, jám, eggjahvftuefni og trefjaefni. f 100 grömmum af íslenskum kartðflum eru aðeins 78 hitaeinmgar. Til viðmiðunar má nefna að í 100 g af soðinni ýsu eru 105 he, kotasælu 110, soðnurp eggjum 163, kjúklingum 170, nauta- hakki 268 og f hrökkbrauði 307.