Morgunblaðið - 23.04.1985, Síða 71
MORGUNBLAÐID, ÞRIDJUDAGUR 23. APRÍL 1985
-IL
Engin leið að ná til allra
barna nema með skipulögð-
um skólatannlækningum
— segir Inga B. Arnadóttir, tannlæknir
Alþýðuleikhúsið:
Sýnir „A State
of Affairs" í
„TIL AÐ bæta tannhfilsu hjá
heilli þjóA þarf að beita margs
konar ráðum samtímis, sem varða
m.a. samsetningu fæðunnar og
neyslutíðni, tannhirðu, skipulagt
tanneftirlit og mismunandi flú-
ormeðferðir,“ sagði Inga B. Árna-
dóttir tannlæknir í samtali við
Morgunblaðið.
Eins og kom fram í viðtali við
Magnús R. Gíslason yfirtann-
lækni í Morgunblaðinu á þriðju-
dag eru tannskemmdir mun al-
gengari hér á landi en í ná-
grannalöndum okkar. Inga nam
tannlækningar í Danmörku og
þar kynntist hún aðferðum
heimamanna við að sporna gegn
tannskemmdum.
„Við stöndum nú í sömu spor-
um og Danir voru í árið 1970,“
sagði Inga. „Þá sáu þeir að við
svo búið mátti ekki sitja og
Reykhólar.
Stuðningur
við yfirtöku
heimamanna
á Þörunga-
vinnslunni
MiAhúaim. RejkhóhuTeit, 22. april.
RÁÐHERRARNIR Sverrir Her-
mannsson og Matthías Bjarnason
komu í morgun til fundar við heima-
menn um rekstur Þörungavinnsl-
unnar á Reykhólum. Skiptust menn
á skoðunum um framtíð fyrirtækis-
ins og fékk Sverrir stuðning fund-
armanna til að fela heimamönnum
rekstur Þörungavinnslunnar.
Með ráðherrunum voru Vil-
hjálmur Lúðvíksson, stjórnarfor-
maður Þörungavinnslunnar,
Vilhjálmur Egilsson, hagfræðing-
ur og Hermann Sveinbjörnsson í
iðnaðarráðuneytinu. Aðalmál
fundarins var ósk iðnaðarráð-
herra um stuðning fundarmanna
við frumvarp um yfirtöku heima-
manna á rekstri Þörungavinnsl-
unnar.
Sverrir reifaði málið og gerði
heimafólki grein fyrir stöðu þess.
Skýrði hann frá þeim þremur
valkostum sem um er að ræða hjá
Þörungavinnslunni. Þeir eru að
heimafólk kaupi fyrirtækið, um
fyrirtækið verði gerður kaupleigu-
samningur eða að fyrirtækið verði
lýst gjaldþrota og starfsemi þess
hætt. Sagði Sverrir að áframhald-
andi rekstur ríkisins á fyrirtæk-
inu væri ekki á dagskrá.
Umræður urðu nokkrar og
margar fyrirspurnir gerðar, bæði
til Sverris og Matthíasar. Vil-
hjálmur Lúðvíksson ræddi þá
möguleika sem fyrir hendi eru og
Vilhjálmur Egilsson lýsti þeirri
skoðun sinni að Þörungavinnslan
gæti skilað arði í höndum heima-
manna, ef vel væri á málum hald-
ið.
Pólk hér gerir sér fulla grein
fyrir því að Þörungavinnslan er
undirstaða byggðar hér. Lokun
verksmiðjunnar yrði dauðadómur
fyrir byggðina og hefði í för með
sér gjaldþrot fjölda fólks. 1 lok
fundarins var samþykkt ályktun
þess efnis að Sverrir er gefið
grænt ljós á að setja fyrirtækið í
hendur heimamanna. Fundurinn
var fjölsóttur, hann sátu um 80
manns.
ákváðu að byggja upp skóla-
tannlækningakerfi. Nú eiga öll
börn í grunnskólum kost á
ókeypis tannlæknaþjónustu og
tannlæknar eru ábyrgir fyrir
því að börn undir þeirra umsjá
komi reglulega til skoðunar.
Hér á landi er fólki hins vegar í
sjálfsvald sett hvort börn fara
reglulega til tannlæknis og því
miður gæta sumir foreldrar
þess ekki að svo sé. Til barna
þeirra verður því ekki náð nema
með skipulögðum skólatann-
lækningum."
Inga sagði það stóran kost við
skólatannlækningar, að hægt
væri að virkja á skipulagðan
hátt alla þá sem börnin um-
gangast mest. „Það verður að fá
kennara og foreldra til að taka
þátt í fræðslu um tannhirðu og
mataræði, því það segir sig
sjálft að þegar börn koma til
tannlæknis, e.t.v. einu sinni á
ári, þá verða aðrir að hvetja þau
til að hugsa um tennurnar."
Að sögn Ingu er almenningur
hér á landi ekki meðvitaður um
tannhirðu. „Það er ekki nóg að
þrífa tennurnar heldur verður
að huga að mataræði. Árið 1981
neytti hver íslendingur t.d. 15
kílóum meira af sykri á ári
heldur en Norðmaður gerði og
drakk 78,1 lítra af gosdrykkjum,
en Norðmaðurinn 59 lítra.“
Nú er ekkert sem hvetur
skólatannlækna til fyrirbyggj-
andi aðgerða gegn tann-
skemmdum, að áliti Ingu. „Því
verður að breyta, það verður að
ráðast að rót vandans. Það
gengur ekki að halda sífellt
áfram að gera við tennur sem
skemmast, heldur verður að
koma í veg fyrir að þær skemm-
ist svo ört. Foreldrar, kennarar
\
\fl
og skólatannlæknar verða að
leggjast á eitt um að fræða börn
um gildi tannhirðu. í vetur hafa
tvisvar sinnum verið svokallað-
ir tannverndardagar, sem ættu
að örva fólk til umhugsunar, en
það er langt frá að nóg sé að
gert. Það er engin leið að ná til
allra barna nema með skipu-
lögðum skólatannlækningum.
Nú er skólatannlæknakerfi
hvergi á landinu nema í Reykja-
vík, en það verður að breytast,"
sagði Inga B. Árnadóttir að lok-
um.
á Hótel Borg
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ hefur tekið
til sfinga leikritið „A State of Af-
fairs“ eftir Graham Swannell.
Þetta er enskur gamanleikur
með alvarlegum undirtónum, eins
og segir í frétt frá Alþýðuleikhús-
inu. Verkið skiptist í þrjá einþátt-
unga sem hver um sig greinir frá
samskiptum kynjanna innan og
utan hjónabandsins.
Leikritið var frumsýnt í Lyric
Theatre í London í febrúar sl. og
hefur það hlotið góðar viðtökur.
Þýðandi er Sverrir Hólmarsson
og leikstjóri er Kristbjörg Kjeld.
Leikarar í sýningunni eru þau
Arnar Jónsson, Helga Jónsdóttir
og Margrét Ákadóttir.
Ráðgert er að sýningar hefjist í
byrjun júní og verður sýnt í Gyllta
salnum á Hótel Borg.
fs' Við opnum ámoigun!
Undanáirin >S ár höium \iö scll glæsilcg matar- og kaliistcll ou vandaöar gjafavörur
úr postulíni og kristal Ira ROSFNTHAI. í \crslun okkar viö Laugavcg. Við höfum cinnig
liaft a boöstolum hnífapor og kristalsvörur Ira oöru þekklu v-þvsku fvrirtæki, WMF.
Vcgna þcss hvc vcrslun okkar \iö Laugavcg cr þröngur stakkur skorinn höfum \iö ckki
gctaö gcrt vörum WMF nægilcga göö skil. En nu bætum viö um bctur, stóraukum
voruúrva'iö. og opnum nyja vcrslun í AUSTURVFRI mcö vandaöan boröbúnaö.
búsáhöld og gjafavörur frá WMF.
Viö bjööum viöskiptavini okkar vclkomirti til aö skoöa vöruúrvaliö í nvju
vcrsluninni og vonum aö þcir finni þar margt viö hæfi - til gjafa jafnt scm til cigin nota
- á matboröiö og i cldhúsiö.
I tilcfni opiuinarinnai hcfur VVMF boöiö okkur aö sclja mtirga falicga niuni á
scrstöku kynningarvcröi. t.d. kristalskaröflur. pottasctt. hitakönnur o.ll.. scm viöscljum
mcöan biraöir cndast. VcriA vdkomin.
■> , r'-'i
■ '*A
iii'
^ -
qi
» ...-
J 'iví
K -i '■ • l
IJ !f \
■■ '21 I ■
studiohúsið
AUSTURVERI • SÍM! 31555 S
^ I il samraniis
S xtlnm \ iá úanncgis
að kalla wrslmúna \iö
/ lal,^"r ^
studiohúsið
A EINARSSON & FUNK
— Sveinn.